Þjóðviljinn - 17.07.1974, Page 7
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 17. júlí 1974.
Miövikudagur 17. júll 1974. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7
Leysist elsta ríki kristninnar upp?
Haile Seiassí, hinn aldni keisari Eþiópíu, varð eins
konar dýrlingur i augum heimsins þegar fasista-
hyski Mussolinis óð yfir landið skömmu fyrir síðari
heimsstyrjöld. Þetta hefur orðið til þess, að margir
hafa horft framhjá þeirri staðreynd, að Eþíópía
hefur búið við einhverja spilltustu og afturhalds-
sömustu harðstjórn, sem sögur fara af i heiminum
siðustu áratugina. En nú virðast straumar timans
loksins hafa náð til þessa ævaforna ríkis, sem að
mörgu leyti er enn miðaldalegra en lénsríki Evrópu
voru á miðöldum.
Keisarinn al Abbysiniu heitir Negús Negúsi... Hátt á fimmta áratug hefurhann veriö jafn einvaldur I rlki slnu og faraóar Egyptalands, en
nú virðist herinn vera aö draga stjórnartaumana úr höndum hans.
Um þessar mundir er
eþíópski herinn nær þvi
kominn að gera stjórnar-
byltingu en nokkru sinni
fyrr á því fjögurra mán-
aða tímabili, sem ólga hef-
ur ríkt í stjórnmálunum í
þessu elsta lénsríki verald-
ar, sem á margan hátt er
enn miðaldarlegra en
Evrópa var á sínum myrk-
ustu miðöldum. En mörg
þúsund ára gamlar botn-
gjarðir halda furðu vel,
hvað sem það verður nú
lengi. Fyrir skömmu hefur
herinn ennþá einu sinni
svarið Haíle Selassí keis-
ara hlýðni og hollustu,
þessum áttræða einvalda
sem stendur kannski fullt
svo nálægt faraóum
Egyptalands hins forna í
hugsunarhætti og stjórn-
málamönnum nútímans.
Sjálfur komst hann svo að
orði nýlega í blaðaviðtali
að eþíópska keisaraveldið
hefði staðið frá sköpun
heimsins og myndi því
standa eilíflega.
I febrúar og mars mótuöust aö-
geröir hersins mest af kröfum um
hærri laun, og fylgdu ýmsar stétt-
ir og starfshópar í þaö kjölfar,
þar á meöal prestar og vændis-
konur. í þetta sinn hafa athafnir
hersins á sér fremur beinan póli-
tiskan svip.
Þetta sést meöal annars á
handtökunum, sem herinn hefur
framkvæmt. Þeir sem teknir eru
fastir eru fyrst og fremst valda-
mestu mennirnir kringum keisar-
ann. Mesta athygli hafa vakiö
handtökur þeirra Betvodeids
Sevdes Gebrehiods, formanns
öldungadeildar þjóöþingsins, og
Ras (viröingartitill samsvarandi
jarls- eöa hertoganafnbót) Asrate
Kassa, sem var æösti maöur
keisararáösins. Báöir voru þessir
höföingjar meöal þeirra, sem
ganga keisaranum sjálfum næst
aö áhrifum og völdum og meöal
nánustu trúnaöarmanna hans.
Einnig fréttist aö meöal hinna
handteknu væri Iskinder Desta,
sonarsonur keisarans, fyrrum
yfirmaöur eþiópska herflotans,
en þaö hefur síöar veriö boriö til
baka.
Keisari og kirkja
eiga 60% jarðeigna
Þeir handteknu eiga þaö sam-
eiginlegt aö völd sin og áhrif hafa
þeir átt náö og velvild keisarans
aö þakka. Þaö eru raunar engin
undur i landi, þar sem sextiu af
hundraöi jaröeigna eru I eigu
keisarans og koptísku kirkjunnar.
1 landbúnaöarlandi eins og
Eþiópiu er akurjöröin helsta
verömætiö, og sá sem á henni hef-
ur eignarhald hlýtur þar af leiö-
Móöir og barn hennar aö bana komin af hungri I fylkinu Vollí I Eþiópiu. Yfir hundraö
þúsund manns hafa failiö úr hungri i landinu, og stafar hungursneyöin einkum af þvl
aö stórjaröeigendur taka ailt korniö af bændum upp I landsskuld.
andi aö veröa helsti valdaaöili
landsins.
Enda er þaö svo aö i næstum
fjörutiu og fimm ár hefur Haile
Selassi (sjálft nafn keisarans út-
leggst: Valdhelgrar þrenningar),
Ljón Júda, Guös útvaldi og kon-
ungur konunganna, svo nokkrir af
heiöurstitlum hans séu látnir
fylgja, veriö álíka einráöur i sinu
riki og Ramses sá er þrælkaöi
tsrael var i Egyptó fyrir meira en
þrjú þúsund árum. Vald annarra
hefur eingöngu hvilt á náö hans.
Höföingjar rikisins eru svo til all-
iraf þjóö Amhara, sem tala sem-
iskt mál, skylt hebresku og arab-
isku, og eru um þriöjungur lands-
manna, sem alls eru sagöir um
tuttugu og fimm miljónir talsins.
Hungursneyðin stafaði
af kúgun jarðdrottna
Þaö er margra manna mál aö
keisarinn og jarlar hans hafi mis-
notaö vald sitt nokkuö, svo vægt
sé aö oröi kveöiö, og kom þaö sér-
staklega greinilega i ljós I fyrra,
er miklir þurrkar ásamt meö til-
heyrandi hungursneyö herjuöu
miöhluta landsins. Vitað er meö
vissu aö yfir hundraö þúsund
manns hafi horfalliö af völdum
þurrkanna. Bandariskir landbún-
aðarsérfræöingar hafa hvaö eftir
annaö sagt aö akurjörö Eþiópiu
væri svo frjósöm aö þar i landi
mætti vel fæöa hundraö miljónir
manna, ef vel væri á málum hald-
iö, og hafa þær yfirlýsingar og
fleiri oröiö til aö heröa ádeilurnar
á keisarann og nánustu menn
hans vegna hungursneyðarinnar.
En Eþiópia er lénsriki. Mestur
hluti akurlendisins er ræktaöur af
átthagabundnum bændum, sem
veröa aö gjalda landsdrottnum
sinum fimmtiu til sjötiu og fimm
af hundraöi uppskeru sinnar.
Landsdrottnar þessir liföu i vel-
lystingum praktuglega i höllum
sinum i höfuðborginni Addis
Abeba, meöan kotungarnir og
börn þeirra drápust eins og flugur
úr sulti og sjúkdómum. Lands-
drottnunum datt ekki i hug aö
gefa jaröarafgjöldin eftir, þrátt
fyrir uppskerubrestinn af völdum
þurrkanna. Kotungarnir uröu aö
afhenda þeim eins mikiö korn og I
góðæri, meö þeim afleiöingum aö
þeir áttu sjálfir ekkert eftir handa
sér og fjölskyldum slnum. Þessi
kúgun stórjaröeigendanna varö
þvi ein meginástæöan til mann-
fellisins. Hungrið i Eþiópiu stafar
þvi fremur af vóndu stjórnarfari
en vondu veöri. Erlendir blaöa-
menn hafa hvaö eftir annaö sagt
frá fólki, sem gaf upp öndina af
völdum hungurs fáeina metra frá
yfirfullum kornhlööum höföingj-
anna.
Bót og betrun lofað
Eþíópskir bændur eru svo út-
piskaðir af aldalangri kúgun aö
kjarkurinn hjá þeim er liklega
enn bágari en hjá stéttarbræðrum
þeirra i Evrópu á miööldum. ör-
sjaldan hefur komiö fyrir aö þeir
hafi hert upp hugann og ruplaö
kornhlööur þeirra riku.
Kaupkröfum hersins i vor var
fylt eftir með kröfum um breyt-
ingar i stjórnmálum. Þáverandi
forsætisráðherra Habte Volde lét
af embætti og i staöinn kom En-
dalkatsjú Makonnen, sem lofaöi
bót og betrun. Teknar voru upp
viöræöur um umbætur i jarö-
næöismálum, og nefnd skipuö til
athugunar um breytingar á
stjórnarskránni. Keisarinn sjálf-
ur varö aö gefa eftir og útnefndi
sonarson sinn tuttugu og tveggja
ára gamlan, Sera-Jakob, sem eft-
irmann núverandi rikiserfingja,
sem er faöir hans og heitir Asfa
Vossen, en hann er mjög slæmur
til heilsunnar. Þetta þýöir aö
Sera-Jakob, sem nú er i læri i Ox-
ford, hefur i raun réttri verið
skipaöur eftirmaöur keisarans.
Aö þessu fengnu friöaöist her-
inn og hélt aftur til herbúðanna.
Var nú tiöindalitiö um hriö, en i
aprillok handtók herinn um tutt-
ugu og fimm fyrrverandi ráð-
herra, og sitja þeir flestir inni
ennþá. Síöan hefur hin pólitiska
spenna i landinu stööugt aukist.
Þjóðernisandstæður
Eins og fyrr er að vikið koma
þjóöernisátök hér viö sögu ásamt
stéttabaráttu. Þeir sem ráða lög-
um og lofum eru hinir kristnu og
semisku Amharar, en aörar fjöl-
mennustu þjóöir landsins eru
Gallar og Sómalir. Báöar þessar
þjóöir eru hamiskar aö máli og
eru tungur þeirra taldar allskyld-
ar máli hinna fornu Egypta. Sóm-
alir eru haröir Múhameöstrúar-
menn en Gallar mjög blendnir i
trúnni, heiönir, kristnir og
múhameöskir. Margir af lægri
liösforingjum I hernum munu
vera af þessum þjóðum, en undir-
foringjarnir i hernum eru ein-
mitt sagðir vilja ganga öllu
lengra i breytingum á þjóðfélagi
og stjórnarfari en hershöföingj-
arnir, sem auövitaö eru allir Am-
harar.
Siöan i siöari heimsstyrjöld
hefur verið fyrir hendi i landinu
vopnaöur félagsskapur, sem kall-
ast Föðurlandsvinirnir. Þeir telja
hundrað þúsund manns og hafa
þvi nokkra möguleika á aö bjóöa
hernum byrginn, en i honum eru
aöeins um fjörutiu þúsund
manns. Fööurlandsvinirnir eru
stranglega amharisk hreyfing og
hafa veriö taldir ein helsta trygg-
ingin fyrir áframhaldandi veldi
Amhara i landinu. Sagt er að ótt-
inn viö þá hafi valdiö mestu um
það i febrúar og mars, aö herinn
gekk þá ekki lengra en hann
gerði. HinsvegarhafaFööurlands-
vinirnir ekki getaö stöövaö hand-
tökurnar á jörlum Amhara, nema
þeir hafi þá ekki viljaö stööva
þær. Enda er þorri Amhara
sjálfra kotbændur sem búa viö
litlu eöa engu lifvænlegri skilyröi
en alþýðan af öðrum þjóöernum
keisaradæmisins.
Eritrea og Sómalir
Viö ólguna i stjórnmálum og
þjóöfélagsmálum Eþiópiu er eöli-
legt aö spurt sé hvaöa áhrif þetta
hafi i Eritreu við Rauöahafið,
sem áöur var itölsk nýlenda en
Eþiópia innlimaöi meö blessun
Sameinuðu þjóöanna — aö til-
stuölan Bandarikjanna — 1952,
eða i suöausturhéruöunum, þar
sem Sómalir búa. 1 Eritreu, þar
sem meirihluti landsmanna er
Múhameðstrúar, er starfandi
stjórnmálahreyfing, sem nýtur
stuönings Arabarikja og vill Eri-
treu sjálfstæöa. Þessi hreyfing
hefur háð skæruhernaö gegnkeis-
aranum i mörg ár. Suður frá hef-
ur Sómaliland viljaö innlima þau
héruö Eþiópiu, sem byggö eru
Sómölum. Veriö gæti aö þessir
tveir aöilar, sjálfstæöismenn i
Eritreu og Sómalir, færöust i
aukana viö vandræöi keisarans
heima fyrir.
Vitlaus maður
réðist á hann
Að öllu þessu athuguöu er ekki
ósennilegt aö ólgan i Eþiópiu endi
meö þvi að þetta riki, sem aö sögn
drottnara þess hefur staöiö frá
sköpun heimsins, leysist upp i
nokkur smærri auk þess sem ná-
grannariki hremmi stórar spild-
ur. Raunar er ekki viö ööru aö bú-
ast um þvilikt nátttröll, sem
eþiópska keisaradæmiö er stjórn-
málalega og þjóöfélagslega séö,
og keisari þess einnig. Þessi rúm-
Framhald á 11. siðu.
Sumir Eþiópa eru orönir þreyttir á aö skrlöa fyrir keisaranum og gæöingum hans. Þessi mynd er frá
mótmælagöngu námsmanna I Addis Abeba.
Keisari hefur fjölda gæludýra, þar á meöal ljón, enda er einn viröingartitla hans Ljón Júda. Sjálfur
hefur hann sagt aö sér láti öllu betur aö umgangast skepnur en menn.