Þjóðviljinn - 30.11.1974, Qupperneq 15
Laugardagur 30. nóvember 1974. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 15
Til vinstri situr skipstjórinn, sem taka á viö Runólfi, Axel Shutt, en
til hægri útgeröarmaöurinn Guömundur Runóifsson
Runólfur SH 135 á stokkunum I Stáivik
Annar
skuttogari
Stálvíkur
Klukkan hálf sjö í morgun átti að sjósetja annan
togarann sem smiðaður er i Stálvik i Garðahreppi.
Heitir hann Runólfur SH 135 og smiðaður fyrir
grundfirðinga, hið glæsilegasta fley.
Skipið er 47,2 metrar að lengd,
búið 1750 hestafla Wichmann
aðalvél og I þvi eru tvær 230
K.V.A. Caterpillar ljósavélar, 375
hestafla þilfarsvinda frá Bruss-
elle i Belgiu og að sjálfsögðu full-
kominsiglinga og fiskleitartæki. t
skipinu er veltitregðutankur
Af tækjum I brú má nefna að
þar eru tvær radsjár með 100 sjó-
milna langdrægni, fisksjá, sjálf-
ritandi sjávarhitamælirog veður-
kortariti.
Fiskilest er 16 metrar að lengd,
300 rúmmetrar, og er hún öll gerð
fyrir stöflun fiskikassa. Gólfið i
lestinni er steinsteypt með sama
hætti og er i nýjustu frystihúsum
og kolsýruhelt. Isvél skipsins er
smiðuð hjá Stálveri hf. og fram-
leiðir hún 8 tonn af is á sólarhring.
Runólfur er smlðaður eftir
sömu teikningu og fyrri skuttog-
arinn sem stöðin smlðaði, Stál-
vik. Eigendur þessa nýja togara
fóru þó fram á 40 breytingar frá
þvi Stálvikin var smiðuð. Má
nefna, að brú Runólfs er nokkru
hærri en Stálvikur, kröftugri
trommlur eru i Runólfi, öll þilför
lárétt, rifflað dekk er við rennuna
að aftan, en það veitir sjómönn-
um mikið öryggi, þvi á sliku dekki
eru þeir mun stöðugri en á slétt-
um dekkum. bá er i Runólfi flot-
vörpukerfi.
Útgerðarmaður þessa nýja tog-
ara er Guðmundur Runólfsson frá
Grundarfirði, og sagði hann að
reikna mætti með að komið á
veiðar kostaði skipið 235—250
miljónir. Oll áhöfnin er úr Grund-
arfirðinum, en þaðan hefur ekki
verið gerður út togari fyrr.
Skipstjóri á togaranum verður
Axel Shutt, en hann hefur sl. sex
ár stjórnað þýskum togurum.
Skipið verður afhent eftir um
það bil þrjár vikur, en kjölur
þess var lagður i júll 1973. —úþ
Fær Stálvík
smíði tveggja
nýrra togara?
Á blaðamannafundi i gær suð-
ur i Stálvik i Garðahreppi, sagði
Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Stálvikur, að nú eftir að
þeir hafa hleypt af stokkunum
öörum skuttogara sinum, hefðu
þeir innanhúss hálfsmiðað skip
fyrir vestmannaeyinga. önnur
verkefni hefðu þeir ekki.
Hins vegar skýrði Jón frá þvi,
að einhversstaðar i rikis-
maskinunni væri staddir samn-
ingar um smiði tveggja skuttog-
ara. bar hefðu þessir samning-
ar dvalið langdvölum.
,,Ef það dregst mikið lengur
að ganga frá þessum málum er
það svo alvarlegur hlutur fyrir
Stálvik, að ég vil ekki nefna
hvað það gæti haft i för með
sér,” sagði Jón er við spurðum
hann um framtið fyrirtækisins.
— úþ
öagb@K
sýningar
Galerie SÚM
,,Try kkerba nden ” Dönsk
grafiklistasýning. Allar mynd-
irnar til söíu. Opið til 30. nóv.
Bogasalur
Karl Sæmundsson sýnir 29 olíu-
málverk. Sýningin er opin frá
23. þ.m. til 1. desember frá kl.
14—22 alla daga.
Alfred Schmidt
Alfred Schmidt hefur opnað
sýningu á málverkum á Mokka
við Skólavörðustig. Opið dag-
lega.
féiagsiíf
Kvenfélag Óháða safnaöarins
Basarinn verður 1. des. kl. 14 i
Kirkjubæ. Félagskonur og vel-
unnarar safnaðarins eru góð-
fúslega beðin að koma gjöfum
laugardag kl. 1—6 og sunnudag
kl. 10—12 — Stjórnin.
Guðspekifélagið
Hinn árlegi jólabasar Guðspeki-
félagsins verður haldinn 8.
desember. Félagar og velunn-
arar eru vinsamlega beðnir að
koma gjöfum sinum I Guðspeki-
félagshúsið þar sem þeim er
veitt viðtaka miðvikudaga og
fimmtudaga frá kl. 17 til 19 og
einnig á föstudagskvöldum. —
Þjónustureglan.
Fimmtudaginn 5. desember
kl. 8.30 siðdegis heldur Anglia
fyrsta kaffikvöld sitt i húsnæði
enskustofnunar háskólans að
Aragötu 14. Mun Prófessor Alan
Boucher lesa upp úr ferðabók
Dufferins lávarðar um tsland,
„Letters from High Latitudes.”
Sunnudaginn 8. desember kl. 2
siðdegis verður sýnd á sama
stað kvikmyndin ,,The
Merchant of Venice”, eftir
William Shakespeare.
betta eru þættir i hinni nýju
menningarstarfsemi félagsins.
Djassklúbbur Reykjavikur
Djasskynningarkvöld á mánu-
dagskvöldið 2. des. kl. 21. —
Stjórnin.
MFtK
Félagskonur i Menningar- og
Friðarsamtökum islenskra
kvenna. Munið kökubasarinn i
húsi Hins islenska prentarafé-
lags við Hverfisgötu 21, sunnu-
daginn 1. des. Tekið verður á
móti kökum milli 10 og 12, 1.
des. en sala hefst kl. 14. — Með
félagskveðju — Stjórnin.
Kvennadeild Siysavarnafélags
Rvikur.
Deildir heldur basar 1. desem-
ber i Slvsavarnahúsinu. bær fé-
lagskonur, sem gefa vilja muni.
eru beðnar að koma þeim á
skrifstofu félagsins i Slysa-
varnahusinu á Grandagarði eða
láta vita i sima 32062 eða 15582.
Kvenfélagið Edda
Basarinn verður haldinn laug-
ardaginn 30. nóv. i húsi HtP,
Hverfisgötu 21.
Kvenfélagið Hringurinn
Kvenfélagið Hringurinn held-
ur árlegan jólabasar með kaffi-
sölu og happdrætti á Hótel Borg
8. des. kl. 15. Sýnishorn af
basarmunum verða i glugga
Ferðaskrifstofunnar Úrvals,
Eimskipafélagshúsinu um helg-
ina.
Kvenfélag Háteigssóknar
Kvenfélagið heldur félags-
fund 3. des. kl. 20.30 i Sjómanna-
skólanum. Kynnt verða grill-
steiking og hagkvæmir smárétt-
ir. Konur, verum allar með i fé-
lagsstarfinu. — Stjórnin.
Kvenréttindafélag íslands.
Jólafundurinn verður haldinn
4. des. kl. 20.30 að Hallveigar-
stöðum (niðri). Fundarefni:
Sigurveig Guðmundsdóttir flyt-
ur jólahugvekju, listakonur
skemmta. Rósa Ingólfsdóttir
syngur með gitarundirleik og
Hanna Eiriksdóttir les upp.
Sýndar verða jólaskreytingar.
Stjórnin.
Hundaræktarfélag tslands
Aðalfundur Hundaræktarfélags
tslands verður haldinn laugar-
daginn 7. des. kl. 5 i félags-
heimili Fáks, Reykjavik.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Kvenfélag Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra
Félagskonur athugið að jóla-
fundurinn verður 9. desember i
Lindarbæ.
Fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Stjórnin.
Sunnudagsganga 1/12.
Alfsnes — Gunnunes.
Brottför kl. 13, frá BSt.
Verð: 400 krónur.
Ferðafélag Islands
apótek
Reykjavik
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varsla iyfjabúðanna I Reykja-
vik vikuna 29. nóv. til 5. des. er i
Háaieitisapóteki og Vestur-
bæjarapóteki.
bað apótek sem fyrr er nefnt
annast eitt vörsluna á sunnu-
dögum, helgidögum og almenn-
um fridögum. Einnig nætúr-
vörslu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9
að morgni virka daga en kl. 10 á
sunnudögum helgidögum og al-
mennum fridögum.
Kópavogur
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga til kl. 19. A laugar-
dögum er opið frá 9 til 12 á há-
degi. A sunnudögum er apótekið
lokað.
Hafnarfjörður
Apótek Hafnarfjarðar er opið
frá 9—18.30 virka daga, á laug-
ardögum 10—12.30 og sunnu-
daga og aðra helgidaga frá
11—12 á hádegi.
sjúkrahús
Landakotsspitali
Kl. 18.30-19.30 alla daga nema
sunnudaga kl. 15-16. A barna-
deild er heimsóknartimi alla
daga kl. 15-16.
Barnaspltali Hringsins: kl.
15—16 virka daga kl. 15—17
laugard. og kl. 10—11.30 sunnud.
Borgarspitalinn:
Mánud.—föstud. kl. 18.30. 19.30.
Laugard. og sunnud. kl.
13.30— 14.30 og kl. 18.30—19.
Endurhæfingardeild
Borgarspitalans: Deildirnar
Grensási — virka daga kl. 18.30.
Laugardaga og sunnudaga kl.
13—17.
Deildin Heilsuverndarstöðinni
— daglega kl. 15—16, og
18.30— 19.30.
Flókadeiid Kieppsspltala: Dag-
lega kl. 15.30—17.
Fæöingardeildin: Daglega kl.
15—16 og kl. 19—19.30.
Kvöld- og næturvakt: kl.
17.00—08.00
mánudagur—fimmtudags, simi
21230.
Aöstandendur drykkjufélks.
Simavakt hjá Ala-non, aðstand-
endum drykk jufólks, er á
mánudögum 15—16 og fimmtu-
daga 17 til 18. Fundir eru haldn-
ir hvern laugardag i safnaðar-
heimili Langholtssóknar við
Sólheima. Simi 19282.
heilsugæsla
SLYSAVARÐSTOFA
BORGARSPtTALANS
er opin allan sólarhringinn.
Simi 81200. Eftir skiptiborðslok-
un 81212
Tannlæknavakt er I
Heilsu vernda rstöðinni viö
Barónsstig alla laugardaga og
sunnudaga ki. 17—18. Slmi
22411.
Kvöld-, nætur- og helgidaga
varsia á Heilsuverndarstöðinni.
Simi 21230.
Reykjavik Kópavogur.
Dagvakt: kl. 08—17.00 mánud.
— föstudags, ef ekki næst i
heimilislækni simi 11510.
Sjúkrabifreiö: Reykjavik og
Kópavogur simi 11100, Hafnar-
fjörður simi 51100.
skák
Mát i tveimur leikjum. baö er
hvit drottning á g4.
wp>» - tl
krossgáta
w
Lárétt: 1 hreykin 5 nefnd 7
sneið 8 borðandi 9 fjölda 11
samtenging 13 innyfli 14 slæm 16
grennd.
Lóðrétt: 1 likamshluti 2 ungviði
3 glens 4 hreyfing 6 verk 8 sóma
10 skelin 12 halli 15 tala.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 2 skort 6 tik 7 hlif 9 rú 10
vif 11 bál 12 an 13 maka 14 búr
15 flærð.
Lóðrétt: 1 athvarf 2 skort 3 kif 4
ok 5 trúlaus 8 lin 9 rák 11 barð 13
múr.
læknar
SLYSAVARÐSTOFA
BORGARSPÍTALANS
er opin allan sólarhringinn.
Simi 81200. Eftir skiptiborðslok-
un 81212
Tannlæknavakt er i
lleilsu verndarstöðinni viö
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varsla á Heilsuverndarstöðinni.
Simi 21230.
A laugardögum og helgidögum
eru læknastofur lokaðar, en
læknirer til viötals á göngudeild
Landspitala, simi 21230.
Upplýsingar um lækna- og
lyfjabúöaþjónustu eru gefnar I
símsvara 18888.