Þjóðviljinn - 17.11.1974, Síða 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. nóvember 1974
Sálfræði og skák:
Eru skáksnillingar
„upphafnir”
fööurmorðingjar?
Fischer: skarpgerðareinkenni morðingja?
Skák freistar manna til margra
hluta — meðal annars til vanga-
veltu um það, hvað það er sem
rekur stórmeistara þessarar
iþróttar áfram. Hvað er þaö sem
neglir þá fasta við borð, þar sem
þeir eyða kannski eins mikilli
orku og hnefaleikakappi eða
Þjóðsagan um
smakkarana
vin-
Það er merk iðja og virt að vera
vfnsmakkari: aðlokinni þefjan og
öndunaræfingum velta vfn-
smakkarar litlum sopum uppi i
sér meö listræni alvöru og þegar
þeir spýta sopanum út úr sér,
eiga þeir ekki aðeins að hafa
greint vintegundina, heldur og
árganginn. Þjóðsagan, sem
myndast hefur um þessa menn,
heldur þvi fram, að ekkert geti
komiö í stað hinna þjálfuöu
bragðfæra vinsmakkara við að
greina gott frá illu I vingerö.
En þjóðsagan er mjög á undan-
haldi, ekki sist eftir mikil mála-
ferli sem fyrir skömmu urðu 1
Frakklandi vegna þess, að fræg
fyrirtæki gerðu sig sekum að
selja ódýrar tegundir sem úrvals-
vln. Henry Gault, ritstjóri tima-
rits fyrir sælkera, upplýsir það
t.d., aö hann hafi aldrei veriö við-
staddur vinprófun þar sem
smakkararnir nafngreindu vin
með árangri, nema þeir vissu áð-
ur aö þetta vin væri með á próf-
inu. Og einu sinni sá hann, að ell-
efu atvinnumönnum var gert að
prófa 17 árgerðir af Saint Emilli-
on. Aöeins tiu svör af 187 voru
rétt.
N-
Þetta sófasett er hannaö af Þorkeli
Guðmundssyni og bólstrað hjá okk-
ur. Verð á stól er kr. 17.600, á borði
kr. 9.800 og sófinn kostar kr. 37.600,
eða samtals aðeins kr. 82.600. Efnið
er spónaplötur, sem eru bæsaðar og
lakkaðar.
LITIÐ INN VIÐ TÆKIFÆRI.
Borgartúni 29 —
sími 18520.
BllÚiS LlÓlÐ
Þetta frábæra efni
FORMICA er ávallt
BRAND
fyrirliggjandi
laminate
PLASTPLÖTUR
G. Þorsteinsson & Johnsson hf.
Ármúla 1 — Sími 85533
knattspyrnustjarna? Um þessa
hluti meðal annars fjallar banda-
rlkjamaðurinn Harold Schonberg
I bók sinni „Stórmeistarar i
skák”.
Hér skulu, mönnum til
skemmtunar, rakin nokkur þau
svör sem bókarhöfundur sótti til
sálfræðinga. Reuben Fine, sjálfur
bæði sálfræðingur og skákiðk-
andi, heldur þvi t.d. fram, að I
skák reyni menn að „lyfta á æöra
stig” bæði árásarhvötum og
hómósexúellum tilhneigingum.
Samkvæmt þessu er kóngurinn,
sem á skákborðinu er I senn óhjá-
kvæmilegur, þýðingarmeiri öör-
um mönnum og um leið veik-
burða og varnarþurfi, einskonar
fallostákn, imynd getnaöarlims-
ins sjálfs. Og skák og mát á
kóngsa eru þá einskonar hlið-
stæður bæði við geldingu og
fööurmorð.
Annar sálfræðingur, Ben Karp-
man, hefur komist að þeirri
niðurstöðu, að aðalhvatinn að
baki skákiðkunar sé „ómeðvituð
ósk um föðurmorö”. Sálufélagi
Karpmans, Karl Menninger,
segir að skákmenn leggi I ró og
næði á ráðin um „blóðugar her-
ferðir þar sem nóg er um föður-
morð, móðurmorð, bræðramorð,
konungsmorð og önnur ofbeldis-
verk”.
Alla vega, segir Schonberg,
hafa skákmeistarar tiihneigingu
til að tortima andstæðing slnum i
sælrænum skilningi, enda láti
þeir margir hverjir það beinlinis i
ljós. 1 þvi samhengi kemst Schon-
berg svo að orði um Robert
Fischer: „Maöur verður var við
skort á samúö, við þaö einæði sem
stafar af þessum manni, maður
verður var við skapgeröarein-
kenni morðingja”.
Erútihurdin
ekki hessvirði?
I
«d citthvad sc (ijrir lunni ijcrt.
Cátid Itiirdviáimi vcrii jiá prýdi
sciii til cr ivthist.
Vió Itöfuui Jickkiitgti oij
Útluillíid.
Mngnús og Sigurdur
Sími 7 18 15
MARGAR HENDUR1 . VINNAI , § SAMVINNUBANKI.'JN L ÉTT VERK
Svefn
Framhald af bls. 3.
en hugsanir hans koma fram á
opnari og frjálsari hátt.
Fréttir um, að einhver draum-
ur hafi ræst berast mjög fljótt út.
Ollum er sagt frá þvi. En það er
sjaldan sagt frá draumum, sem
ekki koma fram og þeir gleymast
fljótt, en flestir draumar eru af
þeirri tegundinni. v
Listafólk heldur áfram starfi
sinu bæði i vöku og svefni.
Ákvörðun eða uppgötvun kemur
skyndilega, en hún sprettur ekki
upp af engu.
Sá sem hefur mikinn áhuga á
starfi sinu og ræður yfir mikilli
þekkingu getur öðlast vitneskju i
svefni, en sá, sem litið veit, gerir
engar uppgötvanir. Draumar
geta þess vegna verið mjög vel
upplýstu fólki til hjálpar.*'
Mismunun
Framhald af bls. 2.
þvi allar kvikmyndir kvenna sem
fram hafa komið i Vestur-
Þýskalandi undanfarin ár hafa
þótt mjög góðar frá bæði listrænu
og tæknilegu sjónarmiði.
Að lokum hefur vesturþýskt
sjónvarp sérstök siðalögmál. 1
reglugerðargrein 11,3 stendur, að
ekki megi draga i efa stofnanir
eins og hjónaband og fjölskyldu.
Þessi lög gera þaö erfitt að skapa
kvikmynd um frelsun kvenna.
Aðstæður kvikmyndastjóra af
kvenkyni eru óþolandi, segir
Helke Sander. Margar þeirra eru
atvinnulausar og andúðin grefur
svo undan sjálfstrausti þeirra að
jafnvel þær duglegustu draga sig
að lokum út úr slagnum og gefast
upp. Hún segist hafa komist að
þvi að erfiðleikar hennar I starfi
séu algengir meðal vesturþýskra
kvenna. Starfsferli sinum lýsir
Helke þannig:
Meðan ég var borgaralegur
listamaður skorti ekki vinnu og
Viðurkenningu. Þetta fór að
breytast þegar ég lýsti mig
sósialista, en útilokuð var ég þó
ekki fyrr en ég fór að starfa af afli
innan kvennahreyfingarinnar.
(vh dró saman)
Giscard
Framhald af 24. siðu.
menn en sú pólitiska afbrýðisemi
sem á stundum stendur þeim
fyrir þrifum. Hin mikla stétta-
skipting I Frakklandi er i sjálfu
sér fallin til að skýra og einfalda
linur, og kosningaíöggjöfin, sem
upphaflega var ætlað að einangra
kommúnista og gera þá áhrifa-
litla i frönskum stjórnmálum,
virkar við núverandi aðstæður
beinlinis sem tilskipun um
áframhaldandi samstöðu. An
slikrar samstöðu geta vinstri öfl-
in alls ekki borið fram pólitiskan
valkost sem raunhæfur er.
Og Giscard d’Estaing og liðs-
menn hans eru sannarlega I
klemmu. „Hann geturaðeins val-
ið á milli verðbólgu og atvinnu-
leysis” segir Maire, einn af for-
vigismönnum verklýðssamtak-
anna. Og ef hann velur veröbólgu
mun gengi frankans hniga og
gjaldeyrisforðinn skreppa sam-
an. Ef hann hinsvegar velur
ræaðstafanir sem leiða til enn
meira atvinnuleysis, þá fara
verklýðsfélögin út á göturnar —
eins og þau nú þegar búa sig i
stakk til. Plassard, formaður
franska atvinnurekendasam-
bandsins hefur stunið þvl upp að
„við stefum beint að félagslegu
stórslysi”. A.B. tók saman.
Alþýöubandalagiö
Alþýðubandalagið Akranesi
Félagsfundur I Rein mánudaginn 18. nóvember klukkan 20.30. Dag-
skrá: 1. Jóhann Arsælsson segir fréttir af fundi Sambands sveitarfé-
laga á Vesturlandi. 2. Gerð grein fyrir starfi nefnda á vegum bæjar-
stjórnar. Mætum vel og stundvlslega. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið Kópavogi:
Skemmti- og myndakvöld verður I dag, sunnudaginn 17. nóvember
klukkan 20:301 Þinghól. Sýndar verða myndir úr Skaftafellsferð. Einn-
ig myndagetraun og kaffiveitingar. Allir velkomnir. — Nefndin.
Sækið stefnuskrá
Landsfundarfulltrúar i Reykjavik eru hvattir til þess að sækja eintak af
stefnuskrárfrumvarpi á skrifstofu AB að Grettisgötu 3. Frumvarpið
veröur til afgreiöslu á landfundinum og eru f jölrituð eintök fyrirliggj-
andi á skrifstofunni. Landsfundarfulltrúum utan Rvikur hefur þegar
veriö sent eintak af frumvarpinu.