Þjóðviljinn - 06.12.1974, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. desember 1974.
DJOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: tJtgáfufélag Þjóöviljans Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Skóiavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 llnur)
Svavar Gestsson Prentun: Blaöaprent h.f.
í VINNUMENSKU HJÁ GUNNARI OG GEIR
Fyrr i þessari viku fóru fram á alþingi
umræður um samkomulagið, sem rikis-
stjórnin hefur gert við bandarikjamenn
um áframhaldandi dvöl bandarikjahers á
tslandi. Talsmenn Alþýðubandalagsins
við þessar umræður voru þeir Gils Guð-
mundsson og Kjartan ólafsson, og lýstu
þeir fullri andstöðu flokksins við þennan
nýja samning og undirstrikuðu að alger
stefnubreyting hefði átt sér stað i þessum-
málum við stjórnarskiptin. Nú væri það
stefna Sjálfstæðisflokksins um varanlega'
hersetu, sem mótaði gerðir stjórnarinnar
þótt utanrlkisráðherrann væri úr Fram-
sóknarflokknum.
Ræðumenn Alþýðubandalagsins vöktu
m.a. athygli á eftirfarandi atriðum:
1. Gert er ráð fyrir stórauknum fram-
kvæmdum á Keflavikurflugvelli. Bygg-
ingu ibúðarhúsnæðis, sem samsvarar
2000 ibúa nýjum kaupstað, sem ásamt
öðrum ráðgerðum framkvæmdum
mun kosta um 7 miljarða islenskra
króna, eða 16-falt hærri upphæð, en
rikisstjórnin hyggst hækka framlag
rikisins i byggðasjóð.
2. Gert er ráð fyrir að þessar fram-
kvæmdir taki allt að 10 árum, en með
slikri langtimaáætlun er i raun verið að
segja bandarikjamönnum, að islend-
ingar muni ekki hrófla við hemum allan
þann tima, enda þótt réttur okkar sam-
kvæmtfyrri samningi sé sá, að láta her-
inn fara samkvæmt einhliða ákvörðun
okkar hvenær sem er, með eins og hálfs
árs fyrirvara.
3. Samkomulagið við bandarikjamenn
gerir ekki ráð fyrir að neitt verði dregið
úr hernaðarstarfsemi á Keflavikurflug-
velli. Talað er um að bandarikjastjórn
muni „leitast við” að fækka i liðinu um
rúmlega 400 menn, sem þýðir 10—15%,
enda taki islendingar að sér, i bróður-
legri samvinnu við herinn, þau störf
sem þeir hafa unnið.
4. Gert er ráð fyrir aukinni samvinnu
hersins við ýmsar stofnanir islenska
rikisins, landhelgisgæsluna, almanna-
varnir og flugmálastjórn. Það er sem
sagt ætlunin að tengja herinn á Kefla-
vikurflugvelli enn frekar en orðið er við
okkar eigið þjóðfélag og þá starfsemi,
sem islenska rikið heldur uppi.
öll eru þessi atriði stórlega varhuga-
verð og svo er um fleira i þessum samn-
ingi.
Stefna rikisstjórnarinnar gengur alger-
lega þvert á þær samþykktir, sem gerðar
hafa verið hvað eftir annað á flokksþing-
um Framsóknarflokksins um að herinn
skuli verða burt úr landinu.
Þórarinn Þórarinsson, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins, segir i for-
ystugrein i blaði sinu i gær, að það sé
sögufölsun Alþýðubandalagsmanna, þeg-
ar talað sé um, að rikisstjómin fylgi nú
fram stefnu Sjálfstæðisflokksins i þessum
málum. Þvi til sönnunar nefnir hann, að
islendingum sé ætlað að taka við rúmlega
10% af starfsemi hersins, og lokun Kefla-
vikursjónvarpsins.
Við viljum af þessu tilefni vekja athygli
á þvi, að lokun Keflavikursjónvarpsins
var verk vinstri stjórnarinnar, og fyrst þvi
hafði nú einu sinni verið lokað reyndist
ekki meirihluti fyrir þvi i þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins að send yrði bænaskrá um
að það yrði opnað á ný. Ekki er heldur
kunnugt um, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
neitt við það að athuga, að bandarikja-
stjórn „leitist við” að fækka i herliðinu um
rúm 10% gegn þvi, að islendingar leggi
hernum til mannafla i staðinn og sam-
vinna hersins við ýmsar innlendar opin-
berar stofnanir aukist.
Telji Þórarinn Þórarinsson að þetta sé
ekki stefna Sjálfstæðisflokksins, heldur
stefna Framsóknarflokksins, þá hlýtur
hann að lita svo á, að stefna Framsóknar-
flokksins verði til á Landsfundum Sjálf-
stæðisflokksins en ekki á flokksþingum
Framsóknarflokksins, og er það út af fyrir
sig athyglisverð kenning.
En þótt Þórarinn Þórarinsson kalli það
sögufölsun að Sjálfstæðisflokkurinn ráði
nú ferðinni i herstöðvamálinu og sé þá
væntanlega sammála þvi, sem Geir Hall-
grimsson sagði við umræðurnar á alþingi,
að munurinn á stefnu stjórnarflokkanna
tveggja i þessum málum væri mjög ó-
verulegur, — þá virðast ekki allir Fram-
sóknarmenn vera honum sammála um
það.
Ritari Framsóknarflokksins, Stein-
grimur Hermannsson, sagði við þessar
sömu umræður, að hann teldi stefnu flokk-
anna tveggja svo gerólika i þessum efn-
um, að rétt hefði verið að taka það beinlin-
is fram i stjórnarsáttmálanum, að
stefna Framsóknarflokksins væri allt önn-
ur en þar kæmi fram.
En i raun fór nú svo, að Framsóknar-
flokkurinn lét ekki aðeins vera að bóka á-
greining, þegar sett var i stjórnarsáttmál-
ann, að herinn skyldi sitja áfram, heldur
tók flokkurinn beinlinis að sér að fram-
fylgja stefnu Sjálfstæðisflokksins um var-
anlega hersetu með þvi að fela varafor-
manni sinum að annast utanrikismálin.
Slikt er furðulegt virðingarleysi fyrir
eigin flokksþingssamþykktum, en ljóst er
að andstaða ritara flokksins við linu Þór-
arins og ráðherranna er annaðhvort sjón-
arspil eitt, eða hann fær engu ráðið i flokki
sinum.
Framhald Leirárfundar
í þingsölum
Þingmenn fengu i gær nokkurt
sýnishorn af málmblendifundin-
um á Leirá þegar á dagskrá var
tekin fyrirspurn frá Jónasi Árna-
syni:
Hvernig stendur á þvl aö á
sama tima og rtkisstjérnin ræöir
aftur og aftur viö bandariskan
auöhring um aö reisa málm-
blendiverksmiðju á Grundar-
tanga I Hvalfiröi, lætur hún alveg
hjá liöa aö bera þetta undir þaö
fólk sem byggir sveitirnar I
grennd viö Grundartanga?
Sagöi Jónas viö upphaf all
heitra umræöna i sameinuöu
þingi aö þessari fyrirspurn heföi
aö visu hálfvegis veriö svaraö
daginn áöur þar sem loks heföi
veriö efnt til þess fundar um mál-
efniö sem héraösmenn heföu
lengi beöiö eftir. Þetta heföi veriö
einn sá sögulegasti fundur sem
lengi heföi veriö haldinn I Borgar-
firöi, enda heföu forsvarsmenn
verksmiöjubyggingar fariö hinar
hefilegustu hrakfarir fyrir
heimamönnum og tveim mývetn-
ingum sem sögöu frá reynslu
sinni af álika iöjurekstri nyröra.
Nú væri ljóst oröiö aö borgfirö-
ingar frábiöja sér þessa verk-
smiöju og ættu ráöherrar aö taka
mark á þvi.
Gunnar Thoroddsen iönaöar-
ráöherrareyndi aö snúa sig út úr
málinu meö þvi aö segja aö fyrir-
spurn Jónasar beindist til fyrr-
verandi iönaöarráöherra
Magnúsar Kjartanssonar. Kvaöst
hann ekki vilja blanda sér I deilur
manna innan Alþýöubandalags-
þíngsjá
ins né taka upp hanskann fyrir
Magnús Kjartansson. Rakti hann
siöan ýmsar dagsetningar
nefndaskipana og skýrslugeröa
úr tiö vinstri stjórnarinnar. M.a.
kynnti hann nefnd er samgöngu-
ráöherra skipaöi fyrir ári til aö
huga aö hafnargerö og staö fyrir
væntaniega verksmiöju en i henni
sitja: Ölafur St. Valdimasson
samgönguráöuneytinu, Daniel
Agústinusson og Gylfi Isaksson
Akranesi, Siguröur Sigurösson
Stóra-Lambhaga og Vilhjálmur
Lúöviksson efnaverkfræöingur.
Heföi sú nefnd rætt viö bændur á
svæöinu I fyrravetur.
Auk þess heföi Halldór E.
Sigurösson rætt viö eigendur
Grundartanga.
1 sambandi viö fundinn á Leirá
sagöi Gunnar aö þeir Halldór E.
heföu haft sérstakan hug á þvi
aö ræöa einslega viö sveitar
stjórnarmenn sunnan heiöar i
Borgarfiröi, sýslunefnd þar efra
og hreppsnefndarmenn úr Kjós
og af Kjalarnesi. Heföi veriö
ætlunin aö hafa þann lokaöa fund
I gær eftir aö búiö heföi veriö aö
snara af hinum almenna fundi.
En fundurinn heföi svo sannar-
lega haft annaö sniö en þeir
fundarboöendur höföu gert ráö
fyrir. Tveir háttvirtir þingmenn,
þeir Jónas Arnason og Stefán
Jónsson, heföu nefnilega haft viö-
búnaö og efnt til liössafnaöar og
haft landiö allt undir. Þeir heföu
sýnilega ekki treyst héraösbúum
til aö reifa málefniö og buöu gest-
um úr Mývatnssveit, Reykjavik
og viöar aö á fundinn. Ræöumenn
utan byggöarlagsins voru I meiri-
hluta á Leirárfundinum, sagöi
ráöherra hneykslaöur. Og vegna
þessara sérkennilegu aögeröa
þingmannanna var ekki unnt aö
halda þann fund „meö hinum
kjörnu fulltrúum svæöisins” sem
þá ráöherrana haföi svo mjög
munaö I.
Aö lokum kvaöst hann vilja
nefna dæmi um málflutning
sendimanna þeirra Jónasar og
Stefáns á Leirá: Mývetningar
heföu lært það aö ráðamenn
skildu aöeins eitt mál, mál
sprengjunnar!
Stefán Jónsson kvaö ráöherr-
ann hafa kynnt borgfiröingum
verksmiöjumáliö meö álíka sann-
indum og hann nú segöi frá Leir-
árfundinum, aö heimamenn
heföu ekki komist aö! Svör ráö-
herrans þar efra heföu veriö ým-
ist loöin, engin eöa ósönn og
nefndi Stefán dæmi um þetta.
Sagöi Stefán aö ráöherrann heföi
gefiö I skyn aö þá fyrst yröi leitaö
leyfis heilbrigöisyfirvalda þegar
þingiöværibúiö aö leggja blessun
sina yfir þaö aö verksmiöjan yröi
reist.
Halidór samgönguráöherra
kvaöst telja aö borgfiröingar
væru menn til aö ráöa málum sin-
um sjálfir og þyrftu ekki aö stefna
til sin mönnum noröan úr landi,
sem þá engar upplýsingar gæfu
eöa færu meö öfgar. Annar mý-
vetningurinn heföi til dæmis haft
þær fréttir aö færa aö ungmenna-
félagiö I sveitinni heföi klofnaö,
karlakórinn lagst niöur og hann
sjálfur falliö úr stööu oddvita.
Þessi sami maöur hældi kisil-
verksmiöjunni noröan heiöa þótt
hann heföi ekkert nema illt um
hana aö segja sunnan heiöa!
(Brostu þá aörir viöstaddir ráö-
herrar).
Lúövlk Jósepsson kallaöi
frammí: Voru mývetningar
kannskí I meirihluta á fundinum?
SvarHalldórs: Þeir tóku svo mik-
inn tima!
Jónas Arnason benti á aö Hall-
dór leyföi sér hér á alþingi aö ráö-
ast aö fyrrverandi oddvita þeirra
mývetninga meö dylgjum, fjar-
stöddum manninum, en ekki heföi
Halldór treyst sér til svona mál-
flutnings daginn áöur. Ráöherrar
brosa nú, en ekki er aö vita nema
þeim veröi það dýrkeypt. Gunnar
Thor. sneri hér út úr orðum
manna um miökvislarmáliö, en
ekki heföi veriö sprengt fyrr en
stjórnvöld voru búin að stefna
málinu i hreint óefni.
Slöan kvaöst Jónas vilja bera
fram spurningu sem ekki heföi
fengist svar viö á Leirárfundi: Ef
systkinin á Klafastööum (en þar á
verksmiöjan aö rlsa og ná einnig
til skika á næstu jöröum ) vilja
ekki láta landiö og neita aö fara,
ætlar þá rikisstjórnin aö flytja
þau nauöug burt og rýma þannig
fyrir jaröýtum sameinaös kar-
bíts?
Halldór E. Sigurösson kvaðst
hafa rætt við systkinin á Klafa-
stööum 1973. Þau heföu engan
sérstakan áhuga á þessari verk-
smiðjubyggingu, en þau mundu
ekki koma I veg fyrir hana. Þess-
um skilningi sinum heföi ekki
veriö andmælt af tveim bræörum
sem viöstaddir voru Leirárfund.
Jónas Árnason kvaöst hafa
ástæöu til aö gruna aö þau klafa-
staöasystkinin mundu nú breyta
afstööu sinni.
Lúövik Jósepsson: Ég heyri
ekki betur en 2 ráðherrar kvarti
yfir fundinum á Leirá og sýnist
þaö benda til að þeir hafi fariö þar
halloka. Lúövik kvaöst alltaf hafa
veriö mótfallinn hugmyndinni um
Frh. á bls. 15
Eyjólfur fyrir Gylfa
I vikunni tók Eyjólfur Sigurös-
son prentari sæti dr. Gylfa Þ.
Gislasonar á þingi þar sem fyrsti
varamaöur, Björn Jónsson,
treysti sér ekki til þingsetu vegna
anna. Gylfi mun ganga meö
fótarmein.