Þjóðviljinn - 14.08.1974, Qupperneq 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlftvikndagiir 14. ágúst 1974
OIODVIUINN
MÁLGAGN SÓSiALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Skólavörðust. 19. Simi,17500 (5 linur)
Svavar Gestsson (áb)
Fréttastjóri: Eysteinn Þorvaldsson Prentun: Blaðaprent h.f.
ÞEIR FÁ SINN DÓM
Allan þann tima sem stjórnarmynd-
unarviðræður Ólafs Jóhannessonar stóðu
yfir reyndu Alþýðubandalagsmenn af
kappi að leggja sitt af mörkum til þess að
samkomulag gæti orðið. Var farið vand-
lega yfir hina ýmsu málaflokka, rætt um
þá margoft i forustustofnunum Alþýðu-
bandalagsins og þátttaka flokksins i við-
ræðunum öllum byggðist á fyllstu heilind-
um og vilja til þess að ná samkomulagi.
Þegar ólafur Jóhannesson sleit viðræðun-
um var i rauninni hætt við hálfnað verk, á-
reiðanlega hefði verið unnt að ná sam-
komulagi ef allir aðilar viðræðnanna
hefðu haft raunverulegan vilja til þess að
leiða þær farsællega til lykta, — en þvi var
þvi miður ekki að heilsa.
Þegar ólafur Jóhannesson stóð upp frá
viðræðunum i viðræðunefnd flokkanna i
fyrrakvöld lagði hann hvað eftir annað á-
herslu á að það væri afstaða Alþýðu-
flokksins sem hefði ráðið úrslitum um að
tilraunin hefði mistekist. Gylfi Þ. Gislason
krafðist þess að haft yrði samráð við Al-
þýðusambandið og Vinnuveitendasam-
bandið („aðra aðila vinnumarkaðarins”)
um ráðstafanir i efnahagsmálum áður en
stjórnin yrði mynduð. Þessi afstaða Gylfa
hafði oft komið fram og enginn skyldi láta
sér til hugar koma að hún stafaði af heil-
indum i garð verkafólks (— enda kallaði
hann þetta sjálfur litilfjörlegt formsatriði
— eftir að viðræðunum lauk!). Hins vegar
hafði oft komið fram að ólafur Jóhannes-
son var algerlega andvigur þessu „sam-
ráði” og hann setti þá neitun sem úrslita-
atriði af sinni hálfu. Þetta vissi Gylfi allan
timann, en hann skýrði flokksstjórn Al-
þýðuflokksins aldrei frá þvi.
Sá ljóti leikur sem Gylfi Þ. Gislason hef-
ur leikið i stjórnarmyndunarviðræðunum
að undanförnu verður án efa mikið til um-
ræðu næstu daga og alþýðufólk i landinu á
áreiðanlega eftir að minnast þess að það
var hann sem kom i veg fyrir að mynduð
var vinstristjórn á íslandi árið 1974.
Þó að nokkur timi sé liðinn frá þvi að
Ólafur Jóhannesson hóf tilraun sina til
stjórnarmyndunar kom ekki verulegur
skriður á viðræðurnar fyrr en i siðustu
viku og má heita að látlaust hafi verið
starfað siðan. Alþýðubandalagið telur að
ekki hafi vantað mikið á að samkomulag
næðist um þau mál sem einkum voru rædd
—utanrikismál, efnahagsmál og málefna-
samning fyrir hugsanlega stjórnarmynd-
un. Það var i rauninni hætt við hálfnað
verk og ástæðan til þess að skarst i odda
var raunveruleg andstaða Gylfa Þ. Gisla-
sonar við þátttöku i rikisstjórn með frá-
farandi stjórnarflokkum.
1 herstöðvamálinu var eftir að ræða
ýmis mál. Þar hafði raunar komið i ljós að
Alþýðuflokkurinn var ákaflega tregur til
samstarfs, en þó hafði ekki verið fullreynt
hvort unnt yrði að mynda rikisstjórn.
í sambandi við væntanlegar efna-
hagsaðgerðir var heldur ekki ljóst hvort af
samkomulagi gæti orðið, — en hitt lá fyrir
að flokkarnir hefðu getað nálgast mjög
verulega. Alþýðubandalagið lagði á það
megináherslu að efnahagsaðgerðirnar
yrðu ekki látnar koma niður á láglauna-
fólki, en þeir sem betur væru stæðir fengju
að axla byrðarnar. Ennfremur lagði Al-
þýðubandalagið áherslu á að söluskattur
yrði ekki hækkaður. En einnig þetta var
ekki að fullu rætt.
í sambandi við umræður um hugsan-
legan málefnasamning flokkanna hafði
Alþýðubandalagið lagt fram ákveðnar til-
lögur um innflutningsverslun, trygginga-
mál og oliudreifingu, svo dæmi séu nefnd.
Þessar tillögur fengu dræmar undirtektir
— en þær voru heldur ekki útræddar.
í landhelgismálinu hafði Alþýðu-
bandalagið lagt aðaláherslu á það að engir
samningar yrðu gerðir um frekari veiði-
heimildir innan 50-milna markanna og að
Bretar færu skilyrðislaust út fyrir 50
milna mörkin er samningurinn við þá
rynni út. Þá gerði Alþýðubandalagið jafn-
framt ráð fyrir að dagsett yrði — við lok
samningsins við Breta — útfærsla land-
helgarinnar i 200 milur. Á þetta vildu Al-
þýðuflokkurinn og Framsókn heldur ekki
fallast — en einnig hér var ekki að fullu
reynt hvort samkomulag næðist.
Eins og hér sést var i rauninni hætt við
hálfnað verk, andstaða Gylfa við myndun
rikisstjórnar var slík að forsætisráðherra
taldi áframhaldandi viðræður þýðingar-
lausar. Abyrgðina á þvi ber Gylfi Þ. Gisla-
son og samningamenn Alþýðuflokksins.
Fyrir það munu þeir fá sinn dóm.
Enn karpað um Njáluhöfund
„Karlinn er bara
orðinn ær”
segir Benedikt frá Hofteigi um vin sinn
Helga frá Hrafnkelsstöðum, sem segist
hafa skilaboð frá Snorra Sturlusyni
//
ekkert annað.
enginn
svona löguðu", segir Bene-
dikt frá Hofteigi um þau
ummæli Helga á Hrafn-
kelsstöðum, að hann hafi í
gegnum miðil fengið stað-
festingu á því, að Snorri
Sturiuson hafi skrifað
„Eflaust er Helgi
ekki að Ijúga neinu um
þessi sambönd við Snorra,
— hann er bara orðinn ær í
þessari vitleysu sinni og er
farinn að trúa of blint."
— Sjálfur hef ég fundiö höfund
Njálu, segir Benedikt. Til þess
nota ég einfalda aöferö, sem á sér
margar hliöstæöur i Islandssög-
unum. Þaö hefur löngum verið
venja islenskra fornsagnahöf-
unda að fela nafn sitt með ein-
hverju móti og þaö er einmitt það,
sem hefur verið gert i sambandi
viö Njálu.
Þetta er bara slúður og
Það tekur
maður mark á Njálu.
Alþjóðasamband flutningamanna:
Hyggst herða eftirlit
með anamaskip um”
Stokkhólmi 10/8 — Alþjóðasam-
band flutningaverkamanna, ITF,
hyggst herða eftirlitið meö skip-
um sem sigla undir fölsku flaggi,
þ.e. eru skráö i löndum eins og
Liberiu, Panama, Kýpur,
Sómalfu, Singapore og Hondúras,
og auka með þvi arörániö á skips-
höfnunum og draga úr öryggis-
ráöstöfunum og vinnuaöbúnaöi.
Samkvæmt skýrslu frá SÞ eru
23% skipastóls heimsins skráö I
þessum löndum. Eru þess dæmi
aö sjómönnum frá Indónesiu séu
greiddar um 1600 Isl. kr. I mánaö-
arlaun.
Sambandiö vonast eftir stuön-
ingi rikisstjórna og hafnaryfir-
valda til þess að bæta vinnuskil-
yrði og launakjör sjómanna á
skipum sem sigla undir fánum
þessara landa. Einnig veröa út-
geröarfélög beitt þrýstingi.
ITF heldur nú ráöstefnu i
Stokkhólmi, og eru þangað mætt-
ir 7 fulltrúar frá Chile. Að sögn
aöalritara sambandsins fá þessir
menn ekki aö taka til máls á ráö-
stefnunni þar sem ekki er vitaö
hverra hagsmuna þeir eiga aö
gæta.
Benedikt
Sögunni lýkur á eftirfarandi
oröum:
...og lýk ek hjer Brennu-Njáls
sögu. Þarna notar höfundur i
fyrsta skipti persónufornafniö
,,ek” auk þess, aö hann nefnir
þarna i fyrsta sinn orðiö „Brennu-
Njáll”. Viö athugun kemur I ljós,
að tilgangurinn með þvi að nota
þessi orð er augljós. Höfundur
felur þarna nafn sitt eöa undir-
skrift og með þvi að taka hvern
staf I þessum orðum og raða þeim
upp á nýtt, fæst út nafn höfundar-
ins: „Brjánn Eyjólfsson klerk
egh”. Þetta „egh” er alþekkt I
öllum Islendingasögum og þýöir
„eigin hendi”
Þaö er þvi engum vafa undir-
orpið, hver höfundur Njálu er;
hann hefur undirritað söguna
meö algengu dulmáli, og eru
mörg dæmi til um slika hæversku
fornra höfunda.
— Er Brjánn þessi Eyjólfsson
e.t.v. kunnur af fleiri ritverkum?
— Brjánn mun hafa verið sonur
Eyjólfs Sæmundssonar, og er trú-
legt aö móöir hans hafi verið frá
Orkneyjum. Löngum hefur veriö
álitið aö Njála sé skrifuð af
manni, sem ekki var beinlinis i
höföingjastétt, en þó svo vel
menntur, aö hann var fær um
mikil ritstörf. Brjánn Eyjólfsson
var einmitt mikið utangátta I
Helgi.
sinni ætt, þar eö hann var laun-
getinn og fékk þvi engan arf. Orö-
iö „Brennu-Njáll” kemur einnig
fyrir i Holta-Þórissögu, og er það
öruggt mál að hún er skrifuð af
sama höfundi.
Mikill ruglingur
Helga
— Hvaö um Snorra-kenningu
Helga?
— Það er auðvelt að hrekja
hana af fyllstu rökvisi. Helgi telur
Snorra hafa skrifað söguna þar eö
sama oröalag sé notaö i Heims-
kringlu og Njálu, en þaö er ekki
nema eölilegt að oröavalið sé
svipaö, þar eð sögurnar eru skrif-
aöar á sama timanum. Sú rök-
semd er þvi marklaus.
Ég tel mig ávallt færan um aö
hrekja fullyrðingar Helga um
Njáluhöfund, þær eiga sér harla
litla stoö, og þessi saga um
Snorra og Höskuld Þráinsson,
sem er vitrun Helga i gegnum
miöil, breytir afstöðu minni ekki
á nokkurn hátt.
Ég hef fundið höfund Njálu og
þótt enginn vilji enn taka mark á
oröum minum, er ég sannfæröur
um aö þess veröur ekki langt að
biða, aö kenningin veröi viöur-
kennd.
— gsp-