Þjóðviljinn - 11.10.1974, Side 5

Þjóðviljinn - 11.10.1974, Side 5
Föstudagur. 11. október. 1974. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5 Rauðsokkar mótmæla kynferðismismunun Reykjavik, 5. okt. 1974. Til menntamálaráðherra Vil- hjálms Hjálmarssonar, fræsðlu- ráðs Kópavogs og skólanefndar Akureyrar. Starfshópur Rauðsokka um at- vinnumál sendir yður eftirfarandi ályktun. Fyrir skömmu var veitt skólastjórastaða við nýjan barna- skóla i Kópavogi, Snælandsskóla. Fjórir sóttu um stöðuna, þrir starfandi kennarar og einn skóla- stjóri. Allir umsækjendurnir höfðu tilskilin réttindi og reynslu i starfi sem kennarar barnaskóla. Einn af umsækjend- unum var kona og var menntun hennar mun meiri en hinna um- sækjendanna. Auk almenns kenn- araprófs hafði hún B.A. próf frá Háskóla Islands i tveimur grein- um ásamt prófi i kennslu- og upp- eldisfræðum. Tveir umsækjenda höfðu lengstan starfsaldur, 9 ár, og var hún annar þeirra. Fræðsluráð Kópavogs mælti þó ekki með henni i stöðuna, heldur einum karlumsækjendanna og öðrum til vara. Þegar umsókn- irnar bárust menntamálaráðu- neytinu, gerðu fulltrúar þar at- hugasemd við afgreiðslu ráðsins, bentu á yfirburði kvenumsækj- andans og óskuöu eftir þvi, að þá- verandi menntamálaráðherra Magnús Torfi Ölafsson bæði um greinargerð frá ráðinu, þar sem það rökstyddi meðmæli sin. Þess- um tilmælum sinnti ráðherra ekki, en fór að tillögu ráðsins og veitti stöðuna samkvæmt úr- skurði þess. Staða skólastjóra við Tónlistar- skóla Akureyrar losnaði nú i haust. Um starfið sóttu þrir, tveir af þeim, karl og kona, er höfðu starfað við skólann áður. Konan hafði starfað þar mun lengur og gegndi auk þess skólastjórastörf- um við skólann s.l. skólaár i for- föllum skólastjóra. Skólanefnd veitti karlmannin- um stöðuna. Aðspurður sagði for- maður skólanefndar, að menntun og hæfni beggja umsækjenda , heföu verið talin jöfn, en að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um ákvörðun skólanefndar varðandi þessa stöðuveitingu. Rauðsokkar átelja harðlega vinnubrögð fræðsluyfirvalda Kópavogs, Akureyrar og rikisins við veitingu áðurnefndra emb- ætta. Hér virðist greinilega vera um kynferðismismunun að ræða, og augljóst er, að konu nægi ekki að standa körlum jafnfætis um menntun og starfsreynslu, þegar sótt er um stöður, jafnvel ekki að standa þeim mun framar. Allt hjal um full lagaleg réttindi kvenna og algjört jafnrétti kynj- anna á tslandi er þvi miður oft ekki annað en marklaust orða- gjálfur, þegar á reynir. (sbr. hér 7. gr. laga um skólakerfi nr. Framhald á 11. siðu. PHILIP JENKINS I AUSTURBÆJARBÍÓI Laugardaginn tólfta þessa mánaðar heldur Philip Jenkins, pianóleikari, tónleika i Austur- bæjarbiói, og hefjast þeir klukkan 2.30. Tónleikarnir eru haldnir fyr- ir styrktarfélaga Tónlistarfélags- ins. A efnisskránni eru verk eftir Bach, Mozart, Chopin, Prokofieff, William Alwyn og Gabriel Fauré. Philip Jenkins kemur frá. Lundúnum, þar sem hann er bú- settur, en hann starfar nú að kennslu við Royal Academy of Music. Jenkins stundaði nám við Royal Academy of Music og var nemandi Harold Craxtons. Við lokapróf hlaut hann „the Dove Prize” fyrir afburða frammi stöðu. Jenkinslagði stund á fram- haldsnám hjá hinum þekkta pianóleikara, Jaques Fevrier i Paris. Árið 1958 sigraði hann i al- þjóðasamkeppni fyrir unga pianóleikara, sem enska stór- blaöið „Daily Mirror” gekkst fyr- ir og árið 1964 vann hann alþjóða- samkeppni pianóleikara um „Harriet Cohn”-verðlaunin og var veitt „Marjorie Whyte”-verð- launin. Jenkins er einn þriggja listamanna, sem stofnuðu Trio of London, sem gat sér mikillar við- urkenningar fyrir hljómleika sina viða um Evrópu, m.a. hér 1 Reykjavik á vegum Tónlistarfé- lagsins haustið 1967. Sem einleik- ari hefur Jenkins ferðast viða um Evrópu og haldið tónleika, auk þess sem hann hefur leikið inn á hljómplötur verk eftir Chopin, Liszt, Brahms, Ravel og Bach. Philip Jenkins hefur á undan- förnum árum unnið frábært og árangursrikt starf á Akureyri sem pianóleikari og kennari við Tónlistarskólann. Það hefur vak- ið athygli hvað Jenkins hefur látið sér annt um framgang Islensks tónlistarlifs. Hann hefur haldið tónleika viða um landið, til dæmis Philip Jenkins flutti hann ailar pianósónötur Mozarts á kynningartónleikum, sem haldnir voru á vegum Tón- listarfélags Akureyrar, fyrir hóp þakklátra áheyrenda. Tónleikar Jenkins eru aðrir i röðinni fyrir styrktarfélaga Tón- listarfélagsins á þessum vetri. (Frá Tónlistarfélaginu) Stormurinn eftir Sigurð Róbertsson sett upp á Sauðárkróki 1 siðustu viku frumsýndi Leik- félag Sauðárkróks ieikritið Storminn eftir Sigurð Róbertsson. Hlaut leikritið góðar viðtökur á- horfenda og hefur verið fullt hús á þeim þremur sýningum sem ver- ið hafa á þvi en fjórða sýning verður I kvöld. Stormurinn hefur ekki verið settur á svið áður en fyrir nokkr- um árum var það flutt i útvarpi undir stjórn Gisla Halldórssonar. Fékk leikfélagið Gisla til að leik- stýra þvi fyrir noröan. Leikritið gerist i Palestinu og fjallar um fæðingu Mariu með þjóösögulegu ivafi. Meðal frumsýningargesta voru höfundundurinn og Vigdis Finn- bogadóttir leikhússtjóri i Iðnó. Eftir sýninguna bauð hún Leikfé- lagi Sauðárkróks að koma suður tilReykjavikur i vor og setja leik- ritið upp á fjölum Iðnó. Sýningin i kvöld verður sú sið- asta á Króknum i bili en verið getur að það verði tekið upp siðar. Hins vegar er ætlunin að fara i leikför með verkið og verður það sýnt á Siglufiröi, Akureyri og e.t.v. Blönduósi. Með aðalhlutverk i Storminum fara þau Kári Jónsson sem leikur Jóakim smið og Helga Hannes- dóttir sem leikur Onnu konu hans. —ÞH Kári Jónsson og Helga Hannesdóttir I hiutverkum Jóakims smiös og önnu konu hans. (ijósm. Stefán Petersen.) w r-- h i ! RAFAFL ■ Vinnuféiag Irafiðnaðar- manna ^^Barmahlíð 4 HÚSEIGENDUR, HÚSBYGGJENDUR allar nýlagnir og á gömlum raflögn- önnumst viðgerðir ,um. Setjum upp dyrasima og lág- ■spennukerfi. Ráðgjafa og teikniþjónusta. Sérstakur simatimi milli kl. 1-3 daglega, simi 28022. BRUNAHANAR Vatnsveita Reykjavikur vill, að gefnu til- efni benda á að öllum öðrum en Slökkviliði Reykjavikur við skyldustörf og starfs- mönnum vatnsveitunnar er stranglega bannað að taka vatn úr brunahönum. Vegna frosthættu hafa brunahanar verið vatnstæmdir fyrir veturinn. Vatnsveitan vill benda á að hver sá sem notar bruna- hana án leyfis getur orðið valdur að eigna- tjóni og skapað margvíslegar hættur. VATNSVEITA REYKJAVÍKUR. IÐJA, félag verksmiðjufólks Iðjufélagar, enn eru nokkrir miðar óseldir að afmælishófi félagsins sem haldið verður að Hótel Loftleiðum föstudaginn 18. þ.m. Miðasala og borðpantanir á skrifstofu fé- lagsins daglega frá kl. 9 til 6. F élagsstjórnin Ferðir Akraborgar eru alla daga frá Akranesi kl. 8.30, kl. 13.15 og kl. 17.00. Frá Reykjavik kl. 10.00, kl. 15.00 og kl. 18.30. Bilar eru fluttir með i öllum ferðum ef óskað er. Sérstakur afsláttur fyrir skólaferðalög og aðrar hópferðir. AFGREIÐSLA AKRABORGAR Atvinna ■ Atvinna Aðstoðarlæknir Staða aðstoðarlæknis viö Lyflækningadeild Borgarspital- ans er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. des. n.k. til 6eða 12 mánaða. Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavik- ur. Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir deildarinn- ar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf skulu scndar yfirlækni deildarinnar, fyrir 12. nóv. n.k. Frekari upplýsingar veitir yfirlæknirinn. Reykjavik, 10.10. 1974. Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar. Kona óskast til að annast kaffihitun tvisvar á dag r vOÐvium 3 Skólavörðustig 19 Simi 17500

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.