Þjóðviljinn - 14.08.1974, Qupperneq 5
Miftvikudagur 14. ágúst 1974 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Skopmynd af nokkrum fremstu skákmönnum Sovétrfkjanna.
Viðtal við
Tal um
einvígi þeirra
Kortsnojs og
Karpovs
A. Roshalj (APN)
Blaðamaður APN bað Mikhail
Tal, fyrrverandi heimsmeistara i
skák að segja frá áliti sinu á fyr-
irhuguðu einvigi þeirra Viktors
Kortsnojs og Anatóli Karpovs og
hvað honum fyndist um leikstíl
þeirra.
„Still þeirra hefur komið nokk-
uð skýrt fram I þeim forkeppnum,
sem þeir hafa leikið i. Mig langar
einkum til að leggja áherslu á, að
i einviginu við Petrosjan lék
Kortsnoj af hörku og sýndi bestu
þætti Iþróttaeðlis sins, og fyrir
það gáfu vestrænir blaðamenn
honum viðurnefnið „Viktor
hræðilegi”. Ég ætla að reyna að
útskýra I hverju iþróttaeðli hans
er fólgið.
Eitt sinn er Kortsnoj haföi unn-
ið með glæsibrag allar sinar
skákir i alþjóðakeppni, nema
eina, sem lauk með jafntefli, hóp-
uðust að honum blaðamenn, eins
og gefur aö skilja. 1 slikum tilfell-
um talar sigurvegarinn venjulega
um góöa veðrið og I hversu góðu
skapi hann sé. En Kortsnoj sagði
reiðilega, að hann hefði leikið illa.
Það hefði orðið jafntefli, en hann
hefði getaö unnið og setti fram
dæmi þvi til sönnunar.
Þetta hélt ég, að væri allur
Kortsnoj. En þar skjátlaðist mér.
Satt að segja hef ég aldrei séð
slikan Kortsnoj eins og ég sá i ein-
viginu við Petrosjan. Hann gekk
berserksgang eins og venjulega,
en var Ihugulli en nokkru sinni
áður. 1 einviginu 1971 flækti
Petrosjan Kortsnoj i leikkerfi
sinu, en nú fór allt á aðra leið.
Sigur Karpovs yfir Spasski
hafði enn meiri áhrif á mig. 1 ein-
vigi þeirra i Leningrad hafði ég
mestan áhuga á að vita, hvernig
Karpov, sem ekki er vanur að
tapa, tæki hinum fyrsta ósigri
sinum. Svo kom fyrsta skákin.
Spasski vann með yfirburðum.
Karpov fékk kvef og varð að nota
annan af leyfilegum veikindadög-
um. Ég hélt satt að segja, að
Karpov mundi falla saman þrátt
fyrir ytri uppgerðarró. En i þeim
skákum, sem eftir voru, sýndi
Karpov sig sem þroskaðan bar-
dagamann með stáltaugar.”
Tal heldur áfram: „Endirinn á
niundu skák Karpovs og Spasski
hafði mikil áhrif á mig. Þegar
skákmaður finnur eina leikinn,
sem leiðir til vinnings, fær hann
tvö upphrópunarmerki. Hann á
það skilið. En hvernig á að meta
það, þegar skákmaður velur þaö
framhald af mörgum tilbrigðum,
sem augljóst er strax eftir leikinn
að leiðir einmitt til sigurs. Við at-
huguðum mögulega peðfórn hjá
Spasski og reyndum að sanna aö
hún væri ekki nægileg og að hvit-
ur ætti að sigra, þegar erfiðleik-
unum hefði veriö rutt úr vegi, en
Karpov leikur, og þar með er
skákin búin.”
Tal kemur sér hjá að svara
spurningunni um, hvor sigri I
lokaeinviginu, Karpov eða
Kortsnoj. Þess I stað segir hann:
„Mig langar til að minna á, að
vinningafjöldi þeirra er jafn, 2:2
og eitt jafntefli. Það má segja, að
Karpov hafi þar smávegis yfir-
buröi, þar sem hann hafði svart i
tveim skákum, sem hann tefldi til
sigurs. En tekur þvi að tala um
slika smámuni, þegar önnur eins
keppni er framundan?”
A siðasta Olympíuskákmóti,
sem haldið var i borginni Nizza
spurði blaðamaður APN nokkra
erlenda stórmeistara um álit
þeirra á einvigi Kortsnojs og
Karpovs.
Jan Timmerman frá Hollandi
sagöi, að Kortsnoj mundi eins og
venjulega komast i timaþröng og
i þessu langa einvigi gæti aldurs-
munur keppendanna haft áhrif,
en Kortsnoj er 20 árum eldri en
Karpov. Karpov teflir aftur á'
móti léttilega og kemst aldrei i
timaþröng. Hollenski stórmeist-
arinn telur, að þar liggi yfirburðir
Karpovs.
Sviinn Ulf Andersson og Ung-
verjinn Laiosh Portish telja
möguleika skákmannanna nokk-
urn vegin jafna, en tékkneski
stórmeistarinn Vlastimil Hort
leggur áherslu á hið góða Iþrótta-
form Karpovs. Hann telur, að ein-
vigið, sem hefst I Sambandshús-
inu i Moskvu i september verði
„taugastrið”. Miguel Naidorf,
argentinski stórmeistarinn telur,
að Karpov muni sigra.
En hvað er álit þeirra sjálfra?
Ég ætla að segja frá tveim at-
burðum, sem ég varð vitni að. í
neðanjarðarlestinni i Moskvu
þekktu þrir drengir Karpov og
báöu hann um eiginhandaráritun
' og óskuðu honum siðan velgengni
I einviginu viö Fisher. „Það er
enn langt þangað til”, sagði
Karpov. „Ég á eftir að heyja
þungt einvigi við Kortsnoj.”
Stuttu siðar gekk ég á götu með
Kortsnoj og tveir stúdentar báðu
hann um eiginhandaráritun og
spurðu, hvað hann heldi um fyrir-
hugað einvigi. „Ég vinn örugg-
lega”, sagði Kortsnoj.
Það er alls ekki ætlunin að láta
lita svo út, sem Kortsnoj sé mont-
inn maður. En hann reynir aðeins
aö vera viss um lokasigur sinn.
Aldurinn rekur á eftir honum.
Það er nú eða aldrei.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi að gjalddagi söluskatts fyrir júlimán-
uð er 15. ágúst. Ber þá að skila skattinum
til innheimtumanna rikissjóðs ásamt sölu-
skattsskýrslu i þririti.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ 12. ágúst 1974
ÚTSALA
Útsalan hefst
á morgun
ULLARKÁPUR
JERSEYKÁPUR
CRIMPLENEKÁPUR
TERYLENEKÁPUR
FRAKKAR
DRAGTIR
JAKKAR
BUXNADRAGTIR
Fjölbreytt úrval,
lágt verð
Bernharð Laxdal
Kjörgarði
Frá menntamála-
ráðuneytinu
Akveðið hefur verið að halda námskeið I sjóvinnubrögðum
fyrir kennara og aðra þá sem taka vilja að sér kennslu f
sjóvinnubrögðum I gagnfræðaskólum.
Námskeiðið veröur haidiö i Stýrimannaskólanum I
Reykjavik dagana 2.—13. september n.k.
Umsóknir sendist ráðuneytinu eigi siðar en 22. ágúst.
Menntamálaráðuneytið.
Atvinna
Trésmiðir og
verkamenn óskast
Vantar strax trésmiði og verkamenn. Næg
vinna. Upplýsingar i simum 84825 og
40650. Kvöidsimi: 37343.
Læknaritarar
2 stöður læknaritara i Borgarspitalanum
eru lausar til umsóknar.
Góð vélritunarkunnátta áskilin.
Umsóknir skulu sendar skrifstofustjóra,
sem jafnframt veitir frekari upplýsingar
um stöðurnar.
Reykjavik 13. ágúst 1974.
BORGARSPÍTALINN
PÓSTUR OG S
Lausar stöður
hjá Rekstursdeild — ÍSAFJÖRÐUR
— staða loftskeytamanns eða simritara við loftskeyta-
stöðina.
— staða póstafgreiðslumanns.
Nánari upplýsingar veitir umdæmisstjóri Pósts og sima
ísafirði.