Þjóðviljinn - 31.01.1975, Side 6

Þjóðviljinn - 31.01.1975, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. janúar 1975. Sigrast vestrænn sósíalismi á auövaldskreppu Evrópu? Réttur er eina tlmaritiö um þjóðféiagsmál og sósialisma, sem komið hefur reglulega út á tslandi. Réttur er biátt áfram ómissandi öllum þeim sem fjaila um þjóðfélagsmál frá degi til dags og einnig öllu áhugafólki um þjóðfélagsmál. Nú nýlega er komið út 4. hefti Réttar, 57. ár- gangs, 1974. Alls er árgangurinn hálft þriðja hundrað siðna og þar er að finna margskonar fróðlegt efni. Þar koma við sögu um 20 höfundar, en hlutur rit- stjórans, Einars Olgeirssonar, er þó mikiu mestur. Algert sjálfstæði t greinum hans er margskon- ar fróðleik að finna. í fjórða heftinu veltir hann fyrir sér stöðu sósialismans og verka- lýðshreyfingarinnar andspænis heimskreppu auðvaldsins — „Sigrast vestrænn sósialismi á auðvaldskreppu Evrópu?” í greininni er reynt að brjóta til mergjar ný vandamál I stjórn- list verkalýðshreyfingarinnar við nýjar aðstæður og kemur Einar viöa við I greininni, sem er um 15 siöur. Hann ræðir um Sovétrikin og sósialiska flokka Vestur- Evrópu, svo dæmi sé nefnt, og segir: „Algert sjálfstæði þessara flokka, gagnvart auðmanna- stéttunum annars vegar og Sovétrikjunum hins vegar er forsenda fyrir samstarfi þeirra og sigri. Frakkland sýnir hvaða möguleikar skapast strax og slikt samstarf er hafið” — (Samstarf verkalýösflokkanna. —innsk. Þjv.) í þessu sambandi birtir Einar skemmtilega til- vitnun I Engels: „Verkalýðshrey fingin á allt undir hvassri gagnrýni á rikj- andi þjóðfélag. Gagnrýni er lifs- viðurværi hennar. Hvernig gæti hún sjálf ætlaö að koma sér und- an gagnrýni, viljaö banna um- ræður. Krefjumst vér þá af öðr- um málfrelsis fyrir okkur, til þess að afnema það svo sjálfir i eigin röðum?” (Bréf Engels til danans Gerson Triers, 18. des. 1889.). Einar leggur áherslu á það i grein sinni að hræöileg misnotk- un rikisvaldsins eigi að verða sósialistum á vesturlöndum að- vörun og áminning til verkalýös Einar Olgeirsson Adda Bára Sigfúsdóttir. Gils Guömundsson. Einar Olgeirsson fjallar um þessa spurningu meðal annarra í ýtarlegri grein í nýútkomnum Rétti vesturlanda. „Sósialismi vest- urlanda, sem sjálfur hefur átt snillinga sem Bernard Shaw, Anatole France og Bertolt Brecht mun sjá til þess að and- legt frelsi verði ekki i fjötra keyrt þegar honum hefur tekist að vinna bug á verstu auð- drottnum I löndum sinum.” Alþýöuf lokkurinn 1 grein um Alþýðuflokkinn segir Einar Olgeirsson I upp- hafi: „Alþýðuflokkurinn lifir um þessar mundir örlagastund sina. Þá veröur útkljáð hvort hann veslast upp og deyr eða hvort hann hverfur af þeirri óheillabraut, sem leitthefur yfir hann stöðuga hnignun. Á slikri stund er hollt fyrir þá, sem fylgt hafa flokknum, að lita til baka og rannsaka orsakir þess, hvernig komið er. „Einar 01- geirsson gekk i Alþýðuflokkinn 1921 og I grein sinni rifjar hann upp margt af þvi, sem ógæfunni olli, — ræöir ýmis hina glötuðu tækifæra og bendir á hvað af mætti læra. „Til þess eru vitin að varast þau.” 1 grein Einars koma fram margar fróðlegar sögulegar upprifjanir og greinin á áreið- anlega erindí til ailra þeírra sem hafa hugleitt hlutskipti Al- þýðuflokksins, ma. þeirra, sem enn eru i Alþýðuflokknum. Almannatryggingar Adda Bára Sigfúsdóttir, vara- formaður Alþýðubandalagsins, var sem kunnugt er aöstoðar- maður heilbrigðisráðherra, Magnúsar Kjartanssonar, i tið vinstristjórnarinnar. 1 grein 1 Rétti „Almannatryggingar und- ir stjórn Alþýðubandalagsins” rekur hún þær miklu umbætur sem gerðar voru á trygginga- málunum i tið vinstristjórnar- innar. Grein Oddu Báru er glögg heimild um þau stórvirki sem unnin voru þá þratt fyrir stuttan tima og slæman arf frá við- reisnarárum. Ekki veröa breyt- ingar tryggingamálanna taldar upp hér, en þeir sem vilja þekkja sem best hlut Alþýöu- bandaiagsins i tryggingamálum þurfa aö lesa grein öddu Báru. Það er ekki siður fróölegt fyrir andstæöinga Alþýðubandalags- ins en samherja. Eina hættan Nú I marsmánuði verður haldinn framhaldsráðstefna um hafréttarmál i Genf. 1 Réttar- heftinu skrifar Gils Guðmunds- son, alþingismaður, yfirlits- grein um hafréttarmál. 1 lok greinar sinnar segir Gils: „Æskilegustu málalok fyrir okkur islendinga eru að sjálf- sögðu þau, að þegar á næsta ári (greinin er skrifuð 1974 eins og aðrar greinar Réttarheftisins — innsk. Þjv.) takist að fá settar alþjóðareglur, sem við getum hæglega unað. Fari ráðstefnan hins vegar með öllu út um þúfur og fyrir liggi, að ekki verða sett um hafréttarmál alþjóðalög I bráð, er fullvist að hver þjóðin á fætur annarri gripur til einhliöa útfærslu og friðunaraðgerða. Þá þróun mála þurfum við i sjálfu sér ekki að óttast svo mjög. Eina hættan, sem að okkur kann að steðja i þessum efnum er sú, aó hugmyndin um 200 milna auðlindaiögsögu strandrikis verði útþynnt með undantekn- ingarákvæðum, framkvæmdin falin alþjóðastofnun og úrskurð- arvaldið alþjóðadómi. En það á að vera auðið að koma i veg fyr- ir slikt.” Gils Guðmundsson hefur, sem kunnugt er, fylgst með hafrétt- armálunum fyrir hönd Alþýðu- bandalagsins og hefur á siðustu árunum sótt margar alþjóða- ráöstefnur um þau mál. Sl. sumar sótti Gils hafréttarráö- stefnuna I Karakas. „I ríki útvaldra" í Rétti er birt minningargrein um Þórberg eftir Einar Olgeirs- son. Einnig birtir Réttur grein- ina „Meistari Þórbergur I „riki útvaldra”." Þaöan er þetta sýnishorn: „Meistari Þórbergur hélt rak- leitt til himnarikis. Drottinn allsherjar tók sjálfur á móti honum i hliðinu gullna dapur i bragöi. Meistarinn hneigði sig djúpt og sagði: Þá er ég loksins kom- inn. Fékkstu frá mér skilaboðin, fimmtiu ára gömul, drottinn minn? Og hann sló á öxlina á drottni og sagði kankvis: Hvað liður byltingunni sem viö boðuö- um, félagi sæll?” Áskriftir Astæða hefði verið til þess að geta nánar um efni Réttar i sið- ustu árgöngum. Verður vonandi tækifæri til þess fljótlega. Nokkrir síðustu árgangarnir eru enn fáanlegir. Þjóðviljinn heitir á alia les- endur slna að gerast áskrifend- ur að Rétti. Afgreiðsla Réttar er að Skólavörðustíg 19. Slminn er 17500. Þagað gat ég þá með sann Heiðraöi samherji. Það yrði vist aöeins til að skemmta skrattanum ef við fær- um aö deila um bæjarmál Kópa- vogskaupstaðar. Þó get ég ekki látið hjá liða aö senda þér fáeinar linur i tilefni af grein þinni I Þjóö- viljanum 20. þ.m. Þú viröist dálitið sár vegna þess að ég skyldi ekki undan- þiggja þig þeirri ádeilu, sem ég beindi að bæjarstjórn Kópavogs i grein er ég skrifaði I sama blað nokkrum dögum áður. Það var aöallega þrennt sem ég gerði að umtalsefni i grein minni. I fyrsta lagi Kópavogsgjáin, þá miðbæinn og siðast en ekki sist meðferðin á samgöngumálum okkar Kópa- vogsbúa. Þú játar strax að gjáin hafi frá upphafi verið þitt áhugamál og var mér þaö raunar fullkunnugt. Hitt vissi ég ekki að þú værir oröinn gagnrýninn á miðbæjar- ævintýrið. Ég hafði verið með þér á fundum þar sem tekist var á um þetta mál og gat ég þá ekki betur heyrt en þú værir hallur undir málstað þeirra sem fastast slóg- ust fyrir miðbæjarfarganinu. En hafir þú nú skipt um skoðun, er það mér gleðiefni, þó seint sé, þvi erfitt mun að snúa við i ófærunni miðri. Þvi gætir þú sagt með kerlingunni: „Þagað gat ég þá með sann, þegar Skálholtskirkja brann.” Um strætisvagna Kópavogs hefur talsvert verið skrifað að undanförnu, aðallega i þeim til- gangi að fá leiöréttingu á þeim skemmdarverkum sem unnin hafa veriö á þessu þjónustufyrir- tæki okkar Kópavogsbúa. Það er þvi gott að fá þig til liðveislu, — þann mann, sem rekiö hefur þetta fyrirtæki I 15 ár af óvenjulegri hagsýni og ósérplægni. Fyrrverandi rekstrarhalla- stjóri Kópavogs, sem skrifar um strætisvagnamáliö I Morgun- blaðið 22. janúar sl. segir þar: — „Vitanlega var leitað ráða hjá þeim sem taldir voru hafa reynslu eða sérþekkingu i þess- um efnum.... Mikið samráð var haft við strætisvagnastjóra.” — Og nú langar mig að spyrja: Var leitað til þin um ráð eða tillögur varðandi þetta mál? Var „mikið samráð” haft við þina gömlu starfsfélaga, sem lengst hafa ekið strætisvögnum Kópavogs? Ef svo hefur verið held ég að ykkar ráð hafi verið að litlu höfö. Annars er það farið aö verða vafamál hvort deila beri á bæjar- stjórnir fyrir það sem þær eru taldar gera eða láta ógert. Allir sem til þekkja, vita að þær eru þegar orðnar litið annað en leik- brúöur i höndum embættismanna og hinna svokölluðu sérfræðinga. Við ættum þvi kannski aö lita til þeirra með kristilegu umburöar- lyndi og segja meö meistaranum: Fyrirgef þeim þvi þær vita ekki hvað þær gera. Með vinsemd Gunnar Eggertsson. Nokkrar línur til Ólafs Jónssonar frá Gunnari Eggertssyni

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.