Þjóðviljinn - 22.12.1974, Blaðsíða 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. desember 1974.
Ræöu-
skörungur
Aö þessu sinni höf-
um viö tint til úr Dagsbrúnar-
safninu myndir, sem þar eru til
af ræöumönnum frá ýmsum
timum og við ýmis tækifæri.
Sem sjá má var notast við sitt-
hvað annað en ræðupúlt, —
vörubilspallar þóttu t.d. ágætir
til þessa brúks, ekki sist i verk-
föllum og öðrum útifundum sem
efnt var til án langs undirbún-
ings.
A mynd nr. 23 má sjá Einar
Olgeirsson tala á útifundi i
Lækjargötu. Þetta var mót-
Halldór (þá Kiljan) Laxness
talaði 1. mai, greinilega i Lækj-
argötu fyrir neðan Bernhöfts-
torfuna? A borðanum að baki
honum stendur: Samfylkingin
lyftir grettistökum. — Mynd nr.
30.
Að lokum, nr. 31, mynd af Jóni
Rafnssyni, þar sem hann talar
af vörubilspalli á Torfunefs-
bryggju á Akureyri i Nóvudeil-
unni 1933 (Meira um það siðar).
Myndin er mikið stækkuð og þvi
kannski nokkuð óskýr i prentun-
inni.
cTVIyndir
úr sögu verkalýöshreyfingar
og sósíalískra samtaka
mælaíundurgegn striði, haldinn
1. ágúst 1934.
Þá er það Brynjólfur Bjarna-
son (mynd nr. 24), lika á úti-
fundi i Lækjargötu. Fleiri upp-
lýsingar um jíann fund hafa ekki
verið skráðar með myndinni, en
kannski ef þarna um sama fund
að ræða. • ■ ^
Myndinfræga( 25) af Gunnari
Benediktssyni að halda ræðu af
vörubilspalli á Selfossi, undir
blaktandi fána hamars og sigð-
ar mun ver-a úr sömu ferð og
myndin af Karlakór verka-
manna að syngja á Stokkseyri
sem birtist i þessum þætti 3.
nóvember og talin var vera frá
árinu 1932. Guðjón Benedikts-
son, bróðir Gunnars, talar á
sama stað á mynd nr. 26, —
ölfusárbrú i baksýn.
Innimyndirnar tvær vitum við
ekki hvar eru teknar né hvenær.
A mynd nr. 27 stendur Eðvarð
Sigurðsson i ræðustólnum og
maðurinn, sem situr næst hon-
um er greinilega Sigurður
Guðnason, en hver er hinn?
Sennilega Dagsbrúnarfundur,
en hvar og hvenær?
Eitthvað könnumst viö vio
veggskreytingu hússins þar
sem Jóhannes úr Kötl-
um er að flytja sina ræðu —
samt munum við ekki
hvar svona var málað. (Mynd
nr. 28) Mennirnir til hlið-
ar eru frá vinstri: Einar ög-
mundsson, Hannes M. Stephen-
sen og Eggert Þorbjarnarson.
Héðinn Valdimarsson talaði á
Austurvelli 1. mai 1936 (Mynd
nr. 29), en hvaða ár var það sem
að, sagði Helga, og bætt við
sviði og tveim herbergjum, og
hvarf þá veggurinn með mál-
verkinu.
Mikil þökk væri okkur á ef
fleiri lesendur vildu lána
myndir úr sögu verkalýðsbarátt-
unnar til eftirtöku og birtingar.
Talið þá við Eyjólf Arnason
bókavörð Dagsbrúnarsafnsins
eða Vilborgu Harðardóttur
blaðamann, simi 17500 — vh
Sigurvegarar
1 þættinum 27. október (mynd
nr. 5) var smávegis sagt frá
Kveldúlfsverkfallinu i Vest-
mannaeyjum 1932, sem lauk
með miklum sigri verklýðssam-
takanna. Þeir Sigurður Gutt-
ormsson og Asi i Bæ komu siðar
og gáfu upplýsingar um fólk á
myndinni úr þessu verkfalli og á
mynd nr. 17 (24. nóv.) frá Eld-
borgardeiiunni, en bæði þekktu
þeir ekki alla og sumt voru
ágiskanir, svo Helga Rafnsdótt-
ir (systir Jóns Rafnssonar) kom
og bætti um betur og gaf i sam-
vinnu við fleiri konur úr Eyjum
nánari upplýsingar og leiðrétti
sumt.
Jafnframt kom Helga með til
eftirtöku handa Dagsbrúnar-
safninu mynd frá lokum Kveld-
úifsverkfallsins — eftir sigur-
inn. Myndin er tekin af verk-
fallsfólkinu i Alþýðuhúsinu i
Vestmannaeyjum. Fólk er
greinilega sigurglatt og hefur
raðað sér þarna upp til mynda-
töku. Takið eftir veggmálverk-
inu af skútu með þanin segl,
sem nú er að eilifu glatað.
Myndina málaði Baldvin
Björnsson gullsmiður, faðir
Björns Th. Björnssonar list-
fræðings. Siðar var húsið stækk-