Þjóðviljinn - 24.08.1974, Blaðsíða 1
OIODVIUINN
Laugardagur 24. ágúst 1974—39. árg. 157. tbl.
Húsmæður
mótmæla
/,Það mun heyrast frá
okkur bráðlega," sagði
Ásthildur Mixa, formaður
neytendanef ndar Hús-
mæðrafélags Reykjavíkur,
þegar Þjóðviljinn spurði,
hvort Húsmæðrafélagið
ætlaði að mótmæla verð-
hækkunum á landbúnaðar-
afurðum núna.
Ásthildur sagði að þær í
Húsmæðrafélaginu væru
ákveðnar í að mótmæla
hækkununum, en sem
stendur væru konurnar að
ræða með sér aðgerðir sin-
ar. —GG
Þetta er hægri stjórnin
2—3% hœkkun á sölu-
skatti, 20% gengislœkkun,
—Engar vísitölubœtur á kaup
Stjórnin kemur á morgun eða mánudag
Það liggur nú Ijóst fyrir,
að samkomulag hefur tek-
ist milli Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknarflokks-
ins um öll atriði varðandi
stjórnarmyndun, nema um
skiptingu ráðuneyta.
Síðustu daga hefur stöðugt
verið þráttað um þessa
skiptingu og stundum legið
viðað upp úr slitnaði vegna
ágreinings um valdahlut-
föll^þótt eining virðist full-
komin um málefni.
A fimmtudag bauð Sjálfstæðis-
flokkurinn upp á tvo valkosti
varðandi skiptingu ráðuneyta.
Var annar kosturinn sá, að Sjálf-
stæðisflokkurinn fengi forsætis-
ráðherrann, en ráðuneytunum 12
(öðrum en Hagstofu) yrði þá jafnt
skipt 6 og 6 og ráðherrar yrðu
fjórir frá hvorum flokki. Hinn
valkosturinn sem Geir bauð Ólafi
upp á var á þá leið, að Ólafur yrði
áfram forsætisráðherra, en
Framsókn fengi þá aðeins 5 ráðu-
neyti og 3 ráðherra, en Sjálf-
stæðisflokkurinn 7 ráðuneyti og 4
ráðherra.
Þessum kostum svaraði Fram-
sókn með gagntilboði þar sem
Fóstbrœður
Það var mikið um viðræður i
alþingishúsinu i gær milli fuil-
trúa Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins. Við eitt
borðið sátu þeir Albert Guð-
mundsson, stórkaupmaður,
alþingismaður og borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, og
félagi hans Kristinn Finn-
bogason, fjármálahetja
Framsóknar. Eins og myndin
ber með sér er stórkaupmað-
urinn rétt að koma seðlaveski
sinu þægilega fyrir, en sjálf-
sagt hefur hann nú bara verið
að borga fyrir kaffið sitt. Hitt
þarf enginn að efa, að ugg-
iaust munu þessir tveir félagar
ráða meiru en flestir aðrir um
störf rikisstjórnarinnar nýju,
og þvi ekki nema von að þeir
hafi um margt að spjalla.
(Ljósm. Gunnar Steinn)
boðið er upp á að gegn þvi að
Framsókn fái aðeins 5 ráðuneyti
á móti 7 hjá Sjálfstæðisflokknum,
þá haldi Framsókn forsætisráðu-
neytinu og ráðherrar verði alls 8,
fjórir frá hvorum flokki.
Þessu tilboði hafði Sjálfstæðis-
flokkurinn ekki svarað þegar við
vissum siðast, en liklegt má telja
að hann fallist á það. Af þessu er
algerlega ljóst, að eina ágrein-
ingsefnið, sem ekki hefur verið
leyst er það, hvort Framsókn fái
aðeins 3 ráðherra eða 4 eins og
Sjálfstæðisflokkurinn. Samkomu-
lag er hins vegar orðið um að
Framsókn fái aðeins 5 ráðuneyti,
þar með forsætisráðuneytið, en
Sjálfstæðisflokkurinn 7. Um ein-
staka ráðherra i tilvonandi rikis-
stjórn er það að segja að gæfan
mun á ný hafa snuið baki við
Tómasi Arnasyni, þingmanni
Framsóknar, sem um skeið var
ætlunin að gera að fjármálaráð-
herra, og er nú fastlega gert ráð
fyrir þvi að fjórði ráðherra
Framsóknar, ef til kemur, verði
Vilhjálmur Hjálmarsson og fái
landbúnaðarmál.
Verði ráðherrarnir átta, eins og
Framsóknarflokkurinn leggur
allt kapp á má búast við að rikis-
stjórnin liti svona út:
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra
Einar Agústsson, dómsmála-,
heilbrigðis- og tryggingarmála-
ráðherra.
Halldór E. Sigurðsson, fjár-
málaráðherra.
Vilhjálmur Hjálmarsson, land-
búnaðarráðherra.
Geir Hallgrimsson, utanrikis-
og viðskiptaráðherra
Gunnar Thoroddsen, mennta-
málaráðherra.
Ingólfur Jónsson, iðnaðar- og
samgönguráðherra.
Matthias Bjarnason, sjávarút-
vegs- og félagsmálaráðherra.
Frá þessu getur varla orðiö um
mikla breytingu aðræðaá skipan
ráðherra. Fái Frams. aðeins 3
ráðherra er trúlegt að Ólafur taki
landbúnaðarmálin. Gunnar
Thoroddsen mun heldur ókátur
yfir sinu hlutskipti með mennta-
málin og vill jafnvel fá dómsmál-
in frekar, en óliklegt er að af þvi
verði, og loks glimir Matthias A.
Mathiesen enn við það verkefni að
hafa ráðherradóminn af Ingólfi á
Hellu.
Þá er talið að Sjálfstæðisflokk-
urinn fái I sinn hlut forseta Sam-
einaðs alþingis og verður þar
stutt gaman hjá vesalings Gylfa
Þ.
Um fyrirhugaðar efnahagsráö-
stafanir hinnar nýju rikisstjórnar
er það helst að frétta, að gert mun
ráð fyrir 2—3% hækkun sölu-
skatts, 20% gengislækkun og
bindingu kaupgreiðsluvisitölu i
heilt ár, svo að verðhækkanirnar
munu dynja á almenningi bóta-
laust.
Visitala vöru
og þjónustu:
Obreytt frá
1. maí til
1. ágúst
Visitala framfærslukostn-
aðar var 2,8% hærri 1. ágúst
si. en hún var I maibyrjun.
Hækkunin nemur 2,8%.
Þetta kemur fram i frétta-
tilkynningu frá Hagstofu ts-
lands. Hækkanirnar stafar af
verðhækkunum á fjölmörgum
vörum, erlendum og innlend-
um, og á þjónustu. Liðurinn
„vörur og þjónusta” hækkaði
úr 230 stigum i 231 stig, stóð
þvi sem næst i stað. Veruleg
hækkun varð á liðnum hús-
næði eða úr 189 i 207 stig. Þá
var breytt fyrirkomulagi fjöl-
skyldubóta á timabilinu, og er
talið að hækkun framfærslu-
visitölu hafi numið 3,4 stigum
þess vegna.
Kaupgreiðsluvisitalan
stendur hins vegar i stað út
septembermánuð samkvæmt
nýsamþykktum lögum frá al-
þingi.
í DAG
Gils Guðmundsson
skrifar frá haf»
réttarráðstefnunni
i Caracas.
- Siða 6.
Myndasaga
— siður 7 og 8.