Þjóðviljinn - 27.02.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 27.02.1975, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 27. febriiar 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Náttúruverndarráð: Ottast mengun frá Kröflu Heimamenn við Mývatn og Náttúruverndarráð ma. óttast að lifkeðju Mývatns komi til með að stafa hætta af afrennslisvatni frá gufuaflsstöðinni við Kröflu nema sérstakar ráðstafanir séu gerðar. Arni Reynisson, framkvæmda- stjóri Náttúruverndarráðs, sagði blaðinu að frá gufuaflsvirkjun af þeirri stærð, sem ætlað er að reisa við Kröflu, falli 5-600 litrar á sekúndu af heitu borholuvatni sem inniheldur kisilbrennisteins- sambönd, fosföt og einhver önnur snefilefni. Til þess að þetta frá- rennsli lendi ekki f Mývatni og skaði lifkeðju þess, þarf að koma þvi fyrir á einhvern hátt. Til þess hafa verið nefndar nokkrar leiðir, mismunandi dýrar, en þó er ekki vitað hversu mikill kostnaðar- munur er á leiðunum, og einnig eru þær mismunandi öruggar. Árni sagði, að i augum Nátt- úruverndarráðs yrði að vera al- veg tryggt, að afrennslisvatn valdi ekki skaðlegri mengun i Mývatni. Ekki hefur enn þá verið tekin á- kvörðun um það af framkvæmda- aðiljum hvaða leið skuli valin til þess að losna við frárennslið. Sett hefur verið á laggirnar samstarfsnefnd i máli þessu skip- uð fulltrúum Náttúruverndarráðs og Orkustofnunar, og mun hún setja fram óskir sinar við Kröflu- virkjunarstjórn i samráði við heimamenn. —úþ Elsti Norður- landabúinn látinn STOKKHÓLMI — Anna Mathilda Johansson andaðist á sunnudags- kvöld á heimili sinu i Varberg i Hallandi, 109 ára að aldri. Hún var elsti ibúi Sviþjóðar, og senni- lega Norðurlanda allra. Bana- meinið var inflúensa. Tvö sérkennileg dufl Eins og fram hefir komið i fjöl- miðlum hafa nýlega fundist tvö sérkennileg dufl við suðurströnd Islands. Arið 1972 fannst sams- konar dufl við Vestmannaeyjar. Dufl þessi virðast vera hlustunartæki til að fylgjast með ferðum skipa og kafbáta og eru hönnuð til að liggja á mjög miklu dýpi. Þau virðast vera hluti af hlustunarkerfum sem tengd eru með rafstreng við landstöðvar eða skip. Ekki er unnt að sjá hvar nefnd dufl eru framleidd en ýmsir hlut- ar þeirra virðast vera af sovésk- um uppruna. ókleyft er að vita hvaðan dufl þessi hefir rekið til Islands, en samskonar dufl hafa fundist sjórekin i nágrannalönd- um. Utanrikisráðuneytið, 25. febrúar 1975. Skoðið húsgagnaúrvalið - það er hvergi meira - og verðið ér við allra hæfi. Við bjóðum staðgreiðslu afslátt eða JL-kaupsamninga. Aðeins í/4 hluti sem útborgun gg eftirstöðvarnar eigið þér kost á að fá lánaðar til allt að 18 mánaða. KOSTA KJÖR Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum húsiö Verzlið þQar sem úrvalið er mest og kjörin bezt 28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild 28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild Bóka mark aóur inn Góóar bækur Gamalt Fimmtudaginn Föstudaginn Laugardaginn Mánudaginn Þriðjudaginn Miðvikudaginn Fimmtudaginn Föstudaginn Laugardaginn 27. febr. 28. febr. 1. marz 3. marz 4. marz 5. marz 6. marz 7. marz 8. marz frá kl. 9—18 frá kl. 9—22 frá kl. 9—18 frá kl. 9—18 frá kl. 9—22 frá kl. 9—18 frá kl. 9—18 frá kl. 9—22 frá kl. 9—18 Bókamarkaóurinn Í HÚSI IÐNAÐARINS VID INGÓLFSSTR/ETI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.