Þjóðviljinn - 08.12.1974, Page 8

Þjóðviljinn - 08.12.1974, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. desember 1974. ÁRNI BERGMANN SKRIFAR Og læt tímana rugla reitum Þorsteinn frá Hamri Þorsteinn frá Hamri: Möttuii konungur eöa Caterpiilar. Saga úr sveitinni. Helgafell. K. 1974. 166 bls. A einum stað i annarri skáld- sögu Þorsteins frá Hamri segir sem svo: „Allt langar til að vera saga og eingin ein höfuðregla gildir um samheingi hlutanna þegar hugurinn fer á sveim og sópar allar götur jafnt einsog vindurinn”. Þarna er allmikið látið uppi um eðli þessarar sér- stæðu bókar. Timarnir rugla reit- um sinum með sjaldgæfum hætti. Sögumaður er einkar þjóðleg figúra: skáldmæltur draugur frá söguöld er að hvisla einhverju i eyra skurðgröfumanns sem er að róta upp mýrum i Borgarfirði. Þessi draugur, kominn fram úr nafnleysi þjóðsögunnar, hefur öðlast náttúruskyn nútimamanna á aldalöngu rölti sinu um heiðarn- ar og virðist vera á svipaðri skoð- un og Halldór Laxness um það illt sem hefst af framræslu mýra. Hvað klifar draugsi Hvað liggur draugnum á hjarta? Það er satt að segja ekki auðvelt að svara þeirri spurningu hreint og beint, viða eru fiskar undir steini. Nema hvað það rennur upp fyrir okkur, að draugsi var i lifanda lifi einn af hellismönnum sem við þekkjum úr frægri þjóðsögu. En hann leið- réttir þjóðsöguna um leið og hann skopast lika að þvi, hvernig sagnir verða til, teygir munnmæli á ýmsa vegu, ruglar lesanda i riminu með beinni og óbeinni skirskotun til nútimans. Til dæm- is má taka spil hans með það minni, að konur hverfa frá þvi að taka þvott af snúru til útilegu- manna og álfa og koma fram kannski löngu siðar. ,,Ég sneri á hefðbundna sögu”, segir draug- urinn. í sömu andrá er sögð ást- arsaga hellismannsins sem var og stefið flutt fram til þess nú- tima, að stúlkukind villist óvart i drykkju i vel birgum sumarbú- stað miðaldra „álfahjóna” sem vasast i hestamennsku. En hvort sem viö rekjum þessa aðferð lengur eða skemur, þá heldur draugurinn skáldmælti þvi fram, að lögmál munnmælanna hafi gert hellismann „allra tima menn” og siðast búið þá gervi skólapilta frá Hólum. Reyndar hafi þeir verið flokkur stiga- manna sem búa i Surtshelli i fjandskap viö höfðingjann Illuga svarta, samtiðarmann Þorsteins Egilssonar á Borg. Lýkur þeim viöskiptum svo að Illugi fer að þeim með ofurefli liðs og kemur þeim fyrir með eldi og sverði. Þessi málalok eru einnig tengd nútimanum. „Það var slátrun en ekki orrusta um það er lauk. Hellismenn eru vlða og kannast viö þær aðfarir. Ein brennunótt i byggð og morömorgunn á Hellis- fitjum i ósigri er þá litiö hjá aldralángri neyðarvörn sem viða lyktar þó með frægum sigri sem fáir höfðu treyst sér til að spá”. Þarna eru hellismenn tákn og I- mynd hinna útskúfuðu, kúguðu, ofsóttu og einnig uppreisnarinn- ar: „Frá banaþúfu minni séð runnu lif og dauöi okkar félaga saman I eitt stórt tákn sem timinn og fólkið eru góðu heilli sem óð- ast að endurskoða”. Höfðinginn Illugi tekur á hinn bóginn svip af „hliðstæðum valda- og embættis- hlúnkum sem uppi voru Öldum siðar”. Er sú hliðstæða siðan rak- in fram á daga „hagvaxtar, her- stöðva, arðráns” svo nokkuð sé nefnt. Saga hellismanna og Illuga er að sinu leyti sett fram sem hliöstæða við enn eldri sögu. Af Möttli konungi, sem hratt þvi fólki sem honum fannst óþarft fram af Heljarstapa og hræðir þegna sina á fuglinum Skera sem steðjar að riki hans — lifa þeir Mötull og Skeri siðan áfram i minni og sögu sem imynd valds og byltingar. Meöal annars er I þessari bók verið að flytja stétta- skiptinguna yfir á vettvang þjóð- sögunnar. Viönám og Ijóðræna Saga i sögu, þjóðsögur og minni rakin sundur og raöaö saman I nýju samhengi, töfrandi vefnaður málsins — eins og stundum áður er Þorsteinn frá Hamri að vinna úr öllu þessu viðnámsþrek, eitt- hvað það sem þrjóskir menn og andstreymingar hafa að fótfestu i æsingum og glæfraspili timans, i sljóleikans þoku. Draugurinn, sem höfundur gerir að talsmanni sinum, er reyndar sparsamur á ráðleggingar, en þó kemur það fyrir að það má festa þær niður áður en þær hverfa út i vindinn. Annarsvegar leggur hann það til að skurðgröfumenn hætti að ausa mold i hugsunarlausum djöful- móö fyrir peninga og veröi sér úti um nýtt lif i náttúrunni: hendi „steini i einhvern annan stein... þeim báðum og öðrum steinum til ánægju og gildisauka” og sjálfum sér. Eða þá að hann minnir á heil- ræði sem að honum var hvlslaö áður en hann gengi á fund hellis- manna: „Frelsi er það þegar þú megnar að brjótast út hverju sinni, eins þótt þú verðir aftur að leita þess með þvi að brjótast þaðan sem þú hugðir þig hólp- inn” (bis. 61). Þetta hljómar kannski sem véfréttarsvar, en ég heid það fjalli um byltinguna i byltingunni. Möttull konúngur er skáldsaga ijóðskáids. Frásagan er viða gædd áleitnum ljóðrænum þokka. Hún er á miklu máli og auðugu og ekki tilgerðarlegu. Það er sem Þorsteinn frá Hamri hafi trausta fótfestu á öllum flötum tungunn- ar, viti jafnan hvað honum best kemur i vef sinn, sem sýnist hvorki nýr né forneskjulegur. Til dæmis um það hve fallegur þessi texti getur verið skal hér tilfærð- ur kafli úr ástarsögu hins skáld- mælta draugs úr Hellismanna- aögu: „Við hverfum úr vondum veisl- um og byrjum að sá ásamt þessari nýju manneskju, hvörfl- um á vit allra veðra hvar sem þau bærast með ilmi sinum, orðum, furöum og striti. Sköpun heimsins fer fram i tveim mann- eskjum; þær sem voru næstum orðnar blind öfl, brim, stormar, byrja að orka á gróðurinn og setj- ast að i gróðrinum og verða blóm og grös, og á endanum fólk, fara að ræðast við og hjálpast að og sýsla hitt og þetta. öll eru þau kynni þó brothætt og stökk, en stundum gædd undarlegri mýkt”. A.B. Falsgreifinn og hinn íslenskidraumur Þráinn Bertelsson: Paradísarviti. Endurminn- ingaþættir, sem sjálfur hefur saman skrifað greifinn Yon d’Islande fæddur Jón Dis- land, Bakka nú Sólbakka i Eyjafjarðasýslu, Islandi. 1. hluti Lúslfer og Ahriman. Ilelgafell. R. 1974. Svo mikið er vist, að lesandi fjórðu skáldsögu Þráins Bertels- sonar þarf ekki aö láta sér leiðast atburðaleysið. Ösjálfrátt vill maöur lýsa sögunni með visunni: Mátti friður fullhugi, flækjast viða á jarðriki.... þótt kvennamál Jóns Dislands greifa séu að visu iðkuö við meiri þægindi en I þeirri visu stendur. Þetta er flakkarasaga islensk, sagan af útsmognum einfeldningi eða hrekklausum skálki sem dettur i hvert ævintýrið af ööru, af prakk- araskap, forvitni, kæruleysi eða þá út úr þeirri neyð, aö glæpa- menn og höfðingjar gera honum tilboö sem hann hefur ekki efni á að neita. Svo aö dæmi séu nefnd i snar- hasti, þá er Jón heilagsanda- braskari I Höfn, falsgreifi I Mar- seille, sendill dularfulls glæpafé- lags á Italiu á mektardögum Mussolinis, milligöngumaður Albaniukonungs og Mafiunnar, lærisveinn Gyðingsins gangandi I Berlin, málvinur Hitlers. Fyrir nú utan ýmislegt kvennafar. Und- ir lokin situr hann uppi meö verndargrip úr grárri forneskju sem „færir eigendum sinum meiri völd en öðrum mönnum eru léð til að koma fram örlögum sin- um—tilills eða góðs”. (bls. 197). Þar lýkur þessu fyrsta bindi sög- unnar, að Jón Disland er kominn i annað sinn til Þýskalands skömmu fyrir strið með verndar- grip þennan meðferðis (sem er spjót það sem lagt var i siðu Krists, þvi i þessari bók er fengist við goðsagnasmið ofan á allt ann- að) — og ætlar þar að stunda njósnir fyrir breta. Frelsi og gistivinir Höfundur hefur bersýnilega mikla ánægju af þvi frelsi sem þetta söguform hefur upp á að bjóða. Þótt hann látist öðru hvoru fá samviskubit yfir þvi „hversu sundurlaus þessi frásögn min er, hversu skrásetningin er handa- hófskennd” á lesandi erfitt með að trúa þvi, að þar sé um sanna iðrun að ræða. Enda gerir það ekki mikið til: höfundur spinnur þráð sinn af þvi fjöri og hug- kvæmni að viö föllumstá það, að I slikri sögu geti allur fjandinn gerst. Það verður þvi lesandan- um alls ekki til trafala þótt inn sé skotið skrýtlum af furöum is- lensks mannlifs, lagfærðum helgisögnum, lifsfilósófiskum at- hugasemdum um eitt og annað i mannlegu æði. 1 æsilegri at- burðarás sögunnar, rösklegum samtölum og hálfkæringsniður- stöðum megum við greina tvo gesti og er oft spaugilegt að sjá hvernig þeim reiðir af. Annars- vegar verður okkur hugsaö til Halldórs Laxness og þá sérstak- lega þátta hans tveggja af Karli Dúnganon — þaö er meira að segja full ástæða til að halda þvi fram, að i Jóni Disland hafi verið sameinaðir i einn mann áhorf- andinn (sögumaður) og sá sem stendur i ævintýrum i þeim þátt- um. Mest áberandi verður þessi fyrirmynd i upphafi ferils Jóns Dislands þegar hann stendur i þvi ásamt færeyskum manni að frelsa heiminn með guðsorða- blaöi og Alheimskassa, og svo i viöureigninni viö Albaniusjóla. Hinn gesturinn er hans herra- dómur reyfarinn, sem kann svo mörg ágæt brögð i þeirri list að láta lesanda sætta sig við það, að tilviljuninni er nauðgað til að koma saman persónum og at- buröum. Sumir atburðir sögunn- ar eru eins og skopfærsla á viður- kenndu atburðamynstri reyfar- ans og virðist þá ekki hvaö slst tekiö mið af dýrlingnum Simon Templar. Vilji menn prófa þessa staöhæfingu má benda á kaflann sem greinir frá viðskiptum Jóns falsgreifa við dularfullan inn- brotsþjóf i Róm. Hver er Jón? Þaö eru atburðirnir sem ráöa rikjum i þessari sögu sem þjáist þá um leið af vissu persónuleysi. Eiginlega er ekki nema ein per- sóna i sögunni meö sérstökum einkennum og eru þau samt ekki alltof skýrt fram dregin. Aðrar persónur eru náskyldar falsgreif- anum i viðbrögðum og talsmáta. Til dæmis er ástkona Jóns, Hel- Þráinn Bertelsson ene, einskonar tilbrigði viö hann sjálfan. Hún er eins og hann öll i þversögnum, hálfkæringi, fyrir- vörum, gagnrýnin á heiminn, en gætir þess vel að láta ekki hanka sig á neinu sem heitiö gæti alvar- leg afstaða til þessa sama heims. Jóns Dlsland er ekki marksæk- inn þýskur skálkur eins og Felix Krull i sögu Tómasar Manns. Miklu fremur er hann partur af hinum islenska draumi um aö maöur leggi undir sig heiminn fyrirhafnarlitið I krafi óræðrar og latrar snilligáfu sem gengið hefur I bandalag við slembi- lukku. Mér finnst t.d. að vernd- argripurinn áhrifamikli, sem Jón fær I hendur undir lok þessa bindis, sé holdtekning hins sibernska smáþjóðar- draums um að hafa fingur á ör- lögum heimsins: ef ég bara gæti.... Og verður gaman að sá til hvers gripur þessi verð- ur notaður I næsta bindi. Tökum eftir þvi að Jón hefur fátt til ævintýra sinna unnið eöa þess trúnaðar sem gyðing- urinn gangandi sýnir honum — hans verðleikar eru þeir einir, að taka öllu eins og það kemur af skepnunni, láta ekkert koma flatt upp á sig, og þessi afstaða virðist Jóni meðfædd, þvi hann breytist ekki i sögunni. Aðan var látið að þvi liggja að sitthvað væri óráðið um lýsingu Jóns Dislands. öðru hvoru freist- ast höfundur til að láta persónu sina velta vöngum yfir ýmsum al- vörumálum og þá getur það vel komið fyrir;, að hinn háðski tónn sögunnar sé rofinn. Hér skulu nefndar til vangaveltur falsgreif- ans um sjónvarp og eymd heims- ins, um það hvernig amriskir koma sér áfram i heiminum, um bölvun rikidæmis og fátæktar. En það er augljóst að persóna og höf- undur vita ekki almennilega hvað á að gera við þessi innskot. Stund- um er þessari heimsádeilu haldiö i vissri fjarlægð með þvi að setja hana fram I goðsöguformi. Til dæmis i messu Gyðingsins gang- andi um Lúsifer.sem hellir oliu á eld einstaklingshyggju og fær menn til að trúa þvl að þeir séu útvaldir til að drottna yfir öðrum, og Ahrfman.sem stefnir að þvi að drekkja mannkyni I fánýtum efn- islegum gæðum. En oftar eru slik tilhlaup til að flytja nakinn boð- skap stöðvuð i miðju kafi, sögu- maður biöst afsökunar „á þessum útúrdúr”, bregður aftur á hálf- kæring, danglar I rassinn á sjálf- um sér til að minna sig á aö hann sé hingað kominn til að skemmta öðrum og segja sögur. Þráinn Bertelss. hefur eins og margir góðir menn komist að þeirri niðurstööu að skáldsögu- höfundar megi ekki vera leiöin- legir, og það er hann heldur ekki. Hann getur blátt áfram verið skratti hnyttinn. En hann kemst vart hjá þvi að marka skemmtun- inni ákveönari braut i næsta bindi sögunnar, það væri ofrausn að láta hana ganga lausa til fram- búðar i jafnrikum mæli og gert er i Lúsifer og Ahriman. A.B.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.