Þjóðviljinn - 14.08.1974, Page 12
oMvium
Miðvikudagur 14. ágúst 1974
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla
lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna 9.-15.
ágúst er i Reykjavikurapóteki og
Borgarapóteki.
Tannlæknavakt fyrir skólabörn I
Reykjavik er I Heilsuverndarstöðinni I
júli og ágúst alla virka daga, nema
laugardaga, kl. 9-12 f.h.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Forsœtisráðherra i viðtali:
Sný mér til Sjálf-
stæðisflokksins
Þjóðviljinn sneri sér i gær til
Ólafs Jóhannessonar forsætisráð-
herra og spurði hann fyrst: A
hverju strandaði þessi tilraun til
stjórnarmyndunar? Ólafur svar-
aði:
— Það voru ýmis mál, sem
ágreiningur var um, varnarmál,
efnahagsaðgerðir og ýmis fram-
tiðarmál. Þessi ágreiningur var
auðvitað nokkur, en ekki svo
ýkjamikill um hvert mál fyrir sig.
Þó vildu menn ekki ganga á hvert
mál fyrir sig heldur vildu þeir fá
allan pakkann á borðið. En við
þetta bættist svo það, að i gær,
mánudag, kom fram, að Alþýðu-
flokkurinn vildi hafa samráð við
tiltekna aðila utan stjórnarinnar
meðan stjórnarmyndun stæði
yfir, en ég hafði mjög snemma i
viðræðunum lýst mig andvigan
þvi.
— Hverjir voru þessir aðilar?
— Það voru nefnd Alþýðusam-
bandsins og BSRB og aðrir aðilar
vinnumarkaðarins.
— Nú hefur forseti íslands falið
þér að reyna að mynda meiri-
hlutastjórn með öðrum hætti.
Hvernig muntu snúa þér i þvi?
— Ég mun beita mér fyrir við-
ræðum við Sjálfstæðisflokkinn og
kanna hvort þar eru möguleikar á
samkomulagi.
Ég tel það höfuðskyldu alþingis
að reyna að mynda meirihluta-
stjórn og það eru ekki margir
kostir úr þvi að þessi brást. Þess
vegna sný ég mér nú til Sjálf-
stæðisflokksins. Það er auðvitað
Alþýðuflokkurinn segir:
„Samráð við
ASÍ og aðra
aðila vinnu-
markaðarins”
Þjóðviljanum barst I gær
fréttatilkynning frá viðræðunefnd
Alþýðuflokksins um stjórnar-
myndun. Þar kcmur fram aö
aðalástæðan til þess að stjórnar-
myndunartilraunin mistókst var
deila forsætisráðherra og Alþýðu-
flokksins um „samráð við ASt og
aðra aðila vinnumarkaðarins”
(Vinnuveitendasambandið —
Gylfi Þ. Gislason — vildi aldrei
'vinstri stjórn
íhaldið
sagði
strax já
A þingflokksfundi Sjálfstæðis-
flokksins i gær var samþykkt að
verða við tilmælum ólafs Jó-
hannessonar, formanns Fram-
sóknarflokksins, um könnun á
myndun meirihlutastjórnar.
Lagði Sjálfstæðisflokkurinn jafn-
framt áherslu á að samningar
yrðu að takast fljótt og hugsan-
legt væri að Alþýðuflokkurinn
yrði tekinn með á slðari stigum,1
eins og það var orðað.
innsk. Þjv.). t fréttatiikynningu
Alþýðuflokksins segir svo:
,,t varnarmálum gerði Alþýðu-
flokkurinn þá ófrávikjanlegu
kröfu, að ísland verði áfram i
varnarsamtökum vestrænna
þjóða og engin ákvörðun verði á
þessu stigi tekin um brottför
varnarliðsins. Hins vegar lýsti
flokkurinn sig reiðubúinn til að
ræða margvislegar breytingar á
framkvæmd varnarmálanna og
lagði fram margar hugmyndir á
þvi sviði.
Framsóknarflokkurinn tók
sömu stefnu og Alþýðuflokkurinn
i þessu máli, en Alþýðubandalag-
ið neitaði öllu samkomulagi, sem
ekki fæli i sér ákveðnar dagsetn-
ingar fyrir brottför varnarliðsins.
Varðandi stefnuna i efnahags-
málum voru sérstaklega ræddar
hugmyndir, sem forsætisráð-
herra lagði fram um timabundn-
ar efnahagsráðstafanir. Alþýðu-
flokkurinn taldi, að ekki væri
hægt að ráðast i jafnflóknar efna-
hagsaðgerðir, sem þar væri um
að ræða og mjög snertu gildandi
kjarasamninga og hagsmuni
launþega yfirleitt, nema að höfðu
samráði við ASÍ og aðra aðila
vinnumarkaðsins, enda ekki hægt
að tryggja örugga framkvæmd
heildarstefnu i efnahagsmálum
nema með samstarfi aðila vinnu-
markaðsins og rikisins. Lagði Al-
þýðuflokkurinn til, að slikt sam-
ráð yrði haft þegar i stað og taldi,
að eins og málum væri nú komið,
væri unnt að ljúka þeim viðræð-
um á mjög skömmum tima. For-
sætisráðherra kvaðst hins vegar
ekki geta fallist á þetta sjónarmið
Alþýðuflokksins, þ.e. samráð við
ASl og aðra aðila vinnumarkaðs-
ins, meðan á stjórnarmyndunar-
tilraunum standi. Fulltrúar Ai-
þýðubandalagsins og Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna
tóku ekki undir tillögu viðræðu-
nefndar Alþýðuflokksins um
samráð við ASl og aðra aðila
vinnumarkaðsins áður en
stjórnarsáttmáli yrði gerður”.
ólafur Jóhannesson
nugsamegt, ef sú tilraun mis-
heppnast, að Alþýðubandalagið
og Sjálfstæðisflokkurinn skipi
meirihlutann. Takist það ekki
heldur er ekki annað fyrir forseta
íslands að gera en að mynda em-
bættismannastjórn.
— Varstu i upphafi bjartsýnn á
að stjórnarmyndun tækist með
fráfarandi stjórnarflokkum og
Alþýðuflokknum?
— Já ég var sannarlega bjart-
sýnn i upphafi, en vonir minar
dofnuðu eftir þvi sem á leið.
Magnús Torfi Ólafsson:
Hörmulegt
að afstaða Alþýðuflokks
kom ekki fyrr fram
Þjóðviljinn hafði i gær sam-
band við Magnus Torfa ólafs-
son menntamálaráðherra I til-
efni þess, að upp úr slitnaði
viðræðum um myndun vinstri
stjórnar.
Sagði Magnús Torfi, að hann
harmaði mjög, að endalokin á
viðræðunum hefðu orðið eins
og raun varð á, einkum vegna
þess, að ekki hefði verið um
neinn óyfirstiganlegan mál-
efnaágreining að ræða, þrátt
fyrir herstöðvamálið. Undan-
farna daga hefði dregið saman
með viðræðuaðilum i þvi máli
og allt fram á siðasta dag við-
ræðnanna hefði verið hreyfing
á þvi.
Það, sem olli þvi, að upp úr
slitnaði, sagði Magnús Torfi,
var skilyrðislaus krafa Al-
þýðuflokksins um að haft yrði
samráð við aðila vinnumark-
aðarins. Sagðist Magnús Torfi
harma það mjög, að þessi af-
staða Alþýðuflokksins . hefði
ekki komið fram fyrr, þvi fyrir
einni viku hefði Olafur Jó-
hannesson kveðið skýrt upp úr
með það, að það kæmi ekki til
greina, að ræða efnahagsmál-
in við fjölmennar nefndir á
meðan ekki væri útséð með,
hvort tækist að mynda rikis-
stjórn. öllum hefði verið fyrir
bestu, ef Alþýðuflokkurinn
hefði strax látið koma I ljós, að
umósættanlegar andstæður
var að ræða.
Það sem nú liggur fyrir,
sagði Magnús Torfi, er að
Ólafur Jóhannesson reynir að
mynda stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum. Menn verða að biða
og sjá, hvernig fer. Hugleið-
ingar um annars konar rikis-
stjórn eru algjörlega út i loft-
ið.
—ir -nri— •— ~ * ~ ~ ■
PFaJLi^iaiJ£arniim-±a
Þeir stóðu sig heldur en ekki bærilega strákarnir úr Kópavogi, þegar þeir gerðu sér litið fyrir um
helgina og unnu 3 tslandsmeistaratitla i knattspyrnu á einum sunnudegi.
Þessi mynd er tekin þegar 3. flokkur Breiðabliks tekur við bikarnum og er svo sannarlega ekki annað
að sjá en að strákarnir séu hinir ánægðustu með afrek sitt og félaga sinna i fjórða og fimmta flokki. Við
segjum nánar frá úrslitum yngri flokkanna á iþróttasiðunni.
Eyvindur leikhús
stjóri á Akureyri
Eyvindur Erlendsson,
, leikstjóri og bóndi að Heiðar-
bæ I ViIIingaholtshreppi, mun
vera ráðinn leikhússtjóri á
Akureyri næsta leiktimabil.
Já, ég veit ekki annað, þetta
hefur verið umtalað, sagði
Eyvindur, þegar Þjóðviljinn
leitaði staðfestingar á
fréttinni.
Sagðist Eyvindur reyndar
ekki hafa gert samning við
Leikfélag Akureyrar, en þó
.kvaðst hann reikna með að
fara norður um það bil er
leiktimabilið hefst, 1. septem-
ber.
Hvað verður þá um
beljurnar þinar?
Það verður allt I lagi með
þær, þær verða á sinum stað.
Nokkuð afráðið með
verkefni i vetur?
Ég get ekkert sagt frá þvi,
hvernig þetta verður. Það eru
sjaldnast teknar ákvarðanir
fyrr en á hólminn er komið.
Finnst þér þetta spennandi
verkefni — að stjórna ungu
atvinnuleikhúsi?
Sjálfsagt er það. En ég er
hinsvegar orðinn svo gamall,
að ég er hættur að láta mér
koma eitt eöa annað á óvart.
Eyvindur kvaðst reikna með
að eitthvað af verkefnum
liðins leikárs, yrði aftur tekið
upp i haust fyrir norðan, einna
helst leikrit Vésteins
Lúðvikssonar, Jónas i
hvalnum, en það verk skrifaði
Vésteinn i fyrravetur sérstak-
lega fyrir Leikfélag
Akureyrar.
Verður ráðinn rithöfundur
til að skrifa fyrir Akureyrar-
leikhúsið eins og tvö undan-
farin ár?
Ég reikna með að það verði
reynt — það verður amk. beitt
þeim ráðum sem best duga til
að fá rithöfunda til að skrifa
góð verk.
Ráðning Eyvindar að
Leikhúsi Akureyrar þykir
umtalsverð tiðindi amk.
meðal leikhúsmanna. Hann
mun vera ráðinn til eins árs —
eða, eins og Eyvindur orðar
það: það hefur verið umtalað.
Tvö ár eru siðan L.A. gerðist
atvinnuleikhús, og var
Magnús Jónsson þá ráðinn
leikhússtjóri til tveggja ára.
—GG