Þjóðviljinn - 14.08.1974, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 14. ágúst 1974
Breiðahliksdrengirnir urðu
þrefaldir íslandsmeistarar
Fimmti flokkur Breiöabliks varö aö þessu sinni Islandsmeistari annaö áriö I röö. Fremri röö frá
vinstri: Friögeir Guömundsson, Birgir Arnason, Trausti Ómarsson, Sigurjön Kristjánsson fyrirliöi,
Birgir Mogensen, Sigtryggur Baldursson, Þóröur Daviösson og Ingvaldur Gústavsson. Aftari röö frá
vinstri: Guðni Stefánsson formaöur knattspyrnudeildar Breiöabliks, Heiðar Bergmann Heiöarsson,
Vilhjálmur Siguðrsson, Helgi Bentsson, óskar Friöbjörnsson, Siguröur Grétarsson (sem var marka-
hæstur I sumar og skoraöi 20 mörk i lslandsmótinu) Aöalsteinn Jónsson, Júlíus Hafsteinsson, Jón
Magnússon, Guömundur Þóröarson, sem þjálfaöi 5. flokkinn einnig I fyrra og hefur þvi gert hann aö tvö-
földum islandsmeisturum.
Fjóröi flokkur Breiöabliks. Fremri röö frá vinstri: Guömundur Þorkelsson, Arni Dan Einarsson,
Þorsteinn Hilmarsson fyrirliöi. Þórir Gislason, Halldór Eiriksson, Bjarni Sigurösson og Siguröur Viggó
Halldórsson (sem skoraöi bæöi mörk Breiöabliks iúrslitaleiknum). Aftari röðfrá vinstri: Guöni Stefáns
son formaöur. Guömundur Ólafur Halldórsson, Jóhann Jóhannsson, Sveinn Ottósson, Ólafur Börkur
Þorvaldsson, Páli Ævar Pálsson, Birgir Teitsson, Benedikt Þór Guömundsson, Guömundur Agnar
Kristinsson, Jóhann Grétar Halldór Sigurbjörnsson og Gissur Guömundsson þjálfari og formaöur ung-
linganefndar knattspyrnudeildar.
Þriöji flokkur Breiöabliks, sem varö meistari eftir hörkuspennandi leik gegn Valsmönnum: Fremri röö
frá vinstri: Páll Kristinsson, Einar Guölaugsson, Ingvar Teitsson, Kristján Þór Gunnarsson, Valdimar
Valdimarsson fyrirliöi, Rúnar Guömundsson, Vilmar Pétursson. Aftari röö frá vinstri: Asgeir
Þorvaldsson þjálfari, Andrés Kristjánsson (sem skoraði glæsilega eina mark leiksins) Tómas Þór
Tómasson, Jón Orri Guðmundsson, Theódór Guöfinnsson, Pálmar Breiöfjörö, Sigurjón Rannversson,
ólafur Björnsson, Kjartan Arnason, Guöni Stefánsson, formaöur. A myndina vantar Hákon Gunnars-
son, sem lék meö flokknum hvern einasta leik Isumar, nema úrslitaleikinn.
í Kópavogi er mikil rækt lögð
við yngri flokkana, og unglinga-
starfið er svo sannarlega líflegt
Það verður ekki annað
sagt en að yngri drengirnir
i Breiðabiik hafi skilað
góðum árangri í sumar.
Ekki einn einasti flokkur
hefur tapað leik í íslands-
mótinu/og hvorki meira né
minna en 3 islands-
meistarabikarar munu í
veturog næsta sumar gista
í Kópavogi.
Undanúrslit og síðan úr-
slita leikirnir í þriðja,
fjórða og fimmta flokki
fóru fram um helgina. Þar
léku saman í 5. flokki UBK
og Keflavík/ og sigraði
Breiðablik með þremur
mörkum gegn einu. Strax á
eftir léku í 4. flokki sömu
lið og aftur sigruðu Blik-
arnir, — að þessu sinni 2-0.
Síðasti leikurinn á Mela-
velli i fyrrakvöld var svo í
3. flokki, og mættust þar
Breiðablik og Valur. Sá
leikur var geysispennandi
og hnífjafn allan tímann,
og mér er til efs að spenn-
ingur á Melavelli hafi oft
verið meiri en að þessu
sinni. Eina mark leiksins,
— sigurmarkið, — skoraði
Andrés Kristjánsson um
miðjan síðari hálfleik.
Hann fékk stungubolta inn
fyrir vörnina, að því er
virtist í lokað færi út við
endamörk, en glæsilegt
þrumuskot Andrésar rat-
aði réttu leiðina, og fögn-
uður Blikanna var innileg-
ur.
Engum dylst, aö á bak viö góð-
an árangur knattspyrnumann-
anna ungu liggur mikiö og óeigin-
gjarnt starf þjálfara, forystu-
manna og ekki sist drengjanna
sjálfra. Viö höföum samband við
Gissur Guömundsson, formann
unglinganefndar Breiðabliks og
báðum hann aö segja okkur lítil-
lega frá starfinu.
— Jú, þaö er rétt, við höfum
lagt á okkur mikla vinnu, og
árangurinn kom heldur betur i
ljós. Hér hafa þjálfarar mætt
undantekningarlaust á hverja
einustu æfingu, og er þaö vissu-
lega mjög mikilvægt. Æfing hefur
aldrei fallið niöur, og ég hygg að
næstum hver einasti leikmaður
hafi mætt 100% i allt sumar. Það
hefur hjálpaö okkur mikið hve
foreidrar hafa verið skilningsrik-
ir, og sumarleyfum t.d. verið
frestað unnvörpum eingöngu
vegna knattspyrnuleikja. Nú er
mótinu lokið, og margir eru þegar
lagðir af staö i feröalög. Má sem
dæmi nefna, að einn af strákun-
um lagði af stað til ítaliu 12
klukkustundum eftir að úrslita-
leiknum lauk.
— Félagsandinn?
— Það verður ekki annað sagt
en að hann sé eins og best verður
á kosið. Við höfum komist langt á
þvi einu að vinna saman sem ein
hönd og taka þátt i gleði og sorg
hvers annars. Vináttuböndin eru
traust og leggja grunninn að
árekstralausu starfi.
Við reynum að vinna eitthvað
saman annars staðar en eingöngu
á æfingum, og má t.d. nefna, aö til
að safna I ferðasjóð höfum við
tekið að okkur margs konar dreif-
ingu blaða og bæklinga um Kópa-
voginn.
Siöan komum við saman á
skemmtun við og við og veljum
árlega Iþróttamann ársins i
hverjum flokki. Þeim, er þann
titil hreppir, eru veitt verölaun,
bikar o.fl.
— Er ekki æft allan daginn hjá
þeim áhugasömustu?
— Ekki segi ég það nú, en
Kópavogsbær launar starfsmann
hér við völlinn allt árið um kring,
og þess vegna geta strákarnir
komið hér þegar þeir vilja, fengið
lánaðan bolta og haft aðgang að
bað- og búningsklefum. Margir
notfæra sér þetta, og er hjálp I þvi
eins og öðru.
8-liða bikar
er í kvöld
1 kvöld klukkan 20.00 fara
fram leikir I 8-liða úrslitum
bikarkeppninnar. Þegar liðin
voru dregin saman vildi þann-
ig til, að leikir lentu á 4 stöðum
á landsbyggðinni og geta þeir
þvi allir farið fram i kvöld, en
oft hefur dráttur oröið þannig,
að tvö lið lenda á Laugardals-
velli sem heimavelli, og tefur
það bikarkeppnina nokkuð.
í kvöld fara þvi 4 leikir
fram: IBK — Valur i Keflavlk,
1A — Fram á Akranesi, IBV —
Völsungur i Vestmannaeyjum
og Vikingur — KR á Laugar-
dalsvelli.
Umsjón: Gunnar Steinn Pálsson
0