Þjóðviljinn - 16.06.1974, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 16.06.1974, Blaðsíða 15
Sunnudagur 16. júnl 1974 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 tslenska þjóðin var gagntekin bjartsýnum fögnu yfir að hafa tekið siðasta skrefið til frelsis dr nærri sjö alda áþján. En óheillavænlegar nornir stóðu þegar viö vöggu lýðveldisins. og siðast en ekki sist Vilhjálmur Þór. A þessum árum var Vilhjálmur að likindum mestur áhrifamaður i islenskum stjórnmálum og efna- hagsmálum, og Bandarikin litu á hann sem sinn öruggasta vin á Is- landi. Mun óhætt að gera þvi skóna að af hálfu tslendinga hafi hann verið mikilvægasti tengill- inn i skiptunum við Bandarikin á þessum árum, bæði opinberlega og á bak við tjöldin. t stjórninni var sérstaklega náið samstarf milli hans og Björns Olafssonar, sem þar var fulltrúi reykvlska kaupmannaihaldsins. Er ekki fjarri lagi að kveöa svo að orði, að með samvinnu þeirra Vilhjálms og Björns hafi veriö innsiglað það vanhelga bræðralag um skiptingu gróðans af hernámsbraski og allrahanda hlunnindum, sem fékkst út úr þvi aö gerast fylgiriki Bandarikjanna, er á þessu tima- bili fór að stofnast með StS og reykvisku borgarastéttinni. Þótt Vilhjálmur væri sterki aðilinn I þvi bræðralagi, dró ihaldið lengra stráið þegar fram i sótti. Þar sannaðist enn sem fyrr hvernig fer þeim, sem réttir skrattanum litla fingurinn. Þótt almenningi væri margt duliö sem fram fór að tjaldabaki i stjórnmálunum á þessum árum sem oft siðar, duld- ist engum að þeir Vilhjálmur og Björn voru sterku mennirnir 1 stjórninni. Þá var ort i Speglin- um, sem i þá daga kafnaði ekki undir nafni: ,,Þeir minna á Israels Makkabea og mysuost éta þeir drjúgum úr KEA með vestrænar kúnstir frá Washington þeir Vilhjálmur Þór og Björn ólafsson.” (leturbr. min, dþ.) Böggull fylgdi skammrifi Gróðasjónarmið þessara frömuða tveggja sterkustu fjár- málaaðilanna i landinu, SIS og reykvisku heildsalanna, hefur án efa ráðið miklu um hve ljúft þeim var að hið islenska lýðveldi væri i heiminum borið sem skjólstæð- ingur og fylgifiskur Bandarikj- anna. A hinn bóginn má ýmislegt færa fram þeim til afsökunar. í júni 1944 var ekki nema rúmt ár siöan öruggt mátti teljast aö Þýskaland nasismans myndi tapa striðinu, og hvað sem um Banda- rikin mátti segja mun mörgum sæmilegum og þjóðhollum Islend- ingi hafa þótt af tvennu illu skárra að sitja i skjóli þeirra, meðan aðrir eins endemisdólgar og Hitler gengu enn lausir. Ólund sú eða jafnvel fjandskapur, sem ráðamenn hinna Norðurlandanna sýndu gagnvart lýöveldisstofnun- inni, vann lika fyrir Bandarikin, eins og fyrr hefur verið að vikið, og Bretar voru hvergi nærri af- dráttarlaust okkar megin. Þvi má ekki gleyma, að það var staðfast- ur og einlægur vilji þorra islensku þjóðarinnar að taka það siðasta skref i sjálfstæðisbaráttunni, sem lýðveldisstofnunin var i augum flestra Islendinga. Þegar sá á- setningur mætti óvild i Evrópu, var ekki nema eðlilegt að þorri is- lensku þjóðarinnar tæki stuðningi Bandarikjanna við málið fegins- hendi, þar eð sá stuðningur vold- ugasta stórveldis i heimi var lik- legur til að tryggja framgang málsins, hverjir svo sem stæðu á móti. Hitt var svo annað mál, að böggull fylgdi skammrifi hvað vináttu og stuðning bandariska stórveldisins snerti, og það leiddi til þess að vonirnar dýru, sem bundnar voru við lýðveldisstofn- unina, brugðust að sumu leyti. Þótt tsland sé sjálfstætt lýðveldi að formi til, er það sjálfstæði skert af tengslum þess við hern- aöarbandalög þau, sem Banda- rikin hafa komiö sér upp til trygg- ingar pólitiskum og efnahagsleg- um itökum sinum eð drottnun i miklum hluta heims. —dþ SAMVINNUVERZLUN tryggir sanngjarnt verð. Góð þjónusta. Kaupfélag Króksfirðinga Króksfjarðarnesi. INNLENT LÁN RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS 1974. 1.FL VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI Samkvæmt heimild í 6. gr., LXill. liður, fjárlaga fyrir árið 1974, sbr. lög nr. 7'frá 13. mars 1974, hefur fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, ákveðið að bjóða út verðtryggð spari- skírteini, samtals að fjárhæð 200 milljónir króna. 'Lánskjör skírteina eru ó- breytt frá síðustu útgáfu, þau eru lengst til 14 ára frá15.sept- ember1974, en eiganda ísjálfs- vald sett hvenær hann fær skírteini innleyst eftir 15. sept- ember 1979. Vextir eru 3% áári fyrstu fimm árin, en meðaltals- vextir allan lánstímann eru 5% á ári, auk þess eru þau verð- tryggð miðað við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar. Skírteinin eru skattfrjáls og framtalsfrjáls á sama tiátt og verið hefur, en þau skulu skráð á nafn. Skírteinin eru gefin út í þrem stærðum 5.000, 10.000 og 50.000 krónum. Sala skírteina hefst þriðju- daginn 18. júní og verða þau til sölu hjá bönkum, bankaútibúum og innláns- stofnunum um allt land, svo og nokkrum verðbréfasölum í Reykjavík. Liggja útboðs- skilmálar frammi hjá þess- um aðilum. Júní1974 SEÐLABANKI ÍSLANDS Stofnsett 1886 — Síml (96)-21400 Eigin skiptistöð, 15 línur — Simnefnf KEA STARFRÆKIR: Efnagerðina Flóru Smjörlíkisgerð Kfötiðnaðarstöð Brauðgerð Mjólkursamlag Kassagerð Þvottahúsið Mjöll Stjörnu Apótekið Hótel KEA Matstofu Skipasmiðastöð Skipaútgerð og afgreiðslu Kola- og saltsölu Vélsmiðjuna Odda h.f. Blikksmiðjuna Marz h.f. Gúmmíviðgerð 3 sláturhús 3 frystihús Reykhús Kjörbúðir Kjötbúð Járn- og glervörudeild Nýlenduvörudeild Oliusöludeild Raflagnadeild Skódeid Vefnaðarvörudeild Herradeild Vátryggingadeild Véladeild Byggingavörudeild Kornvöruhús og fóðurblöndun 10 útibú á Akureyri Otibú á Dalvík Otibú í Grenivík Útibú í Hrísey Útibú á Hauganesl. Sameign KEA og SlS: Efnaverksmiðjan Sjöfn Kaffibrennsla Akureyrar Heildsala á verksmiðjuvönim vorum hjá SÍS í Reykjavík og verksmiðjuafgreiðslunni á Akureyri. Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.