Þjóðviljinn - 22.12.1974, Blaðsíða 3
Sunnudagur 22. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Af hörmungunum í Norðfirði kl. 9 á laugardagsmorgun
Rétt fyrir hádegi á iaugardag barst sú frétt að einn
þeirra f jögurra sem saknað var haf i fundist á lífi í rúst-
um frystihússins. Var hann fluttur i sjúkrahúsið á Nes-
kaupstað.
Yfirlitsmynd yfír Neskaupstaö. I' jallift er 640 ti) 800 metrar á hcð.
Myndina tók Hjörleifur Guttormsson.
Níu hafa fundist látnir
— fjögurra enn leitað
Sleitulaust unnið að björgunarstörfum alla nóttina
Fréttamenn Þjóðviljans, Gunn-
ar Steinn Pálsson og Olfar Þor-
móðsson fóru áleiðis til Norð-
fjarðar kl. 2 i fyrrinótt með flug-
vél frá Flugstöðinni hf. Fóru þeir
til Egilsstaða, þaðan til Reyðar-
fjarðar og þaðan með togaranum
Barða. Þeir komu til Norðfjarðar
um niuleytið I gærmorgun. Eftir-
farandi upplýsingar eru byggðar
á viðtali við þá kl. 10 á laugar-
dagsmorgun:
Um eittleytiö i nótt höfðu niu
menn fundist látnir i snjóflóðun-
um i Neskaupstað. Fjögurra
manna er enn saknað. Þeir látnu
eru 5 karlar, 2 konur og 2 börn
annarrar konunnar. Fjöldi fólks
hefur séð á bak nánustu vanda-
mönnum sinum og sumir þeirra
manna sem fórust áttu mörg
Þjóðviljinn ræddi við Lúðvik
Jósepsson, alþingismann, um tiu-
leytið i gærmorgun. Hann var þá
nýkominn af fundi með rikis-
stjórninni, sem hann sótti ásamt
öðrum þingmönnum Austfjarða.
Hann sagði að ákveöiö yröi að
fara i uppbyggingarstarf i Nes-
kaupstaö þegar i stað og af mikl-
um krafti. Það sem einkum hefur
skemmst þarna og þarf að endur-
byggja er þetta:
börn. 2 hinna látnu fundust i
frystihósinu, 3 fundust i sildar-
bræðslunni. Bilstjóri lenti út i sjó
með bil sinum og lést. Þá lést
kona ásamt tveimur börnum sin-
um, en þau voru i Mánahúsinu.
Nú er leitað á alveg ákveðnum
stöðum að þeim fjórum, sem ó-
fundnir eru.
5 menn eru nú á sjúkrahúsinu.
Er liðan þeirra eftir atvikum.
Það var ki. 9 i morgun að al-
mannavarnarnefnd Neskaup-
staðar hélt fund. Hana skipa þrir
embættismenn, bæjarfógetinn,
bæjarstjórinn og sjúkrahúslækn-
irinn auk nokkurra aðila, sem
bæjarstjóri, Logi Kristjánsson
kvaddi til i nótt. Þá hefur bæjar-
stjórnin boöað til fundar kl. 1 til
þess að fjalla um ástandið.
Frystihúsið er mikiö skemmt.
Eru taldar vonir til þess að það
komist i gang innan mánaðar
verði settur fyllsti kraftur á að
koma þvi i lag. Til þess þarf mik-
inn mannafla, þar á meðal menn
til þess að gera við vélar hússins.
Skemmdir eru miklu meiri i
sildar- og fiskimjölsverksmiðj-
unni. Verksmiöjuhúsið má heita
ónýtt og vélar eru vafalitiö mjög
Segja má að öll helstu atvinnu-
fyrirtæki staðarins hafi skemmst
meira og minna i snjóðflóðunum
önnur en dráttarbrautin, sem er
miklu utar i bænum, og saltfisk-
verkunin i Reyðubjörgum, sem
eru fyrir innan Bjarg, en við ytri
brún þess húss rann innri tunga
snjóskriðunnar I sjó fram.
Fólk hefur verið flutt úr innstu
og efstu húsum bæjarins. Býr
fólkið nú ýmist i heimahúsum eða
i stofnunum bæjarins, skólunum.
Þá hefur verið komið fyrir mötu-
neytisaðstöðu i félagsheimilinu.
t alla nótt hefur veriö unnið
sleitulaust að björgunarstörfum.
Veðrið hefur verið gott i nótt. en
veðurspáin er ekki hagstæð. Það
sem farið hefur hér af mannvirkj-
um eða skemmst verulega er:
mikið skemmdar. Er talið hæpið
að takist að koma verksmiðjunni i
lag fyrir byrjun loðnuvertiöar, en
verksmiðjan i Neskaupstað hefur
verið ein sú öflugasta á landinu og
sérstaklega hefur reynt á hana
við upphaf loðnuveiðanna.
Næstum öll önnur atvinnutæki
eru tengd á beinan eða óbeinan
hátt við þessi fyrirtæki.
Þá hafa tveir aðrir aðilar en
Sildarvinnslan —sem á frystihús-
Sildarbræðslan er mjög illa
leikin og hefur nær eyðilagst.
Svartoliugeymir hefur eyði-
lagst og runnið hafa úr honum
ýmist i sjó eða á land um 900 tonn
af oliu. 3 lýsisgeymar eru ónýtir.
Skemmdir eru mjög miklar á
frystihúsinu, þvi eina á staðnum.
Utbyggingar þess létu einkum
undan og snjóskriðan fór i gegn-
um kaffistofu starfsfólksins.
Starfsmannahús i byggingu rétt
utan og ofan við frystihúsið fór i
snjóskriðunni, kubbaðist i sundur
eins og eldspýtustokkur.
1 ytri skriðutungunni fór Mána-
bragginn en þar voru tvær fjöl-
skyldur.
Steypustöð Gylfa Gunnarsson-
ar eyðilagðist.
ið og verksmiðjuna — orðiö fyrir
miklu tjóni. Þar er um að ræða
Gylfa Gunnarsson sem hefur rek-
ið vélaþjónustu og steypusölu.
Hann átti húsið, sem kennt hefur
veriö við söluturnastöðina Mána
og miklar aðrar eignir sem eyði-
lögðust.
Þá varð Eirikur Asmundsson
sem átti bifreiðaþjónustufyrir-
tæki fyrir miklu tjóni.
Bifreiðaverkstæði Eiriks As-
mundssonar eyðilagðist.
Þessi upptalning gefur nokkra
hugmynd um eyðilegginguna sem
áreiðanlega nemur hundruðum
miljóna króna, — en enginn hefur
enn gefið sér tima til þess að
kanna þessa hlið málsins af skilj-
anlegum ástæðum þar sem öll
áhersla hefur veriö lögð á vinnu
við að bjarga mannslifunum.
1 gær og fram eftir nóttu reyndi
mest á heimamenn við björg-
unarstörfin. Unnu menn hratt og
sleitulaust og eru margir úrvinda
af þreytu. Þó munu fáir Norðfirð-
ingar hafa fest blund þessa nótt.
Um 60 manna flokkur kom frá
Eskifirði um 2 leytiö i nótt með
Sæbjörgu. 1 þeim hópi var læknir
sem kom til aðstoðar þeim Daniel
Danielssyni og Kristinu Gutt-
ormsdóttur læknum við sjúkra-
húsið. Um sjöleytiö i morgun kom
Irafoss með um 40 manna sveit'
frá Reyðarfirði en með skipinu
komu einnig fleiri moksturstæki.
Það eru um 40 manns sem komast
að björgunarstörfunum eins og
þau eru skipulögð nú. Um kl. 9
komu menn frá Fáskrúðsfirði
með Barðanum.
Minnst á
alþingi
Hörmunganna á Neskaup-
stað var minnst i upphafi
fundar i Sameinuðu alþingi i
gær. Flutti Geir Hallgrimsson
forsætisráöherra yfirlýsingu
frá rikisstjórninni um undir-
búning þeirra ráðstafana sem
gripa ber til vegna náttúru-
hamfaranna eystra.
FRYSTIHÚSIÐ í GANG
EFTIR MÁNUÐ EÐA SVO
— verði farið af stað af krafti strax. Vafi hvort verksmiðjan
kemst í notkun fyrir byrjun loðnuveiðanna