Þjóðviljinn - 15.05.1974, Side 5
Miðvikudagur 15. mai 1974. ÞJÓÐVÍLJINN — SIÐA 5
Nokkrir fundarmanna á aðalfundi Samvirkis.
Samvirki — framleiðsliisamvinnufélag rafvirkja
Greiðir hæst kaup
rafiðnaðinum
Aðalfundur SAMVIRKIS —
framleiðslusamvinnufélags raf-
virkja var haldinn að Hótel Sögu
laugardaginn 11. mai sl.
Ásgeir Eyjólfsson, formaður
félagsins, flutti skýrslu stjórnar-
innar, en i henni kom m.a. fram
að velta félagsins 1973 varð lið-
lega 7 miljónir króna, og er af-
koma þess góð.
Félagið, sem er fyrsta starf-
andi framleiðslusamvinnufélag i
iðnaði hér á landi, var stofnað 22.
febrúar 1973 að frumkvæði Félags
islenskra rafvirkja, og hafa jafn-
an verið náin tengsl á milli félag-
anna. SAMVIRKI er löggiltur
verktaki, en stendur utan sam-
taka meistara i iðngreininni,
enda tekur það afstöðu með laun-
þegum og kjarabaráttu þeirra.
Hóf það rekstur I maimánuði
1973. Fyrst i stað unhu aðeins 3
rafvirkjar hjá félaginu, en hafa
nú verið 10 um nokkurt skeið.
Félagið greiddi starfandi raf-
virkjum 35% álag ofan á dag-
vinnukaup sl. ár og greiðir nú 45%
álag, þannig að ekkert fyrirtæki i
rafiðnaði greiðir jafnhátt kaup,
eða kr. 431,00 á timann i dag-
vinnu. Þrátt fyrir þetta hefur fé-
lagið tekið þátt i allmörgum út-
boðum og boðið viðskiptavinum
sinum hagstæð kjör.
í rafvirkjadeild félagsins voru
um áramót 32 félagar, en 50 i fé-
laginu. Úr stjórn rafvirkjadeildar
átti að þessu sinni að ganga Ingv-
ar Elisson, en var endurkjörinn.
Fundurinn samþykkti að greiða
starfandi rafvirkjum 5% auka-
launauppbót á vinnustundir árs-
ins 1973. Jafnframt samþykkti
hann sérstakar þakkir til Ásgeirs
Eyjólfssonar fyrir farsæla fram-
kvæmdastjórn, til Hannesar
Jónssonar fyrir aðstoð við stofnun
og skipulagningu félagsins og til
Hrafns Magnússonar fyrir störf
hans i þágu félagsins. Ennfremur
samþykkti fundurinn að verja kr.
50.000,00 af hagnaði sl. árs til
styrktar Blindrafélaginu.
Fundarstjóri á aðalfundi raf-
virkjadeildar var Kristinn Snæ-
land, en ritari Gisli Þ. Sigurðsson.
Ákveðið er að aðalfundur al-
mennu deildar félagsins verði
haldinn 30. mai að Hótel Esju og
að i framhaldi af honum fari fram
almenn kynning á framleiðslu-
samvinnu. Verður iðnsveinum úr
ýmsum öðrum iðngreinum boðin
þátttaka i fundinum, en Hannes
Jónsson, félagsfræðingur, mun
flytja þar erindi um framleiðslu-
samvinnu sem efnahagslegt
skipulagsúrræði, en Ásgeir
Eyjólfsson, formaður SAM-
VIRKIS, mun flytja erindi um
hagnýta reynslu af starfi fram-
leiðslusamvinnufélags rafvirkja
og svara fyrirspurnum.
Félagið er nú til húsa i Barma-
hlið 4 i Reykjavik, og er
Guðmundur Magnússon löggiltur
meistari þess.
Danskennsla
fyrir blinda
Blindrafélagið œtlar að efna til
sumarleyfisferðar til Fœreyja
Sfðastliðinn vetur hefur tóm-
stundastarf verið blómlegt hjá fé-
lagi blindra að Hamrahlið 17.
Námsflokkar Reykjavíkur önn-
uðust námskeið i hnýtingum og
annarskonar föndri, sem margir
félagsmanna.sóttu og margt fal -
Jegra og eigulegra muna var unnið
af þátttakendum. Fyrir velvild
skólastjóra námsflokkanna og
þeirra, sem veittu tiisögn á þeirra
vegum var tekið tillit til sérþarfa
blindra og þeim ekki gert að
sækja tima i bækistöð námsflokk-
anna i Laugarlækjaskóla.
Námskeiðið fór fram i hinni
rúmgóðu nýbyggingu Blindrafé-
lagsins að Hamrahlið 17, en með
tilkomu þeirrar byggingar hefur
öll aðstaða til félagsstarfa batnað
að mun, sem m.a. kom fram i þvi
að nú var efnt til danskennslu fyr-
ir blinda. I tilefni þjóðhátiðarárs
voru æfðir þjóðdansar undir leið-
sögn kennara frá Þjóðdansafélagi
Reykjavikur. Kennaranum til að-
stoðar voru nokkrir nemendur frá
Þjóðdansafélaginu og mæltist
þessi nýbreytni vel fyrir. Þátttak-
endur á báðum námskeiðunum
kunna öllum þeim, er gerðu þessa
starfsemi mögulega bestu þakkir.
Framundan er nú sumarleyfis-
ferð til Færeyja. Verður farið
héðan sunnudaeinn 18. ágúst nk.
og komið til baka fimmtudaginn
22. s.m. Séð verðuf fyrir gistingu i
Færeyjum, hópnum að kostn-
aðarlausu og velunnarar blindra
þar hafa lagt á ráðin um hvernig
heppilegast mundi að ráðstafa
timanum þannig að sem mest
fengist út úr ferðalaginu hvað
skemmtun og fróðleik áhrærir.
Mikill áhugi er fyrir ferðinni og
mun nú nær fullbókað i eina flug-
vél.
Til undirbúnings ferðinni hefur
félagið i hyggju að efna til Fær-
eyjavöku i Blindraheimilinu i
kvöld miðvikudaginn 15. mai og
hefst hún kl. 20:30 (hálf niu).
Samstarf hefur tekist með
Blindrafélaginu og félaginu Is-
land-Færeyjar, og mun formaður
þess, Árni Johnsen, annast um-
sjón og stjórn vökunnar. Ólafur
Halldórsson mag. art. mun flytja
erindi um Færeyjar, sögu þeirra
og menningu,en Árni segja frá þvi
hvernig það er að koma til eyj-
anna sem ferðamaður. Ennfrem-
ur verður tónlist, kaffiveitingar
og skyndihappdrætti.
Aðgangur að Færeyjavöku
Blindrafélagsins er öllum heimill
meðan húsrúm leyfir. Aðgangur
kostar kr. 150.00 og eru veitingar
innifaldar.
Kór Öldutúnsskóla
Tók þátt i norrœnni söngkeppni
i fyrrakvöld kom barnakór
Öldutúnsskóla i Ilafnarfirði heim
úr söngför til Finnlands þar scm
hann tók þátt i keppni norrænna
barnakóra. Söng kórinn tvivegis
og sjálfri keppninni var útvarpað
beint um öll Norðurlönd nema is-
land og Færeyjar.
Ferðalag kórsins hófst á föstu-
daginn og var þá flogið til Turku i
Finnlandi þar sem keppnin fór
fram. Á laugardaginn sungu kór-
arnir fimm frá Danmörku, Svi-
þjóð, Noregi, Finnlandi og Islandi
i dómkirkjunni i Turku. Fékk is-
lenski kórinn góðar viðtökur þar.
Á sunnudaginn fór svo sjálf
keppnin fram. F’innski kórinn
Auglýsinga
síminn
er17500
varð hlutskarpastur, en ekki var
greint á milli hinna fjögurra. Að
sögn annars fararstjórans hlaut
Islenski kórinn einnig mjög góðar
viðtökur þar og eitt besta hljóðið
af öllum kórunum. Á mánudaginn
var svo flogið heimleiðis með við-
komu i Kaupmannahöfn.
1 kórnum eru 24 börn á aldrin-
um 10—18 ára og var hann sá fá-
mennasti af kórunum fimm. Með
I förinni var söngstjórinn, Egill
Friðleifsson, Maria Steingrims-
dóttir kennari við skólann,
Guðmundur Gilsson frá Rikis-
útvarpinu og Herdis Oddsdóttir
sem átti sæti i dómnefnd keppn-
innar fyrir tslands hönd.
A söngskrá kórsins voru ein-
göngu islensk lög og má þar nefna
Öljóð eftir Jón Ásgeirsson,
Máriuvers, Abbalabbalá o.fl.
Viðmælandi blaðsins var mjög
ánægður með ferðina og kvað
skipulagningu alla hafa verið til
fvrirmyndar.
—ÞII
Setjum upp botnvörpur
og önnumst viðgerðir á þeim.
NETAGERÐIN SIGURÐUR H/F,
ÓLAFSVÍK - SÍMI 93-6351
STAKKHOLT H/F. ÓLAFSVÍK
þakkar starfsfólki
sinu gott starf
á liðinni vetrarvertið.
Gleðilegt sumar
SALTFISKYERKUN
SKREIÐARVERKUN
BAKKI S/F
v/Ennisbraut — Ólafsvík — SÍMI 93-6267