Þjóðviljinn - 06.12.1974, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. desember 1974.
BÓKAHILLAN
Loftur Guðinundsson: Þrautgóðir á raunastund, 0. liindi.
Rvík 1974. Örn og Örlygur.
Ritsafnið. Þrautgóðir á raunastund, sem Steinar J. Lúðvíksson
blaðamaður hefir skráð og sainið, er þegar orðin gagnmerk heim-
ild um merkilegan þátt í baráttusögu þjóðar vorrar á þessari öld.
Þar hefir verið rakin sjóslysasaga nokkurra áratuga, lýst hetjulegri
baráttu, hörmulegum atburðum en einnig gleðilegum sigrum. í
þessu bindi, sem Loftur Guðmundsson rithöfundur semur, er
brugðið á nýtt ráð og skýrt frá ævi og störfum þriggja manna, sent
hæst ber í þvx að skipuleggja björgunarstarf og korna á fót al-
mennum slysavörnum. Þeir eru: Síra Oddur Gíslason, Sigurður
Sigurðsson skáld frá Arnarholti og Jón E. Bergsveinsson erind-
reki. Gerð er allrækileg grein fyrir ævi þeirra og störfum, en
einkum þó öllu því, er laut að slysavörnum. Síra Oddur er braut-
ryðjandinn, í aðra röndina ævintýramaður, en á hinn bóginn
raunsær athafnamaður, sem eygir markið og ryður brautina, svo
að því verði náð, þótt honum auðnaðist ekki að leiða þjóðina
fram til sigurs. Enda skilningur og stuðningur annarra lítill.
Sigurður skáld braust i að stofna Björgunarfélag Vestmannaeyja,
og leysti þar af hendi mikið starf og merkilegt, sem ekki mun
síður lifa en hin ágætu kvæði hans. í björgunarstarfinu samein-
aðist glöggskyggni og framsýni skáldsins við raunsæja athafnasemi.
LofturGuómundsson
Þrautgóðir
á raunastund
t>EIR aotu MtKW
t’cltö bindi b|ótyt»ntJr- ag sjoslysosogu fe*
lontly cr hclqvd rtilnpíntju þiigtjjd mormo
scm hófu mirkí slySavBtno ó loft, þcitro
ício Odd'.V GidosOrtorrSigvrðar;Sí(juiðs-
jonoi frá Anioiliolti. oy Jóns i. Berg
svcins'. cnm. órindrokfi SVFl
Jón E. Bergsveinsson varð brautryðjandi á tveimur sviðum ís-
lenskrar útgerðar, hann lærði fyrstur íslendinga meðferð síldar
og kom með því fótum undir síldveiðamar, og síðar verður hann
einn aðalstofnandi Slysavarnafélags íslands og erindreki um
mörg ár, og ;uá fullyrða, að hann ltafi mótað starf þess og stefnu
öðrum mönnum fremur. Þessir þrír menn voru harla ólíkir að
gerð, uppeldi og ævistörfum, en eitt áttu þeir sameiginlegt, óbil-
andi áhuga, framsýni og fórnfýsi til að vinna allt, sem þeir máttu
fyrir hugsjón sína, sem þeim öllum var sameiginleg: að forða
slysum og bjarga, þar sem bjargað varð. Og ótalin eru mannslífin,
sem starf þeirra hefir bjargað, og mikil er þakkarskuld þjóðar-
innar við þá. Af þeim sökum er þetta þörf og góð bók, sem í
senn heldur uppi minning^þeirra mætu manna og bendir fram
á við og eggjar til dáða. Oll er bókin hin læsilegasta, en helst
mætti finna að því, að hún sé of stutt.
*«
Einar frá Hergilsey: Blærinn í laufi.
Rvík 1974. Öm og Örlygur. ^
Þettá er önnur skáldsaga höfundar, sem er bóndi vestnr á Barða-
strönd, en hefir það hjáverkastarf að tjá hugsanir sínar í skáld-
söguformi. Sagan gerist í litum firði, sem er að leggjast í eyði
fyrir tíntanna rás. Hún er því jöfnum höndum þjóðlífslýsing á
barátu fólksins og einkamálum söguhetjanna, þar sem mjög gætir
árckstra í tilfinningum og víxlspora. Höfundur segir vel frá og
bregður upp mörgum skyndimyndum af persónuni og atvikum
án málalenginga. Persónum, ólíkum að eðli og gerð, er teflt
saman og fer honuin það yfirleitt haglega úr hcndi. Undiraklan
er átthagaástin og viðnámið gegn eyðingu byggðarinnar. Og
sagan endar þar sem söguhetjan stendur föstum fótum á jörð
sinni. Einar gjörþekkir það fólk, sem hann lýsir og umhverfi
þess. Það ásamt góðri frásagnargáfu er styrkur sögunnar.
Þetta er ritdómur úr HEIMA ER BEZT,
sem birtist hér sem auglýsing.
GÓÐ BÓK ER GÓÐ GJÖF
Örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Simi: 25722
sjónvarp nœstu viku
Sunnudagur
18.00 Stundin okkar. Tóti bak-
ar, Róbert bangsi og félagar
hans lenda i ævintýrum,
Söngfuglarnir syngja og
Bjartur og Núi steikja hnet-
ur. Einnig verður i Stund-
inni flutt saga, sem heitir
„Sykurhúsið”, og spurn-
ingaþáttur með þátttöku
barna úr iþróttafélaginu
Gerplu og barnastúkunni
Æskunni. Loks sýnir Friða
Kristinsdóttir, handavinnu-
kennari, hvernig hægt er að
búa til skrautlega kúlu.
Umsjónarmenn Sigriður
Margrét Guðmundsdóttir og
Hermann Ragnar Stefáns-
son. Stjórn upptöku Kristin
Pálsdóttir.
18.55 Skák. Stutt, bandarisk
mynd. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
19.05 Vetrarakstur. Fræöslu-
og ieiðbeiningamynd frá
Umferðarráði um akstur i
snjó og hálku. Þulur Arni
Gunnarsson.
19.25 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Heimsókn. Aning I Eyj-
um. Að þessu sinni heim-
sækja sjónvarpsmenn Vest-
mannaeyinga. Brugðið er
upp myndum af endurreisn-
arstarfinu i Heimaey og
rætt við vestmannaeyinga,
innfædda og aðflutta.
Umsjón Ömar Ragnarsson.
Kvikmyndastjórn Þrándur
Thoroddsen.
21.25 Heimsmynd I deiglu.
Finnskur fræðslumynda-
flokkur I sex þáttum um vis-
indamenn fyrri alda og
uppgötvanir þeirra. Fyrst
er greint frá hugmyndum
manna um umheiminn til
forna, en siðan koma til sög-
unnar visindamennirnir
Nikulás Kópernikus, Tycho
Brahe, Johann Kepler,
Galileo Galilei og Isaac
Newton, og er hverjum
þeirra helgaður einn þáttur
myndaflokksins. 1. þáttur.
Fornar hugmyndir um skip-
an veraldar. Þýðandi Jón
Gunnarsson. Þulur Jón
Hólm. (Nordvision —
Finnska sjónvarpið)
21.50 Sunnudagstónleikar.
Mynd um norska hljóm-
sveitarstjórann Olaf Kiel-
land. Fyrst er brugðiö upp
mynd frá hljómsveitar-
æfingu, en siðan er rætt við
Kielland um lif hans og
starfsferil. Loks leikur svo
norska útvarpshljómsveitin
undir stjórn hans. Einleik-
ari Kjell Bakkelund.
Verkin, sem þar eru flutt,
eru Forleikur að Kátu kon-
unum i Windsor eftir Otto
Nicolai, Forleikur að Aidu
eftir Giuseppi Verdi, Coriol-
an forleikur eftir Ludwig
van Beethoven og Konsert-
rondó i D-dúr og Forleikur
að Töfraflautunni eftir W.A.
Mozart. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. (Nordvision
—- Norska sjónvarpið)
23.20 Að kvöldi dags. Sr.
Tómas Guðmundsson I
Hveragerði flytur hugvekju.
23.30 Dagskrárlok.
Mánudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.40 Onedin.skipafélagið.
Bresk framhaldsmynd. 10.
þáttur. Frægur farþegi.
Þýðandi óskar Ingimars-
son. Efni 9. þáttar: Skip,
sem James hefur tekiö á
leigu af Callon, týnist i hafi.
Skip og farmur er hátt
vátryggt en I ljós kemur að
púöur, sem var þar meðal
annars varnings, ógildir
tryggingarsamninginn.
Onedinbræðurnir sjá fram á
gjaldþrot, og Robert lætur
undan hótunum Callons og
selur honum búðina fyrir
litið fé. James vill ekki gef-
ast upp við svo búið. Hann
tekur að sér að smygla
púðri og byssum fyrir er-
lenda uppreisnarmenn og
græðir á þvi talsvert fé.
21.40 tþróttir. Fréttir og
myndir frá
fþróttaviðburðum helgar-
innar. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
22.15 Hvað gera norömenn?
Norsk heimildamynd um
áætlanir þær, sem þarlendir
menn hafa á prjónunum um
útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar. Þýðandi og þulur Jón
O. Edwald. (Nordvision —
Norska sjónvarpið)
22.50 Dagskrárlok,
Þriðjudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.40 Hjónaefnin. ítölsk
framhaldsmynd, byggð á
sögu eftir Alessandro
Manzoni. 8. þáttur, sögulok.
Þýðandi Jónatan Þór-
mundsson. Efni 7. þáttar:
Drepsóttin berst til Mflanó,
og meðal þeirra, sem veikj-
ast, er don Rodrigo. Renzó
veikist einnig, og er um
skeið nær dauða en lifi.
Hann hressist þó og heldur
heim á leið, til að leita frétta
af Lúciu. Hún er þá komin
til Milanó, og hann hraðar
för sinni þangað. I Mflanó
fréttir hann að Lúcia hafi
verið flutt á farsóttarhúsið.
Þar finnur hann hana að
lokum innan um fjölda
sjúklinga, og einnig rekst
hann á föður Kristófer, sem
segir honum, hvernig komið
sé fyrir don Rodrigó, og
fylgir honum að sjúkrabeöi
hans.
21.35 Indiánar eru lika fólk.
Fræðslumynd um kjör og
þjóðfélagsstöðu Indiána I
Suður-Ameriku. Annar
þáttur af þremur. Þýðandi
og þulur Óskar
Ingimarsson. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið)
22.10 Heimshorn.
Fréttaskýringaþáttur.
Umsjónarmaöur Jón Hákon
Magnússon.
22.45 Dagskrárlokj
Miðvikudagur
18.00 Björninn Jógi. Bandarisk
teiknimynd. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
18.20 Hljómplatan. Siðasti
hluti fræöslumyndar um
hljómplötur og gerð þeirra.
Þýðandi Jóhanna Jóhannes-
dóttir. (Nordvision —
Finnska sjónvarpiö)
18.40 Filahirðirinn. Bresk
framhaldsmynd. Fílahirðir-
inn mikli. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
19.05 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrárkynning og
auglvsingar.
20.40 Nýjasta tækni og visindi,
Frissi, tölva meö skynfæri,
öryggispúðar I bifreiðum.
Dauðhreinsuð skurðstofa.
Svifnökkvi til þungaflutn-
inga. Ferð til Marz.
Umsjónarmaöur Sigurður
H. Richter.
21.10 Bréfin. Bandarisk
sjónvarpskvikmynd, gerð I
fyrra. Aðalhlutv. Barbara
Stanwick, John Forsythe og
Ida Lupino. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. í myndinni
eru raktar þrjár sjálfstæðar
sögur, sem eiga það sam-
eiginlegt, að bréf, sem
seinkað hefur um eitt ár,
koma óvænt til skila og
valda miklum breytingum i
lifi sendendanna og þeirra,
sem fá bréfin i hendur.
22.30 Eins konar jass. Nýr
þáttur. Erlendur
Svavarsson, Guðmundur
Ingólfsson, Gunnar Þórðar-
son, Halldór Pálsson, Rúnar
Georgsson og Sigurður
Árnason leika jasstónlist I
sjónvarpssal. Einnig syngur
Janis Carol eitt lag meö
hljómsveitinni Stjórn
upptöku Egill Eðvarðsson.
23.00 Dagskrárlok.
Föstudagur
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.40 E ldfuglaeyjarnar.
Fræðslumyndaflokkur um
dýralif og náttúrufar á
Trinidad og fleiri eyjum I
Vestur-Indium. 1
regnskógum Trinidads.
Þýðandi og þulur GIsli
Sigurkarlsson. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið)
21.20 Kapp með forsjá Bresk
sakamálamynd. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.15 Kastijós. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur Svala Thorlacius.
Dagskrárlok um eða laust
eftir kl. 23.00.
Laugardagur
16.30 Jóga til heilsubótar.
Bandarisk mynd með
leiöbeiningum i
Jógaæfingum. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
16.55 Iþróttir. Knattspyrnu-
kennsla. Breskur kennslu-
myndaflokkur. Þýðandi og
þulur Ellert B. Schram.
17.05 Enska knattspyrnan.
Aörar Iþróttir. M.a. keppni
vikunnar: Hástökk i
sjónvarpssal. Umsjónar-
maöur Ömar Ragnarsson.
19.15 Þingvikan. Þáttur um
störf Alþingis.
Umsjónarmenn Björn
Teitsson og Björn Þor-
steinsson.
19.45 Hlé.
20.00 Fréttir og veður,
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Læknir á lausum kili.
Bresk gamanmynd.
Arfurinn. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
21.00 Ugla sat á kvisti.
Getraunaleikur með
skemmtiatriðum.
Umsjónarmaður Jónas R.
Jónsson. Stjórn Upptöku
Egill Eðvarðsson.
21.40 Liljur vallarins. (The
Tuttles of Thahiti).
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1942, byggð á sögunni
„No More Gas” eftir
Charles Nordhoff og James
Norman Hall. Leikstjóri
Charles Vidor. Aðalhlutverk
Charles Laughton og John
Hall. Þýðandi óskar
Ingimarsson.
Myndin gerist á Tahiti á fyrri
hluta 20. aldar og lýsir lifi
fjölskyldu, sem þar býr.
Tuttle-fjölskyldan er af er-
lendu bergi brotin, en hefur
þó mjög blandast ættum
eyjarskeggja. Höfuð fjöl-
skyldunnar, Jónas Tuttle, er
mesti sæmdarkarl, en hon-
um og sonum hans er flest
betur gefið en fjármálavit.
Myndin hefst á þvi, aö sonur
hans kemur heim úr sigling-
um og hefur með sér forláta
hana, en hanaat er uppá-
haldsskemmtun Tuttle-
fólksins og annarra eyjar-
skeggja. Sagan ,,No More
Gas” kom út I islenskri þýð-
ingu Karls Isfelds fyrir all-
mörgum árum undir nafn-
inu Liljur vallarins.
23.30 Dagskrárlok.