Þjóðviljinn - 09.07.1974, Page 5
Þriðjudagur 9. júli 1974 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Atvinna
Laust embætti,
er forseti Islands veitir
Prófessorsembætti I haffræöi við verkfræöi- og raunvís-
indadeild Háskóla Islands er laust til umsóknar með um-
sóknarfresti til 31. júll n.k. Fyrirhugaðar kennslugreinar
eru almenn haffræði og hafeðlisfræði eða hafefnafræði.
Prófessornum er jafnframt ætlað að vinna að sjófræðileg-
um rannsóknum á vegum háskóiáns I náinni samvinnu við
Hafrannsóknastofnunina.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rlkisins.
Umsækjendum um prófessorsembætti þetta skulu láta
fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf þau,
er þeir hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og náms-
feril sinn og störf.
Auglýsing um embættið er hér með birt að nýju vegna
misritunar I fyrri auglýsingu, dags. 1. júll 1974, þar sem
stóð ..sjóefnafræðilegum rannsóknum” I stað „sjófræði-
legum rannsóknum”.
Menntamálaráðuneytið,
4. júli 1974.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
FóSTRA óskast til að anna st dag-
heimili fyrir börn starfsfólks. Upp-
lýsingar veitir forstöðukona, simi
42800.
HJÚRKUNARKONUR óskast á
nætur- og dagvaktir, til afleysinga
og i fast starf. Vinna hluta úr starfi
kemur til greina.
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa á
hinar ýmsu deildir. Vinna hluta úr
starfi kemur til greina. Upplýsing-
ar veitir forstöðukona, simi 42800.
ÞVOTTAHÚS RÍKISSPÍTAL-
ANNA
ÞVOTTAMAÐUR óskast til starfa
sem fyrst. Upplýsingar veitir for-
stöðukona. Simi 81714.
SAUMAKONUR óskast til afleys-
inga og i fast starf. Upplýsingar
veitir yfirsaumakona, simi 81714.
LANDSPÍTALINN
RÖNTGENTÆKJAEFTIRLITS-
MAÐUR óskast til starfa hjá eðlis-
fræði og tæknideild. Starfið er fólg-
ið i eftirliti og viðhaldi röntgen-
tækja utan Reykjavikur. Upplýs-
ingar veitir forstöðumaður deild-
arinnar, simi 24160.
RÖNTGENTÆKNAR óskast til
starfa við röntgendeild spitalans.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst
n.k. Nánari upplýsingar veitir yfir-
hjúkrunarkona deildarinnar. Simi
19504.
STARFSSTÚLKUR óskast til af-
leysinga i sumar og i fast starf til
ræstinga. Vinna hluta úr fullu
starfi kemur til greina. Upplýsing-
ar veitir ræstingastjóri, simi 24160.
Reykjavik 5. júli, 1974.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765
Lendir Sojus-14 í sjónum?
Þaö kom fram I útvarpsviötali viö geimfarana Pavel Popovítsj flugstjóra og Júri Artjúkhfn verkfræð-
ing, að skip þeirra Sojús—14, er hiö fyrsta I sovéskri geimferöasögu, sem getur lent á sjó. Bendir þetta
tii þess, að ferð þeirra og starf I rannsóknarstööinni sé m.a. liður að undirbúningi sameiginlegs geim-
flugs með Bandarikjamönnum, sem ávallt lenda á sjó. Ferðin hefur gengið aðóskum, en á föstudag var
Sojus—14 tengdur við Saljút—3. Myndin (frá APN) sýnir þá Popivitsj og Artjúkhln I geimklefanum.
Málningarstríð í gangi:
Á hvaða verði ber
að selja málningu?
Sérkennilegt stríð virðist
vera haf ið um það, hvernig
og hverjir eigi að selja eina
helstu neysluvöru lands-
manna, málningu.
Málningarverksmiðjur hafa i
sivaxandi mæli afgreitt beint til
Sláttur
að
hefjast
Sláttur er að hef jast i Köldu-
kinn, að þvi er Þórarinn Har-
aldsson i Laufási sagði okkur i
gær. Þar til um helgina hafa
verið óþurrkar þar nyrðra, en
gott var og þurrt um helgina. t
gær var farið að slita úr hon-
um, sunnan andvari, og spáð
rigningu með kvöldinu.
viðskiptavina á heildsöluverði, en
áður fyrr munu sllkar úttektir
hafa takmarkast við málara-
meistara og svo kaupmenn að
sjálfsögðu. Kaupmenn eru á hinn
bóginn argir yfir þvl að missa
spón úr aski sinum. Hafa viö-
brögð þeirra komið fram m.a. I
þvi, að byggingarvöruverslun ein
I Breiðholti er farin að selja
málningu á heildsöluverði —
hvort sem það er nú til að losa sig
við birgðir eða I skæruhernaði
gegn verksmiðjunum.
I sambandi við mál þetta koma
upp ýmsar spurningar: Neytend-
ur gætu sótt I það röksemd fyrir
því, að milliliðir séu of margir I
viðskiptum eða jafnvel óþarfir I
ýmsum greinum. Fjármálaráðu-
neytið gæti velt fyrir sér dæmi
þessu út frá áhuga sinum á fullum
söluskatti af vöru, og þar fram
eftir götum.
KENNARAR
Kennari óskast að barnaskóla Ólafsfjarð-
ar Æskileg kennsla 6 ára barna. Umsókn-
arfrestur til 31. júli.
Fræðsluráð Ólafsfjarðar.
Um 3 þúsund manns
á þjóðhátíð á Svarts-
engi við Grindavík
Um 3 þúsund manns sóttu úti-
hátlð þjóðhátiðanefnda sveitarfé-
laganna á Suöurnesjum, en hún
var haldin á Svartsengi við
Grindavik um helgina. Fram-
kvæmdastjóri þjóðhátiðarinnar,
Hólmbert Friðjónsson, sagði, að
hún hefði tekist vel I hvivetna.
Árni Þorgrlmsson setti hátiðina
með ræðu, en kynnir var Helgi
Hólm. Messa var sungin á Svarts-
engi, og sáu sóknarprestar Suður-
nesjabyggðanna um hana, en
blandaður kvennakór af svæöinu
söng. Að lokinni messu söng
Karlakór Keflavíkur, og einsöng
með honum söng Haukur Þórðar-
son.
Kristinn Reyr Pétursson las
frumsamið þjóðhátlðarljóð, og
Helgi Skúlason las upp.
Að þessum dagskrárliðum
tæmdum var kaffihlé, og voru
kaffiveitingar i Festi I Grindavlk.
Að loknu kaffihléi léku Hljómar.
Að leik þeirra loknum sýndi hóp-
ur frá ungmennafélaginu Vik-
verjum glimu, og þvi næst léku
Hljómar aftur.
A laugardags- og sunnudags-
kvöld voru dansleikur I Festi i
Grindavik og Stapa i Njarðvikum
og léku þar sitt hvort kvöldið á
hvorum stað, Hljómar og Stuðla-
trió.
Framkvæmdastjóri Þjóöhátið-
arinnar, Hólmbert Friðjónsson,
sagði, að óvist væri hvort ein-
hverjar tekjur yröu af hátiðar-
höldunum. Auk kostnaðar við
skemmtanahaldið þurfti aö
leggja I hálfrar miljónar til einn-
ar miljónar króna kostnað vegna
hreinsunar og nýsmiði á Svarts-
engissvæöinu.
Eins og áður segir voru það
sveitarfélögin á Suðurnesjum
sunnan Straums sem að hátiðinni
stóðu. Er ætlun þeirra að gefa
umframfé, ef verður til liknar-
mála, en verði halli af hátiðinni
þegar upp er staðið mun hann
greiddur af sveitarfélögunum eft-
ir höfðatölu ibúa.
-úþ.