Þjóðviljinn - 15.05.1974, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 15. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
olafsvik hefur um ára raðir verið mestur
útgerðarstaður á Snæfellsnesi og um leið
stærsti kaupstaðurinn á nesinu. Þar var
sem i öðrum útgerðarstöðum á Snæfellsnesi
unnið nótt og dag að kalla, virka daga sem
helga, meðan vetrarvertið stóð yfir, og
þannig var það er við heimsóttum olafsvík í
prentaraverkfallinu á dögunum. Þar sem
mikið er unnið og þá um leið mikilla pen-
inga aflað er einnig mikið framkvæmt og
þannig er það í Ólafsvík, uppbyggíng til
lands og sjávar. Opinberar framkvæmdir
eru miklar og aldrei hefur annað eins verið
byggt af íbúðarhúsum þar og á síöasta ári.
Utlit er fyrir að það met verði slegiö i ár og
að þá verði þar meira um íbúðabyggingar
en nokkru sinni. ólafsvíkurbúar eru greini-
lega bjartsýnir á framtíðina og nú er það úr
sögunni að unga fólkið flytjist þaðan burt,
þvert á móti vill það og raunar margt
aðkomufólk setjast þar að enda er óvíða
búsældarlegra en i ólafsvik. En heyrum nú
hvað fólk þar haföi aö segja um háanna-
tímann, miðja vertið.
ÓLAFSVÍK
Hermann
Hjartarson
hrepps- '
nefndar-
maður
í Ólafsvík
Til að fá fréttir af því
sem er að gerast í ólafsvík
leituðum við til Hermanns
Hjartarsonar sem á sæti i
hreppsnefnd ólafsvíkur-
hrepps og báðum hann
segja okkur undan og ofan
af þvi sem þar er að
gerast.
Stækkun
hafnarinnar
er okkar
stóra mál”
*
Hér er svo sem sitthvað á döf-
inni, en segja má að mál málanna
hjá okkur nú sé stækkun hafnar-
innar, en framkvæmdir við það
verk hefjast i sumar og verður þá
unnið fyrir um 40 miljónir sem
þegar er búið að veita til verks-
ins. Þetta verður fyrsti áfangi i
fjögra ára áætlun um stækkun
hafnarinnar. Það sem gert verður
i sumar er að reka niður stálþil
við syðsta grjótgarðinn og að
koma upp viðleguplássi fyrir
bátana, sem er mjög aðkallandi
orðið, en flotinn stækkar hér ár
frá ári.
— Hvað eru margir bátar
gerðir út frá Ólafsvik nú?
— 1 vetur hafa verið gerðir út
24 stórir bátar, sem er meira en
nokkru sinni áður, og eru þeir
allir á netum. Einnig eru gerðir út
smærri bátar sem stunda rækju-
veiðar á Breiðafirðinum.
— Og fiskverkunarstöðvar,
hvað eru þær margar hér?
— Frystihúsin eru tvö, sem þó
eru rekin sem eitt, og svo þrjár
saltfiskverkunarstöðvar.
— En svo við snúum okkur
aftur að opinberum fram-
kvæmdum i Ólafsvik, hvað er þá
næst fyrir utan hafnargerðina?
— baðeru nokkur stór verkefni
sem hreppurinn vinnur að og má
þar nefna áframhald á varanlegri
gatnagerð en byrjað var i fyrra
að steypa götur og var þá lokið
við500m kafla af aðalgötunni. 1 ár
verður unnið fyrir 5-6 miljónir i
gatnagerðinni. Nú, þá er verið að
endurbyggja vatnsveituna og
verður komið upp 400 rúmmetra
vatnstanki, en hér er allmikill
vatnsskortur einkum meðan
vertiðin stendur sem hæst. Undir-
búningur að nýjum gagnfræða-
skóla er hafinn og er verið að
teikna hann og hanna. Ég get ekki
sagt hvenær verður byrjað að
byggja hann á þessu stigi máls-
ins. En skólabyggingin er orðin
mjög aðkallandi enda búa nú
orðið um 1100 manns i Ólafsvik og
fjölgar alltaf heldur en hitt.
— Er þá ekki húsnæðisleysið
vandamál hér sem annarsstaðar
á Snæfellsnesinu?
— Jú, hér er mikið húsnæðis-
leysi, og mér er óhætt að fullyrða
að hér byggju mun fleiri ibúar ef
nægt húsnæði væri fyrir hendi.
Það er greinilega mikill áhugi hjá
mörgum að flytjast hingað. Þess
vegna hefur hreppurinn ákveðið
að gangast fyrir byggingu fjöl-
býlishúss með 5-6 ibúðum sem
fyrirhugað er að leigja út.
Hreppurinn mun leggja fram i
þessu skyni 12 miljónir en um 80%
af kostnaði verða fengin ,gð láni
hjá rikinu. Auk þess er svo fyrir-
hugað að hef jast handa um bygg-
ingu verkamannabúslaða
samkvæmt nýju lögunum um þá.
Nú, þessi húsnæðisskortur
leiðir svo aftur af sér vinnuafls-
skort. Segja má að það vanti fólk
til allra starfa hér. Það er ekki
óalgengt að 1 til 3 menn vanti á
bátana, auk þess sem stórlega
vantar fólk i fiskvinnuna i landi.
Og á meðan við getum ekki boðið
fólki uppá mannsæmandi
aðbúnað yfir vertiðina leysist
þetta mál ekki.
— Er þá einnig næg atvinna hjá
ykkur sumaar og haust?
— Já, hér hefur um margra ára
skeið verið næg atvinna allt árið.
Nú hefur það hinsvegar gerst að
búið er að loka fyrir trollveiðina á
Breiðafirðinum og þvi er ekki að
leyna að menn eru uggandi um að
það geti haft alvarlegar afleið-
ingarfyrir staðina hér á Snæfells-
nesinu, einkum yfir sumarið og
haustið. Það er þó engu hægt að
spá um hverju fram vindur, en
maður verður bara að vona að úr
rætist með einhverju móti.
— Þið eruð ekki með nein
áform um skuttogarakaup hér i
Ólafsvik?
— Nei, ekki er það nú. Við
höfum varla getað annað ölium
þeim afla sem á land hefur borist
á liðnum árum, svo það er ekki
von til þess að menn hugsi til
skuttogarakaupa hér. En ef
friðun Breiðafjarðarins setur
stórt strik i reikninginn þá gæti
allt eins verið að menn færu að
hugsa til slikra togarakaupa.
ilermann Iljartarson
Fiskverkunarstöðvarnar og
frystihúsin hér hafa verið að
stækka við sig undanfarið og
mega illa viö þvi að afli dragist
saman.
— Hvaða fiskverkunarstöðvar
eru i Ólafsvik?
— Það eru frystihúsin Hóla-
vellir h/f og Hraðfrystihús Ólafs-
vikur og svo Viglundur Jónsson
og Bakki s/f með saltfiskverkun.
— Ég hef tekið eftir þvi að hér
eru mjög mörg ibúðarhús i
byggingu. Hvað var byrjað á
mörgum húsum á sl. ári?
— 20 lóðum var úthlutað
og bygging milli 15 og 20 ibúðar-
húsa hafin og ég á von á þvi að
það verði annað eins sem byrjað
verður á i vor og sumar. Annars
er mjög erfitt að fá byggingar-
iðnaðarmenn til starfa og stendur
það mjög i vegi fyrir þvi að fleiri
ráðist i að byggja.
— Hvernig er með aðdrætti til
ykkar hér i Ólafsvik, eru þeir allir
iandleiðis?
— Já, það má heita. Stórir
vöruflutningabilar ganga á milli
Ólafsvikur og Reykjavikur allt
árið. Þeir anna fullkomlega
þessum flutningum og veginum
yfir Fróðárheiði er haldið opnum
i það minnsta 2 daga i viku yfir
vetrarmánuðina.
— Segðu mér þá Hermann,
hvernig er félagslifið i Ólafsvik?
— Það er bara nokkuð fjörugt,
einkum á sumrin og haustin, en
eðlilega dofnar yfir þvi á vertið-
inni vegna hinnar miklu vinnu
sem þá er hér. Annars eru starf-
andi hér klúbbar, leikfélag, tafl-
og bridsfélag og svo er liflegt
iþróttalif hér.
— Tekur fólk hér almennt
sumarfri, eftir hina miklu vinnu-
törn yfir vertiðina?
— Það hefur nú ekki verið
almennt að fólk fari i sumarfri, en
nú hin allra siðustu ár hefur það
aukist mikið og mér er óhætt að
segja að það sé orðið all almennt
að fólk taki sér 2ja eða 3ja vikna
fri yfir hásumarið.
— Að lokum Hermann?
— Ja, þetta er nú orðið æði
langt spjall, en ég vil þó segja að
það er mikill hugur i mönnum i
Ólafsvik. Segja má að hér sé
mikill uppgangur. Útgerðarmenn
hafa verið að kaupa nýja báta,
einn er nýkominn frá Akurevri og
annar er þar i smiðum og Smári
s/f er nýbúinn að kaupa stóran
bát frá Noregi. Þá er nýlokið
byggingu beitingarhúss með
frystigeymslu sem auk þess
verður geymsla fyrir veiðarfæri
bátanna. Nei, það er ekki annað
hægt að segja en að það sé hugur i
fólki i Ólafsvik.
—S.dór