Þjóðviljinn - 08.12.1974, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 08.12.1974, Qupperneq 5
Sunnudagur 8. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 c7VIyndir úr sögu verkalýðshreyfingar og sósíalískra samtaka Út í náttúruna Einsog áöur hefur veriö getiö i þessum þáttum átti það sinn þátt i að styrkja samstöðu liðs- manna verklýðshreyfingarinn- ar og annarra sósialista, að þeir áttu ekki einungis saman hinar erfiðari og átakameiri baráttu- stundir, heldur gáfu sér einnig tima til að gleðjast saman, á samkomum og Uti guðsgrænni náttúrunni i ferðalögum, sem þeir efndu til. Þetta efldi kynnin auk þess sem margir hafa sjálfsagt ekki átt annan kost á að komast i skemmtiferðalög. Og ferðalögin voru reyndar jafnframt tengd baráttunni, — þar voru haldnar ræður, flutt hvatningarljóð o.s.frv. Mynd nr. 20 er tekin i einu þessara ferðalaga og það er FUJ, Félag ungra jafnaðar- manna, sem fyrir henni stend- ur, einsog sjá má á fánanum. Ferðin var farin i Hvanneyrar- skál sumarið 1930 og þátt i henni tóku verkamenn og sisialistar, búsettir á Siglufiröi eða þar i vinnu. Ungi maðurinn, sem þarna stendur og heldur ræöu, er Sverrir Kristjánsson sagn- fræðingur. Nokkrir aðrir þekkjast, en þökk væri á ýtarlegri upplýsing- um frá lesendum Á boddíbílum Munið þið eftir boddibilunum svokölluðu? Þetta voru vörubil- ar með húsum aftaná, en i þeim trébekkir til að sitja á, — mjög vinsæl farartæki til ferðalaga á sinum tima. Á mynd nr. 21 sést ein slikra hópferða og aftaná myndinni stendur: ASV býður börnum I skemmtiferð. Hvenær var sú ferð farin og hvert? Ráðleggur hvernig á að vinna Þegar Billie Jean King var ellefu ára sagði mamma hennar, að nú fengi hún ekki lengur aö flækjast úti á götum og leikvöll- um i fótbolta og baseball, sem mömmunni fannst bara fyrir stráka. Billie yrði að velja eitt af þrennu: sund, tennis eða golf. Það varð tennis og fimm sinnum meistaratign i Wimble- don. En nú er Billie Jean King ásamt eiginmanni sinum Larry farin að gefa út timaritið „Women Sports”. Það kemur út i hátt á fjóröa hundrað þúsund eintökum og i fyrsta blaðinu voru ma. ráð- leggingar frá Billie um hvernig á að vinna- og læknisskýrsla um möguleika kvenna i iþróttakeppni gegn karlmönnum. King-hjónin vonast til, að bæði karlar og konur komi til með að lesa blaöið, og amk. einn karl- Billie Jean King áskrifanda er vitað um þegar. Það er Bobby Riggs, sem Billie Jean sigraði i tennisleiknum fræga hér um árið... «Víkingur» hevur uppfunnið nýtt mál Hamburg fekk nýliga vitjan av hesum gamla víkingi, sum sjálvur kallar seg «Moondog». Hann er úr íslandi og hevur verið blindur seinastu 40 árini. Síðani tá hevur hann skrivað yrkingar og sangii, suin hann hevur samlað saman í sin lítlan bókling á einum nýggjum ljóð- ligum enskum máli, sum hann sjálvur hevur uppfunnið. «Moondog» heldur nú fraro ferð sína til aðrar partar av j»essa mynd og frétt birti færeyska biaðið ,,14. september”. Skyldi Vesturtýsklandi. nokkur hérlendis kannast við „Tunglhundinn”? Og svo voru það jónsmessu- mótin sælu á Þingvöllum eða Hvalfjarðarbotni, sem Æsku- lýðsfylkingin hélt. Margt var um þau skrafað, gott og illt, ekki sist af andstæðingunum og nokkur öfundsýkisköstin fékk Mogginn vegna þess hve margt ungt fólk sótti þessar samkom- ur. Mynd nr. 22 er frá einni þeirra. Kannski getur einhver skýrt frá, hvaða ár? Gylfi= Guðni Eyjólfsson Það stóð ekki á að fá uppgefið hver væri sá Gylfi, sem orti gamanvisurnar um atburðina viö Suðurgötu 14, sem birtust i siðasta þætti. M.a. sonur Olafs Friðrikssonar, Atli, skýrði frá þessu. Hann hafði, einsog Elias Mar, sem lánaði kortið, kunnað og sungið þessar visur i æsku. Höfundurinn að baki nafninu Gylfi var Guðni Eyjólfsson, sem lengst af vann i gasstöðinni, en hann orti mikið af gamanvisum á sinum trha. Guöni var fæddur 2. febrúar 1883 og lést snemma á þessu ári, 91 árs að aldri. Enn biðjum við um samvinnu við lesendur. Gefið nánari upp- lýsingar um myndirnar úr Dagsbrúnarsafninu og lánið myndir til eftirtöku og birtingar ef þið eigið. Þetta eru ómetan- legar sögulegar heimild;r og mikils virði að sem mest sé að- gengilegt á einum og sama staðnum. —vh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.