Þjóðviljinn - 26.01.1975, Page 3

Þjóðviljinn - 26.01.1975, Page 3
Sunnudagur 26. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 hef kynnst, haft sinar takmark- anir, eins og ég og þú. Ljárinn orðinn þjólaus og hrífan fattyxna Og þetta voru dásamlegir dagar. Vor með sólskin, græn grös og hoppandi lömb eftir hvern einasta snjóavetur. Sleða- brekkur, svell, krakkahópar, hrossin taumlaus og berbökuö til húsa i rökkrinu og jórtrandi vanginn á ánum við garðann, mjúkur, bliður, falslaus og hlýr. Já, þessir dagar koma aldrei aftur. Þvi eftir skólana, sveinsstykki og meistarabréf iðnaðarins og glefsur í stórborgarlifið er ljárinn orðinn þjólaus, hrlfan fattyxna og klakkurinn brotinn, en dráttar- vélarnar skröltandi kynlausar um allar sveitir. — Hún dráttar- vélin, hann Farmallinn. — Og hrossin orðin stygg. Min hross hef ég reyndar gæft og fjöllin eru á sinum stað, heiðin að mestu órudd og náttúrleg, með manni, hesti og kind. En kýrin tútnar út að verðgildi og afurðum með hverju árinu sem liður. Fyllir stór tún og fyllir sig á skrúðgrænu nýræktar-grasinu, sumar og vetur, og það er ekkert smáræði, sem heyja þarf handa mörgum kúm. Ar og sið og alla tið mjólkar hún tvisvar á dag. Tjóðruð við jötuna tjóðrar hún sveitakonuna við maltirnar kvelds og morgna, jól og virkan dag. Skyldu þetta vera álög? A.m.k. segja þjóðsögur og hátiðaræður, að konan og kýrin hafi i sameiningu, frá örófi alda, alið, fóstrað og fætt mannkynið. Og skal þó nokkuð til, önnur eins sjálfseyðingardrepsótt og sá vágestur er. En það er eitt af þessu ókven- lega I fari mínu að mér leiðist að fara I fjós. Samt hef ég skilaö mannkyninu 6 heilbrigðum börnum — og mjólka alltaf kýrnar. Þvi hver á að gefa kálfinum tugguna eða kvigunni vatnið, ef það gleymist, og hver aetli færi svosem að eyða oröum á bana Dimmu eða hana Nótt, eins og þær sjá þó alltaf drauga i bverju horni ef harkalega er að þeim farið, og þarf ekki til. Nei, það þarf mikinn skilning og nær- gætni við kýr eins og aðrar skepnur, ef þær eiga að gera vel.' Og þar rennur konunni vist blóðið til skyldleikans, þvi oftast er það hún sem er bundin við kýrnar — og börnin. — Bóndinn getur oftar kvakað sér frá. Meira að segja læknisdóttirin varð að læra að mjólka þegar bóndinn, maður hennar, var sendur á þing. Engan heyrði ég tala um að senda konuna á þing, 3vo bóndinn gæti haldiö áfram að mjólka kýrnar sinar. Þau lærðu þó i sama skóla. — Það er ekki 3vo að skilja, að ég amist við kúnum persónulega, hverri og einni, sumar eru jafnvel bráð- gáfaðar. Og eins og ég sagði við þær einhverntima Skil ég slefu, sleikjur, hnoð, slettuvef úr hala. Kvittun gef á kroppsins voð kært meðan sefar hjala. En: Sál I klössun hvarflar frá, krenkt við pössun lúa, mykjuhlöss og makið á mjólkurrössum kúa. Og það er tilfellið. Guð leggur alltaf likn með þraut. Ég verð aldrei svo hugfangin af fjós- verkunum, að ég geti ekki hugsaö til annarra heima og geima á meðan, og margt kemst i var undir kúnum sem annars þyrlaðist, i eilifum hávaða og ys. Karlarnir sjálfkjörriir til opinberra starfa En þar sem þú minnist á opin- ber störf sveitakonunnar, þá eru þau smá að vöxtum, ennþá. Karlarnir eru að mestu sjálf- kjörnir til allra opinberra starfa til lifstiðar, t.d. i hreppsnefndir. Ein og ein kona fær þetta 1-2-3 atkvæði núorðið, en það breytir svo sem engu. 1 búnaðarfélögum eru bændur félagsmenn, en ekki konur þeirra, nema konan verði ekkja og búi áfram. Þá telst hún félagstæk og atkvæðisbær, en um kjörgengið skal ég ekkert segja. Það hefur vist aldrei komiö til, svo ég viti, að nokkrum hafi dottiö i hug að senda ekkju á búnaðarþing. Sýslunefndir skipa karlmenn, það ég þekki til, og örugg sæti til annarra kosninga að mestu. Þó færist i vöxt að sýna þokkaleg kvenmannsandlit upp undir miðj- an lista til alþingiskosninga. Þær eru meira að segja teknar upp i pontu sumar, til sýnis. — Þar bar okkur á milli, mér og þingmann- inum einu sinni. „Fullgidlan karl- mannsræöutima, eða engan ræðutima fyrir mig. Takk. Eg er ekki til sýnis, en tala skal ég svo að hlustað verði, þegar ég hef eitthvað að segja.” Ég held næstum, að honum hafi fundist ég óforskömmuð og persónulega móðgandi. En svo kurteis maður sagði það ekki upphátt. Auðvitað skildi ég hans viðhorf. Þvi skyldu karlmenn treysta konum til átaka ef þær þora ekki að reyna sjálfar? En þá væri illa til haldið uppeldinu og föðurarfinum, ef hann léti eiga hjá sér, og aldrei vissi ég móðurhelminginn sitja aðgerðarlausan og biða eftir aðstoð, ef skjótra úrræða var þörf. Ekki stigsmunur milli kynja þar Nei. Min skoðun er sú að okkur sé svo rikulega úthlutað islendingseðlinu, að þar sé ekki stigsmunur milli kynja. Hitt er svo annað mál, hverju uppeldi og hieypidómar geta til leiðar komið. Og eru karlmenn þar ekki undanþegnir. Með sam^iburði og reynslu finnst mér, að sveitamennskan bjóði upp á viðfeðmara svið og þroskavæniegra til uppeldis en borgarlifið. Heimilið verður áþreifanlegra samfélagsform og heimur I hnotskurn, þar sem hver pg einn verður að taka þátt i veruuleikanum og kjörum annarra. Og þá er það engin smáopin- berun að koma út á vormorgni, þegar allt er: Döggvað yndi út að sjá! Afallsmyndir sólar giitrar, tindrar, giampar á. Grundir, lindir, hólar. Hvilík signing! Upphaf ails opnast skyggnum sjónum. Hringrás lygn, i lifsins vals liður af tign I mónum. Það getur ekki farið hjá þvi, aö slik útsýn skilji annað og meira eftir heldur en dautt malbikið og svalirnar á næsta húsi. Ef til vill er það lika þetta sem veldur því að upptalning á dag- legum smámunum hversdags- lifsins verður ekki rakin hér. Og þú ert litlu nær um kjör sveita- konunnar eftir þennan lestur. Stórvibburði veraldarsögunnar ber lika hæst yfir hversdags- leikann eftir á, þó að þátttak- endur og áhorfendur liðandi stundar hafi ekki miklað þá fyrir sér. En eitt veit ég fyrir vist. A undanförnum árum hafa þeir stórstigu viðburðir gerst i búskaparháttum og fram- kvæmdum svietafólks, að þeir geymast á blöðum sögunnar, hvernig sem þjóðin ber svo gæfu til að auka við og byggja ofan á. — En augljóst er, að þar eru miklir möguleikar. Ætli það segði ekki einhver stórt „Ha-a-a-a" Núna sýnist mér, að með stór- viðburðum gæti taiist ef bóndinn segði við konu sina að afloknum heyönnum á sumrin: „Jæja, góða min. Nú er best að við tökum orlofið okkar, fyrst vetrarforðinn er kominn undir þak. Lofum nú kaupstaðarfólkinu að njóta sveitasælunnar —• og mjólka kýrnar — næstu þrjár vikur.” Ætli það segði ekki einhver stórt „Ha-a-a-a? — Aldrei vissi ég að bóndinn ætti orlof, eða konan fri”. Og mikil lifandis ósköp þættu mér það stór tiðindi, ef fólk færi allt i einu að þakka fyrir sig, þegar það boröar skyr og rjóma og hugsa til þess, hvernig það lostæti varð til eða hver fram- leiddi það. Að sjálfsögðu veit ég, að þann góða hluta, ánægjuna af þátttöku i sköpunarverkinu, er ekki hægt að meta til f jar. En þrældómurinn og slitið á þessum forgengilega skrokk okkar kostar pening, þegar til læknanna kemur, og þá er þegnskapur, þjónusta og auka- vinna lika mæld i krónum. Já, það er krókótt leið að Framhald af 18. siðu. 66 bandaríkja menn eiga jafnmikiö og 60 miljónir suður- ameríkanar vinna sér inn á heilu ári Nýlega birtist í vikuút- gáfu kúbanska blaðsins Granma listi yfir ríkustu menn Bandaríkjanna og var hann tekinn úr banda- ríska f jármálaritinu Fortune. Þar má finna 66 bandaríkjamenn sem geta státað af því að eiga 150 miljónir dollara hver eða meira. Þess ber að geta að þær eignir sem „listamennirnir” eru skrif- aðir fyrir eru aðeins sá auður sem þeir persónulega eiga. Þannig er það t.d. tekið fram i Fortune að Henry Ford II er ekki á listanum og er ástæðan sú að hann hefur látið flytja meginhluta eigna sinna á nafn konu sinnar fyrr- verandi og tveggja uppkominna dætra. Listinn segir þvi litið um faldar eignir og enn minna um raunveruleg efnahagsleg völd þeirra sem á honum eru. Þótt maður sem skrifaður er fyrir segjum 300 miljónum dollara getur hann haft undirtökin i fyrir- tækjum með hlutafé upp á miljarða. En ekkert er fullkomið og þrátt fyrir þessa annmarka er gaman að skoða listann. Honum er skipt i fimm flokka. I fyrsta flokki eru þeir sem eiga 1-1.5 miljarða dollara (1 doliar=120 isl. kr.). Hann telur aðeins tvo menn: oliu- kónginn J. Paul Getty og hinn dularfulla Howard Hughes. Sá siðarnefndi á mest af sinum auði i tveimur fyrirtækjum, Hughes Þeir Aircraft og HugheS Tool, en þau eru bæði á kafi i hergagnafram- leiðslu auk annars. I öðrum flokki eru þeir sem skrifaðir eru fyrir 500-1000 miljónum dollara og i honum eru sex manns, þar af þrir með ættar- nafnið Mellon en ekki er okkur kunnugt um hvaða viðskiptum þeir græða á. Einnig er i þessum flokki eigandi Polaroid fyrir- tækisins, oliukóngur og útgerðar- maður. I þriðja þyngdarflokki eru menn með fallþungann 3-500 milj- ónir dollara. I honum eru fimm menn: tveir oliukóngar (annar þeirra.fæst einnig við fasteigna- brask), námueigandi, eigandi tryggingafyrirtækis og einhver Charles S. Mott á tíræðisaldri sem kenndur er við stærsta fyrir- tæki heims, General Motors. í fjórða flokki eru menn sem eiga 2-300 miljónir dollara og eru þeir alls 27 talsins. Þar skal fyrst fræga telja heila sex Rocke- fellera, þám. Nelson varaforseta og Davið bankastjóra I Chase Manhattan en um þann síðar- nefnda hefur verið sagt að það væri síöðulækkun fyrir hann að verða forseti Bandarikjanna Aðrir sem nefna má i þessum flokki eru Josep Kennedy, John T. Dorrance Jr. eigandi Campbell Soup, Mrs. Alfred I. du Pont, William R. Hewlwtt og David Packard eigendur Hewlett- Packard flugvélaverksmiðjanna {sá siðarnefndi átti sæti i fyrsta ráðuneyti Nixons), Forrest E. Mars eigandi Mars candy sælgætisverksmiðjanna, Samuel I. Newhouse en við hann er kennd næststærsta blaðakeðja Banda- rikjanna, Marjorie Merriweather RICHEST OF THE AMERICAN RICH--------------------------v _____:.ay issue, Fortune calculates that 153 identifiable Americans are worth at least $100 million, and 66 can lay claim to $150 million or more. The top centimillionaires: OETTT HUOHES $1 BILU0N T0 $1.5 BILU0N J. Paul Getty, 75; Howard Hujhes, 62; Hughes Aircraft, Getty Oil Co. Hughes Tool $500 MILLI0N T0 $1 BILL10N H. L. Hunt, 79; oll Allsa Mellon Bruce, 66 Dr. Edwln H. Land, 58; Potaroid Paul Mellon, 60 Danlet K. Ludwig, 70; shlpplng Rlchard Klng Mellon, 6B $300 MILLI0N T0 $500 MILLI0N N. Bunker Hunt, 42; oil William L. McKnight, 80; Minnesota John D. MacArthur, 71; Bankers Life & Mining & Manufacturing Casualty Charles S. Mott, 92; General Motors R. E. ("Bob") Smith, 73; oil, real estate $200 MILLI0N Howard F. Ahmanson, 61; Home Savlngs & Loan Assn. Charles Allen Jr„ 65; investment banking Mrs. W. Van Alan Clark Sr„ 80; Avon Products John T. Oorrance Jr„ 49; Campbell Soup Mrs. Alfred I. du Pont, 84 Charles W. Engelhard Jr„ 51; mlning and metal fabrlcating Slierman M. Fairchild, 72; Falrchild Camera, ÍBM Leon Hess, 54; Hess 011 & Chemlcal William R. Hewlett, 54; Hewlett-Packard David Packard, 55; Hewlett-Packard Amory Houghton, 68; Corning Glass Joseph P. Kennedy, 79 $150 M1LLI0N James S. Abercromble, 76; oll, Cameron Iron Works Willlam Benton, 68; Encydopaedia Brltannica Jacob Blaustein, 75; Standard 011 of Indiana Chester Carlson, 62; xerography Edward J. Oaly, 45; World Airways 1 Clarence Dlllon, 85; Investment banklng Ooris Duke, 55 Lammot du Pont Copeland, 62 Henry B. du Pont, 69 Benson Ford,* 48; Ford Motor M.rs. W. Buhl Ford II (Josephine Ford), 44; Ford Motor William C. Ford, 43; Ford Motor Helen Clay Frlck, 79 T0 $300 MILLI0N Eli Lilly, 83; Eli Lilly & Co. Forrest E. Mars, 64; Mars candy Samuel I. Newhouse, 73; newspapers Marjorie Merriweather Post, 81; General Foods Mrs. Jean Maute (Abby Rockefeller), 64 David Rockefeller, 52 John D. Rockefeller III, 62 Laurance Rockefeller, 57 Nelson Rockbfeller, 59 Winthrop Rockefeller, 56 Cordella Scaife May, 39 Rlchard Mellon Scalfe, 35 DeWitt Wallace, 78; ReadeKs Dlgest Mrs. Charles Payson (Joan Whitney), 65 ' John Hay Whitney, 63 T0 $200 MILU0N Willlam T. Grant, 91; W. T. Grant stores Bob Hope, 64 Arthur A. Houghton Jr„ 61; Corning giass J. Seward Johnson, 72; Johnson & Johnson Peter Kiewit, 67; constructlon Allan P. Kirby, 75; Alleghany Corp. J. S. McDonnell Jr„ 69; McDohnell Douglas, aircraft Mrs. Lester J. Morris, 65 E. Claiborne, 57; A. H. Robins, drugs W. Clement Stone, 65; insurance Mrs. Arthur Hays Suliberger, 75; New York Times S. Mark Taper, 66; Flrst Charter Financial Corp. Robert W. Woodruff, 78; Coca-Cola V * Notably absent from Fortune’* compilation: Hcnry Ford II, who presum- ably has givcn up a considerable portkm of his fortune to his ex-wife and two grown daughters. ríkustu Post eigandi General Foods (sem framleiðir ma. Cocoa Puffs og Cheerios) og DeWitt Wallace eigandi Readers Digest, bibliu hins þögla meirihluta. 1 fimmta og siðasta flokknum eru þeir sem eiga 150-200 miljónir dollara en þeir eru alls 26. Lik- lega kannast flestir islendingar við gamanleikarann Bob Hope en hann er i þessum flokki. Einnig eru þar þrir með ættarnafnið Ford. Aðrir i þessum flokki eru m.a. William Benton eigandi Encyclopaedia Britannica, Edward J. Daly (World Airways), tveir með ættarnafnið du Pont, J. Seward Johnson (Johnson & Johnson snyrti- og hreinlætisvörur), J. S. McDonnell Jr. (McDonnell Douglas Aircraft), E. Claiborne (A.H. Robins lyfjaframleiðandi), Mrs. Arthur Hays Sulzberger sem Fortune kennir við stórblaðið (eða blaðakeðjuna) New York Times og loks Robert W. Woodruff sem mun vera stór hlut- hafi i Coca Cola. Auk þessara 66 eru i Bandarikj- unum 87 manns til viðbótar sem eiga 100 miljónir dollara eða meira. Að lokum ber að geta þess að persónulegar eignir þeirra 66 sem á listanum eru munu vera meiri en samanlagðar árstekjur 60 miljóna ibúa Rómönsku Ameriku. —ÞH FORSÍÐUMYNDIN Forsiða blaðsins i dag, i tilefni þess að tvö ár eru liðin siðan Parisarsamkomulagið var undirritað er teiknuð af Guðlaugi Bjarnasyni, sem annars fæst meira við vatnsliti og oliu en teikningarnar einsog sjá mátti á fyrstu einkasýningu hans i Galleri SÚM sl. haust. Félagsleg gagnrýni einkennir margar myndir Guðlaugs, og kann það að stafa af þvi að hann er i nánari tengslum við strit- andi alþýðu en myndlistarmenn upp og ofan — hann er sjómaður að atvinnu. Nám stundaði Guðlaugur i Myndlista- og handiðaskóla Islands.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.