Þjóðviljinn - 08.12.1974, Page 24

Þjóðviljinn - 08.12.1974, Page 24
af erlendum vettvangí Kreppudraugur ríöur húsum < Undanfarna mánuði hafa umræður um vandamál rikja Vestur-Evrópu fyrst og fremst fjallað um hraða verðbólgu. Hver stjórnin af annarri hefur gripið til sparnaðar og niðurskurðarráðstafana i mismunandi rikum mæli i ekki sérlega árangurs- rikri viðleitni til að hefta þessa verðbólguþróun. Og þessar ráðstafanir verða til þess að magna upp annan draug: atvinnuleysið, sem nú er viðast hvar meira i þessum löndum en verið hefur i minni okkar kynslóðar. Þvi er spáð, að i april næsta voru kunni atvinnuleysi að ná til um 4,1 miljónar manna i lönd- um Efnahagsbandalagsins. Það er um 4% af vinn- andi fólki. Nú ganga þegar um þrjár miljónir at- vinnulausar i þessum löndum. Tveir illir gestir Evrópumenn þekkja allvel á veröbólgu, kunna á hana ef svo mætti segja, enda þótt það sé mjög misjafnt eftir löndum hve mikla verðbólgu menn geta sætt sig við. Islendingar eru manna frjálslyndastir i þessum efnum eins og menn vita, en þjóðverjar gerast hinsvegar mjög ókyrrir ef að verðbólgan fer upp fyrir 2,5% á ári hjá þeim. Allavega finnst mönnum atvinnuleysi margfalt verri hrollvekja en verðbólga. Það leiðir hugann að löngum bið- röðum fyrir framan opinberar súpustassjónir kreppuáranna. Og stjórnmálaforingjar vita, að at- vinnuleysi er áhrifamesta kennslubók I ávirðingum kapital- ismans sem til er: það getur svo farið aö menn hætti að biða eftir súpu og taki upp götusteina i stað- inn og geri úr þeim vigi. Atvinnuleysið er mjög misjafn- lega mikið eftir löndum og héruð- um og svo iðngreinum. Mestur hefur samdrátturinn'orðið i bila- iðnaði, byggingariðnaði og vefn- aði. Hver stjórnin af annarri próf- ar ráð sem gætu hresst að nokkru upp á greinar sem þessar — án þess að þau ýttu að ööru leyti undir verðbólgu. Auk þess hefur þaö viðast hvar þótt þjóðráð aö takmarka ráðningar farand- verkafólks, sem á undanförnum árum hefur tekið að sér mikið af erfiðustu og verst launuðu störf- unum I velferðarrikjunum — en sú stefna kemur reyndar sérstak- lega illa niður á vandræðabarni Efnahagsbandalagsins, ítaliu. Atvinnuleysið Atvinnuleysingjar á ítaliu eru nú þegar um 800 þúsund (tölur úr bandarlska vikuritinu Time) og er það um 5% vinnandi manna. Stjórnvöld telja verulega pólitiska hættu á ferðum ef tala atvinnuleysingja fer yfir miljón og hefur hingað til verið reynt að fresta þeirri stöðu með þvi að stytta vinnuvikuna að mun (eink- um i bilaiönaðinum), en gripa ekki til beinna uppsagna. I Frakklandi er atvinnuleysið meira en verið hefur i þrjá ára- tugi — það nær til 750 þúsund manna, eða um 4% af starfandi fólki. Stjórnin hefur reynt að deyfa afleiðingar þess ástands með hækkuðum atvinnuleysisbót- um. En þaö getur reynst skamm- góður vermir: þvi er haldiö fram, aö hagvöxtur I Frakklandi verði að nema 6% á ári ef koma eigi i veg fyrir aukið atvinnuleysi. I Bretlandi hefur aðeins dregið úr atvinnuleysi upp á siðkastið — þaö nær nú til 607 þús. manns (2,7%). En Time, sem áðan var vitnað til, segir að ekki sé ástæða til að hrósa breskum iðnaði fyrir þetta, heldur sé hér um að ræða afleiöingu af þvl hve iila virkur hann sé — nú séu bresk fyrirtæki að reyna að afgreiða pantanir sem þau áttu að standa skil á fyrir löngu. Hér er um bráða- birgðaástand að ræða, og vofa yfir uppsagnir sem fjölga mundu atvinnuleysingjum I miljón. Atvinnuleysingjar I Danmörku eru nú um hundrað húsund eða 8,3% af vinnandi fólki og hefur viðlika ástand ekki þekkst þar siðan skömmu eftir 1950. Sumir danir hópast til Sviþjóðar i at- vinnuleit, en aðrir halda á götur út til fjöldafunda og mótmælaað- gerða og þar með pólitlskrar skólunar. Þegar þetta er skrifað lafir lif minnihlutastjórnar Hart- lings á bláþræði og eins liklegt að hann láti efna til kosninga. Verklýðsforingjar Annars verður að játa, að til þessa hefur verklýðshreyfing flestra Vestur-Evrópulanda farið sér hægt I viðbrögðum við at- vinnuleysi þar sem menn vilja biða átekta. Til dæmis var þátt- taka I allsherjarverkfalli I sólar- hring sem þrjú frönsk verklýðs- samtök efndu til ekki alls fyrir Tveir „feöur Evrópu” sitja á gullnum skýjum —Adenauer spyr deGaulle: Var þaö ekki á þessum sama staö aö viö stigum úr? löngu, minni en gert hafði veriö ráð fyrir. Allavega er ljóst, að enda þótt nú sé til evrópskt verk- lýðssamband (ETUC) sem hefur 36 miljónir manna innan sinna vébanda, þá hefur afli þess ekki verið beitt, stefna hinna einstöku landssambanda ekki verið sam- ræmd i þvl skyni ,,að koma i veg fyrir að verkamenn verði látnir bera byrðarnar einir” eins og Piero Boni, aðalritari italska verklýðssambandsins segir. 1 flokki stuttra viðtala við verk- lýðsforingja frá nokkrum Evrópulöndum (Timé) kemur það fram, hvernig mismunandi pólitisk staða og hefðir I verklýðs- samtökum vinna gegn slikri sam- ræming. Formenn verkamanna- sambanda i Vestur-Þýskalandi og Bretlandi, Heinz Vetter og Jack Jones,boða fyrst og fremst sam- vinnu við sinar sóslaldemókrat- isku rikisstjórnir. Sá þýski segir að opinberu fé verði að veita til opinberrar fjárfestingar til að skapa atvinnu og að rikisbankinn eigi að lækka vexti til að stuðla að aukinni fjárfestingu. Sá breski vill aö fé það, sem rennur tíl at- vinnuleysistryggingar fari til aö halda gangandi fyrirtækjum sem ramba á barmi gjaldþrots. Hann vill einnig afnema eftirvinnu til aö fleiri fái einhverja vinnu. Eins og 1930? Bæöi Otto Kersten frá Alþjóða- sambandi frjálslyndra verklýðs- félaga og Piero Boni frá hinu rót- tæka ítalska sambandi kvarta mikið yfir þvi að verklýðssam- tökin hafi ekki mótað sér sam- eiginlega stefnu sem gæti hamlað gegn fjármálabrellum alþjóðlegu auðhringanna, sem hafa jafnan lag á að hafa sinn gróða á hreinu, hvernig sem allt veltist. Þeir leggja áherslu á það, að þjóðrlkin og þá einstök verklýðssambönd, megi sin litils gegn afli auðhring- anna, en eins og menn vita eru þeir löngu vaxnir meðalstórum þjóðrlkjum yfir höfuð og geta fal- ið fyrir skattheimtumönnum þeirra ágóða sinn og þarmeð svipt þjóðrikið möguleikum á að takast á við ýmislegan félagsleg- an og efnahagslegan vanda. Ker- sten er einn þeirra sem spáir þvi, aö I vændum sé kreppa sem verði ekki siður alvarleg en sú sem skall yfir árið 1930. Harðorðastur er Croése frá franska sambandinu CGT, sem kommúnistar stjórna. Hann vlsar á bug þeirri viðleitni að kenna oliurikjunum um verðbólguna og þar með atvinnuleysiö, sem hann telur að ná muni til fimm miljóna manna I EBE-löndum næsta vor, en ekki rúmlega fjörugga miljóna. Croése segir, að verð- hækkunin á oliu valdi aðeins 1-2% hækkun á tilbúnum iðnaðarvör- um og sé það næsta litið miðað við 18% verðbólgu i Frakklandi og 25% á Italiu. Hann er fulltrúi þess hluta verklýðshreyfingarinnar sem rekur ástandið til vaxandi kreppu hins kapitaliska þjóðfé- lags og telur, að ekki verði annað svar fundið við atvinnuleysi en róttækar pólitiskar breytingar. Ringulreið Efnahagskreppan hefur gert sitt til að auka á ringulreið i höfuöstöðvum Efnahagsbanda- lagsins þar sem allar tilraunir til samræmdrar stefnu i gjaldeyris- málum, i landbúnaðarpólitik og byggðastefnu (hvenær og hvernig skuli hressa upp á afskipt héruð) hafa verið mjög i skötuliki. Nú siðast hefur Willy Brandt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands,borið fram hugmynd sem hann telur endurspegla staðreyndir: að vestur-evrópsku samstarfi verði skipt I tvennt —■ á hinu efra plani standi fjáðari riki með Vestur- Þýskaland og Frakkland að kjarna og iðki „raunverulega” samstarfspólitik. En á neðra lofti séu hin efnahagslegu vandræða- börn ítalia og Bretland (með Ir- landi), sem séu með nokkrum hætti stikkfri undan ýmsum ákvæðum Rómarsamkomulags- ins um EBE. En hinir betur stæðu eiga með ýmsum ráðum að hjálpa vandræðabörnunum til þeirrar virðingar sem góð gjald- eyrisstaða veitir. Parkinson enn Hinn þekkti breski höfundur og sagnfræðingur, Parkinson, sem fann upp það skriffinnskulögmál sem við hann er kennt, skemmtir sér hinsvegar við að búa til önnur svör við vandræðum Vestur- Evrópu, og leitar þeirra i léns- skipulagi miðalda. Parkinson tel- ur að samstarf Evrópurikja verði best treyst með þvi að hólfa hin stóru þjóðriki niður I smærri ein- ingar, sem verði hver um sig miklu viðráðanlegri einingar i stjórnsýslu en t.d. Frakkland og Italia nú. Milli þessara eininea verði siðan miklu auðveldara að koma á virku bandalagi á jafn- réttisgrundvelli en milli hinna missterku þjóðrikja samtimans. Og muni i kjölfar þess fara ný gullöld i Evrópu . . . En á meðan Parkinson lætur sig dreyma snúast hjól hins evrópska efnahagslífs hægar og hægar . . . A.B. tók saman.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.