Þjóðviljinn - 02.11.1974, Page 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. nóvember 1974
Laugardagur 2. nóvember 1974. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 9
? V -'
ÍSlgM
; : í;
Grimur Geitskór velur þingstað heitir þetta iistaverk Jóhannesar Jóhannessonar, en það mun vera
stærsta oliumálverk, sem málaðhefur veriðá tslandi. Þetta málverk hefur ekki veriö sýnt áöur, en það
er i eigu Háskóla tslands.
Vogin sú arna er frá einokunartimanum, en var gerð árið 1786, og var notuð i viðskiptum I Stykkishólmi.
Nær okkur á voginni situr fimm ára snáði, Bjarni Hauksson, en fjær nemandi úr Fossvogsskóla, Guðni
Skúiason.
Eiginhandarrit Arnar Arnarsonar af kvæðinu Gils Guðmundsson, formaður sýningarnefndarinnar, skýrir fyrir blaðamanni myndirnar, en sú efri er
um Stjána bláa. frá skútuöld, en sú neðri er tekin af uppsátri I Vestmannaeyjum.
Steingervingur. Jaspis, fylltng I far eftir trjábol.
Steingervingur þessi fannst i Fáskruösfiröi.
Grunnreifir keflvikingar skoða vopn fornmanna.
Módel af jarögufuaflsstöö smiðað af starfsmönnum Orkustofnunar. Er þetta likan af gufuaflsstöö, sem
hugsanlega veröur sett upp viö Kröflu.
SÝNINGIN
ísland
íslendingar
,,Tilgangurinn meö sýn-
ingunni er sá að bregða
upp einstökum völdum
svipmyndum og vekja með
ýmsum hætti athygli á
mikilvægum atriðum í
sögu lands og fólks", sagði
Gils Guðmundsson, for-
maður sýningarnef ndar
íslandssýningarinnar að
Kjarvalsstöðum, er blaða-
maður og Ijósmyndari áttu
leið þangað uppeftir fyrir
skömmu.
— Einar Hákonarson hefur ver-
ið potturinn og pannan við þessa
sýningu. Hann hefur verið hönn-
uður hennar, stjórnað undirbún-
ingsvinnu og uppsetningu. Þvl er
yfirbragð sýningarinnar að veru-
legu leyti hans verk.
— Hvernig sýnið þið áhrif sam-
býlisfólksins við landið i þessar 11
aldir?
— Það er nú með ýmsu móti
gert. Meðal annars er lögð tölu-
verð áhersla á að sýna hvernig
landið leit úr þegar landnáms-
menn komu hingað, eftir þvi sem
fræðimenn vita best, hvernig
menn hagnýta landsgæði og ekki
dregin dul á það hvernig þau gæði
voru I sumum greinum misnotuð,
svo sem skógarnir.
— Hvert finnst þér vera aðal-
einkenni sýningarinnar?
— Það má segja að þessi sýning
mótist að verulegu leyti af þeim
mörgu og stóru ljósmyndum, sem
þar eru, og sérstaka athygli vekja
hinar stækkuðu litmyndir, sem
eru stærri en hér hafa áður sést á
sýningum.
í stað sýningarskrár fylgir sýn-
ingarefninu all mikill texti, og er
letur hans mjög mikið stækkað og
þvi aðgengilegt til lestrar.
— Hér fer fram meira en bara
sýning. Hvað viltu nefna okkur til
af slíku efni?
Auk sjálfrar sýningarinnar fer
eitt og annað fram I húsinu. Þar
eru allan timann, sem sýningin er
opin, sýndar litskuggamyndir
með töluðum skýringum. Þær
myndir eru bæði náttúrufræðilegs
og sagnfræðilegs eðlis.
Flest kvöld sýningarinnar held-
ur Gunnar Hannesson sýningu á
litskuggamyndum sinum af is-
lensku landsiagi.
Fyrirlestrar um ýmis efni eru
fluttir á vissum timum. Verða
þeir alls um 20 talsins, og fjalla
um efni innan þess ramma, sem
sýningin spannar.
i dag, laugardag, talar Hreinn
Steingrimsson um rimnakveð-
skap. Sá fyrirlestur hefst klukkan
3. Hreinn mun með fyrirlestrin-
um leika ýmsar segulbandsupp-
tökur, sem hann hefur sjálfur
safnað af kveðskap gamalla
rimnamanna.
A morgun, sunnudag, kl. 3 flyt-
ur Vilhjálmur Þ. Gislason, fyrrv.
útvarpsstjóri, erindi, sem hann
nefnir Skáldin og landið.
Auk fyrirlestra eru fluttar dag-
skrár, þar sem lesið er úr islensk-
um bókmenntum. óskar
Halldórsson hefur valið textana
sem fluttireru. Fyrsta dagskráin,
— Land mins föður, landið mitt
—,, var flutt á sunnudaginn var.
A morgun verður flutt önnur
dagskráin, og hefst hún klukkan
5. Heiti þeirrar dagskrár er —
Komstu skáld I krappan þar? —
Texti:
Úlfar Þormóöss.
Myndir:
Ari Kárason
Þriðja dagskráin verður svo flutt
sunnudaginn 10. nóvember. Hefur
hún hlotið heitið — Fagurt er i
Fjörðum.
Flytjendur efnis eru Halla
Guðmundsdóttir, Kristin Anna
Þórarinsdóttir, Gils Guðmunds-
son og óskar Halldórsson.
Inn i flutning þessarar bók-
menntadagskrár er fléttaður
söngur Islenskra þjóðlaga, og á
morgun er það Kristin Ólafs-
dóttir, sem syngur þjóðlögin.
— Hvernig hefur aðsóknin ver-
ið?
—■ Aðsóknin hefur verið allgóð
og ágæt um helgar. Þeir, sem að
sýningunni standa vænta þess
sérstaklega, að skóiafólk sæki
sýninguna, og hafi bæði gagn og
gaman af þvi, sem þarna er að
sjá, en skólabörn i fylgd með
kennurum sinum fá ókeypis að-
gang að sýningunni.
—■ En þó að skólafólki sé sér-
staklega bent á sýninguna, held
ég, að fólk á öllum aldri hefði á-
nægju af að skoða hana. Þess
misskilning virðist gæta hjá sum-
um, að þetta sé þurr og leiðinleg
fræðslusýning. En þó að þar megi
finna ýmsan fróðleik er það ein-
kenni sýningarinnar, að hún er
aðgengileg og skemmtilega upp
sett. Engum ætti þvi að þurfa að
leiðast á sýningunni, sagði Gils að
lokum.
—úþ
að Kjarvalsstöðum
Elsta mynd sem fundist hefur af gangabæ, úr handriti frá seinni hluta 16. aidar.
Þannig litur búnaöarbáikur Eggerts Ólafssonar út eins og höfundur skilaði honum frá sér.
Gamli og nýi timinn. Annars vegar spunnið á rokk i heimahúsum, hins vegar er ullinn unnin i
stórvirkum vélum á ópersónulegum vinnustað. Nokkrum slikum andstæöum I vinnubrögðum er stilit
upp á sýningunni.