Þjóðviljinn - 03.01.1975, Síða 10

Þjóðviljinn - 03.01.1975, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN FöotaJagiir 3. jotiitar 1075 H. K. Rönblom: Að snöru — — Ertu alveg frá þér — önnur stúlka þegar þú ert nærstödd! — En hvað hefur þá hlaupið i þig? Eitthvað er þaö að minnsta kosti. — Það eru karlarnir i sófanum bak við mig. Ég komst ekki hjá þvi að heyra dálitið sem þeir voru að segja. Þeir voru að tala um sakamál, sem ég hef haft með að gera. Jóa fannst setningin: „saka- mál, sem ég hef haft með að gera” hljóma nokkuð vel. Það eru ekki allir sem hafa haft afskipti af sakamálum. Meg skildi hvernig honum var innanbrjósts og gerði sitt besta til að sýnast áhugasöm. Þau lögðu bæði við hlustir og reyndu að heyra hvaö karlarnir bak við milligerðina höfðu að segja. Sá sem hafði áður verið aö and- mæla, virtist nú hafa skipt um skoðun. — Það getur svo sem vel verið aö Bottmer hafi lika átt eitthvert annaö erindi. Hafi þurft að tala við einhverja fleiri. — Já, eða þá að hann hafi ætlaö að sækja eitthvað. Veistu hvað ég held? — Nei, hvað heldurðu? — Að hann hafi falið eitthvað af peningunum sem hann dró sér. Hann hefði getað grafið þá niður einhvers staðar. — Grafið þá niður? Eins og sjó- ræningi, ha, ha! Hvar I ósköpun- um? Á eyðieyju, eða hvað? — Einhvers staðar afsiðis, sagði Algotsson. Og þegar þú seg- ir sjóræningi, þá dettur mér i hug að hann átti seglbát i bátahöfn- inni. Þar niðurfrá er fáförult og afskekkt. — Bátahöfnin, sagði hin röddin áhugalaust. En þá — æ, þessir bölvaðir aldinborrar. Þetta er sá þriðji sem ég veiði i kvöld. Jói tók viðbragð þegar hann mundi eftir þvi, að siðasta göngu- ferð Bottmers hafði verið að bátahöfninni. Vissi Algotsson það? — Sjáðu Jói, sagði Meg og fannst hún hafa sóað nógu mikl- um tima i falda fjársjóði. Sjáðu, þarna kemur hljómsveitin. Hljómsveitin kom aftur inn eftir hlé, i gervi týrólabúa i stutt- buxum og með útsaumuð axla- bönd. Hljómsveitarstjórinn brosti til áheyrenda og geiflaði sig til að koma fólkinu i viðeigandi hugará- stand eins og vera ber við upp- skeruhátið i Rinarlöndum. Celló- leikarinn virtist miöur sin. Hann var enginn týrólbúi i eðli sinu, enda einn þeirra ,er gekk i siðum nærbuxum allan ársins hring. Beru leggirnir sem umluktu cellóið voru gráhvitir eins og kartöfluspirur. Jói lagði við hlustir til að heyra hvort karlarnir bak við limgerðið hefðu meira að segja um Bott- mer, en aldinborrinn virtist hafa leitt samtal þeirra inn á nýjar brautir. Viö hin borðin rikti eftir- væntingarfull þögn. Fólk bjóst til að ganga út á dansgólfið. Konan sem ferðaðist um og seldi hatta leit votum og gljáandi augunum á miðaldra vefnaðarvörusalann og virtist hafa hug á honum. Hann ók sér vandræðalega til I sætinu. Fulltrúarnir úr landbúnaðar- nefndinni voru niðursokknir i um- ræöur um landbúnaðarvélar og reiknuðu út prósentur á borðdúk- inn. — Ef skemman væri til að mynda hér, sagði annar og færði saltkarið innar á dúkinn. — Það er vals, sagði Meg. Miðnæturblái kvöldkjóllinn hennar var með viðu pilsi og hún vissi að það myndi njóta sin til fulls I valsinum. — Má ég? sagði Jói kurteis- lega. — Minntu mig á að segja þér dálitiö um Bottmer á eftir, sagði Meg þegar þau stóöu ár fætur. Það var Vinarvals. Vin er borg i Rinarlöndum þar sem keisarinn býr. Keisarahirð hreyfðist I þri- skiptum takti innanum vinviðar- klæddar tunnur. Það glampaði á sverðog gimsteina, brakaði i silki og kampavinstappar flugu með smelli. Dansgólfiö bylgjaðist eins og fyrir straumnum frá löngu liðnum glæsibrag. Vals hef- ur alltaf áhrif á stöku gamlingja sem ekkert hafa lært og engu gleymt. Gráhærðir tignarmenn vögguðust i sama takti og yngsti lögregluþjónn bæjarins. Hatta- sölukonan hafði komið klæða- bransanum út á gólfið og þrýsti honum þétt að barmi sér. Jói hafði haldið uppi merki upp- skeruhátiöarinnar með þvi að panta hálfflösku af Liebe- fraumilch. Þegar þau komu aftur að borðinu, lyfti hann mjóa, græna fótglasinu. Hann hélt þvi varlega milli þumals og visifing- urs eins og viðkvæmum hlut sem bar að sýna nærfærni. — Meg! — Ertu ekki pinulitið hrifinn af mér, Jói? — Aber natúrlich! Augun i Meg ljómuðu. — Eins og i kvikmynd! Nokkur andartök I drauma- heimi og siöan varð að snúa sér að Ábroka raunveruleikans. — Ég átti að minna þig á Bott- mer. — Já, auðvitað. Það var bara smávegis sem ég gleymdi að segja þér um komu hans'i apótek- ið. Sennilega skiptir það engu máli, en fyrst þú hefur ennþá svona mikinn áhuga á honum, þá — Jæja? — Ég var búin að segja þér að hann spurði eftir safnaðarsystur- inni. En svo, þegar ég hugsaði mig betur um, mundi ég alveg orðrétt hvernig hann hafði tekið til orða. Hann sagði til svona: — Ég var að frétta að systir Ida væri komin á eftirlaun og væri flutt héðan. Hvar á nýja safnaðarsyst- irin heima? Býr hún á sama stað? Ég sagöi auðvitað aö hún byggi á sama staö og systir Ida hefði gert. — A Uxagötu, sagði Jói og kinkaði kolli. Það er starfsbú- staður. Nokkuð meira? — Það var ekkert meira. Hann virtist ánægöur meö þær upplýs- ingar sem hann hafði fengið. Eig- um við ekki að dansa meira? Þau dönsuðu meira. 1 næsta hléi hafði Jói fengið að vita hvernig málum var háttað i sam- bandi við safnaðarsysturnar. — Liknarsystirin á heima i næsta húsi við hótelið hennar frú útvarp Föstudagur 3. janúar 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Finnborg Ornólfsdóttir lessöguna „Maggi, Mari og Matthias” eftir Hans Petterson (2). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Spjallað viö bændur kl. 10.05. „Hingömlu kynni”kl. 10.25: Sverrir Kjartansson sér um þátt með tónlist og frásögnum frá liðnum ár- um. Morguntónleikar kl. 11.00: Filharmóniusveitin i Moskvu leikur Sinfóniska dansa op. 45 eftir Rak- hmaninoff / Nicolaj Ghajauroff syngur ariur úr rússneskum óperum. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Söng- eyjan” eftir Ykio Mishima. Anna Maria Þórisdóttir þýddi. Rósa Ingólfsdóttir byrjar lesturinn. 15.00 Miðdegistónleikar.Pilar Lorengar syngur lög úr óperettum eftir Johann Strauss, Zeller, Lehar og Kalmann. Hljómsveit Vinaróperunnar leikur und- ir; Walter Weller stjórnar. Hubert Barwahser og Con- certgebouw hljómsveitin i Amsterdam leika „Dafnis og Klói”, ballettsvltur nr. 1 og 2 eftir Ravel; Bernard Haitink stórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið. 17.10 ÍJtvarpssaga barnanna: „Anna Heiða vinnur afrek” eftir Rúnu Gislad. Edda Gisladóttir les (6). 17.30 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Þingsjá. Umsjón: Kári Jónasson. 20.00 Frá tónleikum i Dóm- kirkjunni 29. f.m.Einsöngv- arar og Oratóriukór Dóm- kirkjunnar flytja Jóla- óratóriu eftir Bach ásamt félögum i Sinfóníuhljóm- sveit Islands. Stjórnandi: Ragnar Björnsson. Ein- söngvarar: Elisabet Erlingsdóttir, Ólöf Harðar- dóttir, Sólveig Björling, Gestur Guðmundsson, Hall- dór Vilhelmsson og Hjálmar Kjartansson. 21.30 Útvarpssagan: „Dag- renning” eftir Romain Rol- land. Þórarinn Björnsson islenskaði. Anna Kristin Arngrimsdóttir leikkona les (5). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Húsnæðis- og byggingarmái. Ölafur Jensson ræðir við Zophonias Pálsson skipulagsstjóra. 22.35 Bob Dylan. Ómar Valdimarsson les úr þýð- ingu sinni á ævisögu hans eftir Anthony Scaduto og kynnir hljómplötur; niundi þáttur. 23.20 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. 0s|ónvarp Föstudagur 3. janúar 1975 20.00 Fréttir og veöur. 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.40 Eidfugiaeyjarnar. Sænskur fræöslumynda- flokkur. Sjötti og siðasti þáttur. Flamingóeyjan. Þýöandi og þulur Gisli Sigurkarlsson. (Nordvisi- on—-Sænska sjónvarpið). 21.50 Kastljós. Frétta- skýringaþáttur. Umsjónar- maður Eiöur Guðnason. 21.55 Villidýrin. (The Zoo Gang). Nýr, breskur saka- málamyndaflokkur i sex þáttum, byggður á sögu eft- ir Paul Gallico. 1. þáttur Sfðbúin hefnd. Þýðandi Kristmann Eiösson. Fjórar aöalpersónur myndaflokks- ins, þrir karlar og ein kona, störfuðu saman i frönsku andspyrnuhreyfingunni á striðsárunum. Þar fengu þau viöurnefni I samræmi við eðlisfar hvers þeirra, refurinn, fillinn, tigrisdýrið og hlébarðinn. Tuttugu ár- um siðar hittast þau aftur og taka upp þráðinn að nýju, en þó á litið eitt frábrugðn- um vettvangi. Aöalhlut- verkin leika Brian Keith, John Mills, Lilli Palmer, og Barry Morse. 22.45 Dagskrárlok. #ÞJÖÐLEIKHÚSIÐ KAUPMAÐUR 1 FENEYJUM 5. sýning I kvöld kl. 20 Blá aðgangskort gilda. 6. sýning sunnud. kl. 20. KARDEMOMMUBÆRINN laugardag kl. 15. Uppselt. sunnudag kl. 15 HVAD VARSTU AÐ GERA I NÓTT? laugardag kl. 20. Leikhúskjaliarinn: HERBERGI 213 sunnudag kl. 20.30. Miðasala 13,15—20. I Slmi 1-1200. TÓNABÍÓ Fiölarinn á þakinu Ný stórmynd gerð eftir hinum heimsfræga samnefnda sjón- leik, sem fjölmargir kannast við úr Þjóöleikhúsinu. 1 aðalhlutverkinu er Topol, israelski leikarinn, sem mest stuðiaði að heimsfrægð sjón- leiksins með leik sinum. Onn- ur hlutverk eru falin völdum leikurum, sem mest hrós hlutu fyrir leikflutning sinn á sviði i New York og viðar: Norma Crane, Leonard Frey, Molly Picon, Paul Mann. Fiðluleik annast hinn heimsfrægi lista- maður ISAAC STERN. Leikstjórn: Norman Jewison (Jcsus Christ Superstar). tSLENSKUR TEXTI. Sýnd kl. 5, og 9. KÓPAVOGSBÍÓ. Sími 41985 Gæðakallinn Lupo Bráöskemmtileg ný, israelsk- bandarisk litmynd.Mynd fyrir alla fjölskylduna, Leikstjóri: Menahem Golan. Leikendur: Yuda Barkan, Gabi Amrani, Ester Greenberg, Avirama Golan. ISLENSKUR TEXTI. Sýnd kl. 6, :g og 10. Slmt 18936 Hættustörf lögreglunnar tSLENZKUR TEXTI. SCOTT STACY KEACH A ROBERT CHARTOFF-' IRW'N WINKLER PRODUCTION THE NEW CENTURIONS Æsispennandi, raunsæ og vel leikin ný amerisk kvikmynd I litum og Cinema Scope um lif og hættur lögreglumanna i stórborginni Los Angeles. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Bönnuð innan 14 ára. EIKFÉL4G! YKJAVtKOR^ MEÐGÖNGUTtMI i kvöld kl. 20,30. Næst sfðasta sýning. tSLENDINGASPJöLL laugardag kl. 20,30. DAUÐADANS sunnudag kl. 20,30. 3. sýning. MORÐIÐ t DÓMKIRKJUNNI eftir T.S. Eiioti þýðingu Karls Guðmundssonarleikara. Flutt I Neskirkju, sunnudag kl. 21. Allra siðasta sinn. tSLENDINGASPJÖLL þriðjudag kl. 20 30. DAUÐADANS miðvikudag kl. 20,30. 4. sýning. Rauð kort gilda. Aögöngumiðasalan i Iðnó er opin frá kl. 14. Simi 1-66-20. HAFNARBÍÓ Slmi 16444 Jacqúes Tati i Trafic Sprenghlægileg og fjörug ný frönsk litmynd, skopleg en hnifskörp ádeila á umferöar- menningu nútimans. „1 „Trafic” tekst Tati enn á ný á við samskipti manna og véla, og stingur vægðarlaust á kýi- unum. Arangurinn verður að áhorfendur veltast um af hlátri, ekki aðeins snöggum innantómum hlátri, heldur hlátri sem bærist innan með þeim i langan tima vegna voldugrar ádeilu i myndinni” — J.B., VIsi 16. dcs. ÍSLENZKUR TEXTI. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.