Þjóðviljinn - 27.02.1975, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJFNN Fimmtudagur 27. febrúar 1975
Ó.L. — Útsalan
í dag:
Dömusíðbuxur á kr. 1.788.00
Herrabuxur (terelyn)
á kr. 1.788.00
Loðfóðraðir drengjajakkar
Flauelsbuxur
Herraskyrtur
Varan er góð,
verðið frábært
Opið til hádegis á
laugardögum
Ó. L.
Laugavegi 71. Sími 20141
Inúk
Komið heim úr
Norðurlandaför
Efni leiksins vakti menn til umhugsunar, ekki síst dani
Leikhópur Þjóöieikhússins sem
samdi og sviösetti leikritiö um
Inúk-manninn er nú nýkominn úr
Noröurlandaför. Var leikurinn
sýndur f Noregi, Finnlandi, Svi-
þjóð og Danmörku. Blaöinu hafa
nú borist leikdómar þariendra
biaöa um þessar sýningar og af
þeim að dæma hefur förin gengiö
aö óskum.
Leikurinn var fluttur á islensku
að frátöldu einu atriði: texti sá
sem túristaleiðsögumaðurinn
segir fram var fluttur á þvi máli
sem við átti i hverju landi. Sumir
gagnrýnenda kvarta yfir þvl að
hafa litið skilið I textanum en
taka þó fram að leikritið sé svo
myndrænt að það komi litt aö sök,
söguþráðurinn og megininntak
verksins hafi komist fyllilega til
skila.
En litum á hvað leikrýnar segja
að öðru leyti.
Það er greinilegt að efni verks-
ins hefur komið þeim á óvart og
haft mikil áhrif á þá þvi megnið
af umsögnunum eru hugleiðingar
um þann menningarárekstur sem
verkið lýsir og hörmulegar afleið-
ingar fyrir grænlendinga og
menningu þeirra. Einkum er
þetta áberandi i dönsku blöðunum
og ekki nema eölilegt. Sú vest-
ræna menning sem lýst er sem
eyðingarvaldi i Grænlandi er
fyrst og fremst dönsk. Þaö er
hreint ekki laust við að leikrýnir
ihaldsblaðsins Berlingske Tid-
ende sé móðgaöur fyrir hönd um-
bjóöanda sins, danskrar yfirstétt-
ar. En samt getur hann ekki orða
bundist um veröleika sýningar-
innar: „tslensku leikararnir náðu
fram ósmáum áhrifum, einkum i
stilfærðri lýsingu sinni á fortið-
inni — hún var sterk, lifandi og
ekki laus við húmor. Einföld og
falleg.”
Fyrirsögn leikdómsins i Aktuelt
er svohljóðandi: Et velrettet
harpunkast mod vores samvittig-
hed. Eftir ýmsar vangaveltur um
leikinn og umsagnir eins og ,,frá-
bært leikhús” um frammistöðu
leikenda (sem jafnframt eru höf-
undar) segir gagnrýnandinn: —
Svona hugsa þeir þá til okkar of-
an af íslandi. Og við getum ekki
visað gagnrýninni á bug með þvi
að þeir þekki okkur ekki, þvi það
gera þeir.
1 Politiken segirma. svo: — Hin
blóðuga kaldhæðni i þessum af-
drifarika árekstri verður enn
sterkari ef horft er til þess að
Grænland er liklega eina landið i
heiminum þar sem hin vestræna
menning nálgaðist ekki með
púðrið og guðsoröið að . vopni
heldur reyndi til hins itrasta að
sýna skilning og tillitssemi. En
það virðist ekki hafa farið neitt
betur.
Hér verður ekki tiundað meira
úr leikdómum, en þeir sem ekki
er vitnað til eru undantekningar-
laust mjög jákvæöir I garð leik-
ritsins, höfunda þess og flytjenda.
En þessi leikför virðist hafa
gert mikið til þess að kynna is-
lenska leiklist þvi bæði sænsk og
finnsk blöð (þám. Dagens Nyhet-
er, útbreiddasta blað Sviþjóðar)
birta greinar um leikstarfsemi á
tslandi og viðtöl við Svein Einars-
son leikhússtjóra sem var með I
förinni. —ÞH
Aðalfundur
V erzlunarmannaf élags
Reykjavíkur verður haldinn
að Hótel Sögu, Súlnasal, í
kvöld, fimmtudaginn 27.
febrúar 1975 kl. 20
Dagskrá samkvæmt félags-
lögum
Verzlunarmannafélag Reykjavikur.
Aðvörun
um stöðvun atvinnurekstrar
vegna vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10, 22. mars 1960,
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir okt.-des. 1974, og nýálagðan
söluskatt frá fyrri tima, stöðvaður, þar til
þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu
gjöldum, ásamt áföllnum dráttarvöxtum
og kostnaði. Þeir sem vilja komast hjá
stöðvun, verða að gera full skil nú þegar
til tollstjóraskrifstofunnar við Tryggva-
götu.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
25. feb. 1975
Sigurjón Sigurðsson
Auglýsingasiminn er 17500
Einn þekktasti leikari dana
Ebbe Rode
skemmtir í Þjóðleikhúsinu
Einn af þekktustu leikurum
Danmerkur Ebbe Rode kom til
landsins i fyrradag, þriðjudag 25.
febrúar og mun hann skemmta
tvisvar sinnum i Norræna húsinu
og einu sinni hjá Þjóðleikhúsinu.
Ebbe Rode skemmtir hjá Þjóð-
leikhúsinu annað kvöld, fimmtu-
dag, og flytur skemmtiatriði sin i
Leikhúskjallaranum kl. 20.30.
Efnisskrá sú sem hann flytur
þar er þannig:
1. Persónulegar minningar um
Poul Reumert
2. Nokkrar svipmyndir úr
þekktum leikritum, listamaður-
inn rifjar upp gömul og ný hlut-
verk.
Ebbe Rode hefur einu sinni ver-
iðhér á leikferðalagi, en það var
árið 1958 þegar Folketeatret i
Kaupmannahöfn sýndi leikritið
,,30 ára frestur” eftir Soya i Þjóð-
leikhúsinu. Þá fór hann með aðal-
hlutverk leiksins.
Ebbe Rode er mjög kunnur
upplesari og hefur farið viöa sem
slikur. Hann hefur lengst af verið
leikari á Konunglega leikhúsinu i
Kaupmannahöfn og leikur þar nú.
AHs mun hann hafa leikið um 150
hlutverk á leiksviði. Hann hefur
einnig leikið mikið i útvarpi og
sjónvarpi og hlutverk hans i kvik-
myndum munu vera alls um 40.
Kvæntur er hann leikkonunni
Ninu Pens, sem kemur hingað
með manni sinum. Hún er kunnur
leikari i Danmörku og hefur leikið
mikiö bæði i leikhúsum og i kvik-
myndum.
Ebbe Rode
Breiðholtsbúar!
Kostaboö á kjarapöllum
Tvö dæmi um afslátt á kjarapöllum: Fiesta eldhúspappir og ÞRIF
Margar vörutegundir á óbreyttu verði
OPIÐJUKL 10 ALLA FOSTUDAGA
Seljabraut 54, simi 74200 og 74201.
Kjöt ogfiskur