Þjóðviljinn - 22.12.1974, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 22.12.1974, Blaðsíða 7
Sunnudagur 22. desember 19/4. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Þóroddur Guömundsson: Hin bjarta sveit í fiskiðjuveri Hafnarfjarðar Við fornan jöfur er kennd sú kvörnin, er kornið malaði flestum betur. Þess nutu aldnir sem blessuð börnin i brauðsins forða jafnt haust og vetur. Sjá, timinn stefnir að nægð gegn nauðum með nýjar kvarnir og iðjuver, lik óargadýrum ekki trauðum. Og eitt af þvi starfar i bænum hér. Af dáð og snilli er ákaft unnið með ótal hjólum og færiböndum að mölun korns þess, er Grænlandsgrunnið oss gaf og miðin hjá fósturströndum. Æ heyrist glymja við hjól og stengur, sem hrynji skriður um kletta rið. Likt bröndum þjóta fram rár og rengur i róstu harðri með sverða klið. Og skrimslið hótar að hinsta nóni með hrammi þungum, sem ægir mönnum. En sveitin verst þvi sem lambið ljóni, er læsir klónum og nistir tönnum. Hún temur orku þess öllum stundum til auðnugengis, að bæta hag. Af hugkvæmd beitir hún högum mundum, sem húmi nætur fá breytt i dag. Vor bjarta sveit er hér búin stendur frá brumi morguns að næturhúmi, er vandað starfslið með vaskar hendur og vilja stæltan, i hverju rúmi. Hún er sá mergur, er miklu varðar i mannlifstrénu, þess djúpa rót, jafnt sólskin heimsins og saltið jarðar, á sandsins auðnum hið milda fljót. Hún þrýstir blóði um þjóðlifs æðar, oss þyrstum svalar af heilsulindum. Þeim veitir hún flug til himinhæðar, sem hrekjast annars á leið með vindum, fær nöktum klæði og svöngum saðning, þá særðu læknar af kvöl og neyð, er hryggum og vegarvilltum glaðning og visar öllum á rétta leið. Hin bjarta sveit er þar unir inni við öndvegisstarf á hendur falið, býr gjöful að yl með sól i sinni, en sist af öllu er hjartað kalið. Frá henni komið er brauð á borðin. Hún blessar oss von og fyrirheit. Af hennar völdum er himnesk storðin. Þvi hylli ég vora björtu sveit. EINANGRUN Frysti- og kæliklefar Tökum aö okkur aö einangra frysti- og kæliklefa, skiptum um einangrun i gömlum klefum. Notum eingöngu sprautaða polyurethane einangrun. Tökum að okkur að cinangra hverskonar húsnæði. EINANGRUNARTÆKNI H/F P. Box 9154, Reykjavík Slmi 72163 á kvöldin SAMTAKA NÚ! Gerum öll skil í happdrætti Þjóöviljans semallra fyrst ÞORGEIR ÞORGEIRSSON SKRIFAR UM BÆKUR OG FLEIRA Dapurlegt er það fyrir þessa svokölluðu bókmenntaþjóð að eiga nú ekki nokkurn ein- asta læsan gagnrýnanda. Þetta var kunningi minn einn að segja um daginn i tilefni af dómum um bók sem honum þótti eitthvað til um. Það eru svo margar leiðir til að verða ólæs. Einu sinni barði Steinn Steinarr Jóhannes úr Kötlum með spýtu fyrir að hafa kennt sér að lesa. Þetta er eitt af þvl sem hafa má til marks um ráöleysi skáldanna. Steini hefur ekki verið ljóst hversu auðvelt er að verða ó- læs. Eða hann hefur bara ekki nennt því. Og þvi fór sem fór. En það var ólæsi ritdómaranna sem ég ætl- aði að ræða eöa þó öllu fremur dálitið sem ég var að hugsa I framhaldi af þvl sem ég hler- aði um þau mál. Þaö er afskaplega auðvelt að segja setn- ingar eins og þá sem vitnað er til i upphafi þessa skrifs. Og ekki bara það. Sniðugt og vinsælt lika . Enda kemur svona tal ekki nálægt kjarna málsins. lEkki fremur en það sem fylgdi. Mennirnir voru semsé afskaplega skemmtilegir — eða var ég búinn að segja að þeir voru tveir sem töluðu um þetta vanda- mál sitt. Samtalið hélt áfram og afsakaði lika rit- dómarana I nokkuð svo háðslegum tón. Út- skýrði ólæsið. — Það koma út tiu bækur á dag fyrir jólin og menn eru að dæma þær i hjáverkum sin- um. Jólapósturinn og afgreiðsla hans ættu að vera ærið verkefni þó maður sé ekki lika að skrifa ritdóma, sögðu þeir. Eða undirbúning- ur jóladagskrárinnar i útvarpinu. Ætli hún sé ekki ærið verkefni? Eða jólaprófin og tilheyr- andi leiðréttingar. Eða fyrirlestrar i háskól- anum. En með þessum störfum öllum hafa menn þá hjástund að dæma bækur. — Skyldi kýnferðislifið ekki verða útundan hjá þessum mönnum, segir einhver og vill vera skemmtilegur. —-Eitthvað hlýtur aö verða útundan, segir hinn. Allrahelst þó höfundarnir sem dæmdir eru. Og vissulega er það satt. Og það má tala lengi um þessar forsendur fyrir ólæsi ritdómaranna. Það má tala um þær þungu búsifjar höfundarins sem árum saman er búinn að hugleiða efni sitt og sitja svo máske hálft ár eða meira við skriftir, njörfandi saman bókina sina. Og svo kemur ritdómari og segir almenningi að þetta sé bara tilfallandi samtiningur, áhugaverð stil- æfing eða annað millibilsástand. Hann hefur ekki haft tima til að athuga þetta betur. Meg- ininntak bókarinnar hefur farið framhjá hon- um vegna þess að hann er orðinn ólæs af timaskorti. Svona hluti er hægastur vandinn að segja. Maður er bæði skemmtilegur, beiskur, sann- gjarn og hittinn. En samt er aðalspurningin eftir. Hvernig stendur á þvi að það þarf tima til að dæma baekur? Ég meina þegar einstakl- ingur sest niður og dæmir bækur. Þvi til þess þarf tima. Annars væri þetta greindarfólk varla orðið ólæst af einberum timaskorti. x X x Sjálfur á ég mér uppáhaldsbækur sem ég hef gaman af að ræða viö aðra. Og svo hef ég lika skrifað bækur. Um hvorutveggja er fólk stundum aö ræða við mig. Ég þekki þá dap- urlegu reynslu sem verður þegar fæðingar- hálfviti eöa ólæs maður fer að bulla um þessa hluti. Og ég hef lesið ummæli ritdómara um þessi verk. Það getur verið dapurlegt. Allt að þvi fullkomin afsökun fyrir sjálfsmorði. En svo hittir maður allt i einu einhvern sem hefur lesið þessa bók og ræðir um hana af viti. Sá hefur skoðað viðfangsefnið frá mörgum hliðum og velt þvi fyrir sér undir ó- likustu sjónarhornum, fordómalaust eða fyrirtektarlitið. Og tal hans opnar manni nýja sýn, sýnir manni óvænt og fyrirvara- laust að þetta er nú ekki svona einfalt allt saman. Eða þaö sem maður hélt vera full- komið og klárað berast allt i einu að ófull- komleika og vöntun. Og hvaða fólk er það nú helst sem kemur manni svona á óvart? Það eru ekki bókmenntagagnrýnendur. Það eru ekki háskólakennarar. Það eru sjómenn. Fyrsthéltég að þetta væru sjómenn upp og ofan og hugsaði I fullkomlega rómantisku æöi og vana. Vitaskuld, saltur sjórinn skolar af þessum mönnum alla fordild. En svo sá ég að þessi hugsun var ekki nothæf einu sinni I þriðja flokks skáldsögu. Og ég fór lika að skilja að það voru einkum tvenns konar sjómenn sem lásu bækur svona vandlega. Það voru farmenn og togarasjómenn. Hvernig gat staðið á þvi að einmitt far- menn og togarasjómenn voru læsari en ann- að fólk? Þetta var spurning sem snerti við kjarna málsins. Vitaskuld vinna þessir menn á vöktum. Og svo eiga þeir fri tvisvar sinnum sex tima á sólarhring. Þeir eru innilokaðir eða eigum við að segja útilokaðir frá ýmsu og hafa næði sem kallað er. Um borð eru bókakassar. Þetta var nokkur skýring en ekki nóg. Ég fór að spyrja mig áfram um þetta og komst að þvi að yfirleitt er það einn bóka- ormur um borð i hverju skipi sem sér um að panta I bókakassann. Hann nauðaþekkir á- höfnina og veit hvaö hver meðlimur hennar vill lesa og vel gat það verið að einmitt þessi maður æli upp smekkinn I félögum sinum, segði viö sjálfan sig: Nú þessi les þetta i dag. Nú læt ég hann hafa ofurlitið betri bók, og svo enn betri þangað til hann er farinn að lesa eins og manni sæmir. Og ég hef hitt bókakassastjóra á skipum sem hafa játað fyrir mér hlutdeild i svona starfsemi. En samt var þetta ekki skýring sem nægði. Eitthvað vantar enn. Og ég hef haldið áfram að ræða þessa hluti við alla þá togarasjómenn og farmenn sem ég hef náð i. Loksins um daginn var það mágur minn, Páll, sem kvað uppúr með skýringuna á þessu. Hann er skipstjóri og þekkir þetta, raunsýnn maður. Og málið er undarlega einfalt. Um borð i togurum og farskipum hafa menn náttúrlega tima og næði til að lesa, það er forsendan, en hitt sem mestu máli skiptir er það að menn eru þar líka stöðugt að drekka saman kaffi, borða saman mat. Og þeir sem drekka saman kaffið og borða sam- an matinn lesa lika sömu bækurnar og meðan þeir eru að sötra kaffið og slafra I sig matinn ræða þeir bækurnar sem þeir hafa verið að lesa. Þetta er afar mikilvægt. Þessir menn þurfa engan extratima til að skilja bækur þvi þeir hjálpast að við að skilja þær. Umhverfi þeirra er, ef svo má segja, náttúrlegur bókaklúbbur. Þeir samsvara tilganginum með þvi að semja bækur. Bók er samin handa mörgu fólki, bók er handa fólki saman en ekki einstaklingum, hvort sem þeir eru bókmenntafræöingar eða annars konar misheppnun. Þetta er ástæðan fyrir þvi að þeir sem ætla sér að vera einir með bókum veröa ólæsir smám saman eða skyndilega. Einfalt mál. Þorgeir Þorgeirsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.