Þjóðviljinn - 24.02.1974, Qupperneq 15
Sunnudagur 24. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJJNN — SÍÐA 15
Eitraöur fiskur í baöi
Áður fyrr sátu menn á friðsælum veitingastöðum með Rinarfljóti
og átu fisk nýjan, en nú er sú dýrð úr sögunni — enda er i fljót þetta
dembt skólpi og úrgangi frá tugum miljóna manna. Þessi kokkur
reynir enn að gæða mönnum á Rinarfiski, en hann þarf að synda tiu
daga i hreinu vatni eftir að hann er veiddur til að hann losni við mest
af eitrinu úr skrokknum. Þá fyrst er hann ætur.
Lausnir
Lausn á skákþrautinni i blaðinu
i gær: 1. Dd6!.... Bxd4 (d6, f4,
f6) 2. Bxd4 (Hf3, Da3, Rc2) mát
(1.. Kf4 2. De5 mát).
Hér til hliðar er svo lausn á
þrautinni um leiðina inn i her-
bergið i völundarhúsinu.
Hér er skemmtileg þraut fyrir yngri lesendurna, sem er fólgin i þvi að
klippa út reitina merkta með bókstöfunum og raða þeim rétt i reitina
merkta með tölustöfunum.
Tak frá mér þann kaleik
Gárungar segja að enginn hafi minnstu löngun
til að stjórna Stóra-Bretlandi eins og málum er
þar nú komið. Heldur ekki Harold Wilson, leiðtogi
Verkamannaflokksins. Hann er látinn segja á
þessari mynd:
— Þetta var skelfileg martröð, Mary. Mig
dreymdi að ég væri aftur orðinn forsætisráð-
herra.
SKEYTI
Baltimore — „Fylltu tank-
inn”, sagði eigandi Kádiljáks
við bensinafgreiðslumanninn.
Maðurinn byrjaði að dæla, og
honum til mikillar undrunar
fylltist bensingeymirinn ekki
fyrr en nálin sýndi 400 litra. Bil-
eigandinn hafði látið tengja
saman nokkra tanka i bilnum,
og snúið þannig á þá sem hafa
fyrirskipað skömmtun á
bensini.
i
Madrid — Bóndi i fylkinu
Mora rétt við Madrid var að
plægja akur sinn er hann varð
fyrir þvi óláni að slita i sundur
bensinleiðslu sem flutti bensin
til bandariskrar herstöðvar.
Um tvær miljónir litra af
bensini fóru til spillis áður en
tæknimenn gátu stöðvað lekann.
SIÐAN
UMSJÓN: SJ
mmrnmmmmrnmmmm