Þjóðviljinn - 08.12.1974, Qupperneq 3
Sunnudagur 8. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Ýmsar tillðgur aft barnafatnafti eftir Frffti
„Kaupiö lágt en reynslan
vegur þar
á móti
Frfftur ólafsdóttir
Rætt viö
eina fata-
hönnuöinn
sem til er
hér á landi
Fatahönnun er riý
atvinnugrein hér á landi,
menntaðir fatahönnuðir
eru fáir til, en finnast þó,
og Þjóðviljanum tókst að
hafa uppi á einum slíkum
vestur í versluninni
Bimm Bamm á Vestur-
götu, þar sem Nonni var
áður.
Friöur ólafsdóttir heitir hún,
menntuð úr Listaháskólanum i
Vestur-Berlin, en áður hafði hún
lokið stúdentsprófi og handa-
vinnudeild Kennaraskólans.
Við spurðum Friði um
atvinnumöguleika fyrir fata-
hönnuð á islandi.
,,Það er ekki mikið að gera hér,
utan einstök verkefni hér og
þar, og þá undantekningarlaust
illa borguð. Ég hef numið i
fimm ár i erlendum háskóla, og
þar sem ég hef þó lagt það á
mig, finnst mér ég ekki geta
tekið að mér einstök verkefni á
saumakonutaxta.»»
— Nú hefurðu sett upp búð.
Hannarðu sjálf það sem þú
selur hér?
„Já. Ég hanna fatngðinn og
snlð, en svo hef ég látið sauma
fyrir mig. Yfirleitt eru ekki
saumuð nema tvö eintök af
hverri stærð, þannig að það er
nóg að gera, einkum vegna þess
að ég flyt einnig inn talsvert
mikið af tilbúnum fatnaði. Ég
sinni þannig bæði heildverslun
og smásölu, hanna fötin og sel
kúnnanum i búðinni. Kannski
gefur þessi iðja enn litið meira
af sér en fyrirhöfnina og þræl-
dóminn, en reynslan er mikils-
verð, það er ég viss um. Með
þessu móti ber ég fullkomlega
ábyrgð á fötunum sem ég hanna
og sel, og jafnframt hef ég þó
aðstöðu til að starfa sem frjáls
og óháður fatahönnuður”.
— Færðu þau efni sem þú vilt
hér á landi til aö sauma úr?
„Nei. Heildsölurnar hafa
staðið sig afar illa að þessu leyti
og oft verður maður á siöustu
stundu aö gripa það sem til er.
M.a. þess vegna ætla ég
Út er komin bók um Gunnlaug
Scheving eftir Matthias Johanne-
sen. „Hún er ævisaga Schevings,
ásamt merkilegum viðtölum,
sem Matthias átti viö hann yfir
árin, um æviferil hans, list hans
og skoðanir,” segir á kápu bókar-
innar. Og ennfremur: „Bókin er
sérkennileg heimild um innra llf
eins af bestu málurum vorum um
miðbik þessarar aldar.”
Bókin um Gunnlaug Scheving
er 262 siður. Útgefandi er
Helgafell.
bráðlega að fara að flytja inn
efnin min sjálf.’*
Er fatnaður frá þér.
hannaður af þér og seldur hér,
dýrari en innfluttu fötin sem
fást hér I Bimm Bamm?
„Nei. Hann er miklu ódýrari
Þaö er vegna þess að ég reikna
mér lágt gjald fyrir hönnunina
og tollar af innfluttu vörunum
eru svo háir”.
I Bimm Bamm kennir
margra grasa, fatakyns, en
Friður ólafsdóttir hefur þó
aðeins á boðstólum föt á börn og
unglinga.
Hannarðu ekki föt á fólk, sem
leitar til þin sérstaklega?
„Ég geri litið af þvi, og þó
kemur það fyrir að ég teikna föt
á kunningja mina”. —GG
Helgafellsbók:
Um Scheving
Nú er vetur i bæ...
KULDAFATNAÐUR
NÝKOMIÐ:
Kven- og herrakuldajakkar
Hollenskar herraskyrtur
Herra- og dömupeysur
Flauelskarlmannaföt
Terylenebuxur, 3 snið. Gallabuxur
FACO LAUGAVEGI 37 LAUGAVEGI 89,
Gunnlaugur Scheving