Þjóðviljinn - 11.10.1974, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur. 11. október. 1974.
Stórleikur
Ólafanna og
Valur vann
Hellas 27:20
Svíarnir áttu ekkert svar við
góðum leik Vals í síðari hálfleik
Þegar þeir leggja saman
Ólafarnir i Vals-liöinu,
Jónsson og Benediktsson í
markinu, þá er ekki að sök-
um aö spyrja. ólafur
Benediktsson hefur lítiö
leikið með Val i haust,
enda byrjaði hann seint að
æfa, en hann kom inná um
miðjan síðari hálfleikgegn
Hellas í fyrrakvöld og
sýndi að hann er greinilega
kominn i sitt gamla góða
form. Hann varði hreint
stórkostlega undir lokin.
Og nafni hans Jónsson var
i sinum mesta ham, og við
þessu áttu svíarnir ekkert
svar. Þar ofan á bættist að
þeir Gunnsteinn, Jón
Karlsson, Stefán og Bjarni
Guðmundsson voru við sitt
besta allan leikinn. Sænska
liðið lék mjög svipað því
sem það gerði gegn FH og
landsliðinu á dögunum.
1 byrjun var leikurinn mjög
jafn, frekar slakar varnir og
markvarsla hjá báðum og mikið
skorað af mörkum. Jafnt var 2:2,
3:3, 4:4, 5:5, 6:5, 7:7, 8:8, 9:9, en
siðan sigu Valsmenn framúr og
höfðu yfir i leikhléi 12:10.
Framan af siðari hálfleik leit út
sem Valsmenn gætu ekki breikk-
að þetta bil og sviarnir heldur
ekki minnkað það. Staðan var
13:11,14:12, og jú, einu sinni náði
Hellas að jafna, 14:14, en i kjöl-
farið fylgdu 3 mörk valsmanna,
staðan 17:14, og þegar hún var
16:14 kom Ólafur Benediktsson
inná. Hann fékk á sig 3 mörk úr
þremur fyrstu skotunum, en eftir
það fór hann að sýna sinar bestu
hliðar, enda leið ekki á löngu uns
bilið tók að breikka. Staðan varð
18:15, 19:15, 20:15,, 21:16, 22:16,
en þá voru 8 minútur eftir af
leiknum. Lokatölurnar urðu svo
eins og áður segir 27:20 sigur
Vals.
Það er alveg greinilegt að Vals-
liðið er að breytast frá þvi sem
verið hefur undanfarin ár. Sökn-
arleikur þess er að verða beittari,
en hinsvegar er varnarleikurinn
ekki nándar nærri eins góður og
var, þegar liðið fékk á sig „muln-
ingsvélar”nafnið forðum. Það má
vera að þegar Ólafur Benedikts-
son er kominn i sitt gamla góða
form i markinu breytist varnar-
leikur liðsins til hins betra, en það
verður hann lika að gera, ef það
ætlar sér stóra hluti i vetur. Sér-
staklega vantar góða varnar-
menn i hornin, skarð Bergs
Guðnasonar þar er stórt.
Þess ber og að geta, að enn
vantar tvo sterka varnarmenn i
liðið, þá Ágúst ögmundsson og
Þorbjörn Guðmundsson, Gisli
Blöndal lék hinsvegar með liðinu i
fyrrakvöld og átti ágætan leik á
köflum. Þá vantaði hinsvegar
Guðjón Magnússon, sem var úti á
landi þetta kvöld.
Hjá Hellas voru það sem fyrr
Mats Nilsson og Kenneth Johans-
son sem mest bar á, svo og Dan
Eriksson sem er þeirra besti
varnarmaður.
Ólafur Jónsson brýst I gegn og skorar. Myndin er frá leik Vals og Hellas I fyrrakvöld.
Mörk Vals: Ólafur H. Jónsson
7, Gisli Blöndal 5, Jón K. 4. Gunn-
steinn Skúlason 4, Jóhannes
Stefánsson 3, Bjarni Guðmunds-
son 2, Torfi Asgeirsson 1 og Stein-
dór Gunnarsson 1.
Markahæstur svianna var Mats
Nilsson með 7 mörk og Tommy
Nordlund var með 4.
Markvarslan varð
banabiti FH-inga
sem töpuðu 21:22. - 7 FH-ingar reknir útaf!
FH-ingar tryggðu sér með
góðum endaspretti prýðilegan
möguleika á að komast i 2. um-
ferð evrópukeppninnar, sem
þeir taka þátt i um þessar
mundir. I Sviþjóð iéku þeir i
gærkvöldi gegn Saab og náðu þá
fjögurra marka forystu heima-
manna niður I eins marks mun
áður enyfir lauk og er vissulega
ekki ástæða tii að ætla annað en
að þeim takist að sigra Saab
með meiri mun hér heima i sið-
ari leik liðanna.
Markvarslan var veikasti
hlekkur FH og um leið sá þátt-
ur, sem úrslitum réði. Þeir
Hjalti og Birgir virtust ekki i
essinu sinu, en á móti kom stór-
leikur Gunnars Einarssonar,
sem var i feiknaham I siðari
hálfleik ásamt Geir Hallsteins-
syni, sem einnig skilaði prýði-
legum árangri.
Það var mikil harka i þessum
leik og dönsku dómararnir sáu
ástæðu til að visa 5 FH-ingum
sjö sinnum af leikvelli. 1 fyrri
hálfleik fengu þeir Gils,
Sæmundur og Geir Hallsteins-
son reisupassann og i þeim sið-
ari þeir Ólafur Einarsson tvisv-
ar, Gils og Gunnar Einarsson.
Siðari reisupassi ólafs kom
vegna leiðindaatviks á siðustu
sekúndum leiksins, en þá var al-
islenskt kjaftshögg sent einum
svianna, sem svaraði fyrir sig á
sænskan máta og fékk einnig
brottrekstur af leikvelli að laun-
um.
A meðan þeir Birgir og Hjalti
áttu i erfiðleikum i islenska
markinu, voru þeir sænsku i
miklu stuði'og vörðu á köflum i
fyrri hálfleik með miklum
glæsibrag. Mörg af mörkum
svianna (t.d. fjögur i röð i fyrri
hálfleik) komu úr hraðaupp-
hlaupum eftir misheppnuð skot
landans, en FH-ingar fóru sér
hins vegar að engu óðslega og
lögðu enga áherslu á hraðaupp-
hlaupin. Reynt var að leika af
öryggi og skjóta ekki nema úr
öruggum færum og gaf það
þokkalega raun i siðari hálfleik.
Staðan i leikhléi var 10-7 fyrir
sviana. 1 siðari hálfleik skoruðu
sviarnir 11-7, en skömmu siðar
var staðan orðin 12-10 en siðan
skyndilega 16-11 fyrir Saab og
var sá slæmi kafli FH-inga af-
drifarikur. Er fimm min. voru
til leiksloka var staðan 19-15, en
þá þétti landinn vörnina veru-
lega og með harðfylgi tókst að
minnka muninn niður i eitt
mark á þriggja minútna fram-
lengingartima, sem kom vegna
tafa i leiknum.
Eins og áður sagði bar Gunn-
ar Einarsson af hjá FH ásamt
Geir Hallsteinssyni. Mörk FH
skoruðu: Gunnar Einarsson 7,
Geir Hallsteinsson 6, Ólafur
Einarsson 3, Gils 2, örn 1 og
Þórarinn 1.
Ekki ánægður, en
þetta er að koma,
— sagöi Hilmar Björnsson þjálfári Vals
eftir leikinn við við Hellas
— Ég er ekki ánægður með þetta hjá okkur, það eru enn of mikiir
veikleikar I vörninni og við erum rétt að byrja að æfa sóknarleikinn,
sagði Hilmar Björnsson þjálfari Vals við blaðamenn eftir leikinn við
Hellas i fyrrakvöld.
— Hins vegar verður að athuga það, að við notuðum alla mennina
i þessum leik, og enn vantar okkur nokkra sterka menn sem koma
fijótlega inni iiðið, þannig að þetta á eftir að breytast mikið hjá okk-
ur, sagði Hilmar.
Áhugi vaxandi
fyrir kastíþrótt-
inni hér á landi
Kastnámskeið þau er Stanga-
veiðifélag Reykjavikur, Stanga-
veiðifélag Hafnarfjarðar og Kast-
klúbbur Reykjavikur hafa haldið
sameiginlega undanfarin ár hefj-
ast að nýju I Iþróttahöllinni I
Laugardal á sunnudaginn kemur,
og verður þeim hagað I aðalatrið-
um eins og undangengin ár.
A námskeiðum þessum kenna
ýmsir af snjöllustu veiðimönnum
landsins köst með flugu og kast-
stöngum, og samtimis er veitt til-
söen i fiueuhnvtineum otí hnútum
sem að gagni mega koma við
stangaveiði.
Aðsókn hefur verið mjög mikii
að þessum námskeiðum á undan-
förnum árum og veruleg aukning
nú siðustu árin. Félagsmenn sitja
i fyrirrúmi, en þátttaka er annars
heimil ölium á meðan húsrúm
leyfir, og er þá einkum von fyrir
utanfélagsmcnn að komast að á
fyrstu námskeiðunum.
Fram að jólum verður hluti
hallarinnar notaður til kennslu i
Framhald á 11. siðu.