Þjóðviljinn - 26.01.1975, Side 6

Þjóðviljinn - 26.01.1975, Side 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. janúar 1975. Víxillán tekiö 1964 væri nú orðið 2,6 sinnum hærra en upphaflega lánið, ef ekkert hefði verið af því greitt. Gengistryggt lán, miðað við dollar, væri orðið 5,5 sinnum hærra. En verðtryggt lán er nú meira en 13 sinnum hærra. Er einhver glóra í því að láta Vegasjóð taka svo herfilega óhagstætt lán? „Gullspesía, sem lögð hefði verið í banka á dögum Jesú Krists og ávöxtuð á mjög lágum vöxtum, ætti að endurgreiðast á vorum dögum með gullklumpi, sem væri þrisvar sinnum stærri en jörðin”. RAGNAR ARNALDS: Hvort viljum við nokkra góða hraðbrautarspotta eða trausta vetrarvegi? Skömmu fyrir jól urðu miklar umræður I efri deild Alþingis um frumvarp, sem flutt var af nokkrum þingmönnum norðlend- inga i neðri deild undir forystu Eyjólfs Konráðs Jónssonar og fjallaði upphaflega um 1200 milj- ón króna happdrættislán rikisins til vegagerðar milli Reykjavikur og Akureyrar. í neðri deild var fjárhæðin hins vegar hækkuð i 2000 miljónir króna og jafnframt bætt við veginum frá Reykjavik til Egilsstaða um Suðurland, og þannig var frumvarpið samþykkt með 24 samhljóða atkvæðum og sent til efri deildar. En eftir að hafa flotið þannig um lygnan sjó i neðri deild brá svo við i þeirri efri, að frumvarpið hreppti nokk- urn andbyr, og meðal annars var það gagnrýnt af þremur þing- mönnum norðlendinga, Stefáni Jónssyni, Jóni G. Sólnés og þeim, sem þetta ritar. Ég vil nú lýsa nánar þessu máli — ekki vegna þess að ég óttist þann áróður, sem Eyjólfur Kon- ráð hefur sfðan stundað i Morgun- blaðinu og miðar að þvi að telja fólki trú um, að við þessir skúrk- ar, sem leyfðum okkur að gagn- rýna frumvarpið, séum andvigir vegaframkvæmdum á - Norður- landi, — heldur vegna hins, að mál þetta snertir ýmis grundvall- aratriði f samgöngu- og byggða- málum, um leið og það varpar ljósi á mjög viðsjárverða þróun I fjármálum rikisins. Olíumöl fyrir 900 miljónir Vegagerðin, sem hér um ræðir, er hringvegurinn um landið. Af einhverjum óútskýrðum ástæðum er þjóðbrautin austan Akureyrar um Þingeyjarsýslur nú ekki tekin með, og er þeim landshiuta sleppt með öllu. Hringleiðin að undan- teknum þessum geira, sem spannar mestailt Norðurland eystra, er um 1140kilómetra löng. 1 frumvarpinu eins og það kom frá neðri deild er ráð fyrir þvi gert, að varið verði 667 miljónum krona til „Austurvegar” um Suð- urland, en 1333 miljónum til Takiö þátt í vali GÆÐAMERKIS fyrír íslenzkar iönaöarvörur ' • B s#s D E Jli A 00 u 'éár W Dómnefnd hefur valiö 10 merki.sem til úrslita koma.og nú gefst almenningi kostur á að taka þátt í vali þeirra þriggja merkja.sem verðlaun hljóta. Þátttaka er heimil öllum íslendingum 16 ára og eldri. Útfylltum atkvæðaseölum skal skilaö í póst eöa á skrifstofu Útflutningsmiöstöðvar iönaðarins, Hallveigarstíg 1, Reykjavík í umslögum merktum GÆÐAMERKI P.O. BOX 1407, Reykjavík fyrir 3. febrúar 1975. ÚTFLUTNINGSMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS Þau 3 merki, sem merkt eru meö bókstöfunum tel ég bezt. NAFN HEIMILISFANG u FÆÐINGARDAGUR OG AR ' „Norðurvegar”. Til þess að menn átti sig betur á þessu mikla viðfangsefni vil ég upplýsa, að áætlað er, að það muni kosta um 2700 miljónir króna á verðlagi ársins 1975 að byggja upphækkaðan malarveg á allri leiðinni milli Akureyrar og Reykjavikur, brýr munu kosta 2100 miljónir króna, en oliumal- arslitlag um 4300 miljónir króna. Samtals kostar þvi þessi hluti af hringveginum um 9100 miljónir króna á núverandi verðlagi. Þar sem ljóst er, að þessar rúmu 1300 miljónir króna draga skammt til að fullgera „Noröur- veg” og duga i mesta lagi fyrir l/6hluta kostnaðarins við að gera hrabbraut milli Akureyrar og Reykjavikur, jafnvel þótt annað fjármagn á vegaáætlun og Norð- urlandsáætlun sé meðtalið, skipt- ir að sjálfsögðu mjög miklu máli, til hvers konar framkvæmda þessu fjármagni er varið. í um- ræðunum I neðri deild kom i ljós, að bæði Eyjólfur Konráð og sam- gönguráðherra ætlast til þess, að rúmlega helmingnum af þessu fé verði varið til lagningar oliumal- ar hér og hvar á leiðinni til Akur- eyrar. Sjálfur segir Eyjólfur i leiöara Morgunblaðsins 17. desember s.l.: „í framsögu Eyjólfs KonráOs Jónssonar meö frumvarpinu og sameiginlegu áliti fjárhagsnefnd- ar neOri deildar sem og i þing- ræOu Halldórs E. SigurOssonar samgönguráöherra um þetta mál, kom fram, aö nú þegar eru 93 kllómetrar af Noröurvegi full- byggöir undir varanlegt slitlag. Aætlaöur kostnaður viö lagningu oliumaiar á þessa vegarkafla er um 712 miljónir króna (athuga- semdRA: um 926 miljónir á verö- lagi ársins 1975). Eðlilegt veröur aö telja, aö þessi framkvæmd hefjist þegar á næsta ári. ... Benti Eyjóifur Konráö sérstaklega á I . þessu sambandi 25 km vegarkafla umhverfis Blönduós, 10 km kafia út frá Akureyri og 8 km kafla I Hvalfirði. Þá taldi hann nauösyn- iegt aö hraöa undirbyggingu veg- arins á Kjalarnesi, I Borgarfiröi, viö Hvammstanga, miösvæöis I Skagafiröi og áframhaldandi út frá Akureyri, þannig aö verulega miöaöi áfram meö lagningu oliu- malar á árinu 1976, en eitt ár þarf aö iiöa frá undirbyggingu vegar þar til slitlag er á hann lagt.” Vetrarleiö eða sumarsport Tæpast þarf að taka það fram, að varanlegt slitlag á vegum kemur sér vel fyrir marga, bæði norðanmenn og sunnanmenn. En þvi er þó ekki að neita, að nokkuð er misjaínt, hvers konar vegaumbætur koma mönnum að bestum notum. Fyrir fólk á Norðurlandi er það vetrarvegurinn, sem En frá sjónarmiði reykvikinga er það fyrst og fremst sumarvegur- inn, sem mestu máli skiptir: Góður hringvegur með sem slétt- ustu yfirborði. Þeir sem þeysast um landið meö fjölskylduna i sumarleyfinu, hafa vafalaust mikið yndi af þvi að geta sprett úr spori á renni- sléttri hraðbraut I 5-10 mfnútur, þótt þeir verði svo að hossast og hlunkast á venjulegum malarvegi næsta klukkutimann, En fyrir þá, sem raunverulega nota vegina, oft við erfiðar að- stæöur, er þetta að sjálfsögðu hinn argasti hégómi. Þeir kysu ‘vafalaust annað, ef þeir mættu sjálfir velja. Ég mæli vafalaust fyrir hönd flestra norðlendinga, þegar ég segi, að við höfum ekk- ert að gera með rándýrt slitlag á veginum milli Akureyrar og Reykjavlkur, meðan langir kafl- ar á þessum vegi, hafa enn ekki verið byggðir upp sem fullgildir vetrarvegir Hraðbrautir út frá Reykjavík Jafnframt er ljóst, að fullkom- inn hringvegur af bestu gerð kemur að takmörkuðum notum, ef ekki eru byggðar fullkomnar tengibrautir út frá hringveginum. En af þessum 2000 milj. á ekkert að fara i tengibrautir. Væti t.d. ekki ráð að hraða byggingu fyrsta flokks vegar til Sauðárkróks, Hofsóss og Siglufjarðar, áður én fariö er að eyða 50 miljónum króna I oliumalarslitlag yfir Vall- hólmann i Skagafirði, og skyldu ekki skagstrendingar eða hvammstangabúar, svo annað dæmi sé nefnt, vilja vera sæmi- lega öruggir um að komast eftir veginum að heiman frá sér inn á þjóöbrautina suður, áður en farið er að eyða 100-200 miljónum I olíumöl í Langadal? Og hvað um Vestfirðina? Ætli vestfirðingar hafi mikinn áhuga á rennisléttum vegi upp i Norður-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.