Þjóðviljinn - 16.06.1974, Page 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN'Sunnudagur 16. júni 1974
Lúðvík Jósepsson sextugur
Lúövlk Jósepsson
Sú kynslóð sem tók þátt í hinni
róttæku verklýðshreyfingu á
kreppuárunum fyrir strið átti
mörgum afar hæfum forustu-
mönnum á að skipa, og athafna
þeirra sér mjög viða staði i þeim
stórfelldu breytingum sem siðan
hafa gerst á Islandi. Einn hinn
mikilhæfasti i þessum hópi, Lúð-
vlk Jósepsson, er sextugur i dag.
Hann hóf stjórnmálaafskipti sin i
Neskaupstað sem ungur bylting-
armaður, og á ótrúlega skömm-
um tima tókst honum og félögum
hans að ná þar algerri forustu um
stjórn bæjarmála. Hinir ungu
byltingarmenn reyndust sem bet-
ur fer þeirrar gerðar að þeir tók-
ust á við vandamál hins rúmhelga
dags af raunsæi og festu og leystu
þau i samræmi við þær aðstæður
sem tiltækar voru án þess að
slaka á upphaflegum hugsjónum
sinum. Þeim tókst að gera Nes-
kaupstað að forustubyggð á Aust-
fjörðum, brutu upp á hverri nýj-
ungunni annarri merkari,
en stóðu þó alltaf föstum fótum á
jörð. Hve traust forusta þeirra
hefur verið má marka af hinum
mikla sigri Alþýðubandalagsins i
bæjarstjórnarkosningunum ný-
verið, þegar það fékk hreinan
meirihluta atkvæða og sex bæjar-
fulltrúa af niu; sá sigur vakti
fögnuð um allt land, þvi að það
hefur lengi staðið ljómi af „rauða
bænum” á Austfjörðum i hugum
allra islenskra sósialista.
Þegar ég kynntist Lúðvik
skömmu eftir strið voru hugur
hans og athafnir fyrst og fremst i
tengslum við Neskaupstað; þar
þurfti i sifellu að leysa knýjandi
vandamál og gera nýjar hug-
myndir að veruleika. En hann var
þá þegar orðinn mjög vel verki
farinn þingmaður, og smátt og
smátt tóku þingstörfin og forustu-
störf i Sósialistaflokknum og sið-
ar Alþýðubandalaginu æ meira af
tíma hans. Þar kom reynsla hans
af störfunum i Neskaupstað i
mjög góðar þarfir, ekki sist raun-
sæ vitneskja um sjávarútveg,
rekstur útgerðar og fiskvinnslu-
stöðva og þau fjárhagsvandamál
sem tengd eru þessum meginat-
vinnuvegi landsmanna. Brátt
varð engum ráðum ráðið um þau
efni innan samtaka islenskra
sósialista án þess að forusta Lúð-
viks kæmi til, og þegar Alþýðu-
bandalagið tók þátt i rikisstjórn
1956 þótti hann sjálfkjörinn sjáv-
arútvegsráðherra og bætti við sig
viðskiptamálunum. Slikt hið
sama endurtók sig 1971.
Lúðvik Jósepsson hefur i lif-
anda lifi orðið þjóðsagnapersóna,
einskonar imynd — sumir dá
hann, aðrir óttast hann. Um það
hygg ég þó að engir geti deilt, að
þróttmestu framfarirnar i sjáv-
arútvegi á tslandi undanfarin
þrjátiu ár eru tengdar störfum
hans og frumkvæði, einstæðum
dugnaði hans og kjarki. Og i Is-
landssöguna hefur hann skráð
nafn sitt með forustu sinni um
stækkun landhelginnar, fyrst i 12
milur, en siðan i 50 milur. Raunar
hefur hann einnig tengt nafn sitt
mannkynssögunni með þeirri for-
ustu, þvi frumkvæði okkar ts-
lendinga á þeim vettvangi hefur
tvivegis hrundið af stað alþjóð-
legri þróun.
Ég ætla mér ekki að tiunda
frekar störf Lúðvik Jósepssonar;
við islenskir sósialistar ætlum að
njóta forustu hans enn um langt
skeið. Ég stend i mikilli persónu-
legri þakkarskuld við hann, þvi
að þegar mér voru falin ráð-
herrastörf, óreyndum manni, var
það ómetanlegt að hafa hann við
hlið sér, traustan og ráðhollan.
Á það samstarf hefur aldrei borið
neinn skugga. Við hjónin sendum
Fjólu og Lúðvik bestu árnaðar-
óskir á þessum afmælisdegi, og
ég veit að hann mun ekki skorta
kveðjur og góðar óskir i dag. Ég
er þess þó fullviss að þær afmæl-
isóskir sem ylja honum mest
verða kveðjur þær sem flokkur
hans fær eftir réttan hálfan mán-
uð.
Magnús Kjartansson
Kynni okkar Lúðviks Jóseps-
sonar eru gömul. Þau hófust
haustið 1929 þegar við báðir vor-
um við nám i Gagnfræðaskólan-
um (Menntaskólanum) á Akur-
eyri, hann kominn austan af
Norðfirði, ég vestan frá Isafirði.
Lúðvik var góður námsmaður,
en ekki varð af framhaldsnámi
hjá honum sakir þess að hann
veiktist mjög alvarlega þegar
hann hafði lokið gagnfræðaprófi.
Þar við bættist að fjárráðin voru
ekki mikil. Þvi var það að þegar
hann náði heilsu aftur hóf hann
kennslustörf fyrir austan, bein-
linis með það fyrir augum að afla
fjár til framhaldsmenntunar
eins og hugur hans stóð til.
Um leið hóf hann afskipti af
stjórnmálum. Raunin varð sú, að
ekki varð meira úr skólagöngu,
en þvi meiri og farsælli varð
ganga hans i skóla lifsins. Lúðvik
hefur sjálfmenntað sig svo vel á
ýmsum sviðum að hann stendur á
sporði mörgum fræðimanninum.
Um stjórnmálasögu Lúðviks
þarf ekki að segja mikið. Hún er
alþjóð kunn. Hófst með baráttu
þeirra þremenninganna, hans,
Bjarna og Jóhannesár á Norð-
firði, en um þá félaga talar maður
gjarnan i einu. Bæjarfulltrúi varð
Lúðvik I sveitastjórnarkosning-
unum 1938, en þá fengu sósialistar
meirihlutann i bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar og hafa haldið honum
alla tið siðan, juku hann sem
kunnugter i siðustu kosningum úr
fimm fulltrúum i sex.
Lúðvik hefur setiö á Alþingi frá
október-kosningunum 1942, og
sjávarútvegs- og viðskiptamála-
ráðherra var hann á árunum
1956—1958 og svo aftur frá 1971
þegar núverandi rikisstjórn var
mynduð.
Ég vil aðallega fara nokkrum
orðum um manninn sjálfan. Lúð-
vik hefur verið einlægur sósialisti
allt frá þvi hann komst til vits og
ára, en hann er laus við alla
draumóra i sambandi við fram-
kvæmd sósialismans. Hann gerir
sér glögga grein fyrir þvi þjöð-
skipulagi, sem við búum við, og
hagar verkum sinum eftir þvi.
Það sem mér finnst einna rnest
einkenna Lúðvik er hversu mjög
hann gerir sér far um að skoða
hvert mál niður i kjölinn. Oft og
tiðum er þetta bæði mikið verk og
tafsamt, en það bætir úr skák að
maðurinn er með afbrigðum
vinnusamur og ósérhlifinn.
Lúðvik hefur viðtæka þekkingu
á atvinnu- og efnahagslifi þjóðar-
innar, sér i lagi öllu þvi er snýr
að sjávarútve^inum.
Ég hef nokkrum sinnum setið
með Lúðvik á fundum, sem hann
hefur haldið með skipstjórnar-
mönnum veiðiflotans. Það hefur
alltaf vakið furðu mina hve mikið
hann veit um alla skapaða hluti i
sambandi við fiskveiðar, um
fiskimiðin kringum allt landið,
um göngur hinna ýmsu fiskteg-
unda, um áhrif strauma og veðra-
brigða á fiskigengd á þessu veiði-
svæðinu eða hinu, um bestu hag-
nýtingu veiðarfæra, að þvi er
virðist um allt sem að sjósókn lýt-
ur. Það er eins og hann sjálfur
hafi stundað sjómennsku alla tið.
Þetta mun vera ein skýringin á
þvi mikla trausti sem sjósóknar-
ar bera til Lúðviks, hvar i stjórn-
málaflokki sem þeir eru.
Hið sama er að segja um gjör-
þekkingu Lúðviks á öðrum svið-
um efnahagslifsins. Hann er mik-
ill hagfræðingur i bestu merkingu
þess orðs.
Sterkur þáttur i fari Lúðviks er
að sjá fljótt aðalatriði hvers máls,
greina I burtu aukaatriðin. Jafn-
framtþvier hann úrræðagóður og
skjótráður þegar vanda ber að
höndum.
Lúðvik hefur verið mikill láns-
maður, bæði i einkalifi og á póli-
tiskum ferli sinum.
Það er á engan hallað þótt sagt
sé, að Lúðvik hafi manna mest
unnið að útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar, fyrst I 12 milur og siðan i
50 milur.
I samningunum við Breta
vegna siðari útfærslunnar naut
Lúðvik yfirburða þekkingar sinn-
ar um leið og hann beitti mikilli
lagni. Hann sýndi ýmist lipurð
eða þrákelkni, allt eftir þvi hvað
hentaði hverju sinni. En mjög var
honum i móti skapi að gefa okkar
hlut i einu eða neinu.
Það er mikið lán að hafa átt
drýgstan skerfinn i þeim árangri,
sem náðst hefur i þessu mesta
hagsmunamáli þjóðarinnar. 1
sögu hennar gerðust mikil og ör-
lagarik tiðindi þegar Lúðvik sjáv-
arútvegsráðherra undirritaði
reglugerðirnar um báðar útfærsl-
urnar.
Þegar Lúðvik stendur nú á
sextugu þá þakka ég honum
mikla vináttu og órofa tryggð.
Lúövik er kvæntur hinni ágæt-
ustu konu, Fjólu Steinsdóttur.
Þeim báðumog þeirra fólki árna
ég allra heilla.
Vonandi fær þjóðin enn um
langt skeið að njóta starfskrafta
Lúðviks Jósepssonar.
Haukur Helgason
Á þessum timamótum i ævi
Lúðviks Jósepssonar er við hæfi,
að við austfirskir samherjar hans
stöldrum við, litum til liðinnar
tiðar, förum á vit framtiðar
einnig og fyrst og siðast sendum
honum kveðju okkar, baráttu- og
þakkarkveðju i senn. I eldi stjórn-
málabarattunnar hefur hann
staðið, oftast feti framar öðrum,
tekið á sig vanda og ábyrgð, en
verið maður baráttunnar framar
öðru, baráttu hins einlæga sósial-
lista fyrir bættu mannlifi, betra
íslandi. Um slika foringja næða
stormar, en þeir hljóta lika mörg
sigurlaun, þótt fyrirhöfn og erfiði
fylgi jafnan hverjum sigri.
Lúðvik hóf ungur þessa baráttu
sina, þekkir vel erfiðleika og and-
streymi, svo og sigurgleði og
rlkuleg verkalaun.
Neskaupstaður, heimabær
hans, var hans fyrsti vettvangur,
þar varðhann slikur áhrifavaldur
um öll meginmál að fátitt er eða
einstakt. Bærinn ber sannarlega
merki hans og félaga hans, sem
blómlegasti bær fjórðungsins. En
landsmálin tóku hug hans
fanginn, þar voru á þeim árum,
er hann hóf stjórnmálaafskipti,
mörg þau verkefni óunnin, sem i
dag teljast til sjálfsagðra hluta,
verkefni, sem kostuðu ára og ára-
tuga baráttu að koma i rétt horf.
Þessi verkefni voru honum verð-
ug viðfangsefni, i baráttunni að
þeim sneri hann sér af alefli
mikilla starfskrafta og óþrot-
legrar elju. Ungur vakti hann sér-
staka athygli á sér fyrir málefna-
leg rök i hverju máli, án skætings
og skrums, sem og algengt er I
Islenskri stjórnmálabaráttu.
Þessi hefur verið hans megin-
styrkur alla tið i erfiðri sókn og
vörn fyrir okkur Austfirðinga,
fyrir islenskar alþýðustéttir og þó
e.t.v. framar öðru fyrir islenskan
sjávarútveg, undirstöðugrein
atvinnulifs okkar.
Skarpleiki skýrrar hugsunar og
alhliða þekking ólikustu mála-
flokka hafa oft vakið furðu mina
og aðdáun.
Þekking á traustum grunni,
skörp og glögg yfirsýn, gera
honum kleift að taka ævinlega á
hverjum vanda með málefnið eitt
að leiðarljósi, án hiks og vafninga
þess, sem miður veit. Nú siðustu
árin hefur ekki leikið á tveim
tungum, að hann hefur verið i
langfremstu röð fslenskra stjórn-
málamanna og afrek hans og um
leið gæfa sú, að hafa tvivegis
staðið að þvi með einarðri
djörfung, að auka áhrifa- og
athafnasvæði okkar Islendinga
umhverfis strendur landsins, og
liggja þannig grunn að bættum
framtiðarhag islenskrar þjóðar.
Lúðvik er svo sannarlega
verðugur fulltrúi íslenskrar
alþýðu, vaxinn upp með hennt til
þroska og framfara, án þess að
hefjast frá henni eins og of
mörgum hættir til. Lifskjör
hennar þekkir hann af eigin raun,
áhugamál hans að visu mörg og
mikilvæg en ofar öðru standa þó
mál islenskra atvinnustétta, kjör
þeirra og skilyrði öll. Þeim
málum hefur hann ekki einungis
reynst góður liðsmaður, heldur
farið i fylkingarbrjósti; nú
siðustu þrjú árin hefur stefna
hans og framkvæmdaþor verið að
gjörbreyta svip allrar lands-
byggðarinnar.
Þetta má allt vera honum gleði-
efni i dag, en mest yrði honum þó
virði að fá aðstöðu til framhalds
þeirrar stefnu með nýjum sigri
30. júni nn.k.
Það væri honum verðug
afmælisgjöf og Austfirðingum
sjálfsagt verkefni.
Þar þarf svo sannarlega að
horfa til framtiðar, þvi blikur eru
á lofti, sem boðað gætu endalok
þessarar djarfhuga stefnu.
Ég ætla mér ekki þá dul að fara
út i nána persónulýsingu af
Lúðvik Jósepssyni, hana hafa
menn of greypta i hug sér, störf
hans og stefnumið of kunnug
öllum til þess, að á þvi sé þörf.
En Lúðvik er ekki bara starfs-
maður, fullur atorku og alvar-
legra þenkinga, hann á einnig til
hinn létta tón grómlausrar
gamansemi, og þá er hann ævin-
lega vigreifastur og kátastur,
þegar okkur hinum þykir vera að
syrta i álinn, og ósjálfrátt hrif-
umst við með og bjartsýni rikir á
ný, baráttugleðin fær völdin.
Slika foringja er gott að eiga
þeim ungu og óreyndu, sem vilja
bogna undan ofurþunga vanda-
mála, sem leysa má með nægri
fyrirhyggju og framsýni.
1 miðri eldlinunni stendur Lúð-
vik nú, hress sem jafna, heill I
stefnu og markmiðum, ótrauður
sem fyrr að leggja til atlögu við
andann og sigrast á honum.
Ég sendi honum bestu baráttu-
kveðjur minar og minna, og vona,
að gæfa Islands verði sú, að
starfskraftar hans, vit og þekking
nýtist á næstu árum til þeirra
mörgu, þörfu verka, sem enn eru
óunnin á Islandi. Svo færi ég
honum og fjölskyldu hans
hjartanlegar hamingjuóskir með
þessi timamót, um leið og ég
þakka fyrir samskipti og leiðsögn
siðustu ára, og hlakka til að mega
starfa áfram undir ötulli forystu
hans.
Helgi Seljan.
Lúðvik Jósepsson er sextugur i
dag. Það færist aldur yfir þá
menn sem mótuðust i harðri
baráttu kreppuáranna og hug-
sjónaeldur sósialismans gaf kraft
og þor til starfa. Lúðvik er fæddur
á Norðfirði og ólst þar upp hjá
móður sinni og stjúpföður Hafði
heimilið úr litlu að spila, og húsa-
kynni, er voru þessa tima fjöl-
býlishús, með löngum gangi og
eins herbergis ibúðir beggja
vegna Strax þegar drengirnir i
sjávarþorpinu uxu úr grasi fóru
þéir að vinna við bátana, beita og
stokka upp, breiða og taka saman
fisk á reitum, Kaupið var sára-
litið, og veitti ekki af, að það
gengi til fjölskyldunnar.
Má segja, að hið gróskumikla
lif við bátana bryggjurnar og það
kjarnafólk, sem þetta lifandi
fiskiþorp byggði, hafi fallið
Lúðviki vel i geð og raunar sett
svip sinn á hans fjölþætta og
mikla starf sem stjórnmála-
manns. Það herti hann og gerði
honum snemma ljóst að þörf var
að helga sig baráttunni fyrir
bættum lifskjörum þess.
Lúðvik gekk I gagnfræðaskóla á
Norðfirði og dreif sig meir af
dugnaði en efnum i menntaskóla
á Akureyri, lauk þaðan gagn-
fræðaprofi 1933 en varð siðan
veturinn eftir að hætta námi i 4.
bekk vegna veikinda. Lúðviki
sóttist létt námið og var jafnvigur
á flestar greinar til munns og
h$nda.
Lúðvik' gerðist kennari við
Gagnfræðaskólann og jók
þekkingu sina með sjálfsnámi.
Þótti hann afbragðskennari. Var
hann sundkennari á sumrin.
Strax 1934 fór Lúðvik af alefli út i
félagsmál — var formaður
Iþróttafélagsins Þróttar, ritari
verkalýðsfélagsins og i stjórn
fleiri félaga. Gekk hann I
kommúnistaflokkinn og starfaði
af miklum dugnaði þar. Varð
Lúðvik snemma harðskeyttur
ræðumaður, og átti þá strax betra
með en aðrir menn, sem ég hefi
þekkt, að gera mál sitt
auðskiljanlegt og ljóst. Hann
hefur manna best kunnað að
skilja aðalatriði frá aukaatriðum.
A þessum árum tókst náið sam-
starf og einlæg vinátta með mér,
Lúðviki og Bjarna þórðarsyni.
Hefur þetta samstarf verið giftu-
drjúgt, og vinátta hefur staðið i
meira en fjóra áratugi og hygg ég
að það muni nokkuð sérstætt ef
litið er á pólitiskar sviftingar á
þessu timabili.
Lúðvik Jósepsson hafði alla
hæfileika til að gegna forystuhlut-
verki: einbeitni dugnað, gáfur,
mælsku og einkar aðlaðandi
framkomu á mannfundum. Þetta
kom ekki sist i ljós þegar hann fór
lítt reyndur I framboð árið 1937
fyrir Kommúnistaflokkinn ásamt
Arnfinni Jónssyni i Suður-Múla-
sýslu. Voru þá i kjöri harðskeyttir
stjórnmálamenn eins og Eysteinn
Jónsson, Jónas Guðmundsson og
Árni frá Múla. Var Lúðvik enginn
eftirbátur þeirra á framboðs-
fundunum.
Arið 1942 náði Lúðvik kosningu