Þjóðviljinn - 02.03.1975, Side 10

Þjóðviljinn - 02.03.1975, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. marz 1975 Árni Larsson Á eigin augum fótum — eða í náungans Árni Larsson. Leikfang vindanna. Heykja- vik 1974. Arni Larsson hefur færst mikiö i fang meö þessum bálki sem hann kallar Leik- fang vindanna. Leikfangið er reyndar mað- urinn, efnið er að verulegu leyti ljóðrænt ferðalag hans undir sól og vindum og virð- istnafnið ekki benda til þess að möguleikar hans á þvi að láta að sér kveða i heiminum séu ýkja miklir. En það er einnig spurt að þvi, hvort maöurinn eigi ekki fleiri kosta völ en að vera „leikfang”, hvort hann geti sótt i sig veður til að gera uppreisn gegn kjörum sinum og annarra, sem markverð mætti teljast og eftirminnileg. Þetta er einskonar allsherjarsöngur ungs manns um glimu hans við nokkrar frumeiningar nátt- úru og mannlifs. Þessari ljóðfrásögn er skipt i þrjá hluta. Hinn fyrsti, Um sólina, manninn og auðn- ina, hefst með lágum tónum. Það er til- kynnt, að hlutirnir verði skoðaðir ,,i ljósi einfaldra hugmynda” og þar með boðuð sú stefna, sem fylgt er siðan, að farið er með hin einföldustu og um leið stærstu orð: sól, sem er fyrirferðarmeiri öðrum fyrirbærum i bókinni, jörð, vatn, auðn, einnig þögn og kyrrð, siðar réttlæti og gleði, byltingu og ást. Fyrst er höfundur á göngu um þetta hálfabstrakta landslag ljóðsins, tekur við áhrifum litt virkur sjálfur: og við horfum á tært vatnið meöan grjótið og birtan festast I minni En fegurð náttúrunnar er ófullnægjandi ein og sér, mannlifsvandamál gerast áleit- in, atburðir berjast „i návigi við ástriðu- lausan gróðurinn”, og „náttúran er ósnort- in af fegurðinni sem við sjáum i réttlæt- inu”. Fyrr en varir hefur höfundur hleypt sér með mikilli mælsku og afdráttarlausum staðhæfingum i gervi uppreisnarmanns gegn ótiðindum úr mannheimum, og vill þá sækja fulltingi til höfuðskepnanna eins og þær leggja sig. Fyrsta persóna ljóðsins hik- ar ekki við aö lýsa þvi yfir, að hún sé „sterkur eins og blómin, gáfaður eins og ljósið” og fleira i þeim dúr i whitmanskri sjálfshafningu. Og þennan kraft og annan á siðan að nota tií fagnaðarrikrar en heldur svona afstrakt uppreisnar eða eins og segir i betri helmingi þrettánda kvæðis bálksins: siitum fjaliháum haföldunum með dansi okkar látum svitann og tárin lýsa upp hafdjúpin og að menn geti horfst i augu og skilgreint helvitin neitum að svaia þorsta okkar með glasi af vel kældum barnstárum... risum á fætur svo að himnarnir brotni i lifvænlegar bátsskeljar undir sannieikann byltum þessum himnum með einföidu lifi byrlum kúgurum öidurót skynseminnar. Fagnaðarerindið i lok þessa bálks er tengt anarkiskri hefð: „finnum gleðina i rústum hruninna himna”, stendur þar. Þessi sama hugsun er og allfyrirferðarmik- il i miðkaflanum, sem heitir Vaidið, og er mestan part ómstriður vel. Þar er náttúran ekki eins fyrirferðarmikil og i fyrsta þætti og hlutverk hennar meö ýmsum hætti. Stundum er hún tilkvödd sem liðveisla i þjóðfélagsmálum: sannast að segja er ég I góðum félagsskap meðan sólin skriöur ekki fyrir valdinu. eða þá að hún er talin réttlætinu til traf- ala: ég hefi ýtt náttúrunni til hliöar svo ég sjái manninn i skýrara ljósi þvi enn hefur landslaginu verið beitt til að fela grafir hinna myrtu. Hvað um það, með eöa án náttúru eru lesn- ar særingar yfir neysluhugsjón, kirkju, þingi, pólitikusum. Inntakið er fyrst og sið- ast fyrirvaralaus afneitun á verðmætum sem venjulegur borgari hefur I heiðri og ■ tengist að likindum von um að þessi meðal- snápur hneykslist á afneituninni: ég hlakka til þess dags þegar allir rónar I iandinu fá að sitja i forsetastúku Þjóðleikhússins. Og þó er höfundi sérstakt kappsmál að brenna i vitiseldi samanspyrta valdamenn og illvirkja sögunnar: upptalningin byrjar á Kain og endar á Anthony Eden, með við- komu I Stalin og Nixon og viðar. Og hver er þá hinn jákvæði grundvöllur, andstæða af- neitunarinnar? Almenn yfirlýsing um sam- stöðu með fórnarlömbum valdsins: ég er aö brjóta himininn sem jarðsetti ykkur I einum byssuhveili og svo boðskapur um hinn sæla frið vald- leysis: sveigjum byssuhlaupin i spurningarmerki upp á iif og dauða leyfum köngullóarvefjum að breiða út undur sitt yfir valdastóiana... Lokaþátturinn heitir Mannaöur heimur: hann fjallar um ástina i ýmsum tengslum og tilbrigðum — við gleði, söknuö, ein- manaleika. Það er að þvi spurt hvort ekki megi stækka hana, það er spurt eftir ást sem hafnar þessu léttvæga ævintýri að elska eina manneskju meira en aðra ástinni sem sundrar sóiarlausum öreindaheimi eigingirninnar. Yfirleitt er hér slegið á hina lægri tóna, þátturinn er eins og logn á eftlr stormi, einkum þegar nær dregur lokum. Vigamóð- ur er horfinn, orð tengd þögn og tilgangs- leysi sækja á, ekkert endist „ekki einu sinni sorgin”. Þar til niðurstaðan er dregin sam- an i lokakvæðinu i angurværð, blandaðri hófstilltri von: Þaö veltur ekki á þvi hverja þú kveður, hvaða orð þú notar að skiinaði heldur er ailt undir þvi komið að handtak þitt verði heitt og þétt eins og skiiningsrikt konuskaut og þú finnir sjáifan þig i augum náungans eins og Hfvænlega frjó- sama hugsun sem snúist hefur gegn myrkrinu... I sjálfu sér er ekki erfitt að tina til ýmsar ávirðingar þessarar bókar. Benda á kvæði sem eru ákaflega smá, bæta litlu við. Nefna dæmi úr átakamestu kvæðunum um mynd- ræna misvisan, um sveiflur frá hugkvæmni og þrótti niður i smekkleysi, bruðl með orð og stórar fullyrðingar. Telja upp linur sem væru óþarfar og hefðu prýtt kvæðin með fjarveru sinni. Gagnrýna uppreisnarhug sem étur upp áhrifamátt sinn með van- hugsuðum alhæfingum. En ekkert af þessu virðist samt sérlega freistandi verkefni. Ýmis af þeim dæmum sem hér á undan fóru ættu að gefa nokkra hugmynd um að Árni Larsson kann að smiða hugsuns inni lif úr sterklegum myndhvörfum, sem hafa hemil á mælskulistinni. Það er i þessari bók ein- hver traustvekjandi ofstopi. Kröftug sókn til hreinskilni sem flækir iesandann nokkuð rækilega i spurningar höfundar um gömul og sem betur fer alltaf ný vandamál. Árni Bergmann Mogginn, stúdentar, útvarp litkoman verður oft einkenni- leg þegar Morgunblaðið tekur sig á um að kenna landsfólki sparnað, ráðdeild, ábyrgðartil- finningu. Agætt dæmi er að finna i Reykjavikurbréfi á sunnudaginn var. Eins og að lik- .um lætur er þar forðast að fara út I viðkvæma sálma eins og að prívatneysla atvinnurekenda sé færð til rekstrarútgjalda hinna rikistryggðu einkafyrirtækja landsins, sem meðal annars var á dagskrá i sjónvarpsþættinum Kastljós á dögunum. Að ekki sé minnst á það heimilisböl sem sjálfsbjargarviðleitni fjármála- ráðherra i bilakaupum er (sbr. Alþýðublaðið 18. febr.) Þess i stað er tekin upp sú aðferð, að reyna að koma þvi inn hjá al- menningi, að þjóðin i heild hafi falliði synd („óráðsia hefur ein- kennt undangengin ár, óráðsia sem flestir voru þátttakendur i” segir Reykjavikurbréf.) Þar fyrir utan er brugðið á það gam- alkunna ráð að finna þægilegan blóraböggul til að beina athygi- inni að. 1 þetta sinn eru stúdent- ar á dagskrá sem oftar. Fyrirmynd Bréfritari fer að með nokkurri varfærni, hann talar um að það sé „tiðum rætt manna á meðal” að „óþarflega langt sé gengið i hagstæðum lánveitingum og styrkjum til stúdenta”. 1 fram- haldi af þessu leitar hann að á- standi i þessum málum, sem honum sé meira að skapi og finnur það i Bandarikjunum. Hann hefur séð skýrslu þar sem segir, að um helmingur þeirra sem þar stunda æðri menntun „unnu fyrir sér að meira eða minna leyti”. Þetta telur hann dæmi um þá jákvæðu þróun að þarlendir stúdentar hafi látið af fyrri heimtufrekju og hnykkir á með þessum orðum: „Unga fólkið er að gera sér gleggri grein fyrir ábyrgð sinni við samfélagið, og kannski er þessi andi lika að ná hingað til lands. Vonandi að svo sé”. Rótseig trú bréfritara á bandariskt ágæti er svo rökvillt, aö hann virðist ekki koma auga á það, að ef að um helmingur bandariskra stúdenta vinnur fyrir sér að nokkru, þá vinnur hinn helmingurinn alls ekki með námi (og skal þá alveg ósagt látið hvernig þeir skiptast i þá sem lifa á rikum foreldrum og þá sem ekki fá vinnu o.s.frv.) Og það er ástand sem jafnvel þeim sem tortryggnastir eru i garð námsmanna hérlendis ætti að finnast einkennilegt fordæmi fyrir lsland. Að sjálfsögðu vita allir hvað Morgunblaðið er að fara: Það er leitað um löndin vitt og breitt að afsökunum fyrir kjaraskerðingu, stúdenta sem annarra. En leitin ætlar að verða i skötuliki rétt eins og málstaðurinn, enda ekki nema von. Útvarpskommar En við ætluðum reyndar að tala um útvarpið lika. Af dag- skrá þess fer ekki stórum tið- indum, enda rikir þar um þess- ar mundir dularfullt millibilsá- stand valdleysis, interregnum. Þetta birtist til að mynda i þeirri ráðstöfun, að leggja þrjá mánuði af starfsemi leiklistar- deildar undir skáldsöguna Húsið eftir Guðmund Daniels- son. Sú tilhögun er svo frumleg, aö þegna setur hljóða, nema hvað minna má á tilsvar úr þjóðsögu: Aldrei sá ég fyrr jafn langan graut i svo litilli grýtlu. Utvarpsumræðan fer reyndar að mestu fram hjá Velvakanda i Morgunblaðinu eins og kunnugt er. Þar og reyndar viðar i blað- inu, hafa að undanförnu verið leikin tilbrigði við harmakvein sem „kunnugur” rak upp i bréfi til Velvakanda i janúarlok, þar sem rakin voru niu dæmi um „stjórn kommúnista á útvarp- inu okkar”. Dæmin lutu að fólki sem hefði komið við sögu bæði hjá Þjóðviljanum og útvarpi, og Velvakandi var að stæra sig af þvi á dögunum að þau „hefðu ekki veriðhrakin”. Væri þó auð- velt að byrja á fyrsta dæminu, þar sem þvi er haldið fram, að „einn og sami maður annast bókmenntaþátt i Þjóðviljanum og útvarpinu” og er það lygi- mál. Og fleira er hæpið á þeim lista. En það er ekki nákvæmni list- ans sem skiptir máli. Heldur hitt, að eins og fram kemur i þessum og öðrum dálkum Morgunblaðsins, er fyrst og sið- ast keppt að þvi að halda um- ræðum um rikisfjölmiðla sem rækilegast innan ramma póli- tiskrar móðursýki, Þetta þýðir i raun, að yfirleitt er ekki um dagskrána sjálfa fjallað, hvort þeir menn sem nálægt henni koma ráði við sin verkefni eða ekki, hafi eitthvað áhugavert fram að færa. Heldur er á þvi hamrað, helst á hverjum degi, aö til sé hópur manna, sem vegna skoðana sinna sé fyrir- fram svo háskalegur andlegum innviðum þjóðarinnar („óráð- siuþjóðar” eða hvað?), að þeim sé ekki einu sinni treystandi til að segja frá brúðkaupssiðum til forna eða snúa siðustu poppplöt- unni fyrir unglinga. Þetta er gömul og ný aðferð, og skyld- asta hliðstæðan er McCarthy- isminn bandariski, sem stóð með blóma á kaldastriðsárun- um og meðal annars lyfti Richard Nixon til nokkurrar frægðar. Ekki fær hann Grimur gott Ekki er gott að vita, hvaða á- hrif til eða frá þetta gjörninga- veður hefur á almennan lesanda Morgunblaðsins. En likast til er þvi einna helst beint að for- svarsmönnum útvarpsins sjálfs. Sú hugsun lægi þá að baki öllu saman, að reyna með blek- hrið (og dólgslegum simhring- inum sjálfsagt einnig) að koma upp þeirri stöðu, að það sé i sjálfu sér saknæmt að láta vinstrisinna koma fram i rikis fjölmiðlunum formálalaust, rétt eins og um væri að ræða sveita- stjórnarmann að norðan eða laglega hagmæltan framsókn- arbónda. Að það athæfi sé eitt- hvað óeðlilegt grundsam'legt, krefjist útskýringar, afsökunar, réttiætingar fyrir þvi dómara- sæti sem Morgunblaðið hlamm- ar sér niður á i krafti útbreiðslu sinnar. Og ef ekki vill betur þá er aö siga þingmeirihlutanum: „Þetta stendur vonandi allt til bóta” segir Velvakandi og dreg- ur hvergi dul á það ritskoðunar- hlutverk sem ætlað er nýju út- varpsráði, frekar en Guðmund- ur Varðbergur Garðarsson á þingi. Maður heyrir fólk stundum hneykslast á þessum djöful- gangi i Morgunblaðinu. Það er ekki nema eðlilegt. Hitt er svo lakara hve gleymnir menn yfir- leitt eru á pólitiskar staðrey.nd- ir. Þvi útvarpsgauragangurinn er ekki nema ein af mörgum staðfestingum á þvi, að það má bókstaflega ekkert út af bera i borgaralegu innrætingarkerfi til að frjálslyndisgriman, sem menn setja upp öðru hvoru sér til skrauts og sjálfshafningar, detti snarlega af öðrum hverj- um manni i ihaldsliðinu. Eða þrem af hverjum fjórum. Eöa fjórum af hverjum fimm. Árni Bergmann.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.