Þjóðviljinn - 14.08.1974, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 14. ágúst 1974
Rannsóknarstofnun
fiskiðnaöarins lét í vetur
frarrrkvæma þrenns konar
tilraunir í sambandi við
geymslu á loðnu.
Kannað var geymsluþol
bræðsluloðnu, borið saman
geymsluþol óvarinnar loðnu,
isaðrar og rotvarinnar loðnu.með
nitritformallnblöndu.
Einnig var kannað geymsluþol
isaðrar loðnu og loðnu
geymdrar i kældum sjó ,
samanborið við óvarða loðnu.
Þá var gerður samanburður á
geymsluþoli átulausrar loðnu og
loðnu með átu.
Tilraunir þessar voru fram-
kvæmdar i samvinnu við Sildar-
verksmiðjur rikisins og fóru fram
hjá S.R. á Reyðarfirði.
Þjóðviljanum hafa borist
skýrslur frá Jóhanni
Guðmundssyni og Haraldi Gunn-
laugssyni, en þeir unnu þessar til-
raunir fyrir Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins.
Hér verður ekki reynt að sýna
alla anga tilraunanna, eða út-
skýra efnafræðilegar aðferðir
fræðinganna, en helstu niður-
stöður eru eftirfarandi og þá
fyrst, hvað snertir geymsluþol
bræðsluioðnu:
Þar sem hitastigið er lægst er
geymsluþolið mest. Það leikur
þvi ekki vafi á, að kæling er mjög
áhrifamikil geymsluaðferð.
Áberandi var, að pressukaka,
mjöl og lýsi voru mun ljósari úr
loðnu, sem ekki var rotvarin. Fita
i pressuköku umreiknuð á 8%
raka var 11,5% i þvi isaða, en
12,1% i þvi óisaða. Hins vegar er
ljóst, að það er ýmsum vand-
kvæðum bundið að isa bræðslu-
loðnu. Isframleiðsla er ekki það
mikil, að hægt sé að isa verulegt
magn. Ennfremur myndu
skapast vandamál út af bræðslu-
vatninu, sem eima þyrfti burtu i
þurrkurum.
Aðstaða til hráefnisöflunar
getur oft verið þannig, að verk-
smiðjurnar eigi einungis kost á
loðnu i stuttan tima, en á þeim
tima má hins vegar oft fá mikið
magn af hráefni.
Ennfremur gæti vel farið svo,
að nauðsynlegt yrði að takmarka
ennfrekar notkun nitritefna.
Endurbætur á rotvörn og
geymslu hráefnis eru þvi eitt af
þýðingarmestu hagsmunamálum
fiskimjölsiðnaðarins i dag.
Geymsla á
vinnsluloðnu
Niðurstöður sérfræðinganna
varðandi geymslu á loðnu til
frystingar, voru eftirfarandi:
Samkvæmt niðurstöðum
þessum er hægt að frysta loðnu
eftir þriggja sólarhringa geymslu
i is eða kældum sjó. ísuð loðna
hefur heldur meira geymsluþol,
en sjókæld og er útlitsbetri. Fyrr
ber á ýldulykt úr hrygnum en
hængum. Rauður litur á kviðar-
hoii kemur fyrr fram á hængum
en hrygnum. Tilraunir þessar
voru framkvæmdar á Rann-
sóknastofnuninni og einungis
notað litið magn af loðnu. Þess
ber að gæta að á vinnslustöðvum
verður loðnan fyrir meiri pressu
og hnjaski og gætu niðurstöður
þar þvi hugsanlega orðið aðrar.
Niðurstöður þessar ættu þó að
gefa upplýsingar um hvers vænta
megi af framangreindum
geymsluaðferðum.
Samanburður á geymslu-
þoli átulausrar loðnu og
loðnu með átu:
í átulausri loðnu voru fyrstu
einkenni skemmda: Ýldulykt úr
tálknum og brotin rifbein i
smæstu fiskunum.
í loðnu, með átu komu eftirtalin
einkenni fram, áðuren ýldulyktar
úr tálknum fór að gæta: Rauður
blær við tálknaop og gotrauf.
Brotin rifbein og trosnuð. Gráir
blettir á roði og göt á kvið.
Skemmdir eru þvi meiri, sem
átan er meiri. Smáar loðnur eru
viðkvæmari fyrir skemmdum en
stórar.
Mikil hrogn i fiskinum, virðast
flýta fyrir skemmdum.
Ekkert sér á loðnunni eftir
frystinguna, en geymsluþol
hennar þiddrar er minna en
geymsluþol ferskrar ófrystar
loðnu.
Varast verður að frysta átu-
fulla loðnu, þvi þó loðnan sé fryst
það ný, að kviðskemmda sé þá
ekki farið að gæta, hefja
meltingarvökvarnir aftur
starfsemi við uppþiðingu og
valda þá skemmdum.
Tilraunir með loðnu
s o ð e i m i n g a t æ k j u m oj
Undanfarið hafa sérfrœðingar kannað
geymsluþol loðnu — ísaðrar,
rotvarinnar og með átu —
Helstu niðurstöður liggja fyrir.
Styrktarfélag vangef-
inna á Austurlandi
S'tyrktarfélag vangef-
inna á Austurlandi var
stofnað sumarið 1973 og er
rúmlega ársgamalt um
þessar mundir.
Rúmlega 1200 félags-
menn bera vitni þeim al-
menna áhuga og skilningi,
sem þessi málefni eiga að
mæta á Austurlandi.
Umfangsmikil könnun hefur
nýlega farið fram um land allt,
könnun á fjölda og högum vangef-
inna og hefur Margrét Margeirs-
dóttir félagsráðgjafi haft þar yf-
irumsjón.
Könnun þessi er i samræmi við
þingsályktun frá árinu 1973, en i
samræmi við hana, skal einnig
hafist handa um byggingu vist-
heimila fyrir vangefna i þeim
landshlutum, þar sem þörfin er
mest. öll vistheimili fyrir van-
gefna, að einu undanteknu, Sól-
borg á Akureyri, eru á suðvestur-
horni landsins.
Könnunin leiddi ótvirætt i ljós
þörf vistheimila, bæði á Austur-
landi og Vestfjörðum.
Brýnasta verkefni félagsins á
Austurlandi er þvi undirbúningur
og bygging vistheimilis i fjórð-
ungnum.
Þegar hefur mikið verið að
málinu unnið og nú nýlega var
kjörin þriggja manna byggingar-
nefnd, sem i eiga sæti: Ástvaldur
Kristófersson Seyðisfirði, sr. Ein-
ar Þór Þorsteinsson, Eiðum og
Helgi Seljan, Reyðarfirði.
SÍNE—FÉLAG AR
Sumarþing SíNE verður haldið 17. og 18.
ágúst (laugardag og sunnudag) í Árna-
qarði, stofu 201. Mætið stundvíslega kl.
14.00.
Fundargögn liggja frammi á skrifstofu
SfNE í Félagsmálastofnun stúdenta, föstu-
daginn 16. ágúst. STJÓRNIN
TILBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar auglýsir hér með til
sölu og niðurrifs, þjóðhátiðarsvið og palla, sem staðsett er
viö Arnarhól.
Frekari upplýsingar veittar hjá byggingadeild borgar-
verkfræöings.
Réttur áskilinn að taka hvaða tilboði, sem cr eða hafna
öllum.
Kaupandi skal hafa lokið verkinu og fjarlægt efni innan
viku frá því aö tilboöi er tekið.
Tilboð verða opnuö á skrifstofu vorri, föstudaginn 16.
ágúst n.k. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
v Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Akveðiö hefur verið að heimilið
skuli risa á Egilsstöðum og verð-
ur nú unnið að samningum við
heimamenn þar um. Nú er leitað
eftir stuðningi heilbrigðisráðu-
neytisins við bygginguna og að
þvi stefnt að hafist verði handa
um framkvæmdir næsta ár.
Styrktarfélagið hélt á sl. ári
fræðslu- og kynningar fund i
Staðarborg I Breiðdal, sem eink-
um var hugsaður fyrir aðstand-
endur vangefins fólks.
Þangað komu hinir færustu
fyrirlesarar og tókst fundurinn
ágætlega.
Aðalfundur félagsins verður
svo haldinn 18. ágúst nk. að Eið-
um og þá vérður einnig fræðclu
fundur um málefni vangefinna á
svipuðum grundvelli og var i
Staðarborg og hefur félaginu á ný
orðið vel ágengt meö hina ágæt-
ustu fyrirlesara.
Styrktarfélagið hefur frá stofn-
un notið sérstaks velvilja Aust-
firðinga, heima jafnt sem heiman
m.a. þegið hinar ágætustu gjafir
til starfseminnar. Félagið hefur
snúið sér til sveitarstjórna á
Austuriandi með beiðni um fjár-
hagslegan stuðning og hlotið
prýðilegar undirtektir.
Það mun einnig leita aðstoðar
rikisvaldsins i þessum efnum.
Þess skal að lokum vænst, að
sem flestir félagar sjái sér fært að
mæta á aðalfundinum 18. ágúst
nk., ekki sist aðstandendur van-
gefinna, sem gætu haft mikið
gagn af fræðslufundinum. For-
maður félagsins er Kristján
Gissurarson, Eiðum, en aðrir i
stjórn eru: Aðalbjörg Magnús-
dóttir, Búðum, Asdis Gisladóttir,
Breiðdal, Kristján Ingólfsson,
Reyðarfirði og undirritaður.
Reykjavík 10/8 ’74
Helgi Seljan
Noregur:
Dregur úr
aukningu
orkuneyslu
Osló 12/8 — Norska tölfræðistofn-
unin hefur sent frá sér skýrslu um
orkuneyslu Norðmanna árin
1969—72. í henni birtist sú merki-
lega staðreynd að aukning orku-
neyslu var mun minni á þessum
árum en á árunum 1960—69.
A fyrra timabilinu jókst orku-
neyslan að meðaltali um 6% ár-
lega en á þvi siðara aðeins um
2,8% að meðaltali á ári. I áætlun-
um yfirvalda haföi verið gert ráð
fyrir 4,5% meðalaukningu á ári.
Skýrslan sýnir að mikil breyt-
ing hefur orðið á orkugjöfum.
Hafi mjög dregið úr notkun kola
og annars eldneytis i föstu fomi
en notkun oliu og þó einkum raf-
magns aukist verulga. Olæiu-
notkun Norðmanna var all 6,1
miljón tona árið 1972 enrafn-
magnsnotkuninnam það ár alls
tæplega 57 miljónuh kílóvatt-
stunda. Af heildarorkuneyslunni
var hlutur rafmagnsns 54,2% en
oliunnar 37,1% ogaðrir orkugjaf-
ar voru 8,7% af heildaneyslunni.
VestmannaeyingaríReykjavík og
nagrenni
Ég leyfi mér að senda ykkur,
Vestmannaeyingum, sem enn
eruð dreifðir um Reykjavik og
nágrannabæina, Kópavog,
Garðahrepp og Hafnarfjörð, smá
orðsendingu.
Svo er mál með vexti, að
fimmtudagskvöldið, er kemur,
þann 15. þ.m. er ákveðið að hafa
heigistund i kirkju Óháða safnað-
arins, sem jafnframt verður
þakkarstund, en við þennan söfn-
uð, prest hans, sira Emil Björns-
son ásamt öllu starfsfólki safnað-
arins, stöndum við Vestmannaey-
ingar i óbættri þakkarskuld og
reyndar við söfnuðinn i heild.
Presturinn og safnaðarstjórnin
sýndi okkur þá einstöku velvild,
þegar við neyddumst til að flýja
heimili okkar, að bjóða okkur inni
i kirkju sinni endurgjaldslaust
svo lengi, sem við þyrftum á að
halda.
í þessari kirkju hefur verið
miðstöð safnaðarstarfs Landa- ■
kirkju i dreifingunni. Alit, sem
þvi starfi fylgir hefur okkur stað-
ið þar til boða. Auk þess höfum
við notið stuðnings margra ómet-
anlegra starfskrafta, svo sem
kirkjukórs safnaðarins, sem allt-
af hefur mætt til hverrar messu,
ásamt fleirum ágætum söng-
kröftum undir stjórn hins mikil-
hæfa söngstjóra og kirkjuorgan-
ista, Jóns Isleifssonar, sem innt
hefur mikið starf af höndum i
okkar þágu endurgjaldslaust.
Þá má og geta þess, að söfnuðir
Framhald á 11. siðu.
Styrkir úr minningar-
sjóði dr. Urbancic
Þjóðviljanum hefur borist svo-
hljóðandi fréttatilkynning:
Eins og áður var hinn 9. ágúst
sl., á afmælisdegi dr. Victors Ur-
bancic, úthlutað styrk úr
minningarsjóði hans. Styrkinn
skyldi að þessu sinni veita hjúkr-
unarkonu til sérnáms I hjúkrun
heila- og taugaskurðsjúklinga I
samræmi við skipulagsskrá
sjóðsins. Styrkinn hlaut Kristin
óladóttir, yfirhjúkrunarkona við
gjörgæsludeild Borgarspitalans i
Reykjavik, og hyggst hún fara ut-
an á næstunni þeirra erinda.
Sjóðnum hafa að undanförnu
borist ýmsar gjafir eins og áður,
og ber þar fyrst að nefna mynda
legt framlag Þjóðleikhússkór
ins, en hann hefur löngum stuðlí
að vexti og viðgangi sjóðsins m«
framlögum i einhverri mynd.
Stjórn sjóðsins skipa nú Kris
inn Guðmundsson, sérfræðingur
heila- og taugaskurðlækningun
Þorsteinn Sveinssön, lögmaðu
og dr. Melitta Urbancic.
Þess má geta, að minninga
spjöld sjóðsins fást i Bókaverslu
Isafoldar, Austurstræti, Bók;
verslun Snæbjarnar Jónssona
Hafnarstræti 4, og á aðalskri
stofu Landsbankans, Ingólfshvo
við Hafnarstræti, 2. hæð.