Þjóðviljinn - 30.11.1974, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. nóvember 1974.
Síðari landsleikur Islands og Hollands:
Munurínn var
aftur aðeins
eitt mark
— bæöi liöin léku snöggtum
betur í síðari leiknum
Þær voru ekkert mjúkhentar I vörninni þær hollensku eins og sést á þessari mynd. Hér er þaö Hansina
Melsteö sem hindruö er á linunni, en Hansina skoraöi eitt mark i leiknum sem var hennar 15. lands-
leikur. (Ljósm. Einar)
I síðari landsleik íslands
og Hollands í kvennakna+t-
leik varð aftur eins marks
munur 9:8, Hollandi í vil.
Þessi leikur var mun betur
leikinn, einkum af hálfu
íslenska liðsins, en fyrri
leikurinn og nú má segja
að það hafi verið hreinn
klaufaskapur af íslenska
liðinu að tapa leiknum,
jafntefli eða jafnvel sigur
þess var vel mögulegur.
Segja má að hinir hörmu-
lega lélegu dómarar
leiksins, Magnús V.
3 íslenskar
handknatt-
leikskonur
heiðraðar
t hófi sem HSt hélt aö lokn-
um síöari landsleik tslands og
Hollands I kvennahandknatt-
leik, voru 3 islenskar hand-
knattleikskonur heiöraðar
fyrir aö hafa leikiö 10 lands-
leiki fyrir tsland. Þetta voru
þær Björg Guðmundsdóttir,
Arnþrúöur Karlsdóttir og
Hansina Melsteð. Viö þaö
tækifæri sagöi Siguröur Jóns-
son formaður IlSt, aö nú yröi
þetta verðlaunatakmark
hækkaö I 25 leiki enda sagöist
hann vonast til þess aö is-
lenska kvennalandsliöiö léki
allt aö 10 leiki á ári I framtið-
inni, þannig aö 10 leikja mark-
iö þætti ekki mikils viröi i
framtiöinni. Þær stöllur hlutu
silfurbikar i viðurkenningar-
skyni.
Þá var þeim Elinu Kristins-
dóttur, Jóhönnu Halldórsdótt-
ur og Þórdisi Magnúsdóttur
afhent merki HSt, en það
merki fær alt handknattleiks-
fólk okkar þegar þaö leikur
sinn fyrsta landsleik.
Pétursson og Valur Bene-
diktsson hafi komið í veg
fyrir íslenskan sigur með
fáránlegum dómum undir
lok leiksins, en þótt mistök
þeirra hafi verið stór og
I jót afsaka þau ekki á allan
hátt að íslenska liðið
sigraði ekki.
Alveg eins og i fyrri leiknum
komst. Island i 3:1 i byrjun
leiksins, Sigrún Guðmundsdóttir
skoraði öll mörkin úr vitaköstum
en alls voru skoruð 9 mörk af 17 i
leiknum úr vitaköstum, en nú
náðu hollensku stúlkurnar ekki að
jafna og komast eitt mark yfir
eins og i fyrri leiknum, heldur
hélt islenska liðið forystunni út
fyrri hálfleik og i leikhléi var
staðan 4:3.
Jafnt var i siðari hálfleik 4:4,
5:5, 6:67:7 og 8:8, en sigurmarkið
skoruðu hollensku stúlkurnar 40
sekúndum fyrir leikslok eftir að
Magnús dómari hafði dæmt
ruðning á eina islensku leik-
konuna, dómur sem átti sér enga
stoð frekar en margir aðrir
dómar þeirra Magnúsar og Vals.
Islenska liðið Iék, eins og áður
segir þennan leik betur én þann
fyrri, einkum var varnarleik-
urinn mjög góður og markvarslan
mun betri en i fyrri leiknum. En
sóknarleikurinn var alls ekki
nógu góður og stórskyttur liðsins
brugðust algerlega. Þær Erla,
Sigrún, Arnþrúður og Björg áttu
bestan leik.
Hollenska liðið lék mjög svipað
og i fyrri leiknum nema mark-
vörðurinn Sandra Reinders sem
átti hreint stórkostlegan leik og
má segja að hún öllum öðrum
fremur eigi þennan sigur liðsins.
Dómarar voru eins og áður
segir Magnús V. Pétursson og
Valur Benediktsson. Það, að
þessir menn skuli fá að dæma i 1.
deild eins og þeir standa sig um
þessar mundir er óskiljanlegt, en
enn óskiljanlegra er það að þeir
skuli látnir dæma saman. Með
góðum dómurum væri kannski
hægt að nota hvorn fyrir sig, alla
vega Magnús en saman, hjálpi
okkur allir...
Mörk Islands: Sigrún 4 (3 viti)
Erla 2 (2 viti) Arnþrúður og
Hansina sitt markið hvor.
—Sdór
Fimleikasýningar í
dag og á morgun
Um helgina gengst Fimleika-
samband tslands fyrir tveim fim-
leikasýningum i Laugardalshöil-
inni, en eins og eflaust allir vita
hefur sambandiö gert þett.a und-
anfarin ár um mánaöarmótin
nóv./des.
Aö þessu sinni veröur meira
vandaö til sýninganna en veriö
hefur, m.a. koma tveir fimleika-
flokkar frá Noröurlöndum fram á
sýningunni. Piltaflokkur frá Dan-
mörku og stúlknaflokkur frá Svi-
þjóö.
Aö þcssu sinni munu 10-11 is-
lenskir flokkar veröa meö i sýn-
ingunum, en aöeins tveir þeirra
eru frá skólum.
Alls munu um 260 einstaklingar
vera meö i sýningunum og veröur
þvi um mjög fjöibreytta fimieika
að ræða.
Sýningin i dag hefst kl. 15 en á
morgun, sunnudag kl. 20. .
1. deild karla í handknattleik:
Heil umferð verður
leikin um helgina
— í dag mætast Haukar — ÍR og Grótta — FH en
á morgun Ármann — Víkingur og Fram — Valur
Um þessa helgi, laugardag og
sunnudag, fer fram heil umferð I
1. deild karla i handknattleik en
slikt hefur ekki veriö reynt áöur,
heldur hafa aðeins tveir leikir
farið fram um hverja helgi og þá
á sunnudagskvöldum. Þetta er
skemmtileg nýbreytni sem von-
andi veröur framhald á. Og þaö
sem meira er, leikirnir veröa ekki
leiknir aö kvöldi til, heldur um
miöjan dag, bæöi f dag og á morg-
un.
í dag leika i Hafnarfirði Haukar
og 1R og Grótta og FH og hefst
fyrri leikurinn kl. 15:30 og verður
áreiðanlega um jafna og
skemmtilega leiki að ræða. IR-
ingar hafa enn ekki fengið stig i
mótinu og verða nú að sigra ef
þeir ætla að vera með i toppbar-
áttunni. Tap i dag þýöir það fyrir
liðið að það verður að fara að
undirbúa fallbaráttu.
Grótta sigraði FH fyrir nokkr-
um vikum i Reykjanesmótinu og
það sem einu sinni hefur gerst
getur hæglega gerst aftur og vist
er um það, Gróttumenn eru fullir
bjartsýni á þennan leik þótt flest-
ir' búist við sigri FH.
Á morgun kl. 15 hefst i Laugar-
dalshöllinni leikur Ármanns og
Vikings, viðureign sem gaman
verður að fylgjast með. Ármenn-
ingar ætla að koma mjög á óvart i
þessu móti. Þeir sigruðu 1R á
dögunum eins og menn eflaust
muna og fóru raunar létt með þá
og vist er um það, að Armenning-
ar verða Vikingum ekki auðunnir.
Strax á eftir þeim leik hefst
leikur Fram og Vals, gömlu stór-
veldanna sem bæði virðast vera i
nokkrum öldudal um þessar
mundir. Tapi Valsmenn þessum
leik, verða þeir ekki meira með i
toppbaráttunni i vetúr en eiga enn
nokkra möguleika, sigri þeir.
Fram hefur að visu 3 stig eftir 2
leiki, en liðið hefur alls ekki verið
sannfærandi i þessum tveim
fyrstu leikjum sinum og verður
að sigra i dag ef það ætlar að
fylgja toppliðunum eftir.
Staðan
Staðan i 1. og 2. deild karla I
handknattleik er nú þessi:
1. deild:
Haukar 2 2 0 0 39—34 4
FH 2 2 0 0 38—36 4
Fram 2 1 1 0 35—31 3
Ármann 2 1 0 1 37—36 2
Vlkingur 2 1 0 1 37—36 2
Grótta 2 0 1 1 35—38 1
Valur 2 0 0 2 35—39 0
ÍR 2 0 0 2 38—44 0
2. deild:
Þór 2 2 0 0 44-28 4
K.A 2 2 0 0 52-36 4
K.R. 2 2 0 0 36-26 4
Þróttur 1 1 0 0 29-19 2
Í.B.K. 1 0 0 1 12-18 0
Stjarnan 1 0 0 1 19-29 0
Fylkir 3 0 0 3 45-65 0