Þjóðviljinn - 22.09.1974, Side 15

Þjóðviljinn - 22.09.1974, Side 15
Sunnudagur 22. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Aö vera feitur og aö tolla í tískunni Vi nsæ It f ranskt kvennablað efndi fyrir skemmstu til skoðana- könnunar um megrun og útlit. Niðurstaðan var m.a. sú, að 54% kvenna töldu það mjög mikil- vægt að hafa auga með vigtinni allt árið um kring. En þær vildu ná megrunarmarkmiðum sínum fyrst og fremst með hreyfingu, en ekki með því að gefa upp á bátinn gersemar franskrar matarlistar. Robert Bensaid, franskur læknir, sem hefur mjög gefiö sig aö þessum málum, hefur látiö i ljósi ánægju meö þessi úrslit. Hann hefur sjálfur megna óbeit á megrunarkúr- um og segir, að hin eilifa streita: að fita sig, að megra sig — hafi gert konur að eins- konar harmóniku, sem alltaf er ósátt við sjálfa sig. Vel- ferðarþjóðfélagið er, segir hann, alltaf aö þröngva upp á konur einhverju sem þær eru ekki. Dr. Bensaid segir að álfa- kroppurinn mjói, sem rikir i öllum verslunum, sé 1 raun að miklu leyti sköpunarverk hómósexúala ; tiskuteiknara. Draumur þeirra er, segir hann, ekki Venus heldur Ap- ollo. Við erum öll meira eða minna á valdi örfárra manna, sem ráða tiskunni, en þola að- eins disir mjóar i hugmynda- heimi sinum. Og hvort sem konur gera sér grein fyrir þvi eða ekki, þá freistast þær til þess að reyna að troða sér inn i þennan álfaheim, hvað sem það kostar. Doktorinn kvartaði og und- an þvi, að samfélagiö i heild væri farið að fordæma feitlag- iö fólk. Fyrir fjörutiu árum, segir hann, var það velmeg- unartákn að vera þybbinn. (Sbr. islenskan málshátt: „Hann var svo feitur og falleg- ur”). En nú er hinn virðingar- verði miðstéttarmaður, sem ræður smekk öðrum fremur, grannur — enda hefur hann kosið sér mjónann Gisgard d’Estaing fyrir forseta. Sá góði franski doktor lætur að lokum i ljósi innilega hneykslan yfir þvi, að það sé orðiö stöðutákn að setja upp hundshaus andspænis góðum mat. En hann er bjartsýnn, þrátt fyrir allt: Heimsvalda- stefna tiskuteiknaranna er á undanhaldi, segir hann — þybbið fólk og feitt er farið aö klæöa sig mjög fallega — hvað sem hver segir. Hvaö vita rússar um ísland? Ingibjörg Sigurðardóttir: Satt að segja, datt mér ekki i hug, áður en ég kom hingað, i að Moskvubúar væru svona fróðir um land okkar, sögu þess.siði, og bókmenntir. Það kom i ljós, að þetta er ekkert undarlegt. Sovéskir stúdentar eru forvitnir og lesa mikið. Þeir ætluðu bókstaflega að drekkja mér i spurningum. 1 námsáætlun málvisindadeild- arinnar við Rikisháskólann i Moskvu lesa nemendurnir Is- lendingasögur og nokkur verk eftir Halldór Laxness. Við ákváðum að ganga úr skugga um, hvort Ingibjörg heföi rétt fyrir sér og leggja spurninguna „Hvað vitiö þér um tsland?” fyrir nokkra venjulega vegfarendur. traida Petrova, læknir 40 ára: Þó aö ég hafi aldrei kom- ið til Islands, get ég sagt, að ég hafi ferðast um landið. Auð- vitað er það i yfirfærðri merk- ingu. Það er ekki langt siðan, að sýnd var heimildarkvik- mynd um tsland i sjónvarp- inu. Auk þess hef ég lesið tals- vert um landið. ísland er land eldfjalla og hvera. Þar eru nokkuð oft jarðskjálftar. Næstum allar islenskar borgir og þorp eru staðsett vi'ð ströndina. tsland heillar til sin marga erlenda ferðamenn, og ég held, að tekjur af ferða- mönnum séu ekki minnsti tekjuliður landsins. Evgeni Shilnikov, verkfræð- ingur 38 ára: tsland var lengi undir stjórn Danmerkur. Arið 1944 var lýst yfir lýðveldi á ts- landi. Sovétrikin urðu einna fyrst til að viðurkenna is- lenska lýðveldið. Helstu grein- ar þjóðarbúskapsins eru sjáv- arútvegur og griparækt. Vika'Mikovanova, nemandi við málvisindadeildina i Rik- isháskólanum i Moskvu, 19 ára: Það er ekki langt siðan, að hér i Sovétrikjunum kom út bók, þýðingar á íslendinga- sögum. Þar er mikið af fornis- lenskum kvæðum. Efniviður úr tslendingasögunum er mik- ið notaður i bókmenntum ger- manskra og fleiri þjóða. Þeg- ar við förum yfir sögu er- lendra bókmennta, lesum við Eddu hina meir og Eddu hina minni, en af nútimaverkum erum við skyldug til að lesa „Sölku Völku” eftir Laxness. Andrej Efimov, skóladreng- ur 12 ára: Við erum auðvitað búin að lesa um tsland i landa- fræðinni, en það er eins og öll löndin hafi ruglast i kollinum á mér. tsland, trland, Sjáland... tsland, það er landið, þar sem Spasski tefldi við Fisher. Vladimir Gorjúnov, verka- maður 23 ára: Ég veit litiö um tsland. Eg hef lesið, að tsland sé land hvera og eldfjalla og að Islendingar noti heitar upp- sprettur til að hita upp ibúöar- Hið óttalega samsæri gegn frelsi og menningu islensku þjóðar- innar. (Teikning úr italska kommúnistablaðinu Rinascita) Fyrst lögðum við þessa spurningu fyrir islendinginn Ingibjörgu Sigurðardóttur, en hún stundar nám við málvls- indadeildina við Rikisháskól- ann i Moskvu. hús. Miðhluti landsins, þar sem eru hraunflákar, sendinn og steinóttur jarðvegur, minn- ir mjög á yfirborð tunglsins. Þess vegna voru bandarisku geimfararnir þar við æfingar, áður en þeir flugu til tunglsins. Ég hef mikinn áhuga á iþrótt- um og fylgist alltaf vel með fréttum af alþjóöamótum. En ég man ekki éftir þvi, að is- lenskir iþróttamenn hafi tekið þátt i þeim. Ég veit ekki, en það getur verið, að islendingar hafi ekki mikinn áhuga á iþróttum. Georgi Kúznctsov, kennari 35 ára: tsland er áhugavert og sérstakt land. Gennadi Fish, sem skrifaði bók um Island kallar eyjuna „Einbúann i At- lantshafi”. t bókinni kynntist ég venjum og lifi hinnar fá- mennu þjóðar. Helsta tekju- lind islendinga er fiskveiðar og sjávarafuröir. Þess vegna eru fiskstofnarnir við strendur landsins mjög mikilvægir fyrir velferð landsins. Það risu jafnvel upp deilur milli tslands og Englands vegna fiskveiðilögsögunnar. Atburð- ir tengdir þeim deilum nefnast „Þorskastrið”. Það lá viö, aö þær deilur leiddu til slita á stjórnmálasamskiptum land- anna. Góö samskipti hafa rikt milli Sovétrikjanna og tsiands i nokkra áratugi. Virk skipti á sviði efnahags, vlsinda, tækni og menningar fara fram milli iandanna. Ég gleöst persónu- lega yfir slikum samskiptum. Stórveldi og smáriki geta og eiga aö vinna saman i þágu þjóða sinna. SÍÐAN Stangveiði aðildarrikja Efnahagsbandalagsins (Tcikning úr Le point, Paris). Umsjón Á.B. BEINT SAMBAND VIÐ NÁTTÚRUNA Belgiskur tiskufrömuður, sem Pellens heitir, hefur teiknað kvenskó með hæl stór- um og er i honum fiskabú með öllu sem til heyrir: Sandur. þang og gullfiskurinn sjálfur. Þetta kostar sitt, en Pellens heldur þvi fram, að fyrir verð- ið fái konur að minnsta kosti „beint samband við náttúr- una”. Hvalamjólk er besta mjólk Fiskiveiða- og haffræði- rannsóknarstofnunin hefur látið framkvæma skipulegar rannsóknir á hvölum i Kyrra- hafi. Visindamönnunum hefur tekist að fylgjast með búr- hvalamæðrum með kálfa sina. Kálfarnir sjúga móður sina i eitt ár en þá eru þeir orönir 6—7 metra langir. Hvalamjólk er mjög nær- andi. Fita hennar er 30 til 58%, en það er miklu meira heldur en gerist hjá landspendýrum. Visindamennirnir hafa komist að þeirri niöurstöðu, aö með tilliti til fitumagnsins sé hún ekki óáþekk oliu. 1 mjólkinni er auk þess mikið af eggjahvituefni, kalsium og fosfór sem hefur þær af- leiðingar, að kálfarnir vaxa ekki dag frá degi heldur raun- verulega klukkutima frá klukkutima. (APN) Fyrstu plöntur jarðarinnar? Kiev (APN). Ukrainskir vísindamenn hafa fundið og rannsakað plöntur, sem taldar éru 400 miljón ára gamlar. Fundist hafa steingervingar á bökkum fljótanna Dnestr og Sbrutj i jarðlögum frá silur- , timanum. Þetta eru litlar plöntur, frumstæðar að gerð aðeins nokkurra cm háar. Þær skiptast ekki i rót, stöngul og blöð, aðeins stöngul, sem hefur gegnt hlutverki þessara þriggja plöntuhluta og fræin eru umlukt harðri skel.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.