Þjóðviljinn - 14.07.1974, Qupperneq 3
Sunnudagur 14. júli 1974. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 3
Hver myndar 13.
ríkisst jórn lýðveldisms?
Hvernig
hefur
gengið
að
mynda
stjórnir?
3. GREIN
verið við frásagnir Agnars Jóns-
sonar i bókinni Stjórnarráð ts-
lands 1904—64.
Þrettánda
stjórnin
Þetta yfirlit sýnir að sú tilraun
sem nú er gerð til myndunar
stjórnar er tilraun til að mynda
þrettándu rikisstjórnina i sögu
lýðveldisins. Ef einhver hefur
ótrú á tölunni, þá getur sá hinn
sami huggað sig við að kannski sé
eðlilegra að tala um 23. ráðuneyt-
ið i sögu landsins allt frá þv.i Jón
Magnússon myndaði fyrsta ráðu-
neytið 1917.
Þetta yfirlit sýnir einnig að ekki
eru mjög fastmótaðar hefðir við
myndun stjórna. Sú hefð er að
visu föst, að forseti ræðir við for-
menn flokkanna, en siðan hefur
ýmist einstökum mönnum verið
falið að gera tilraun eða að flokk-
arnir tilnefna menn i viðræðu-
nefndir. Sú siðarnefnda aðferð
var einkúm notuð i forsetatið
Sveins Björnssonar, sem einnig
virðist hafa rekið mikið á eftir
þeim sem gerðu tilraunir, oft
veitt stuttan timafrest og verið
fljótur að gripa til þess að vilja
skipa utanþingsstjórnir. Aðstæð-
ur voru hins vegar aðrar i for-
setatið Ásgeirs Ásgeirssonar.
eða 23. ráðuneytið á þessari öld?
væri milli andstæðinga fram-
sóknar um breytingu á kjör-
dæmaskipuninni, þá reyndist ekki
hægtað ná samstöðu um aðgerðir
i efnahagsmálum. Framsókn var
hins vegar andvig þvi að tekið
væri á kjördæmamálinu, en hefði
verið til i ihaldsúrræöin i efna-
hagsmálum. Svo fór þvi, að
Ólafur tilkynnti 17. des. að hans
tilraun hefði mistekist.
Þann 18. desember fór Ásgeir
Asgeirsson fram á það við Emil
Jónsson formann Alþýðuflokksins
að hann reyndi myndun meiri-
hlutastjórnar eða minnihluta-
stjórnar er hefði stuðning þing-
meirihluta. Emil samþykkti það
og myndaði siðan á Þorláks-
messu minnihlutastjórn með
stuðningi Sjálfstæðisflokksins. A
alþingi um vorið var siðan gerð
breyting á kjördæmaskipuninni
með stuðningi Alþýðubandalags-
ins en Framsókn hjálpaði stjórn-
inni að koma efnahagsmálum i
gegn um báðar deildir þingsins.
Um sumarið fóru fram tvennar
kosningar, þær siðari 25—26. okt.
Alþingi kom saman mánuði siðar
en daginn áður eða 19. nóv. sagði
stjórn Emils af sér og daginn eftir
var fyrsta viðreisnarstjórnin
mynduð.
Þrjár viðreisnar
stjórnir
Þann 20. nóv. 1959 var tilkynnt
að samstjórn Sjálfstæðis- og Al-
þýðuflokks væri mynduð undir
forsæti ólafs Thors og gekk
stjórnin undirnafninu viðreisnar-
stjórn vegna útgáfu hvitrar bókar
i upphafi stefnu stjórnarinnar,
um viðreisn efnahagslifsins. 1
raun verður að telja að héf hafi
þrjár viðreisnarstjórnir setið við
völd á timabilinu 1959—71, þvi það
telst ný stjórn þegar nýr forsæt-
isráðherra tekur við. Óþarfi er i
þessu yfirliti að greina frá stjórn-
armyndunum i þvi sambandi, en
viðreisnarstjórnirnar þrjár telj-
Þá verður í þessari loka-
grein fjallað um myndun
ríkisstjórna eftir fall
vinstri stjórnarinnar 1958.
Einnig verður í þessari
grein vikið að núverandi
tilraunum til stjórnar-
myndunar, sem væri sú
þrettánda i röðinni. En
spurningin er, hver mynd-
ar þrettándu ríkisstjórn
lýðveldisins?
Það var 4. des. 1958 sem Her-
mann Jónasson baðst lausnar
fyrir ráðuneyti sitt. Næstu daga
ræddi forseti við forystumenn
stjórnmálaflokkanna um mögu-
leika á stjórnarmyndun en fól sið-
an 9. des. ólafi Thors að gera til-
raun til myndunar meirihluta-
stjórnar. Tók hann sér frest, en
samþykktitveim dögum siðar að
gera tilraun. Tvö mál voru helst
til umræðu i stjórnmálunum þá
stundina, verðbólgumálin og
breyting á kjördæmaskipan. Að
visu stóð yfir þorskastrið við
Breta en það mál blandaðist ekki
inn i viðræður um stjórnarmynd-
un. Tilraun ólafs strandaði hins
vegar á þvi, að þó ab samstaða
Það er sjálfsagt að koma við í
OLÍU STÖÐINNI
Þegar þér eigið leið um Hvalfjörð er
Oliustöðin áningarstaður.
• Við bjóðum:
• SMÁItfiTTI
9 SMURT BRAUÐ
• KAKFI
• TK
• SÚKKULAÐI
• oL
• (lOSI)RYKKI
• GOTT VIÐMÓT
• BENSÍN OG OLÍUIt
OPIÐ KL. 8-23,30 ALLA DAGA.
OLÍUSTÖÐIN
HVALFIRÐI
ast: Stjórn Ólafs Thors frá 20.
nóv. 1959—14. nóv. 1963, stjórn
Bjarna Benediktssonar frá 14.
nóv. 1963—10. júli 1970, stjórn-
undir forsæti Jóhanns Hafstein
frá 11. júli 1970—14. júli 1971.
Vinstri stjórnin.
Viðreisnarstjórnin missti þing-
meirihluta sinn i kosningunum 13.
júni 1971 og baðst Jóhann Haf-
stein lausnar þegar að kosningum
loknum. Forseti Kristján Eldjárn
ræddi þá þegar við formenn
stjórnmálaflokkanna og fól siðan
formanni stærsta stjórnarand-
stööuflokksins frá tið viðreisnar
að gera tilraun til stjórnarmynd-
unar. Ólafur Jóhannesson for-
maður F'ramsóknarflokksins hóf
siðan viðræður við Alþýðubanda-
lagið og Samtök frjálslyndra og
vinstri manna er lyktaði eins og
allir þekkja með myndun vinstri
stjórnar 14. júli 1971.
Óþarfi er að rekja siöan nýaf-
staðið þingrof og kosningar á
þessu sumri, en eftir kosningar
30. júni 1974 baðst vinstri stjórnin
lausnar. Siðan hafa staðið yfir til-
raunir til stjórnarmyndunar er
urðu hvatinn að þvi, að hér i blað-
inu hafa verið rifjaðar upp fyrri
stjórnarmyndanir. Stuðst hefur
Hér mun ekki fjölyrt um þá til-
raun sem nú stendur yfir. Forseti
fylgdi fyrrnefndri hefð að kalla til
sin formenn flokkanna og fól sið-
an formanni stærsta flokksins að
gera fyrstu tilraun. Fyrir þvi eru
mörg fordæmi eins og yfirlitið
sýnir. Geir Hallgrimsson telur að
til þess að hann geti hafið formleg
viðtöl við formenn annarra flokka
um stjórnarmyndun, þá þurfi að
gera úttekt á stöðunni i efnahags-
málum. Aður við stjórnarmynd-
anir hefur nefnd frá öllum flokk-
um unnið að slikum úttektum á
efnahagsmálum og hefði það
kannski verið eðlilegri fram-
gangsmáti og er enn opinn. Yfir-
litið sýnir einnig að misjafnlega
lengi hafa inenn gert tilraunir,
sumir gefist upp eftir fáeina
daga, aðrir fengið rúman mánuð,
svo ekkert verður fullyrt um það,
hve lengi Geir er stætt á að reyna
sig.
Óhætt er að fullyrða að ekki
hafa stjórnarkreppur verið tiðar
eða langvinnar á Islandi. Sú
lengst 117 daga árið 1947. En
menn velta þvi fyrir sér hve löng
hún verður að þessu sinni. Ljóst
er að skriður kemst venjulega
ekki á stjórnarmyndanir fyrr en
alþingi kemur saman og verður
það væntanlega nú. Þá má benda
á að reynslan sýnir að meðalfæð-
ingahriðir vinstri stjórna er um
mánuður, en fæðingahriðir helm-
ingaskiptastjórna öllu lengri og
myndast jafnvel minnihluta-
stjórnir i millitiðinni.
(ó.r.e. tók saman)