Þjóðviljinn - 22.08.1974, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJ6ÐVILJINN
B. *Krt 1W4.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 línur)
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb) Prentun: Blaðaprent h.f.
OIOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
ÍHALDSBLÖÐIN í HÁR SAMAN
Geysilegar illdeilur hafa risið innan
Sjálfstæðisflokksins eftir að hann hóf þátt-
töku i tilraun til stjórnarmyndunar undir
forustu Ólafs Jóhannessonar forsætisráð-
herra. óánægjan beinist þar að tvennu. í
fyrsta lagi að þvi að Ólafur verði áfram
forsætisráðherra og i öðru lagi að þvi, að
valdaklika fésýslumanna i Sjálfstæðis-
flokknum óttast að hlutur hennar verði
ekki nægilega gildur eftir viðræðurnar.
Kemur þarna og fram vantraust flokks-
manna á forustu Sjálfstæðisflokksins, en
þeir óttast að viðræðunefnd hans haldi
ekki nægilega vel á spilunum i viðræðun-
um um stjórnarmyndun.
Þessar illdeilur hafa birst mjög greini-
lega siðustu dagana i málgögnum Sjálf-
stæðisflokksins sem nú eru komin i hár
saman. Geir Hallgrimsson hafði — fyrir
hönd Moggaklikunnar — lýst þvi yfir, að
forsætisráðherraembættið yrði ekki aðal-
atriðið af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Við
þetta magnaðist óánægja innan flokksins
og i forustugrein Visis á þriðjudag er Geir
svarað fullum hálsi:
,,Hitt er svo jafnrétt að vandfundinn
mun sá kjósandi Sjálfstæðisflokksins, sem
getur sannfærst um, að það teljist til þjóð-
arhags, að Ólafur Jóhannesson verði á-
fram forsætisráðherra”.
Þannig er það beinlinis talið varða þjóð-
arhag að Ólafur verði ekki áfram for-
sætisráðherra — og er varla unnt að segja
það skýrari orðum, að ákveðinn hópur i
Sjálfstæðisflokknum telji Ólaf Jóhannes-
son gjörsamlega óhæfan stjórnmála-
mann. Enda segir Visir i lok forustu-
greinarinnar, að það væri jafnvel betra
,,að viðræðurnar færu út um þúfur en að
nýja stjórnin bæri keim af gömlu stjórn-
inni með sama forsætisráðherranum og
sömu bráðabirgðaaðgerðunum”.
Jafnframt leggur Visir þunga áherslu á
það i forustugreininni að aðgerðir i efna-
hagsmálum verði að vera varanlegar, eða
með öðrum orðum: fhaldinu og fésýslu-
stéttunum þóknanlegar. Þess vegna legg-
ur Visir áherslu á, að enn sé Iangt i iand.
En vart hafði Visir verið borinnút til les-
enda, þegar Morgunblaðið birtir i gær-
morgun forustugrein, þar sem lögð er á-
hersla á, að það sé einmitt nú hin mesta
nauðsyn að flýta sér við stjórnarmyndun-
ina! Þannig eru málgögn ihaldsins komin
i hár saman.
Og auðvitað hefur forusta Sjálfstæðis-
flokksins látið undan þrýstingi, hún hefur
nú nýlega krafist þess i viðræðunum við
Framsókn, að ihaldið fái forsætisráðherr-
ann. Ólafur hefur gefið undir fótinn með
þann möguleika — og nú er komið að
Framsóknarmönnum að láta i sér heyra.
En þrátt fyrir þennan innri belging i
ihaldsflokknum hafa viðræðunefndir
flokkanna tveggja komið sér saman um
það að láta hækka landbúnaðarvörur um
20% og framlengja samt bráðabirgðalögin
frá i vor um einn mánuð. Þar skriðu þeir
saman ihaldið og Framsókn i alþingi i
fyrradag og sýndi hinn nýi meirihluti á-
sjónu sina með næsta "fróðlegum en ekki ó-
væntum hætti. En þó að þeir félagar geti
komið sér saman um kjaraskerðingu og
hvers konar tilfærslu frá launamönnum til
fésýslustéttanna getur enn orðið bið á þvi
að þeir nái samkomulagi um að skipta
með sér bitlingunum. Það er flókið að
skipta bitanum — til dæmis þegar for-
sætisráðherrann er aðeins einn.
Niðurstaða leiðangurs rs. Bjarna Sœmundssonar:
Tiltölulega hátt hitastig
sj ávar umhverfis landið
nema fyrir Vestfjörðum og út af Kögri
Dagana 29.—19. 8. var
r.s. Bjarni Sæmundsson í
hafrannsóknaleiðangri allt
umhverfis landið, einkum
þó djúpt út af Norðurlandi.
Verkefni leiðangursins
voru:
Sjórannsóknir m.a. i samvinnu
viö Háskólann iSeattle, sem gerir
út ísbrjót i sama skyni um þessar
mundir. Tveir haffræöingar frá
Seattle voru með i ferðum á r.s.
Bjarna Sæmundssyni. Athygli
haffræðinga, sem fjalla um
Norðurhöf, beinist mjög að Is-
landshafi, en þar er eitt megin-út-
streymi kalda sjávarins úr
norðri. Mælingar leiðangursins
beindust að blöndun hinna mis-
munandi strauma úr norðri og
suðri á þessu svæði og myndunar-
sögu nýrra sjógerða.
Rannsóknir á magni og út-
breiðslu fiskseiða frá klaki yfir-
standandi árs. Slikar rannsóknir
voru einnig gerðar á r.s. Arna
Friðrikssyni og sovésku rann-
sóknaskipi. Rannsóknunum er
ólokið og munu endanlegar niður-
stöður vart liggja fyrir fyrr en i
lok ágústmánaöar. Ljóst er þó að
loðnuklak yfirstandandi árs hefur
tekist vel, en þvi miður bendir allt
til þess að seiði þorsks og ýsu hafi
að þessu sinni átt erfitt uppdrátt-
Náttúruverndarsamtök Austurlands:
Aðalfundur
um helgina
Fréttatilkynning frá NAUST —
Náttúruverndarsamtökum Aust-
urlands;
Aðalfundur Náttúruverndar-
samtaka Austurlands verður
haldinn á Eskifirði dagana 24. —
25. ágúst næstkomandi.
Á laugardag eftir hádegi 24.
ágúst verður farin kynnisför um
friðlýst svæði á Hólmanesi, og
kvöldvaka verður i félagsheim-
ilinu Valhöll með fjölbreyttu efni i
máli og myndum, opin al-
menningi.
A sunnudag 25. ágúst verða
aðalfundarstörf og þess utan er-
indi og umræður um landgræðslu-
áætlunina 1975 — 79 og þýðingu
hennar fyrir Austurland. Fram-
sögu um þaö efni hefur Ingvi Þor-
steinsson, magister, og hefst er-
indi hans kl. 13.30 á sunnudag, og
er allt áhugafólk þar velkomið.
Náttúruverndarsamtök Aust-
urlands vinna nú að marg-
þættum málum i samvinnu við
Náttúruverndarráð og náttúru-
verndarsamtök i öðrum lands-
fjórðungum. Nokkur stefnumál
félagsins hafa þegar komist i höfn
og öðrum þokað áfram á fjögurra
ára starfsferli.
Jarðfræðilegar rannsóknir.
Gerðar voru tilraunir til töku set-
kjarna af hafsbotni og var verk
þetta unnið i samvinnu við Haf-
fræðideild bandariska sjóhersins,
sem lagði fram tækjabúnað og tvo
starfsmenn. Tilraunir þessar
voru gerðar á ýmsum stöðum
fyrir Norðurlandi, frá Eyjafirði
norðaustur i haf, i þeim tilgangi
að kanna botngerðir á ýmsu dýpi.
Niðurstöður þessara tilrauna
verða notaðar við skipulagningu
og framkvæmd rannsókna á set-
lögum á hafsbotninum við tsland
á næstu árum.
Rannsóknir á þörungasvifi.
Þessar rannsóknir á magni og
framleiðni svifþörunga voru
gerðar á vegum Þórunnar
Þórðardóttur, mag. scient. Ma.
var prófuð ný aðferð viö slikar
rannsóknir í samvinnu við Pál
Theódórsson á Raunvisindastofn-
un háskólans.
í Ieiðangrinum var 5.—6.8. gerð
könnun i lokaða hólfinu við Horn-
banka. Nokkrar veiðitilraunir þar
og athuganir með leitartækjum
bentu til að i hólfinu var aðeins
óverulegur fjöldi fisks af veiðan-
legri stærð.
Niðurstöður sjórannsóknanna,
sem liggja fyrir, sýna tiltölulega
hátt hitastig i sjónum umhverfis
tsland, einkum þó i yfirborðslög-
um eins og vænta mátti. Hafisá-
stand sjávar i Austur-lslands-
straumi er hagstætt nú i ágúst,
hverju sem fram vindur i vetur.
Athyglisverðar niðurstöður feng-
ust fyrir Vestfjörðum og út af
Kögri. Þar gætti kaldsjávar i til-
tölulega rikum mæli og inn-
streymi hlýsjávar var að sama
skapi litið miðað við árstima.
Hitastig á grunninu 25 sjómilur
frá Kögri var nú um 2 gr. sem er
4—5 gr. undir meðallagi, og þar
fyrir utan var hiti undir 0 gr. Slik-
ur kuldi hefur ekki mælst áður i
ágúst á þessum slóðum, en næst
þessu ástandi kemst hitastigið i
ágúst 1939. Kann hér e.t.v. að ein-
hverju leyti vera fundin skýring á
fiskleysi á Hornbanka, og jafn-
framt samþjöppun á bolfiski á
Halanum undanfarið, þ.e. fiskur-
inn þéttist uppi á grunninu þar
sem hann leitar undan kalda
sjónum og sækir ekki norður fyrir
Kögur.
Þetta ástand i sjónum fyrir
norðanverðum Vestfjörðum
stendur vafalaust i orsakasam-
bandi við hið sérstæða veðurfar,
sem rikt hefur i sumar á landinu.
Lægðirnar hafa látið litið á sér
bera og hefur þannig dregið úr
streymi hlýsjávar norður fyrir
land. Þótt lægðirnar láti nú e.t.v.
aftur til sin taka, tekur það nokk-
urn tima fyrir ástandið i sjónum
að breytast. Eru þvi allar horfur
á að blöndun sjávar fyrir Norður-
landi verði á næstunni með öðrum
hætti en venjulega, og göngur
fiska þá e.t.v. einnig.
Afsagnir í
kjölfar
banatilræðis
Seoul 20/8 — Forseti Suður-
Kóreu, Park Chung-hee,
samþykkti i dag lausnarbeiðni
innanríkisráðherrans og yfir-
manns öryggissveita landsins, en
fyrr um daginn hafði öll rikis-
stjórn landsins lagt fram slika
beiðni.
Innanrikisráöherrann, Hong
Sung-chul, og yfirmaöur öryggis-
sveitanna, Park Chong-kxu, tóku
á sig ábyrgö á banatilræði þvi
sem Park forseta var sýnt á
dögunum og kostaði konu hans
lifiö.
Bandarískur þrýst-
ingur á Grikki
Aþenu 20/8. — Bandarlska
stjórnin hóf I dag diplómatískt
„áhlaup” ef svo má að oröi
komast til að freista þess að bæta
sambúð Grikklands og Banda-
ríkjanna. Atti sendiherrann I
Aþenu, Henry Tasca, viðræður
viö Karamanlis forsætisráðherra
og Mavros utanrikisráðherra.
Griska stjórnin lét i dag stöðva
stjónvarpsútsendingar á þáttum
sem bandariska upplýsingaþjón-
ustan hefur hingað til látiö grisk-
um sjónvarpsstöðvum I té.
Þá gerðist það i dag, að tón-
skáldið Mikis Þeodorakis
tilkynnti að hann hefði stofnað
nýjan flokk sem ber nafnið Nýi
griski v ins triflokk urinn .
Þeodorakis sem áður var félagi i
kommúnistaflokki landsins gaf út
fyrstu yfirlýsingu flokksins i dag
og segir i henni að hann sé fylgj-
andi þvi að Kýpur fái sjálfstæði á
ný og að Makarios verði aftur
settur til valda. Einnig er i yfir-
lýsingunni fagnað þeirri
ákvörðun Karamanlis að draga
her landsins úr samstarfinu innan
Nató.