Þjóðviljinn - 08.12.1974, Side 10

Þjóðviljinn - 08.12.1974, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. desember 1974. Fyrir hverja eru I istasöf n ? Listasafn A.S.Í. hefur nýlega flutt niöur um eina hæö i Alþýöu- bankahúsinu og fengið rýmri og bjartari salarkynni. Þar hanga nú uppi verk ýmissa myndlistar- manna, og ber einna mest á Gunnlaugi Scheving. Af verkum annarra mætti nefna mynd Jóns Engilberts af Þórbergi Þóröar- syni, abstraktmynd eftir Sverri Haraldsson frá 1952, æskuverk eftir Kjarval o.fl. Ekki er um samstæöa sýningu að ræöa heldur samtining mynda úr ýmsum átt- um. Af annarri starfsemi safnsins er það helst aö segja að nýlega stóö það fyrir sýningu I Vest- mannaeyjum, ásamt verkalýös- félögunum þar, og var sýningin liður i myndlistarnámskeiöi. Er þetta lofsvert framtak og óskandi aö á þvi verði framhald. Eitt er það við þetta safn sem mér hefur alltaf fundist nokkuð einkennilegt, en það er sýninga- timinn, sem er frá kl. 3—6 siðdeg- is. Nú er stofnunin kennd við al- þýöu, og meiningin hlýtur að vera sú að þarna gefist alþýöu manna tækifæri til að skoða myndlist. En hverjir hafa tima til að fara á myndlistarsýningar milli þrjú og sex? Furðulegt er að forvigis- menn Alþýðusambands Islands geri sér ekki betur grein fyrir vinnutima fólks en þetta. Ekki nægir að benda á, að safnið sé op- ið um helgar til að afsaka svona klaufaskap, nema þvi aðeins aö þarna eigi að vera til sýnis ein- hver sunnudagalist sem ekki sé i neinni snertingu við daglegt lif fólks. Aðskilnaður lifs og listar er ekkert einsdæmi hjá Listasafni Alþýðusambands Islands, þótt þar komi hann nokkuð spánskt fyrir sjónir. Listasöfn eru yfirleitt hátignarleg musteri, þangað sem fólk á að koma snurfusað og i sparifötunum til að virða fyrir sér hinar heilögu kýr listarinnar, en varast að snerta þær. Frá þvi að almenningslista- söfnum var komið á fót hafa þau alltaf átt i erfiðleikum með að ná tilfólksins, enda löngum litið gert til aö ná þvi marki. Þau hafa flest verið ihaldssamar stofnanir sem litið hafa hætt sér út i tilraunir. Þangað er safnað þeim verkum sem þegar hafa hlotið opinbera viðurkenningu og litil hætta er d að geri mönnum hverft við. Lista- menn fóru þvi snemma að koma upp sinum eigin sýningasölum til að koma á framfæri þeim verkum sem enn höföu ekki hlotiö gæða- stimpil safnanna. Til dæmis eiga hinir frægu, frönsku „salons” ætt sina að rekja til þeirra lista- manna Parisar sem ekki voru i náðinni hjá virðulegum söfnum þar iborg. Núna eru mörg þeirra verka sem þar voru upphaflega sýnd orðin stolt einhverra safna, en höfundarnir voru löngu dauöir áður en svo varð. Skiptingin i við- urkennda safnalist, og hina sem enn á eftir að sanna ágæti sitt að dómi stjórnvalda, minnir einna helst á hugmyndafræði miðald- anna sem skipti veröldinni i tvennt, hina heilögu kirkju og vanheilagan, syndum spilltan heiminn utan veggja hennar. Miðaldakirkjan notfærði sér óspartmyndlistarverktil að koma boðskap sinum til skila, þvi þá var ekki að treysta á prentað mál eða þá fjölmiðla sem við höfum nú yfir að ráða. Viðskiptafyrir- tækin sem nú hafa komist I þann valdasess sem kirkjan skipaði áð- ur, hafa ekki erft myndlistar- áhuga hennar (eða listaáhuga yfirleitt). Söfnum hefur veriö lát- ið eftir að sjá að miklu leyti fyrir þessum þörfum fóks. List — þ.e. viðurkennd list — er lokuð inni á söfnum, og fólki er ætlað að koma til hinna reykelsisangandi lista- mustera, stara og fyllast andakt. En safnið hefur ekki hið forna vald kirkjunnar, það getur ekki sett hina listalausu út af sakra- mentinu fyrir lélega safnsókn, og þvi stendur það autt, og hættir að lokum að hafa opið nema um miöjan daginn, þegar allir eru aö vinna. Fyrstu viðbrögðin til að brúa það bil sem orðið var á milli safn- anna annars vegar og listamanna og áhorfenda hins vegar, var að koma á fót sérstökum nútimalist- arsöfnum, en þau féllu fljótlega I sömu gryfjuna og hin eldri. A millistriðsárunúm fara svo ýmis söfn i Evrópu og Bandarikjunum að færa starfsemi sina I nýjan búning með þvi að halda sam- stæðar sýningar I stað þess aö hafa uppi eitthvert ákveðið sund- urlaust úrval af verkum safnsins. Yfirlitssýningum yfir feril ákveð- ins listamanns, stefnu eða timabil var komið upp, fyrirlestrar haldnir. Reynt var að gera söfnin aögengilegri t.d. með breyttum sýningatima, kaffistofum þar sem safngestir gætu hvilt lúin bein, listbókasöfnum; seldar voru eftirprentanir, grafik, póstkort o.fl. A seinni árum hafa söfn einn- ig farið inn á þá braut að flytja listaverk sin út á götur og torg, mitt inn I hringiðu hversdagslifs- ins. Þetta vakti mikla athygli t.d. eins og þegar jafn ráðsett safn og Louvre sýndi dýrmæt verk á brautarpöllum neðanjaröarlest- anna i Paris. Sænska sópransöngkonan MARGARETA JONTH heldur tónleika i Norræna húsinu þriðjudaginn 10. desember n.k. kl. 20:30. Undirleik annast Leif Lyttkens (gitar) og Lennart Valiin (pianó). Efnisskráin nefnist „Gullkorn úr heimi bamsins”. Aðgöngumiðar við innganginn. Allir velkomnir. NORRÆNA HÚSIÐ Einnig hefur verið reynt aö flytja listaverk inn á vinnustaöi til að gera þau virkari I daglegu lifi fólks. 1 þessu sambandi mætti minnast á kinverja sem þetta hafa gert með myndlist eins og aðrar listgreinar, og ef tekið er dæmi aðeins nær okkur, þá er til I Danmörku stofnun sem heitir „List á vinnustað” og er I eigu eöa amk. I nánum tengslum við dönsku verkalýösfélögin og hefur það verkefni eitt að lána myndlist á vinnustaði. Þar er safnhúsið orðiö að raunverulegri geymslu eða birgðastöð til að annast dreif- ingu. Eitt er það vandamál sem hin eiginlegu söfn standa nú frammi fyrir, en það er list sem ekki er hægt að safna og hafa til sýnis til langframa. A seinni árum hefur það farið I vöxt að listamenn blandi saman mörgum listteg- undum, ekki aðeins ýmsum greinum myndlistar heldur einn- ig myndlist, tónlist, kvikmyndun, dansi, leiklist o.fl. Noti sömuleiðis tækni sem ekki þykir viðeigandi I hefðbundinni myndlist s.s. fjar- skipti, verksmiðjuframleidda hluti o.fl. Verk af þessu tagi sprengja utan af sér hið hefð- bundna safn. Virðuleg kyrrð sal- anna breytist i ys og þys, marglit ljós og alls kyns hljóð og óhljóð. Listaverkið hangir ekki lengur stillt og prútt á veggnum, og sum er jafnvel ekki hægt aö kaupa til eignar s.s. hugmyndaverk (concept art) og þau sem byggjast á ákveðnu atferli þátt- takenda, en of langt mál yrði aö fjalla um hér. Ýmis söfn hafa reynt að bregðast við þessum nýj- ungum með þvl aö feta I fótspor listamannanna og gerast raun- verulegir tengiliðir milli þeirra og fólksins. Söfnin eru þá ekki lengur eingöngu geymslur og sýningasalir, heldur starfsvett- vangur og samkomustaöir, ein- hvers konar menningarmiðstöðv- ar fyrir margbreytilega liststarf- semi. Það er út i hött að minnast á Is- lensk listasöfn i sambandi viö svona tilraunir. Þau eru enn á 19. öldinni hvað þessu viðvikur, hvort sem þau heita Listasafn Islands, Listasafn Alþýðusambands ís- lands eða eitthvað annaö. Elisabet Gunnarsdóttir

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.