Þjóðviljinn - 24.12.1974, Page 27

Þjóðviljinn - 24.12.1974, Page 27
Jólablab 1974 — ÞJÖÐVILJINN SIÐA 27 um fram yfir timann. Hann hætti aö kústa. Slæmt að Marinó skyldi fá tækifæri til að áminna hann. Mágur hans stóð og var að leysa af sér svuntuna, fuglsbringan gekk upp og niður. Það hvein i honum. Liklega tæki hann nú upp einn af lyktvondu vindlingunum, sem hann kveikti i, þegar and- þrengslin leituðu á hann. Hö, hö. Alltaf var hann hóstandi. Það var misráðið að hann skyldi láta undan Steinunni og hætta i tollinum, til að fara i hreingerningarnar. Ekki sist vegna þess að hann hafði Marinó grunaðan um að hafa lagt á flest ráðin. Það var ekki bláónýtt fyrir mann, sem enginn vildi hafa i vinnu að geta ráfað sisona I kring um hann til einskis gagns og hirt ágætt kaup fyrir. Mennirnir settust á bekk á ganginum og byrjuðu að huga að nestinu sinu, — allir nema hann. Hann gat ekki hugsað sér að sitja með þeim og úða i sig mat, þess- um kauðum, með pappirspoka eða bréfbát á höfðinu. Þarna sátu þeir hver við annars hlið, sveittir og óhreinir, meðan prúðbúið fólk gekk framhjá og gaut til þeirra augunum, eins og þeir væru ein- hverjir villimenn. — Ætli ég fái mér bara ekki hreint loft, sagði hann og sneri i þá baki, um leið og hann gekk til dyranna. Hann heyrði Marinó segja eitthvað og hinir hlógu. Marinó var eitraður, — eins og systir hans. Þótt hann væri verk- lltill, tókst honum samt alltaf að fá hina á sitt band. Þeir stóðu allt- af með Marinó, jafnt þótt þeir töpuðu á aðhafa hann i flokknum. Það var mælskan, — helvitis mælskan! Af hverju bauð hún einmitt hon- um inn? Ef til vill fengist ein- hverntima úr þvi skorið. Hann hafði ætlað niður i kjallarann, til að óska húsverðinum gleðilegs árs, þegar hún kallaði til hans og spurði hvort hann vildi ekki lita inn fyrir. Óneitanlega kostuleg framkoma, — ha,ha! Og á endan- um fór hann aldrei til húsvarðar- ins. Hún hafði fylgt honum til dyra, þegar hann fór. — Þú hefðir aldrei átt að hætta i tollinum, haföi hún sagt og hvilfkur gáski var ekki i röddinni! — Ég er viss um að búningurinn hefur farið þér vel. (Gat kona sagt á finlegri hátt við karlmann, að henni litist á hann?) Siðan höfðu þau heils- ast. Þau höfðu að visu ekki tekið tal saman, en brosað hvort til annars og boðið góðan dag. Og hann hafði fyrir löngu gert sér ljóst að honum var ekki alveg sama um hana. Hún var aðlað- andi,-augun i henni, hendurnar, það hvernig hún hreyfði varirnar, verslunarprófið... Úti var ausandi rigning sem undangengna daga. Hann dokaði viðundir skýlinu yfir dyrunum og leit yfir bilamergðina á stæðinu SMÁSAGA EFTIR ATLA MAGNÚSSON HREINGERNINGAR Hann hafði látið sér fallast hendur og horfði enn á dyrnar, sem rétt i þessu höfðu lokist að baki henni. Það var vist skrifstofa einhvers fulltrúa. Hún var þó ekki fulltrúi? Nei, liklega var hún að- eins ritarinn hans. Hvi i fjáranum hafði hann farið að klifrast þetta upp i stiga? Hann hefði ekki þurft að láta hana sjá sig með svuntuna. Það var kallað til hans. Marinó vildi vita hvort byrja skyldi á veggnum handan við. Blessaður asninn! Auðvitað átti að.byrja á veggnum handan við. Hann hljóp niður úr stiganum og hjálpaði honum að flytja áhöldin til. — Ég held bara að hún hafi verið að gera sig til framan i þig, sagði Marinó, þegar þeir höfðu komið hlutunum fyrir á sinum stað. — Er þetta ekki hún á fyrstu hæðinni? Hann ansaði ekki. Þetta var Marinó likt, já og raunar þeim systkinum báðum. Hvaðan kom þeim þessi kjaftanáttúra eigin- lega? Þetta var vist sveitlægt, þarna sem þau áttu heima fyrir austan. — Við ættum að hækka stigann, sagði hann, ráðinn i að svara ekki þvættingnum i honum. Honum leiddist hvernig Marinó þóttist geta sagt við hann hvað sem var, aðeins af þvi að þeir voru tengdir. Þegar verið var að vinna óskaði hann eftir að mágur hans talaði við hann sem yfirmann sinn, ekki siöur en aðrir. En þessi gremja var þó blandin hljóðum fögnuði að þessu sinni. Það hafði þá ekki far- ið fram hjá Marinó, — þetta augnaráð hennar! Svona hafði hún ekki litið á hann fyr. Hann byrjaði að kústa á ný, seildist undir tauma, sem fengið höfðu gott forskot niður á vegg- inn, meðan hann sinnti Marinó. Nei, hann ætlaði ekki að láta þau systkinin halda að það væri eitt- hvaö á milli þeirra, — hennar og hans. Hann gerði sér far um að handleika kústinn léttilega. Ef hún kæmi auga á hann aftur, þyrfti hún ekki að halda að hann þrælaði. Enda var skollann ekk- ert á milli þeirra. Þau voru vön að heilsast og brosa hvort til annars ef þau sáust, — væri hún að flýta sér létu þau brosið nægja. Nei, það var ekki mikið á milli þeirra. En djöfull var að hún skyldi sjá hann með svuntuna! He, he. Hún hefði átt að sjá hann i einkennis- búningnum. Kona eins og hún hefði kunnað að meta slíkt, — verslunarmenntuð. Hafði hún ekki sagt það? Ætli Steinunni hefði ekki orðið hverft við, hefði hún vitað hvað þeim fór á milli á gamlaárskvöld? Aldrei skyldi hún fá minnsta pata af þvi. — Á ekki að vera kaffi? Það var auðvitað Marinó, sem rauf þögnina, og i röddinni var áreitna illkvittnin, sem honum féll svo illa við. Hann leit á armbandsúr- ið. Þegar var komið fimm minút- úti fyrir. Sem snöggvast datt hon- um byggingin i hug og dælan, — hvort hún hefði undan i svona veöri. Þetta gekk svo hægt hjá honum, svo hægt... Þarna stóð billinn hennar. Hann hafði einu sinni gengið fram hjá honum, þegar einn glugginn var opinn og fundið finlega ilmvatnslykt út um hann. í framsætinu lá bók á ein- hverju öðru máli — kannske skýrsla. Þessi lykt og bókin höfðu blandast draumum hans um hana siðan. Hann gekk undan skýlinu og að bilnum. Hann reyndi að sjá inn i hann með að skáskjóta aug- unum.um leið og hann gekk fram hjá, en hann kom ekki auga á neina „skýrslu”. Hins vegar lá Framhald á 29. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.