Þjóðviljinn - 16.06.1974, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 16.06.1974, Blaðsíða 24
PIÚÐVIUINN Sunnudagur 16. júnl 1974 Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Kvöldsimi blaðamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Nætur-, kvöld- og helgarvarlsa lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna 14,— 20 júni verður i Háaleitisapóteki og Vesturbæjar- apóteki. Slysavarðstofa Borgarspitálans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur-og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Allt er komið í strand! AUt er í kalda koli! Morgunblaðið að und- irbúa kjaraskerðingu! Verið er að búa í haginn fyrir stórfellda árás á kjör launafólks, eins og 1959 Byggingar- sjóðurtómur: — ^ 1229 húsbyggjendur fá SMS ekki útborguð seinni hluta lán i ...... — Ilúsnæðislán nft vorn r'V*:..-u_:.' "uk"þSd -“eruUo'búsund Jj^Un Neyðarástand lAðeins 2900 milljónir _ja usbyggjendum 4 viiflia innflntningur Sjóðakerfíð gjaldþroía ar 1000 milljónir Einn ajóðurinn enn fjárvana: ^ v v XC Einn sjóSurinn enn fjananin < ^¥n”addld lón 1200-1400mfe45,v^-t,r^ÆaLÍM vantar 1 Fis- Ilvers ^ . jskuldir Álafoss aíS kreppuraðstatmH„Uaas\ 500 s “sVlórosKYlsto" Álafoss reyotoj fSSsaó: ígóðœri Rœtt við\ fnaólf Jónssoni nálgast 500jp*J^** «• _ forstjóri dregur úr fromleiíslu deildum nema spuraivcrksRirðj^ horðorður I gognrýni S.W urinnaðtæmast Éaðak _aiarl002_ Nokkrar strandfyrirsagnir úr Morgunblaðinu og Vfsi. Tölur um landflóttann af völdum „viðreisnar JS Nær 300 manns fóru til Ástralíu Morgunblaðið er búið að vera í trylltum árásarham siðustu daga og uppsláttar- fréttir á baksíðu átt að sanna almenningi að allt sé að sigla í strand, hér sé allt í kalda koli — við blasi gjaldþrot vinstri stjórnar. Svo langt hafa Sjálfstæðis- menn gengið í þvi að lýsa gjaldþrotum, að nú þegar er málgagn þeirra búið að fá yfir sig málsókn, eða Raunveruleg gjaldeyrisstaða: Heldur betri en í fyrra Gjaldeyrisvarasjóöur lands- manna stóð i 3.738 miljónum króna í aprillok si., og hafði hann minnkað á einu ári um 2.500 miljónir. A sama tíma var verðmæti útflutnings- birgða 8.131 miljón króna, og höfðu þær aukist á réttu ári um 3.200 miljónir. Raunveru- leg staða i gjaldeyrismálum hafði þvi batnað um 700 miljónir frá aprillokum 1973 til sama tima i ár. Þjóðviljinn hefur nýlega birt upplýsingar um gjaldeyris- stöðu bankanna eins og þau mál eru lögð fyrir i Hagtölum mánaðarins. Otstreymi gjaldeyris úr bönkum er mikið vegna óvenju mikils innflutnings, en þar á móti aukast birgðir af útflutningsvörum mjög veru- lega. Þá er rétt að hafa i huga hinn mikla bilainnflutning sem nú slær öll met á sama tima sem bilakaup dragast saman hjá öðrum þjóðum. A fyrstu f jórum mánuðum þessa árs voru 4.600 bilar fluttir inn i landið, 3.100 bílum fleira en á sama tima i fyrra. Hækkanir á oliuvörum eru við að setja gjaldeyrismál margra landa úr skorðum, eins og fram hefur komið i fréttum erlendis frá að undan- förnu. Þessar verðhækkanir iþyngja innflutningi okkar Is- lendinga einnig mjög mikið. í mánuðunum janúar-mai var verðmæti oliu og bensins, sem til landsins var keypt, 2.121 miljón króna, en á sama tima i fyrra nam sá innflutningur 605 miljónum króna. En magnið sem nú er flutt inn er aðeins 10% meira en I fyrra. hj- eins og Vísir orðar það „Rannsóknarlögreglan sér um fyrsta stig málsins" En hvað veldur þessum bægslagangi? Skýringin er ofur einföld. Sjálfstæðismenn eru orðnir svo sannfærir um að kom- ast i stjórnaraðstöðu, einir eða með framsókn eða krötum, að þeim þykir vissara að mála ástandið nógu svart til að réttlæta afturhaldsaðgerðir þ.e. samdrátt og kjaraskerðingar að kosningum loknum. Alveg eins og 1958 mála þeir fjandann á vegginn og gripa siðan til „viðreisnaraðgerða” — gengisfellinga, afnámsvisitölu, og hindra siðan mótaðgerðír verkalýðssamtakanna með breytingum á vinnulöggjöfinni er hindri verkafólk i að nýta verk- fallsvopnið, i stað allt lagt i gerðardóm eins og frmvarp ihaldsins á alþingi i vetur boðaði. En hvað um „galtómu sjóðina”? Tölur Morgunblaðsins eru þannig fengnar að þeir leggja saman upphæð allra lánsum- sókna hvernig sem umsóknirnar eru, draga siðan frá þá upphæð sem kemur út úr samanlögðum afgreiddum umsóknum i Fjár- festingalánasjóði og segja svo: Útkoman — þetta vantar. Sjálfir voru þeir hins vegar á móti þvi aö vandi fjárfestingalánasjóðanna yrði leystur á þingi i vetur. Alltaf hefur þurft að afla fjár eftir ýms- um leiðum í þessa sjóði og það gengið misjafnlega vel. Fjár- þröng þeirra er ekkert nýmæli. En hvernig mun ihaldið leysa vanda fjárfestingasjóðanna? Þeirri spurningu hafa þeir ekki fengist tii að svara. Hvað gjaldeyrisvarasjóðinn snertir, þá er þeirri spurningu svarað annars staðar i blaðinu. Þeir gleymdu helmingnum i þvi dæmi, þ.e. að reikna með verð- mæti þeirra útflutningsbirgða sem eru i landinu, og ef það væri reiknað með þá kæmi i ljós, að gjaldeyrisstaða landsins hefur heldur batnað á þessu ári. Þannig er „reikningssnilli” þessara Morgunblaðsmanna. Vart er fjármálastjórn þeirra treystandi, þegar útreikningar þeirra standast ekki og „kolleg- ar” þeirra á Visi búnir að hlaupa þannig á sig, að rannsóknarlög- reglan er komin i málið! Rússar reiðubúnir MOSKVU 14/6 — Leónid Bresjnéf, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, sagði i dag að Sovétrikin væru reiðubúin að gera samning við Bandarikin um takmörkun á tilraunakjarnorku- sprengingum neðanjarðar, og yrði miðað við það i samningum að þessar sprengingar yrðu með timanum stöðvaðar með öllu. Brésjnéf kvaðst einnig mjög hlynntur þvi að risaveldin tak- mörkuðu annan vigbúnað sinn eins og mögulegt væri. suður Á árunum 1968 til 1970 fluttu samtals 288 is- lendingar búferlum til Ástralíu. Þeir flúðu at- vinnuleysi og eymd „við- reisnarinnar". Nú hefur á annað hundrað þeirra snúið heim, og aðeins á ár- inu 1972 f luttist 53 ís- lendingingum fleira heim frá Ástralfu en fóru út þangað. Á fjórum árum, 1968-71, töpuðust landinu 2.700 íslenskir ríkisborgar- ar sem fluttu búferlum til útlanda, en á árinu 1972 bættust landinu samtals 160 íslenskir flóttamenn. Þessar tölur eru sóttar I Hag- tiðindi, og verða þær ekki með nokkru móti rengdar. Þær eru i sjálfu sér afar skilmerkilegur áfellisdómur yfir „viðreisninni” og hagstjórn hennar, og að sama skapi eru þær góður vitnisburður um ávinninga vinstri stjórnar. Fólkið flúði „viðreisn”, en það sækir heim til vins.tri stjórnar. En ekki aðeins islenskir rikis- borgarar flytja búferlum milli Is- lands og útlanda, heldur einnig erlendir menn. Sé með þeim reiknað (Islendingar og út- lendingar saman), þá litur dæmið svona út: Arið 1972kemur 431 maður inn i landið til búsetu umfram það sem flyst út. Þetta er I fyrsta skipti um margra ára skeið sem þessi jöfnuður er hagstæður. A árinu 1971 fara 172 fleiri til út- landa, en koma frá útlöndum. A árunum 1966-70 fara að meðaltali 650 fleiri út en inn koma á hverju ári. Næstu 5 árin þar á undan, sem einnig voru „viðreisnarár” var nettótapið 212 manns á árinu. A árunum 1955-60 gætti áhrifa vinstri stjórnarinnar fyrri þvi að þá var útstreymið aðeins 25 manns umfram innkomið i 5 ár samfleytt. hj — Skiptimiðar gilda líka í Kópavogsstrœtisvagnana Borgarráð hefur samþykkt skiptimiðakerfi fyrirtækj- samkvæmt tillögum Strætis- anna. Geta þá þeir sem koma vagna Reykjavikur og úr Kópavogi haldið áfram ferð Strætisvagna Kópavogs, að sinni innanbæjar i Reykjavik upp verði tekið til reynslu til á sama miðanum og öfugt. næstu áramóta gagnkvæmt

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.