Þjóðviljinn - 02.03.1975, Síða 6
'6'sÍðA — ÞJÓÐVILJÍNN Sunnudagur 2. marz 1975
Ragnar Arnalds:
Er kannski rétt að selja
skuttogara úr landi?
Fáein orö um
furöuskrif Alþýðublaðsins
Er rétt aö selja þessi skip úr iandi?
Loksins hafa forystumenn
Alþýöuflokksins fundið, hvað er
að islensku efnahagslifi: Viö
höfum keypt of marga skut-
togara! Þessi sérstæða kenning
var borin á borð i Alþýðublaðinu
fyrir nokkrum dögum (20. febr.)
af ritstjóra þess, Sighvati Björg-
vinssyni, alþm. Hér kemur
sýnishorn:
,,ég segi að min skoðun sé sú, að
krónískan (sic) i efnahagssjúk-
leika okkar megi að verul. leyti
rekja til þess að framkvæmda-
valdið — miðstjórnarvaldið, ef
menn endilega viija láta það svo
heita — á tslandi sé svo veikt —
m.a. af rfkisstjórn ólafs
Jóhannessonar — að það
hreinlega hefur ekki haft stjórn á
landinu. Ljóst dæmi um þetta eru
t.d. hin gffurlegu skuttogarakaup.
Þar var verið að leggja út á ein-
hverja mestu og örustu fjár-
festingu, sem islenska þjóðin
hefur ráðist I og hún hefur bundið
sér mikiar skuldaklyfjar til langs
tfma hennar vegna... Hvaða
annar sjávarútvegsráðherra en
sjávarútvegsráðherra tslands,
Lúðvik Jósefsson, myndi hafa
leyft sér að ganga um meö skut-
togara i vasanum, dreifandi
þeim út eins og brauðkorni til
smáfugia segjandi: „Púdd —
púdd”? ”
Ef til vill segir einhver, að ekki
sé rétt að eyða skotum á dauða
spóa eða elta ólar við
tilviljunarkennt fimbulfamb i
Alþýðublaðinu. En þess vegna er
hér minnst á þessi skrif, að þau
eru i raun og veru dæmigerð fyrir
áróðurstaktik forystumanna
Alþýðuflokksins um þessar
mundir — stjórnarherrunum til
mikillar ánægju en verklýðs-
hreyfingu og vinnandi fólki til
tjóns.
Það hefur vakið almenna
eftirtekt, að i hvert skipti sem
Gylfi Þ. Gislason ræðir opin-
berlega um efnahagsmál ræðst
hann aðallega á vinstri stjórnina
og þá sérstaklega á Alþýðu-
bandalagið og reynir að telja fólki
trú um, að núverandi efnahags-
öngþveiti sé vinstri stjórninni að
kenna. Þegar útvarpið leitaði
álits Gylfa, daginn sem gengið
var seinast fellt, svaraði Gylfi
stutt og laggott: Gengið var
þegar fallið! — og sneri siðan
spjótum sinum að vinstri stjórn-
inni. Skrif Sighvats um hin
voðalegu skuttogarakaup eru
sem sagt eins konar tilbrigði við
stef, sem Gylfi er búinn að vera
aö raula siðan i sumar.
Samvinna stjórn
arandstæöinga
Þessi þráhyggja forystumanna
Alþýðuflokksins á sér að sjálf-
sögðu ýmsar skýringar. Engum
dylst, að Alþýðubandalagið hefur
reynst Alþýðuflokknum erfiður
keppinautur i tvennum alþingis-
kosningum. Jafnframt höfum við
Alþýðubandalagsmenn ekkert
verið að fela þá skoðun okkar, að
Alþýðuflokkurinn væri deyjandi
flokkur og ætti að vikja fyrir
raunverulegum sósialiskum
jafnaðarmannaflokki. Þróunin
hefur stutt okkar mál, enda fór
það varla fram hjá neinum i
sumar, hversu nálægt grafar-
bakkanum Alþýðuflokkurinn
stendur.
En eitt er, hvað forystumenn
flokka hugsa hver til annars, og
annað, hvaða skyldur þeir bera.
Flokkar verkalýðshreyfingarinnai
hafa löngum átt i innbyrðis bar-
áttu, og það er gömul saga, að
bræður berjast. Eftir sem áður er
það skylda þeirra, að vinna
saman, ef þess er nokkur kostur.
Við núverandi aðstæður, þegar
gerð hefur verið hrikalegri árás á
lifskjör fólksins en sést hefur um
mjöglangtskeið, er þörfin á sam-
vinnu þessara flokka sérstaklega
brýn. Almenn pólitisk samstaða
er að visu ekki fyrir hendi, og
áfram munu flokkarnir berjast
um fylgi vinstri sinnaðra kjós-
enda. Þannig verður það að vera.
En þeir eiga og verða að leita
eftir frekari málefnalegri
samstöðu sin i milli, ekki sist i
stjórnarandstöðu gegn voldugum
meiri hluta. Einróma samþykkt i
verkalýðsfélaginu Einingu á
Akureyri s.l. sunnudag, sem
einmitt gekk i þessa átt var tima-
bær áminning til allra andstæð-
inga nýverandi rikisstjórnar frá
félagi, sem frægt er fyrir hörð
innri átök.
En nánari samstaða
stjórnarandstöðuflokkanna i
efnahags- og kjaramálum verður
ekki til af sjálfu sér. Menn verða
aö byggja á sameiginlegum for-
sendum. Og þvi er ekki að leyna,
að þar eru skuttogarakaupin
einskonar prófmál, sem getur
ráðið úrslitum um það, hvort
menn reynast á sömu bylgjulengd
eða ekki. Það er þvi ekki úr vegi
að fara nokkrum orðum um rétt-
mæti þessarar stórfelldu fjár-
festingar sem ýmsum fleiri en
Sighvati vex i augum.
Atvinnuleysið
var þurrkaö út
Aukinn jöfnuður og aukin fram-
leiðsla voru lykilorðin i efnahags-
stefnu vinstri stjórnarinnar, og
þetta eru reyndar markmið, sem
Alþýðuflokkurinn hlýtur að geta
skrifað undir. 1 vinstri stjórninni
byggðist áherslan á aukna fram-
leiðslu ekki aðeins á þeim ein-
földu sannindum, að framleiðslan
er undirstaða lifskjaranna. Hitt
vó enn þyngra, að viðsvegar um
land voru fjöldamargir staöir,
sem árum saman höfðu búið við
stórfellt atvinnuleysi. Þess vegna
setti rikisstjórnin það beinlinis i
máiefnasamning sinn, að þegar
yrðu keyptir a.m.k. 15-20 skut-
togarar til landsins, og jók lána-
fyrirgreiðslu til skuttogarakaupa
svo verulega, aö á fáum
mánuðum varð þetta áform að
veruleika. Þó dugði það ekki til. 1
heilan áratug hafði endurnýjun
togaraflotans verið vanrækt. Til
að fylla hin augljósu skörð i
atvinnulifi þriggja lands-
fjórðunga nægði ekki minna en
yfir40 skuttogarar. Atvinnuleysið
varö að þurrka út og það varð
aðeins gert með mjög þungri
áherslu á framleiðsluatvinnu-
vegina. Þetta var ein ástæðan til
þess að sölumál lagmetis-
iðnaðarins voru endurskipulögð
með miklum fjárframlögum
rikisins — verkefni, sem viðreisn-
arst jórnin hafði vanrækt i áratug.
Og eins var með hinar stórfelldu
endurbætur á frystiiðnaði lands-
manna, sem hafnar voru i tið
vinstri stjórnarinnar og vafalaust
eiga eftir að kosta annað eins og
skuttogarakaupin, áður en lýkur.
Áætlunargerð um
fiskiskipakaup
Það er rétt, sem Sighvatur
segir i grein sinni, að
heildaráætlun var ekki gerð um
þessi miklu skuttogarakaup, og
skýringuna hef ég þegar nefnt.
Þegar fyrri stjórnarflokkar komu
til valda, var þörf þessara staða,
sem lengi höfðu búið við atvinnu-
leysi, svo augljós og æpandi aö
fráleitt hefði verið að láta efna-
hagssérfræðinga liggja yfir þvi
um langt skeið að gera áætlun um
fiskiskipakaup. Áætlun á við, þar
sem valið er erfitt, en hún á ekki
við um sjálfsagða hluti, sem ekki
þola bið.
RÁÐSTEFNUR
FUNDIR NÁMSKEIÐ
í burtu f rá bæjarstreitu
Hin vinsælu EDDU HÓTEL verða
opin frá miðjum júní til
loka ágústmánaðar.
Hótelin bjóða góða aðstöðu
til hvers konar einkasamkvæma,
funda- og ráðstefnuhalds í
þægilegu umhverfi.
Vinsamlega pantið með góðum
fyrirvara.
Allar frekari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu okkar að
Reykjanesbraut 6, sími 11540.
FERDASKRIFS’TOFA
TWt RfKISINS
%o
rOURIST