Þjóðviljinn - 26.01.1975, Page 24

Þjóðviljinn - 26.01.1975, Page 24
UOÐVIUINN Sunnudagur 26. janúar 1975. Eftir að hafa heyrt jafn lífsreyndan mann og hann Ágúst úlfarsson segja að atburður eins og gosið hlyti að hafa meiri eða minni varanleg áhrif á fólk, datt okkur i hug að ræða við yf- irkennara barnaskólans í Vestmannaeyjum, Eirík Guðnason, og spyrja hann m.a. um hvort gosið hefði haft skaðleg áhrif á börn- in. — Jú, þvi miður, gosið hefur haft skaðleg áhrif á börnin, mis- munandi mikil áhrif og misjafnt hve langvarandi þau áhrif eru eða voru. Það er til aö mynda áber- andi hve viðkvæm mörg þeirra eru fyrir hávaða Mjög mörg börn áttu erfitt með svefn lengi eftir gosnóttina og ég veit til þess að i nokkrum tilfellum þurfti aö fara með börn til sálfræðinga. Sem betur fer virðist þetta allt vera aö lagast. Hann er minna áberandi nú en var i fyrravetur, sá skaði sem börnin hlutu af gosinu. Fyrst eftir að þau komu heim til Eyja bar nokkuð á reykingum barna i skólanum. Mér þykir trúlegt að það hafi aö einhverju leyti veriö afleiðing gossins og þeirrar röskunar sem það hafði i för með sér fyrir börnin. Og ég byggi þessa skoðun mina á þvi að i vet- ur heyrir þaö til algerrar undan- tekningar að barn reyki i skólan- um. Þetta virðist sem sagt allt vera að lagast. — Fannst ykkur að börnin ættu erfiðara með nám eftir að þau komu aftur til Eyja en áður? Þær heita Helga og Aróra þessar litlu hnátur og voru svo vinsamlegar að visa óratvisum blaðamanni til vegar. Rætt viö Eirík Guönason yfirkennara barnaskólans í Vestmannaeyjum Eirikur Guönason yfirkennari barnaskólans i Vestmannaeyjum. Gosið tók mjög á börnin — Já, það var áberandi i fyrra vetur. En það á fleiri orsakir en sálfræðilegan skaða sem börnin hafa orðið fyrir við gosið. Þau voru aö koma heim til Eyja allan veturinn og höfðu haft mjög mis- munandi námsskrá uppá landi, enda nokkur munur á náms- skrám eftir þvi hvar er á landinu. Þetta hygg ég að hafi veriö aðal orsökin fyrir þvi hve laklega þeim gekk i fyrra, enda má segja að þetta sé nú allt komið i lag. Þá var það einnig svo i fyrrahaust að ráðið var of litið kennaralið að skólanum enda var ekki búist við eins miklum fjölda barna i skól- ann og raun varö á. Heim- flutningur fólks var mun örari en búist var við. — Er skólinn nú orðinn eins fjölmennur og hann var fyrir gos? — Nei, ekki alveg. Fyrir gos voru 950 börn á aldrinum 6 til 13 ára I skólanum, nú eru þau orðin 627, svo þaö vantar ekki mikið uppá. Skólinn tók til starfa strax haustið eftir að gosinu lauk og þá voru það 120 börn sem byrjuðu i skólanum. — Virðist þér bera á nokkrum ótta meðal barnanna við að búa i Vestrhannaeyjum eftir gosið? — Nei, ég hef ekkert orðið var við það. Þau spjalla um gosið al- Barnaskólinn i Vestmannaeyjum. Giöggt má sjá sprungurnar I veggjum hússins, sem komu i gosinu. veg róleg og virðast ekkert óttast að það geti endurtekið sig. Það er svo með börnin eins og fullorðna fóikið að þau eiga erfitt með að sætta sig við Heimaey eftir gos. Það tekur fólk svona um vikutima að jafna sig á þvi hvernig þetta litur allt út, en eftir það virðist manni allt vera i lagi. Hefurðu heyrt um það að börn hafi fengiö taugaáfall gosnóttina? — Já, ég hef heyrt um það, enda væri það furðulegt ef einhver þeirra hefðu ekki fengið áfall. Þetta var full strembið fyrir full- orðna fólkið hvað þá börnin. En ég held að það sé nú allt komið i lag. — Hvernig hefur ykkur gengið að fá kennara að skólanum eftir gos? - — Mjög vel, við erum mjög heppnir með kennaraliðið. Marg- ir af okkar gömlu kennurum eru komnir aftur, þó ekki allir. En hinir nýju sem komið hafa i staðinn eru afbragðs kennarar. — Er eitthvað um að fólk flytji aftur til lands eftir að hafa flutt til Eyja eftir gos? — Nei, þeir eru mjög fáir sem það hafa gert. Eins er það með börnin aö mér virðist, þau vilja alls ekki fara aftur til lands. —S.dór Ellilaun fylgi vísitölu Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík sam- þykkti að beina eftirfar- andi tilmælum varðandi tryggingamál til alþingis og ríkisstjórnar: 1. Aðalfundurinn telur sjálfsagt aö laun elli- og örorkulifeyrisþega svo og ekkjulifeyrisþega fylgi visitöiu framfærslukostnaöar. 2. Aðalfundurinn telur æskilegt, að elli-, örorku og ekkjulffeyris- þegar, sem eru algerlega tekju- lausir og sjúkratryggingar greiða fyrir vegna langdvalar á stofnun- um fái greidd a.m.k. 25% lág- marksbóta i vasapeninga. Miðstjórnarfundur Miðstjórn Alþýðubandalagsins er boðuð til fundar föstudaginn 31. janúar n.k. Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu 3 og hefst kl. 20.30. Ragnar Arnalds

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.