Þjóðviljinn - 30.11.1974, Síða 16
DJÚÐVIUINN
Laugardagur 30. nóvember 1974.
John Sirica
Nixon
of
slappur
Washington 29/11 reuter — Nefnd
þriggja lækna sem fyrirskipaö
var at> kanna heilsufar Nixons
fyrrum forsetá skýröi John Sirica
dómara i Watergate-málinu frá
þvl I dag aö þeir heföu komist aö
þeirri niðurstööu aö Nixon væri
ekki nægjanlega heilsuhraustur
til að bera vitni I réttarhöldunum
yfir fimm fyrrum aðstoðarmönn-
um sinum.
Læknarnir sögðu að Nixon yrði
ekki fær um að leggja i langferð
frá Kaliforniu til Washington fyrr
en eftir 16.febrúar, að þvi tilskildu
að bati hans yrði með sama hætti
og verið hefur og að ekkert óvænt
kæmi fyrir. Þeir bættu þvi við að
hann myndi geta gefið skriflegan
vitnisburð eftir 6. janúar.
Þá sögðu læknarnii; að Nixon
yrði ekki fær um að mæta við
réttarhöldin þó þau yrðu flutt i
nágrenni bústaðar hans i San
Clemente fyrr en 2. febrúar I
fyrsta lagi.
Tyrklandsstjórn
fallin
Ankara 28/11 reuter — Embættis-
mannastjórnin i Tyrklandi sagði
af sér i dag eftir að hafa beðið
mikinn ósigur á þingi. Stefnuyfir-
lýsing hennar var felld i atkvæða-
greiðslu i þinginu með 358 at-
kvæðum gegn 17. Stjórnin sem
laut. forystu Sadi Irmaks sat þvi
aðeins i tólf daga.
Skýrsla viðrœðunefndar unt járnblendiverksmiðjuna:
„Forsendur breyttar
Union Carbide í hag”
segir Magnús Kjartansson
— Það stendur ekki
steinn yfir steini í sam-
bandi við tölur þær, sem
reiknað var með í fyrri
gerðáætlunarinnar, sagði
Magnús Kjartansson,
fyrrverandi iðnaðar-
málaráðherra, er Þjóð-
viljinn hafði tal af honum
í tilefni skýrslu nefndar
þeirrar, er átt hefur við-
ræður við fulltrúa Union
Carbide Corporation um
byggingu ferrosilikon-
bræðslu (öðru nafni
málmblendiverksmiðju) í
Hvalfirði. — Allar talna-
legar forsendur eru ger-
breyttar Union Carbide í
hag.
Um skýrsluna til rikisstjórn-
arinnar, sem send var fjölmiöl-
um i gær, sagði Magnús enn-
fremur:
— Af þvi sem breytt hefur
verið má nefna að stofnkostnað-
ur hefur hækkað úr þrjátiu
miljónum dollara i sextiu og
átta miljónir, eða næstum um
130%, og að sjálfsögðu er hækk-
unin miklu meiri ef mælt er i is-
lenskum krónum. Þá er eignar-
hlutur Union Carbide aukinn úr
35% i 45%, verðlag á svokallaðri
tækniþekkingu, einkaleyfum og
öðru hliðstæðu, frá Union Car-
bide hækkar úr 2.3 miljónum
dollara i 3.2 miljónir dollaga,
söluprósentan, sem Union éan,-
bide á að fá, er hækkuð úr 3%
upp i 4% að meðaltali ofan á
óhemjulega hækkun á vörunni
sjálfri. Þetta þýðir að áður var
reiknað með að Union Carbide
fengi tæpa átta dollara fyrir að
selja hvert tonn, en á nú að fá
yfir tuttugu dollara á hvert selt
tonn. Þetta er hækkun um 160%.
Tiltölulega Iftil
orkuverðhækkun
Orkan frá Landsvirkjun er að
visu verðlögð hærra en áður, og
er sú hækkun um það bil 40%.
En sú hækkun er miklu minni
hlutfallslega en á öðrum kostn-
aðarliðum. Þetta atriði er sér-
staklega eftirtektarvert þegar
haft er i huga að undanfarið
hefur það einmitt fyrst og
fremst verið orkuverðið, sem
rokið hefur upp á heimsmark-
aðnum og valdið annarri hækk-
un. Að öllu eðlilegu ætti þvi
þessi kostnaðarliður að hækka
mest, og einmitt af hækkun á
honum hefðu Islendingar hag.
í þessu sambandi er einnig
rétt að benda á, að málmblendi-
verksmiðjan átti upphaflega að
tengjast Sigölduvirkjun og nota
orku, sem ella væri ekki mark-
aður fyrir I landinu. Nú er ljóst
að málmblendiverksmiðjan
mun ekki taka til starfa fyrr en
einu til tveimur árum eftir að
Sigölduvirkjun hefur orkufram-
leiðslu, þannig að þetta sam-
hengi hefur rofnað. Við það bæt-
ist að eftir oliuverðhækkunina
miklu er Islendingum það brýn
nauðsyn að nýta innlenda orku-
gjafa I stað innfluttrar oliu og
Sigölduvirkjun hrekkur ekki til
að metta þann markað. Þvi
mundi koma til árekstra milli
verksmiðjunnar og þarfa al-
mennings um land allt. En ég er
þeirrar skoðunar að til slikra
árekstra megi ekki koma og að
það verði að ganga fyrir að full-
nægja daglegum þörfum al-
mennings að þvi er varðar hús-
hitun og aðrar þarfir. —
Stofnkostnaðarhækkun
130%
Skýrslan frá viðræðunefnd-
inni, sem Þjóöviljanum hefur
borist er sextán blaðsiður að
stærð og skiptist i átta aðal-
kafla. Það stendur meðal ann-
ars að byggingarkostnaður,
sem áætlaður hefur verið að
nýju af Union Carbide og ráðu-
nautum þeirra, Canadian
Bechtel and Company i
Montreal, muni nema 68 miljón-
um dollara. Gert er ráð fyrir að
ársframleiðsla tveggja ofna
verksmiðjunnar muni nema
47.000 tonnum og að hráefnaþörf
á hvert tonn framleiðslu verði
samtals 3.38 tonn, og er kvarts
þar stærsti liðurinn, 1,69 tonn.
Hlutafé skal nema samtals 24
miljónum dollara, þar af
13.200.000 i eigu tslands, eða
55%. Áætlað er að starfsmenn
við málmblendiverksmiðjuna
verði hundrað og fjórtan alls,
þar af áttatiu og sjö i verk-
smiðju og tuttugu og sjö á skrif-
stofu. Arlegur launakostnaður
er áætlaður 1.645.000 dollarar.
„ . . . hættulaus dýrum
og gróðri"
Um umhverfismál stendur
skrifað I skýrslunni m.a.:
„Frá upphafi viðræðnanna
hefur verið lögð rik áhersla á,
að mengun frá verksmiðjunni
yröi i algeru lágmarki. Hefur
þvi ætið verið heitið, og er ljóst,
að hugur fylgir þar máli. Hefur
rykhreinsun úr reyknum batnað
frá þvi sem áður var talið viðun-
andi, úr 95 I 99 hundraðshluta
ryksins. Jafnframt eru hafnar
tilraunir, sem miða aö þvi að ná
þvi ryki, sem sleppur, þegar
ofnar eru opnaðir til tæmingar.
Reykurinn frá ofnunum er
kældur og slðan dreginn I gegn-
um pokasiur, sem ná 99 hundr-
aðshlutum ryksins. Sá hluti,
sem sleppur, mun tæpast sýni-
legur hér, þrátt fyrir hið hreina
loft. Hann er hættulaus dýrum
og gróðri”.
Kostnaður við hafnar-
gerð 200-300 miliónir
I lið sem hefur yfirskriftina
,,Um þjóðhagsleg áhrif” stendur
að enn vanti heildarskýrslu um
þjóðhagsleg áhrif af rekstri
járnblendiverksmiðjunnar, en
að árlegar vergar tekjur af
verksmiðjunni séu söluverð-
mætið, sem nemi 29.1 miljónum
dollara. Hreinar gjaldeyristekj-
ur á meðalári eru áætlaðar 10.8
miljónir dollara. Kostnaður við
hafnargerð við Grundartanga
er lausiega áætlaður 200-300
miljónir króna miðað við verð-
lag i mars s.l. og er sagt að bú-
ast megi við að fyrstu árin nægi
tekjur frá verksmiðjunni ekki til
þess að standa unöir stofnkostn-
aði hafnarinnar.
Um orkuverð segir að það
verði fyrstu tvö árin 1.12 krónur
á hverja kilóvattstund for-
gangsorku, sex aurar fyrir af-
gangsorkuna og 59 aurar að
meðaltali. Hækkanir verða i
byrjun þriðja árs, á fimmta ári
og I byrjun sjöunda árs, en þá
hækkar meðalverðið i 73 aura.
Meinhof fékk 8 ár
— en á von á meiru
Vestur-Berlin 29/11 reuter — Ul-
rike Meinhof, einn af leiðtogum
Baader-Meinhof hópsins, var i
dag dæmd I átta ára fangelsi fyrir
morðtilraun. Meinhof á þó þyngri
dóma yfir höföi þar sem þessi
dómur fjallaði aðeins um það er
Andreas Baader var frelsaður úr
fangelsi áriö 1970.
Snemma á næsta ári á hún
ásamt fleirum úr hópnum að
mæta fyrir rétti ákærö fyrir fimm
morð og 54 morðtilraunir.
Við réttarhöldin sem lauk i dag
fékk annar verjenda Meinhof,
Horst Mahler, tveggja ára fang-
elsi til viðbótar tólf ára fangelsis-
dómi sem hann er þegar byrjað-
ur að afplána. Hann var dæmdur
fyrir aðild að stofnun hópsins og
hlutdeild i þremur bankaránum.
(Raunar héldu margir þvi fram
að Mahler heföi verið dæmdur
fyrst og fremst fyrir það að taka
að sér vörn hópsins). Hans-
Jurgen Baecker var hins vegar
sýknaður.
Alþýðubandalagið
Námshópar um sósialisma
og nútimaþjóðfélag
Vegna jólaanna og prófa I skólum hefur verið ákveðið að gera hlé á
starfi námshópanna i Reykjavik, Kópavogi og Hafnarfirði i desember.
Námsstarfið hefst að nýju i byrjun janúar, og verða hóparnir þá kvadd-
ir saman.
Albanía
Engin
samskipti
við
kremlverja
Moskvu, Tirqna 29/11 reuter —
Sovéska stjórnin sendi i gær al-
bönum heillaóskaskeyti itilefni af
þvi að I dag, 29. nóvember, eru
liöin 30 ár frá þvl landið losnaði
undan hernámi itala og þjóð-
verja. Fylgdi skeytinu ósk um
velgengni albönum til handa I að
byggja upp sóslalisma i landi
slnu.
Þetta kom nokkuð á óvart, þar
sem samskipti landanna hafa nær
engin verið siðan stjórnmálasam-
bandi þeirra var slitiö fyrir frum-
kvæði albana áriö 1961 en albanir
hafa sem kunnugt er hallað sér
Magnús Kjartansson
Orkuverð skal endurskoða á
fjögurra ára fresti, og skal það
hækka hlutfallslega jafnt og
orkúverð norsku rikisrafveitn-
anna til norsks iönaðar. Lands-
virkjun er nú að ganga frá
skýrslu um hagkvæmni þessa
samnings, og má vænta hennar
næstu daga.
I lið skýrslunnar um eignar-
aðild er tekið fram ao einn
nefndarmanna, Ingi R. Helga-
son, hafi talið eðlilegt aö halda
upphaflegum eignarhlutföllum
óbreyttum.
dþ.
Enver Hoxha, leiðtogi albana —
jafnharður gegn sovétum og fyrri
daginn.
mjög að kinverjum i deilum
þeirra og sovétmanna. 1 skeytinu
óskuðu sovétmenn eftir þvi að
eðlileg stjórnmálasamskipti yrðu
aftur tekin upp milli landanna.
Þessari ósk var hafnaö af á-
kveðni við hátiöarhöld sem fram
fóru i tilefni dagsins i Tirana I
dag. Þar var haldinn hátiðar-
fundur leiðtoga Verkamanna-
flokks Albaniu og rikisstjórnar-
innar að viðstöddum sendinefnd-
um átta rlkja, þar með talin
sendinefnd háttsettra embættis-
manna frá Kina.
BLAÐ-
BURÐUR
bjðöviljann vantar blað-
bera í eftirtalin hverfi:
Skjól
Tómasarhagi
Seltjarnarnes
Melar
Drápuhlið
Stigahlið
Hverfisgata
Laugarvegur
Akurgerði
Brúnir
Kleppsvegur
Vinsamlegast hafið
sambarid við af-
greiðsluna.
þjóðviljinn
Sími 1 7500
Kópavogur
Blaðburðarfólk óskast
i
Reynihvamm og
Birkihvamm
Uppl. i sima 42073.