Þjóðviljinn - 30.11.1974, Síða 13
Laugardagur 30. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
FRAKKLAJSD
Annað allsherjar
yerkfall boðað
Paris 29/11 reuter — Tvö stærstu
verkalýössambönd Frakklands,
CGT og CFDT, boðuöu i dag alls-
herjarverkfall i landinu 12. des-
ember nk. Er þaö annaö allsherj-
arverkfallið sem boöaö er til á
innan viö mánuöi.
Samböndin skoruöu á franskan
verkalýö aö efna til verkfalla, ilti-
funda og mótmælaaögerða þann
12. til aö knýja stjórnina til aö
gera ráöstafanir vegna vaxandi
atvinnuleysis.
Atvinnuleysiö hefur veriö mikiö
áhyggjuefni frönskum verkalýö
aö undanförnu. I endaöan október
var tala atvinnuleysingja 630 þús-
und og haföi aldrei veriö hærri
Af menningu
Framhald af 11. siöu.
málin niöur. Undirritaöur reyndi
að koma grein i blaðiö um þessi
mál, en ritstjórinn sagöi bara:
„þvi miður ekkert pláss i blaö-
inu” — kannski siöar. ósóminn
er mikill og Myndlistarfélagiö
ætlaði sér mikiö (50 þús. kr.
starfsstyrkur nægir til aö gefa út
eina sýningarskrá). En bæjaryf-
irvöld geröu allt til aö drepa okk-
ur og tókst þaö, og þó.”
Undir bréfiö ritar Valgaröur
Stefánsson, Hrafnagilsstræti 28,
Akureyri, „höfuðstaö Noröur-
lands.”
—GG
Barnavinafélagið
Sumargjöf
óskar að ráða eftirtalið starfsfólk.
1. Félagsráðgjafa
i fullt starf eða hluta úr starfi. Umsóknar-
frestur er til 31. des. n.k.
2. Fóstru
með framhaldsmenntun til að annast um-
sjón með barnaheimilum er Sumargjöf
rekur. Umsóknarfrestur er til 31. des. n.k.
3. Forstöðukonu og fóstru
að leikskólanum Árborg við Hlaðbæ. Um-
sóknarfrestur er til 14. des. n.k.
Auglýsing um
viðbótarritlaun
I reglum um viöbótarritlaun, útgefnum af menntamála-
ráöuneytinu 11. nóvember 1974 segir svo i 2. grein:
„Uthlutun miðast við ritverk, útgefið eða
flutt opinberlega á árinu 1973.
Auglýst skal eftir upplýsingum frá
höfundum um verk þeirra á þessu tima-
bili.”
1 samræmi viö framanritaö er hér meö auglýst eftir upp-
lýsingum frá höfundum eöa öörum aðilum fyrir þeirra
hönd um ritverk sem þeir hafa gefið út á árinu 1973.
Upplýsingar berist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu
6, eigi siðar en 10. desember, merkt úthlutunarnefnd viö-
bótarritlauna.
Athygli skal vakin á, aö úthlutun er bundin þvi skilyrði, að
upplýsingar hafi borist.
Reykjavik, 27. nóvember 1974.
(Jthlutunarnefnd.
Útför mannsins mins
Páls ísólfssonar,
tónskálds
fer fram frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 3. desember kl.
2.00 eftir hádegi.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna
Sigrún Eiriksdóttir.
siðan i siöari heimsstyrjöldinni.
Siöan þá hefur ástandiö enn
versnaö og kemur þar helst til aö
bilaframleiöendur hafa boðaö
fjöldauppsagnir á næstunni vegna
samdráttar i bilasölu.
Verkfall póstmanna sem staðiö
hefur i sjö vikur viröist nú vera á
enda. Er svo aö sjá sem póstmenn
hafi gefist upp á aö knýja stjórn-
völd til aö bæta kjör þeirra. 1 dag
fóru póstmenn aö tinast til vinnu
og stjórnin vonast til aö póstsam-
göngur veröi komnar I fullan
gang á mánudag.
SKIPAUTCVCRB R-IKISINS
M/s Baldur
fer frá Reykjavík
fimmtudaginn 5. des-
ember til Breiðaf jarö-
arhafna. Vörumóttaka
til hádegis á fimmtu-
dag.
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf
Leikhús
Framhald af bls. 7.
meistaralegt, texti og leikur svo
markviss. En svoberst maöur við
svefninn og neyðist kannski til að
laumast út i hléinu. Hvers vegna i
ósköpunum? Þetta leikhús hefur
engan tilgang. Þaö bryddar ekki
uppá neinum nýjungum, hvorki i
aðferð né efniviö — hvaö þá aö.
þaö ætli sér aö fá fólk, til aö sjá
nokkurn skapaðan hlut öbrum
augum, eöa hrófla á annan hátt
viö skoöunum og lifsstil leikhús-
gesta.
Þetta leikhús er algerlega
ófrjótt. Þaö fæöist ekkert i þvi —
öll þess tilvera snýst um aö full-
komna og fægja það sem þegar er
komiö af unglingsárum. Þegar þú
hefur séö eitt verk, hefurðu séö
allt. Og þá langar mig að sjá jafn-
vel klaufalegustu leikflokka sem
eru aö segja eitthvað — sem ligg-
ur eitthvaö á hjarta, einsog þaö er
vist kallað.
Þvi er þaö svo aö London fær
verri og verri einkunn hjá þeim,
sem skoöa sig viðar um i heimin-
um og fylgjast meö þvi sem er aö
gerast i öörum löndum. Fyrst og
fremst er það kannski hjá yngri
kynslóðinni, þeim sem vaxið hafa
úr grasi eftir siðari heimsstyrj-
öldina og öðrum þeim sem tekið
hafa afstööu með hinni nýju
bylgju félagslegrar samvisku-
vakningar og endurskoöun borg-
arlegs gildismats. Nú hefur þessi
hreyfing óviöa átt eins almenr.u
fylgi aö fanga og einmitt I London
og sú borg verið höfuövigi ýmiss-
ar fylgiframleiöslu hennar, svo
sem popptónlistar og tiskubylt-
ingarinnar miklu. Þaö er óskilj-
anlegt hvernig leikhúsin geta ver-
iö svona óbreytanleg, full af við-
Júlíus
Framhald af bls. 6.
vel sóttur jafnt af flokksbundn-
um mönnum sem óflokksbundn-
um. Hópurinn kemur saman
hálfsmánaðarlega og leiðbein-
endur eru Þór Vigfússon og
Hjalti Kristgeirsson.
• — Hvernig verkar landsfund-
urinn á þig?
— Þetta er I fyrsta skipti sem
ég kem á landsfund, en mér
finnst mjög lærdómsrikt aö taka
þátt I starfi af þessu tagi og tel
aö maður fái mun betri skilning
námi. Leikhúsfólk, a.m.k. leikar-
ar, leikstjórar og höfundar, er yf-
irleitt feiknavel upplýst i Eng-
landi og óhætt að fullyrða að þaö
er alveg eins róttækt I skoöunum,
sem einstaklingar, og gengur og
gerist hjá nágrannaþjóðunum.
En sem hópur, sem leikhús, er
breskt leikhúsfólk Imynd ihalds-
seminnar.
A sama hátt og þetta er þver-
sögn, get ég ekki annað en sagt —
enskt leikhús er hrífandi, hund-
leiöinlegt, allt aö þvi fullkomið i
list sinni og gersamlega tilgangs-
laust.
á heildarsamhenginu i starfi
flokksins viö aö sitja svona þing.
Ég lit á landsfundinn sem kynn-
ingarfund, þar sem flokksfélög-
um viös vegar aö gefst kostur á
aö kynnast sjónarmiðum hvers
annars og ræöa þau, i sambandi
viö þær ákvarðanir sem eru
teknar og eru stefnumarkandi
fyrir flokkinn i heild. Enda þótt
ekki séu teknar hér neinar á-
kvaröanir i einstökum málum,
sem varöa dægurbaráttuna,
skapast hér sá grundvöllur fyrir
samhengi, sem mótar starf okk-
ar I heild. —ráa
Y inningaskr á
Happdrœttis Háskólans
Þriöjudaginn 10. desember n.k.
veröur dregiö i 12. flokki Happ-
drættis Háskóla Islands. Að þessu
sinni veröa dregnir út 14.000 vinn-
ingar aö fjárhæð 176 milljónir og
800 þúsund krónur. Er þaö stærsti
dráttur sem fram hefur fariö á Is-
landi.
Dregnir verða fjórir tveggja
milljón króna vinningar. Aörir
fjórir vinningar á hálfa milljón og
einnig fjórir vinningar á tvö
hundruö þúsund krónur.
Hinr vinsælu 50.000 króna vinn-
ingar veröa 1.080 aö þessu smni
og 10.000 króna vinningarnir
veröa hvorki meira né minna en
9.340. 3.560 fimm þúsund króna
vinningar reka svo lestina.
Svo má geta þess ab sitt hvoru
megin viö tveggja milljón króna
vinningana verba átta eitt hundr-
að þúsund króna aukavinningar
Vegna þess ab fjórir miðar eru
af hverju númeri, E„ F„ G. og H„
veröur hæsti vinningsmöguleiki I
þessum flokki átta milljónir
króna.
Drátturinn hefst klukkan eitt og
honum mun ekki ljúka fyrr en eft-
ir miönætti. Yfir 40 manns munu
vinna aö framkvæmd þessa stóra
dráttar, þvi allt er þetta starf
mjög timafrekt og mikil ná-
kvæmnisvinna. Daginn eftir
verða svo lesnar prófarkir aö
vinningskránni, sem vonandi
veröur tilbúin á fimmtudag.
Útborgun vinninga hefst svo
þriöjudaginn 17. desember. Verð-
ur borgaö út daglega frá kl. 10 til
kl. 16 (einnig i hádeginu) I AÐAL-
SKRIFSTOFUNNI i Tjarnargötu
4. Er ekki aö efa aö margir munu
eiga létt spor i Tjarnargötuna til
happdrættisins ab sækja sér jóla-
glaðninginn dagana fyrir jólin.
Sjónvarp
„Eldforn sögn ...”
— og vikan framundan
Dagskrá sjónvarpsins i
kvöld er meö venjulegu
laugardagssniöi Þaö sem
mesta athygli vekur er mynd
eftir Þránd Thoroddsen, sem
nefnist „Um eldforna slóö i
Raufarhólshelli”.
Mynd þessi var gerö i vor er
leið, en Raufarhólshellir er
steinsnar frá Þrengslavegi,
ölfusmegin Þrengslanna.
Arni Johnsen, blabamabur
erhöfundur textans, sem hann
sjálfur les meö myndinni.
„Myndin var tekin i lit”,
sagöi Þrándur Thoroddsen,
þegar Þjóbviljinn ræddi viö
hann, ,,og það er slæmt að
litirnir skuli ekki sjást, þvi aö
þarna er mikil litadýrð. Viö
fórum inn allan hellinn, sem
talinn er vera um 900 metra
langur, þótt ekki hafi hann
veriö nákvæmlega mældur.
Þaö var nokkuö erfitt aö
mynda þarna. Viö höföum
meö okkur þung rafhiööuljós
og kyndla og þaö var erfitt aö
komast eftir hellinum, þvi aö
viöa hefur hrunið úr hellis-
þakinu.
Jaröfræðingar, islenskir
sem erlendir, munu telja
hellinn merkilegt fyrirbæri.
Þarna eru dropasteinar og
innst er hraunfoss. Fremst eru
ismyndanir og mikilfengleg
grýlukerti. Greinilega er hægt
aö sjá hvernig hraunstraum-
urinn hefur storknaö skyndi-
lega — rétt eins og súkkulaði-
bráð sem snöggkólnar”.
Sú eldforna úr Raufarhóls-
helli verður sýnd klukkan
21.30 i kvöld, en áður mun þá
„Uglan” hafa verið á skjánum
og „Læknir á lausum kili”.
Sjónvarp hefst annars
klukkan 16.30 meö Jóga, siöan
eru Iþróttir, þar sem Georg
Best kynnir kúnstir sinar.
Myndin er úr bandarlska sjónvarpsleikritinu „Laus og
liöugur", sem sýnt veröur á miövikudaginn kemur.
Þingvikan er á dagskrá milli
klukkan 19 og 20.
Bandariska biómyndin sem
dagskránni lýkur með er frá
árinu 1936 og heitir „Maria
skotadrottning”. Katherine
Hepburn leikur aöalhlutverk-
iö.
Vikan framundan
Vikan framundan viröist lik
fyrri vikum — menn þurfa
ekki aö hafa áhyggjur af þvi
aö missa af neinu umtals-
veröu, en þaö er rétt aö benda
á fáeina dagskrárliði sem
óneitanlega eru forvitnilegir.
A morgun er þaö vitanlega
myndin um Þórberg Þóröar-
son, sem mesta athygli vekur,
en sú mynd var tekin þegar
Þórbergur var sjötugur, og
hefur oft og viöa veriö sýnd
hér á landi. Osvaldur Knudsen
geröi myndina.
A eftir Þórbergsmyndinni er
svo sænskt sjónvarpsleikrit,
„gamansamt”, segir i dag-
skránni, en þaö heitir
„Húsverkin”. Leikritiö lýsir
fyrstu vikunum i sambúö
ungra hjóna, fjallar um stööu
konunnar.
Á þriðjudaginn er fyrsti
þátturinn af þremur um
indiána i Suöur-Ameriku, en
myndaflokkurinn nefnist
„Indiánar eru lika fólk” —• en
einmitt sú staðreynd hefur
viljaö gleymast i viöskiptum
hvitra forréttindamanna
suður i þeirri heimsálfu.
„Laus og liöugur” heitir
bandariskt sjónvarpsleikrit
sem sýnt veröur á miöviku-
dagskvöldið. Sjónvarpiö hefur
sýnt nokkur sjónvarpsleikrit,
bandarisk, undanfarna
miövikudaga, og þaö telst til
tiðinda hér aö sjá bandariska
mynd, r.ýja af nálinni. Þetta
leikrit var gert 1970.
Heimshorn er á sinum staö i
dagskrá vikunnar, þ.e. á
þriðjudagskvöldiö. Kastljos á
föstudaginn og Vaka á laugar-
dagskvöldið. —GG