Þjóðviljinn - 09.07.1974, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 09.07.1974, Qupperneq 9
Þriðjudagur 9. júlt 1974 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Tzr\ V-Þjóöverjar urðu H EIMSM EISTARAR Sigruðu Hollendinga 2:1 — Besti úrslitaleikur HM frá upphafi, segja fróðir menn Það fór sem flestir spáðu, V-Þjóðverjar urðu heimsmeistarar, hollenska liðið náði ekki að brjóta niður þann sterka varnarmúr sem v-þýska liðið get- ur sett upp hvenær sem það hefur forystu að verja. Óskapleg gleði greip um sig i V-Þýskalandi þegar úrslit leiksins voru kunn, en aðeins 80.000 manns komust á ÓL-leikvanginn i Mtinchen til að sjá leik- inn. Aðrir urðu að láta sér nægja að horfa á hann i sjónvarpi eins og hundruð miljóna fólks varð að gera. Dansað var á götum borga og bæja i V-Þýskalandi allt sunnudagskvöldið og nóttina eftir og sigrinum fagnað hvar sem var um landið. Hefur vart önnur eins sigurgleði gripið um sig meðal fólks i V-Þýskalandi og eftir þennan annan HM-sigur V-Þjóðverja, en fyrst urðu þeir heimsmeistarar 1954 eftir 3:2 yfir Ungverjum sem frægt varð. Gerd Muller, skoraði sigurmark- ið. Vogts Winner. Kremers Beckenbauer Sagt eftir leikinn Mörkin 3 i leiknum komu öll i fyrri hálfleik. Það fyrsta kom eft- ir aðeins 57 sekUndur, og höföu v-þýsku leikmennirnir þá aldrei komið við boltann. Hollendingar byrjuðu með hann, brunuðu upp, og inn á vitateig V-Þjóðverja var brotið á Cruyff og vitaspyrna þegar dæmd. Það var hinn mark- heppni Neesken sem skoraði úr vitaspyrnunni, og hann sagði eftir leikinn: — Ég hef aldrei á ævinni veriö jafn taugaspenntur, það var eins og fuglager væri I maganum á mér —. En þrátt fyrir tauga- spennuna skoraði hann örugg- lega, 1:0, og það fór hrollur um v-þýsku áhorfendurna. V-Þjóðverjar jöfnuðu svo á 25. minútu, og aftur var það vita- spyrna. Það var bakvörðurinn Paul Breitner sem skoraði Ur vltaspyrnunni. Svo var það tveim mlnUtum fyrir leikhlé að markakóngurinn Gerd Muller skoraði sigurmark v-þýska liðsins meö þrumuskoti sem hollenski markvörðurinn Jongbloed átti ekki minnstu möguleika á að verja. Þrátt fyrir ákafa sókn I slðari hálfleik tókst Hollendingum ekki að jafna. Þýska vörnin var eins og klettur og fyrir aftan hana snillingurinn Sepp Maier i mark- inu, og hann átti ekki hvað minnstan þátt I þvi, að heims- meistaratitillinn fór til V-Þjóð- verja. Þjóðverjarnir tóku snillinginn Cruyff Ur umferð að kalla má I fyrri hálfleik, en I þeim slðari dró hann sig aftur og mataði félaga sina, en þeim tókst aldrei að brjóta þýska varnarmUrinn. Hér fara svo á eftir nokkrar staðreyndir Ur leiknum. V-Þjóðarjar fengu 9 horn- spyrnur, 1 viti, 17 aukaspyrnur, 1 gult kort, 7 skot á markið, 4 sem ekki hittu. Hollendingar fengu 11 horn- spyrnur, 12 aukaspyrnur, 1 vlti, 3 gul kort, 10 skot á markið og 5 skot sem ekki hittu markiö. Johan Cruyff Ég er ergilegur yfir þvl, að okkur skyldi ekki takast að vinna leikinn, þar sem þetta verður I slðasta sinn sem ég tek þáttlHM. (Hér á hann við að hann sé orðinn of gamall, 28 ára, til að taka oftar þátt I HM) Þar fyrir utan langar mig ekki til að vera með oftar, sagði hann; að vera einangr- aður frá fjölskyldu sinni I 7 vikur er óþolandi, og I HM 1978semfram fer I Argentinu veröa það minnst 10 vikur, sagði Cruyff. Við lékum langt undir getu I þessum leik, sagði Cruyff, og I fyrri hálfleik vorum við hreint eins og byrjendur. Berti Vogts, sem vék ekki frá hon- um I leiknum, væri góður leik- maöur, en hann hefði leikið mjög gróft. JOHAN NEEKENS Mér hefur aldrei liðið jafn illa og þegar ég tók vltaspyrn- una, enda hafði ég ekki enn komið við boltann þegar ég framkvæmdi hana. Og þegar þýsku leikmennirnir hrópuðu til Maiers hvar ég myndi skjóta, varð ég að breyta til, og þvi varð spyrnan svo slæm. Ég er mjög sár yfir úrslitun- um, en á morgun er allt gleymt, og þá held ég til Barcelona og byrja æfingar með þvi félagi ásamt vini mln- um Cruyff. HöNESS Að verða heimsmeistari, Evrópumeistari og deildar- meistari I Þýskalandi, allt á sama árinu, er einum of mik- ið. Ég vona bara að við rlsum undir þeim kröfum, Sem nú eru gerðar til okkar, og hafa þær þó verið nógar fyrir, að manni hefur fundist. Þegar Maier varði skot Neekes I siö- ari hálfleik bjargaði hann sigrinum fyrir okkur að min- um dómi. (Hér á Höness við hörkuskot af stuttu færi sem Maiers varði snilldarlega). Schwarsenback Bonhoff Vó\ " jÉ Hoeness Breitner Heynckes Höttges Schön, þjálfari IBV og Víkingur deildu stigunum Hætt er við að bæði Vest- mannaeyingar og Víkingar séu úr leik i toppbaráttunni í 1. deild í ár eftir að liðin deildu stigum i Vest- mannaeyjum á laugardag- inn var, leiknum lauk 1:1. Eyjamenn hafa níú 8 stig eftir 8 leiki og Víkingar 7 stig úr jafn mörgum leikj- um. Hinsvegar taka þau bæði þátt í baráttunni um 2. sætið og eru hvorugt sloppin úr fallhættu enn þá, og svo undarlegt sem mönnum kann að finnast Ódrepandi sigurvilji færöi FH-ingum dýrmætan sigur yfir Blikunum, sem virtust áhugalausir Það var hreint út sagt stórkost- legt að sjá FH-inga i leiknum gegn Breiðabliki á föstudaginn. Sigurviljinn var ódrepandi og þeir börðust allan leikinn á fullum hraða, gáfu aldrei eftir, og það var greinilegt þegar þeir yfirgáfu völlinn að þrekið var gjörsamlega búið. Allt hafði veriö lagt i sölurn- ar, allir sem einn tóku þeir á öllu sem til var, og dýrmætur sigur varð uppskeran. Engum blöðum er um það að fletta að betra liðið sigraði i þess- um leik, sem gerði að miklu leyti út um vonir Blikanna á að endur- heimta sæti sitt 11. deild. FH-ing- ar léku af meiri styrkleika allan leikinn, nema ef vera skyldi fyrstu 10 minúturnar. Einar Þórhallsson tók forystu fyrir Breiðablik á 10. min. og skoraði þá með skalla eftir auka- spyrnu. Þá tóku Hafnfirðingar við sér, settu á fullan hraða og gleymdu öllum taugaóstyrk. Gunnar Bjarnason jafnaði með skallamarki á 15. min., og Logi Ólafsson tók 2-1 forystu fyrir FH er nokkuð var liðið á fyrri hálf- leik. I þeim siðari bætti hann öðru marki við, og þrátt fyrir nokkra pressu Blikanna i lokin héldust þær tölur og úrslitin urðu 3-1 sigur FH. Breiðabliksliðið hefur ekki sýnt gamla grimmdarsvipinn i sumar, og I þessum leik var ekki hægt að sjá að það væri að berjast fyrir 1. deildarsæti. FH-ingar standa vel að vígi eftir þennan sigur og eiga það svo sannarlega skilið. —gsp það, þá eraðeins ÍA sloppið úr fallhættunni. Tölfræði- legur möguleiki er á falli allra hinna liðanna. Eyjamenn voru betri aðilinn I fyrri hálfleik leiksins við Viking á laugardag og skoruðu sitt mark i fyrri hálfleik. Var það Óskar Val- týsson sem það gerði á 20. mlnútu og staðan I leikhléi þvi 1:0 Eyja- mönnum I vil. Vlkingarnir virtust lengi vel ekki ætla að ná þvi að jafna, en svo á 75. mínútu kom loks markið, og var það hinn ungi og efnilegi leikmaður óskar Tómasson sem það skoraði, og fleiri urðu mörkin ekki i leiknum. Hefðu Eyjamenn unnið þennan leik áttu þeir enn veika von um að vinna titilinn eða i það minnsta að fylgja Skagamönnum eitthvað eftir, en nú skilja 5 stig á milli þeirra og þvi ekki um það aö tala, að Eyjamenn verði með I barátt- unni. Von Vlkinga til að vera með i baráttunni var lltil, þótt þeir hefðu unnið leikinn, en með jafn- tefli er hún endanlega úr sögunni. Segja má að þeir hafi ekki borið sitt barr slðan þeir töpuðu fyrir IA á dögunum sem frægt er orðið. Þau Urslit virðast hafa verið Vik- ingunum sllkt áfall að þeir hafa ekki unnið leik siöan.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.