Þjóðviljinn - 03.01.1975, Blaðsíða 2
2 8IÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. janúar 1975
Ný tegund loftsleða
t Okrainu er fariö að framleiða nýja tegund af loftsleðum eins og þá
sem á myndinni sést. Getur slikur sleði borið tvo menn og 450 kg af far-
angri og farið nieð allt að hundrað km hraða yfir láð og lög, is, mýrar
og skóga á hvaða tima árs sem er. Sleöar sem þessir koma að góðum
notum í norðlæguin héruðum. (mynd apn)
Rolluþankar
Reykjavik 24.12 1974.
Halldór Laxness lætur móðan
mása um efasemdir sinar um
sannleiksgildi fslendingasagna,
og gerir hann þvi skóna, að fátt
sé þar bitastætt. Þessari stefnu
efasamdarmanna ermjöghaldið
að landsmönnum þessa stundina.
Ritverk skáldsins sjálfs mætti
taka sem dæmi, um að nokkur
sannleikskjarni felist i ritum is-
lendinga fyrr og siðar, t.d. leggur
Laxness i tveimur af bókum sin-
um út af sjálfsævisögum (i
Heimsljósi og Paradisarheimt)
og enginn efast um kunnugleika
hans af persónum Innansveitar-
króniku. fslendingar vestan hafs
og austan gerðu nokkurn úlfaþyt
út af Sjálfstæðu fólki og töldu
Laxness vera að ófrægja islend-
inga með ósönnum söguburði um
bændur. Reykvikingar voru ekki
eins uppnæmir út af þessum full-
yrðingum, og ég minnist þess, að
ég skoraði á samstarfsmann
minn, sem nýlega haföi flust á
mölina, aö koma með eitt dæmi,
um hrein ósannindi i Sjálfstæöu
fólki. Hann var ekki seinn á sér,
og nefndi ferð Bjarts til þess aö
sækja ljósmóður, þegar allt var
komið i óefni og Bjartur minntist
ekki á konu sina fyrr en eftir dúk
og disk. Ég ætlaði að fara að
segja, að mér fyndist þetta
ósennilegt, en þá hló viðmælandi
minn, og sagðist muna eftir feðg-
unum i „seli”, sem höfðu sama
lagið á og Bjartur, þegar þeir fóru
að sækja ljósmóður.og þeir nefndu
ekki erindið fyrr en einhver
spurði um liðan konunnar.
Laxness gerir litið úr heimildar-
mönnum Ara fróöa þám. Þuriði
hinnt spöku dóttur Snorra goða.
Efasemdarmenn virðast nú ætla
að gera Snorra goða að einhverri
hulduveru, en með þvi afvopna
þeir sjálfa sig.
Ritskoðun biskupanna i tslend-
ingabók Ara er ekki timabundið
fyrirbæri og þekkist á öllum tim-
um. Laxness sem er fróðastur is-
lendinga um starfsemi katólsku
kirkjunnar furðar sig á hve fáir
Islendingar hafa orðið þeirrar
náðar aðnjótandi.að vera nefndir i
tslendingabók, en á bls. 95 i Þjóð-
hátiðarrollunni nefnir Laxness
„iandlordism” á íslandi siðustu
áratugina innan við árið 1000.
Hjúskaparmál þjóðhöfðingja og
,,lorda” gaf kirkjunni kærkomið
tækifæri til þess, að hafa afskipti
af höfðingjavaldinu og efldi kirkj-
una að löndum og lausafé. Með
arfaskiptum dreifðust eignir og
völd, og reynt var að sameina
þetta aftur með hjúskap, en þar
var skyldleiki hjónaefna Þrándur
i Götu. Kirkjan reyndi að kúga
voldugasta mann landsins Jón
Loftsson, en Þorvaldur Gissurar-
son brá sér til Noregs og fékk
leyfi til þess, að búa 10 ár með
fyrri konu sinni. Liklega hafa
einnig verið meinbugir á seinna
hjónabandi Þorvalds. tslenska
kirkjan hefur talið sig illa svikna
af erkibiskupi, og hefur visvitandi
falið skyldleika Þorvalds og Þóru
dóttur allsherjargoðans Guð-
mundar griss, en hann var sonar-
sonur Þorgeirs, sem gerður var
að „hulduveru”, en var liklega
Þorgeir á Mýri (nú Mýrarhús?).
Þessi sami Þorgeir á Mýri var
móðurfaðir Gissurar Hallason-
ar. Þorvaldur hefur svo friðmælst
við kirkjuna og stofnaði klaustur i
Viðey, sem hann fékk með konu
sinni. Auðugir menn áttu ekki sjö
dagana sæla þegar kirkjan var i
vígahug, og má nefna tilbúnar
sakir Jóns Arasonar á hendur
Jóni Sigmundssyni, sem þrátt
fyrir stuðning konungs varð að
láta eignir sinar og treystist ekki
til að búa i Hólabiskupsdæmi þó
lögmaður væri. Kirkjan notaði
ættfræðina sem biturt vopn i
ábataskini.
Laxness afsannar sjálfur kenn-
ingu sina um ólæsi islendinga fyr-
ir 1000 þar sem hann segir að
Grænland hafi haft sáralftil sam-
skipti við umheiminn og aðeins
islendingar komi þar við sögu. A
Grænlandi hafa fundist margar
rúnaáletranir, eins og á Norður-
löndum öðrum en tslandi. íslend-
ingar komu frá Sv-Noregi en þar
var aðalmiðstöð rúna upp úr 600
að talið er, og þaðan bárust rúnir
m.a. til Danmerkur eftir að þær
hurfu þar um skeið. íslendingar
tóku fyrstir Norðurlandabúa upp
latinuletur (um likt leyti og eng-
lendingar, þ.e. eftir 1066). Islend-
ingar stóðu uppi eins og glópar
þegar þeim bárust boð um að
senda rúnaletur til Danmerkur,
en þá höfðu svokallaðir galdra-
menn verið ofsóttir fyrir að
geyma slikan fróðleik.
Margir lygakonungar voru uppi
á dögum Sverris konungs, og er
hann ekki undanskiiinn. Eysteinn
Framhald á 11. siðu.
Mikil snjóflóð á
Berufj arðarströnd
Ein skriðan stöðvaðist 10 m frá bœnum Karlsstöðum
Á nýársdag féllu einar 7 snjó
skriður á Berufjarðarströnd.
Þær ollu þó engu teljandi tjóni,
nema hvað eitthvaö laskaöist ai
giröingum og eins bar ein þeirra
með sér grjót og aur á túniö hjá
bænum Karlsstööum, en sú
skriöa stöövaöist aöeins 10
metra frá fbúöarhúsinu.
Már Karlsson fréttaritari
Þjóðviljans á Djúpavogi sagði
að á nýársdag hefði verið aftaka
veður þar eystra og um miðjan
dag hefðu menn tekið eftir þvi
að snjóflóð höfðu fallið úr giljum
á einum 7 stöðum á svæðinu frá
Þiljuvöllum útundir Núp.
Már sagöi að fram til þessa
hefði ekki verið talin mikil
hætta á snjóflóðum á Beru-
fjarðarströndinni, enda hefði
veriðfrekar litill snjór i fjöllum,
en þessar skriður sem féllu
hefðu komið úr giljum.
A Djúpavogi var komið skap-
iegt veður i gær, snjór næstum
enginn og færi gott.
—S.dór.
Flateyri:
Skemmdir á höfniimi
Flateyri 2. jan.
Nú rétt fyrir áramótin uröu
miklar skemmdir á höfninni á
Flateyri. Samkvæmt upplýsing-
um frá fréttaritara okkar, Guö-
varöi Kjartanssyni, hefur
hafnarbakki sigið allvcrulega
eöa um nokkuö á annan meter á
allstóru svæöi.
Orsökin er sú, að stálþil við
norður/suður kant hefur brostið
á 20-30 metra kafla og skagar nú
út i höfnina neðan til. Þarna er
sandbotn og mjög litið um grjót.
Astæður þessa eru helst taldar
þær, að sandurinn hafi verið svo
laus i sér, að hann þoli illa
skrúfugang frá bátunum, en
þyrlist þá upp og berist burt, svo
aö þilið standi eftir i lausu lofti.
Ovenju litiö hefur að undan-
förnu verið um austan og norð-
austanátt, svo að litið hefur
borist að þilinu til uppfyllingar á
móti. Liklegt má telja að ekki
hafi veriö farið nógu djúpt meö
stálþilið i upphafi með tilliti til
þess, hve laus sandurinn er.
Þessar skemmdir á hafnar-
mannvirkjum á Flateyri valda
tjóni, sem sennilega er varla
minna en 10 miljónir króna, og
reyndar er ekki séð, hvort þilið
muni halda áfram að gefa sig
enn frekar. Svo virðist sem
ankerin á stálþilinu séu það
ofarlega, að þau haldi of litið við
neðst þar sem þörfin er mest.
Það var aö morgni hins 30.
des.. sem sjómenn urðu þess
fyrst varir , að kanturinn var
tekinn að siga, en þeir voru þá
að fara á sjó. Er á daginn leiö
varð ljósara, hvað hér var um
alvarlegar skemmdir að ræða.
Það er viðlegukantur bátanna,
sem sigið hefur, en flutninga-
skip eru afgreidd annars staðar
i höfninni.
Varðskip kom til Flateyrar i
gær, nýársdag, og köfuðu varð-
skipsmenn i þvi skyni að kanna
skemmdirnar.
Frá Flateyri róa nú 4 bátar ,
tveir stærri bátar um 200 tonn
og tveir minni bátar um 30 tonn.
Gæftir hafa verið lélegar að
undanförnu og afli tregur.
Jól og áramót fóru mjög vel fram
Lögreglan er ánægð
með samborgarana
Jólin og áramótin fóru
fram stórslysaiaust um
allt land og eru lögreglu-
menn í öllum landshorn-
um fullkomlega sáttir við
tilveruna. ölvun á al-
mannafæri var með al-
minnsta móti og útköll
þau/ sem lögreglumenn
fengu voru flest til þess
eins að skakka smávægi-
legar heimilisdeilur og
annað þess háttar.
Viö höfðum samband viö
Magnús Einarsson, aðalvarð-
stjóra hjá lögreglunni i Reykja-
vik:
„Jú, það verður ekki annaö
sagt en að áramótin hafi verið
mjög róleg og friösamleg. Viö
áttum raunar ekki von á öðru,
þvi reykvikingar hafa staöið sig
mjög vel á árinu sem var aö liða
og verið til stakrar fyrirmyndar
þegar á heildina er litið.
Við erum ánægðir með árið
sem var að liða og gamlárs-
kvöldið varð til þess að kóróna
allt saman. ölvun var minni en
oftast áður og þótt mikið væri
um útköll og i ýmsu að snúast er
þó ekki hægt að segja að þetta
hafi verið ósvipað venjulegu
helgarstússi.”
Hlýjar kveöjur til
vestfirðinga
— Ollu þjóðhátiðarhöld ekki
auknu álagi á lögreglumenn i
Reykjavik?
— „Það var e.t.v. öllu meira
að gera og þá einkum á meðan
hátiöahöldin 1 Reykjavik og á
Þingvöllum fóru fram, en alls
staðar var þetta mjög friðsam-
legt og einstaklega rólegt hjá
okkur i lögreglunni. Við veittum
einnig aðstoð viö hátföahöld
sums staðar úti á landsbyggö-
inni og fórum til dæmis með
mannskap til Vatnsfjarðar og
veittum vestfirsku lögreglunni
aðstoð viö.löggæslu á þjóðhátið-
inni þar.
Það væri gaman að fá að nota
þetta tækifæri til þess að senda
lögreglumönnunum á Vestfjörð-
um hlýjar kveöjur og þakkir
fyrir einstaklega gott samstarf
á meðan á Vatnsfjarðarhátið-
inni stóð,” sagði Magnús
Einarsson að lokum.
—gsp
5 ára gamaU drengur drukknaði
Það slys átti sér stað á Hvols-
velli sl. mánudag, að 5 ára
gamall drengur, Ingvald
Rúnarsson féll i skurð fullan af
vatni og drukknaði.
Drengurinn mun hafa verið
einn á ferð þarna á Norðurgöt-
unni, en meðfram henni liggur
þessi skurður sem grafinn hefur
verið fyrir væntanlega jarð-
strengi. Ekkert vitni var að
slysinu og fannst drengurinn
ekki fyrr en seint um kvöldið.
Hafði þá staðiö yfir leit að hon-
um nokkra hrið.
Mikið vatnaveður hafði verið
þennan sólarhring á Hvolsvelli
sem viðar, og var skurðurinn
fullur af vatni. — S. dór