Þjóðviljinn - 24.02.1974, Síða 6

Þjóðviljinn - 24.02.1974, Síða 6
6 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 24. febrúar 1974. MOWIUINN MáLGAGN S6SIALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans • Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Eysteinn Þorvaldsson, Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverö kr. 360.00 á mánuöi Lausasöluverö kr. 22.00 Prentun: Blaöaprent h.f. VÍÐTÆKT VERKFALL SKOLLIÐ Á Á miðnætti i fyrrinótt hófst verkfall nær 100 verkalýðsfélaga viðs vegar um landið. Er hér um að ræða eitt viðtækasta verk- fall, sem um getur hér á landi og mun allt atvinnulif landsmanna lamast, þegar i stað, nema á þeim tiltölulega fáu stöðum, þar sem verkfall hefur ekki verið boðað. Samningar hafa staðið yfir á fimmta mánuð, og lengi vel virtist litið miða. Fyrir stuttu tókst þó samkomulag i þeim málaflokkum, þar sem verkalýðs- hreyfingin beindi kröfum sinum að rikis- valdinu, en hins vegar hefur ekki tekist að ljúka samningum við atvinnurekendur um sjálf kaupgjaldsmálin og hinar ýmsu sér- kröfur félaganna. Óvist er, hvort tekst að ljúka samningum nú, en segja má, að á mánudagsmorgun fái verkfallið fullan þunga, verði það ekki leyst. Allnokkuð hefur miðað i áttina siðustu daga, en það eru ekki hvað sist ýmsar sér- skröfur, sem erfitt hefur reynst að leysa, svo sem krafan um kauptryggingu verka- fólks. Atvinnurekendur hafa hins vegar samþykkt tillögu sáttanefndar, sem fól i sér, að almenn meðaltals hækkun vegna taxtatilfærslu hjá almennu verkalýðs- félögunum yrði 5,6% og ofan á það kæmi 10-11% hækkun nú þegar hjá lægri hópunum, en þeir hærri fengju aftur allir sömu krónutölu. Siðar á samnings- timanum gerði þessi tillaga einnig ráð fyrir frekari hækkunum, þannig að samtals hækkuðu laun að jafnaði hjá GRUNSAMLEGUR UTANRÍKISRÁÐHERRA ,,Við teljum ekki að hinni stórauknu uppbyggingu sovéska flotans á Norður- slóðum sé beint gegn Noregi.” Hver sagði þessi orð fyrir fáum dögum? Það var utanrikisráðherra Noregs, sem hér var i heimsókn. Og hvar voru þau eftir honum höfð? — Reyndar i Morgunblaðinu þann 20. þessa mánaðar. Maðurini fékkst hins vegar ekki til að segja eitt orð um það, hversu Noregi væri brýn nauðsyn á ameriskum herstöðvum á Islandi. Við vekjum athygli á þessum ummælum utanrikisráðherra Noregs til að benda á i hve hrópandi andstöðu þau eru við allan Morgunblaðsáróðurinn undanfarnar vikur og mánuði um að hér yrði að vera erlend- ur her, þar sem flotauppbygging Rússa væri slik stórkostleg ógnun við Noreg, að þetta gamla ættland okkar Islendinga væri jafnvel nú þegar komið bak við fyrstu viglinu Rússa. En svo kemur bara sjálfur utanrikisráð- herra Noregs og kveður upp úr með, að öll þessi löngu og hrollvekjandi skrif með til- heyrandi myndskreytingum hafi verið eintómt slúður, — rússneska flotanum sé eftir allt saman ekki beint gegn Noregi. Vart þarf að efa, að Eyjólfur Konráð Jónsson telur sig kunna að sjá betur, hvaða hættur steðja að Norðmönnum heldur en þeirra eiginn nýbakaði utan- rikisráðherra. Svo er lika aldrei að vita nema ráðherr- ann kunni að vera haldinn „föðurlandsof- stæki”, og þá er ekki að sökum að spyrja, sem kunnugt er. Og þvi mun Morgunblaðið halda áfram að heita á okkur íslendinga að bjarga Norðmönnum, samt varla þessum grun- samlega utanrikisráðherra þeirra, þvi að hann er sennilega best kominn hjá Rúss- um. Á siðustu árum hafa Norðmenn og reyndar Danir lika skorið niður herþjón- ustutimann hjá sér um fullan þriðjung gegn harðvitugum mótmælum hershöfð- ingja NATO, sem haft hafa i frammi álika hrakspár og hér eru hafðar uppi af vissum aðilum, þegar rætt er um að senda ameriska herinn heim frá Keflavik. Fyrir réttu ári siðan, þann 24.2.1973,var almennu verkalýðsfélögunum um 23 ~ 24% á tveimur árum. Segja má að veruleg breyting hafi orðið á afstöðu atvinnurekenda, er þeir nú hafa samþykkt þetta, frá þvi sem upphaflega var, en þeirra fyrsta tilboð, sem fram kom fyrir nokkrum vikum fól eins og menn muna i sér kauplækkun. Samningamenn verkalýðsfélaganna höfnuðu hins vegar tillögu sáttanefndar. Kemur þar hvort tveggja til, að verka- lýðshreyfingin hefur fullan hug á að knýja fram meiri almenna launahækkun, og ennfremur er ekki ætlunin að standa upp frá þessum kjarasamningum fyrr en betri árangur hefur náðst varðandi sér- kröfurnar. flaggað á forsiðu Morgunblaðsins ummæl- um breska hershöfðingjans Sir Walter Walkersfen hann var áður æðsti maður NATO á norðursvæði bandalagsins, en þau voru á þessa leið: ,,Samkvæmt minni skoðun er nú kominn timi til að Danmörk og Noregur komi málum sinum i lag og afturkalli bannið við herliði frá Atlants- hafsbandalaginu á landi siniT’^Þessi um mæli hafði NATO-hershöfðinginn viðhaft i tilefni af styttingu herskyldunnar i Dan- mörku. Ef Danir og Norðmenn gera hvort tveggja i senn, að fækka i eigin leikbrúðu- herjum og neita stöðugt að taka við bandariskum herstöðvum. Þeim mun furðulegra er, að norsk rikis- stjórn skuli taka sig til og senda okkur ís- lendingum leynilega nótu og mæla með ameriskum herstöðvum á íslandi. Á þessu undarlega misræmi vakti Magnús Kjartansson m.a. athygli i sinni frægu ræðu i Stokkhólmi á dögunum,og vist er um það, að við Islendingar eigum marga góða vini á Norðurlöndum, sem fagna um- mælum Magnúsar, og öðrum munu þau vafalaust kenna þarfa lexiu. ALDARSPEGILL Glefsur um tvœr sögur nýjar og nokkrar gamlar Foreldramál i örtröð og morð- bréf i martröð. Raddir og óhljóð i útvarpi i ársbyrjun 1974.. ilér verður fallið fyrir þeirri freistingu, að fara orðum um tvær nýjar útvarpssögur eftir þvi sem minni og hughrif gefa tilcfni. þvi þær verða ekki skoðaðar á prenti að sinni. Þorsteinn Antonsson, ungt og alvarlegt skáld, hefir gert söguna Foreldravandamálið — drög að skilgreiningu. Ungur stúdent, af- sprengi auðs og umsvifa, gerir mjög nákvæma úttekt á tilveru sinni, uppruna,umhverfi og lýtur það að hegðun samfélagsins. Myndin af foreldrakynslóðinni er sýnd i nokkurri fjarlægð, svona likast og kvikmynd. öðru máli gegnir um kynslóð höfundarins sjálfs, æskuna og feril hennar i fyrra og nú i ár, liðandi stund samtimasögu. Þar nær höfundur þvilikum snilldartökum á sög- unni, að áheyrandinn verður einnig áhorfandi. Maður er stadd- ur á miðju sögusviðinu, finnur hverja hreyfingu jafnt og að sjá hana, finnur hvern þefeim. hverja hitasveiflu, heyrir hvert hljóð, hver kennd og tilfinning egnir upp andsvar i skynjunar- næmi áhorfandans. Gerir hann að virkum þátttakanda hvort sem honum likar vel eða illa. Maður skynjar söguna sem lifandi þátt- takandi hversu framandi sem hún er. Og sagan er margmögnuð fjarstæðu. Hún er grunduð á böl- kjarna aldarinnar, firringunni, poppæði, ölæði, hassvimu, kynæði og þó fyrst og siðast er sagan grunduð á þvi að enginn veit um hvernig eða til hvers hann er að öllu þessu nema svara kalli hverrar þrár játandi á svip- stundu. Ég hef ekki vit á betur en galdur höfundar sé ekta. Hann eigi skáldgáfu og hafi kunnáttu til að beita henni. Hrafn Gunnlaugsson, annað ungtskáld, margræður höfundur, hefirkynnt Morðbréf Margeirs K. Laxdal, samsetning úr sögu, sjónleik, veruleik úti og inni, martröð i svefni og vitfirringu i vöku, auk flestra hugsanlegra hljóða og óhljóða. Semsagt: Kynnt samsetning úr allskonar samsetningum. Hversu ákafur sem maður vildi hafna samsetningnum og forsmá hann. Hafna hverju einstöku atriði útaf fyrir sig og siðan þeim öllum samanlögðum, þá verður hitt ekki sniðgengið: Þetta er al- veg bráðvel gert og snjallt. Ekki svo að skilja ég þekki fyrir vist að þetta sé einhverjum veru- leiki, heldur hitt, að i sögunni og alhliða túlkun þeirrar keðju öfga og f jarstæðna sem söguþráðurinn er úr spunninn, i þvi er snilldin. Ég held ég vogi að láta uppi að stundum komi f jórða viddin með i spilið, svo altækt og nærgöngult gat þetta heilaspunaverk um áfengisæði, myrkfælni og sorg orðið. Ekki er undir eigandi að bera þessa höfunda saman neitt að ráði. En þeir minna á tvistirni. Þeir eru það i það minnsta i tim- anum, i augnablikinu. A Þorsteini veit ég alls engin deildi, ekki hið minnsta. Um Hrafn er vitað að hann er uppal- inn á öldufaldi margs hins fremsta i isl. list þar sem eru for- eldrahús hans. Og annað sem er meira virði. Hann er lika alinn upp við það sem æðst er i islenskri náttúru og það sem rótfastast hefir verið að finna i þjóðlegri menningu, hvorttveggja i eyjum Breiðafjarðar. Hann hefir þvi meira en litið forskot framyfir margan kaupstaðastrákinn, enda er ég ekki fjarri þvi að það segi til sin i næmleikanum og skáld- Játvarður Jökull skynjuninni — hvað sem öðru lið- ur. „Og nokkrar gamlar" Dagana eftir að lauk j útvarp- inu sögunum, sem á er minnst hér að framan, þá hefi ég fiktað við það i huganum að visa þeim til sætis á skáldaþingi. Verið að svipast um hvort það væri hægt. Auðvitað fer önnur spurning þar á undan, sú, hvort það sé mitt með- færi. Aðrir verða að koma til á eftir og gera út um það. Framhald á 14. siðu. Eftir Játvarð Jökul á Miðjanesi

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.