Þjóðviljinn - 16.06.1974, Side 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. júni 1974
| CAPRICHOS KENJAR
| Mynd: Francisco Goya y Lucientes Mál: Guöbergur Bergsson
63.
Hvílíkur
höfðingjabragur!
A frumteikningunni stendur, að
myndin sé sýn séð i draumi galdra-
norna. Onnur teikning er til af þessu
sama og er varðveitt i Berlin.
„Hvert sem augað litur i þessum
heimi er ekkert að sjá, annað en
skepnuskap. Tvær hræðilegar ófreskj-
ur bera tvær persónur á bakinu. Onnur
þeirra þykist vera hughraust, en er að-
eins þjófótt, hin læst vera full af ást, en
er aðeins grimmdarseggur. Eins eru
konungarnir og helstu ráðamenn
hverrar þjóðar, en engu að siður eru
þeir álitnir vera lærðir menn, og rikis-
stjórnirnar bera á þá lof og traust,”
segir L-handritið um myndina.
Að baki gammsins með klærnar og
asnamannsins með feitu puttana,
stendur fagnandi lýðurinn. Hann virð-
ist hafa slegið hring um forustumenn
sina og gefur þeim gott svigrúm til
þess að ræða um hin alvarlegustu
vandamál, sem jafnan steðja að hverri
þjóð. Ætli ófreskjurnar tvær séu ekki
að ræða örlög hennar? Að minnsta
kosti eru þær báðar með spenntar
greipar, en það er ætið haldgott að
halda að sér höndum eða flétta fingur.
Höföingjunum er áreiðanlega vel
borgið á baki hinna traustu dýra, þótt
þau séu aðeins tvifætt. Nógur er asna-
svipurinn á þeim, að minnsta kosti á
öðru þeirra. Það er næstum þvi hreinn
asni, og honum riður annar asni, ekki
eins kynhreinn, en svipur þingmanns-
ins á honum villir ekki um fyrir nein-
um. Þetta er forsætisráðherra lands-
ins, og yfirmaður hans, konungurinn
með þanda brjóstkassann, er aö leggja
honum lifsreglurnar. Alþýðan fagnar.
Þannig eiga þjóðir að vera.
.... .......... 'i i
Listahátíð í dag
og þriðjudag
t dag, sunnudag, er seinni
sýning hins „leitandi” danska
leikflokks, Banden, i Norræna
húsinu. Þaö er ki. 16. Þátturinn
sem flokkurinn flytur heitir
„Sláöu mig ekki” og er byggöur á
svörum skóianemenda viö
spurningum um þaö hvaö ofbeldi
er. Er þetta svo tengt viö heim
teiknimyndasagnanna, sem ailt
ungviöi fær ómældan skammt af.
Norsk hjón flytja þjóölega tónlist.
Kl. 16 hefjast einnig kammer-
tónleikarað Kjarvalsstöðum. Þar
verður m.a. frumflutt verk eftir
Fjölni Stefánsson, Duó fyrir óbó
og klarinett. Auk þess flytja þeir
sjö hljóöfæraleikarar sem taka
þátt i tónleikunum Fimm
bagatellur eftir Apostel,
Permutazioni a cingue eftir
Matyas Seiber, Tango eftir Igor
Stravinsky og sextett fyrir pianó
og blásarakvintett eftir Francis
Poulenc.
Fjölnir Stefánsson hefur m.a.
stundað framhaldsnám hjá
Matyas Seiber. Verk hans hafa
verið flutt á Tónlistarhátiðum
Norðurlanda og ISCM-hátiðinni I
Vin. Hann er nú skólastjóri Tón-
listarskóla Kópavogs.
Og i kvöld fer Þór til Jötun-
heima i þriðja sinn i óperu Jóns
Ásgeirssonar i Þjóðleikhúsinu.
Sautjánda júni hvilir listahátið
sig. A þriðjudag er dagskráin um
Sæmund fróða flutt i þriðja sinn i
Iðnó. 1 Norræna húsinu koma
fram norsk hjón, sem flytja þjóð-
lega tónlist. Þau heita Hanne
Kjersti Buen og Knut Buen og
koma frá Þelamörk, en þar hefur
staðiö ágætt virki þjóðlegrar tón-
listar. Þau hjón leika og syngja
bæði ljóðræna tónlist og dansa —
barnavisur, kallkvæði, þjóðkvæði
um bergnumda stúlku,
Fanitullen-slátt, sem lýsir
áflogum við brúðkaup, hailingja-
dans. Knut Buen er margfaldur
meistari i að leika á Harðangurs-
fiölu. Þau hjón eru bæði við þjóð-
lega myndlist riðin einnig, en það
er önnur saga.
Fjölnir Stefánsson er með nýtt
verk.
Kusu
r
Mand
i dag kemur hingaö til iands 120
manna hópur frá fyrirtækinu
National Panasonik og mun halda
hér ráöstefnu og sölufundi yfir
helgina. Hópurinn kemur meö
áætlunarflugvél Flugfélags is-
lands fráFrankfurt og dvelur hér
á Hótel Loftleiöum, þar sem ráö-
stefnan mun fara fram.
Tilefni ferðarinnar er aö fyrr-
greint fyrirtæki, sem er japanskt
fyrirtæki með útibú viða um lönd,
efndi til samkeppni meöal sölu-
manna sinna i Þýskalandi og voru
verðlaunin ferð til Islands eða
Sviss aö eigin vali.
Að sögn Sveins Sæmundssonar,
blaöafulltrúa Flugfélags íslands,
kusu 120 af þeim 150 sem verðlaun
fengu að ferðast til íslands.
Hópurinn mun fara aftur til sins
heima næstkomandi þriðjudag.
-úþ
Klúbbur-
inn opnar
bar
Veitingahúsið Lækjarteigi 2,
hefur enn lagt undir sig meira af
húsinu. A fimmtudaginn var
opnaði staðurinn bar á nesðtu hæð
hússins.
Að sögn forráðamanna er bar-
inn það neðarlega, að gólfflötur
hans mun vera neðar sjávarmáli.
Þessi neðansjávarbar er hinn
huggulegasti og ágætur til þess
sem hann er ætlaður, að kikja i
glas á góðri stund.
—úþ
Sigurðar
Ólafssonar
minnst á
bæjar-
stjórnar-
fundi
Á fundi nýkjörinnar
bæjarstjórnar Kópavogs
minntist Ólafur Jónsson,
sem stjórnaði fundi, í upp-
hafi Sigurðar Ólafssonar
skrifstofustjóra á eftir-
farandi hátt:
Sextíu ára
í dag
Sextiu ára er 18. júni, á þriðju-
daginn, Guöjón Guömundsson,
skrifstofustjóri Rafmagnsveitna
rikisins. Guðjón veröur aö
heiman á afmælisdaginn.
Attræðis
afmæli
Attræður er á morgun — þjóö-
hátföardaginn — Arni M. Sigfús-
son, fyrrverandi bakaramcistari,
i Vestmannaeyjum, nú til
heimilis i Barmahliö 10 hér I borg.
„Aður en gengið er til dagskrár
vil ég með nokkrum orðum
minnast Sigurðar ólafssonar
skrifstofustjóra, sem lést hinn 1.
júni s.l.
Sigurður var einn af fyrstu
starfsmönnum bæjarins. Hann
hóf störf á skrifstofu bæjarins
árið 1958 og starfaði þar alla tlð
siðan, fyrst viö bókhald og siðar
sem skrifstofustjóri bæjarins.
Hann var varafulltrúi I bæjar-
stjórn eitt kjörtimabil og sat
nokkra fundi bæjarstjórnar. Auk
þess var hann oft ritari bæjar-
stjórnar. Hann átti sæti i fram-
talsnefnd i mörg ár og i fleiri
starfsnefndum bæjarstjórnar.
Sigurður Ólafsson var prúður
maður i framkomu og farsæll i
starfi. Hann naut trausts og
virðingar sinna samstarísmanna.
Ég minnist Sigurðar með
virðingu og þakklæti fyrir
ánægjulegt samstarf að mál-
efnum bæjarins i nærri tvo ára-
tugi.
Við bæjarfulltrúar þökk um
störf hans fyrir okkar bæjarfélag,
vottum fjölskyldu hans samúð og
minnumst hans með virðingu
með þvi að risa úr sætum”.