Þjóðviljinn - 02.03.1975, Blaðsíða 13
Somnðagur 2. marz 1975 ÞJÓÐVFLJINN — SÍÐA 13
Hjördís Bergsdóttir
velur gítargrip
við vinsæl lög
Wv
; Siri
v!
UHVERRi
■V. .f 5 ^
Tökum lagið
Halló þið!
bá er ég loksins farin að heyra
frá ykkur og þykir mér vænt um
það. Ef þið hafið átt i erfiðleikum
með að ná E7-gripinu i „Veislu-
söngnum” skuluð þið setja fing-
urna i stellingu eins og þið væruð
að slá hljóminn E, sleppa fingri
nr. 3 og út kemur mjög einfaldur
E7-hljómur.
í dag tökum við fyrir lagið
„Nótt i Moskvu” að ósk Ragnars
Þorsteinssonar og er reyndar eft-
ir hann sjálfan.
Þetta er alveg nýr texti við hið
gamalkunna iag, sem við öll
sjálfsagt þekkjum vel.
Ég þakka Ragnari fyrir fram-
lagið og vonast eftir að heyra
meir frá ykkur.
Ekki í
hverri höfn!
I sjónvarpskeppni i Amster-
dam fékk háseti á farskipi
nýlega fyrstu verðlaun fyrir
orðheppni og snör svör.
Spurningu um, hvort það væri
satt, sem almannarómur segði,
að sjómenn ættu kærustu i hveri
höfn, svaraði hann af bragði:
— Það er haugalygi. Við
lendum alls ekki i hverri höfn!
Allt tekur
sinn tíma...
„NÓTT í MOSKVU”
a C F E C Ea' G
Nóttin hvilir mild yfir Moskvuborg,
C F G7 C
máninn glitrar skýjanna traf.
E7 E a
Áin dul og djúp
d
dregur geislastaf,
a E7 a
kyrrðin rikir um Rauðatorg.
Fornir turnar risa við Rauðatorg,
risatákn frá horfinni tið.
Sigur svefn á brá,
sumarnóttin blið
hvilir myld yfir Moskvuborg.
Svíar aka fleiri bíl-
um á minna bensíni
Svíar eru í hópi þeirra
þjóða sem í f yrra bættu við
sig bílum. Þeir keyptu alls
260 þúsund nýja bíla, en
lögðu í staðinn allmörgum
— fjölgaði bilum því í
reynd um 160 þúsund.
En það þykir athyglisvert, að
enda þótt bilum fjölgaði um 5,5%
frá árinu 1973, þá minnkaði
bensinneyslan nokkuð.
Bensinneyslan nam 4,2 miljörð-
um litra 1973 en 3,9 miljörðum i
fyrra. Eyðslan minnkaði sem
sagt um 300 miljónir litra.
Svíar vilja
Skoðanakönnun sem Sænska
dagblaðið hefur látið fram fara
bendir til þess, að sex sviar af
hverjum sjö vilji hafa kóng yfir
sér áfram. Ekki nóg með það: um
Astæðurnar eru ýmsar taldar:
um tima var bensinskömmtun i
gildi, þá hafa margir komist i
reynd að þeirri einföldu
staðreynd að það er hægt að
spara allt að 7,5% i bensini með
þvi að aka ögn hægar en menn
höfðu tamið sér. Og það hefur
færst i vöxt að nágrannar slái sér
saman um að aka einum bil á
vinnustað en ekki tveim eða
þrem.
Að sjálfsögðu hafa menn ekki
sparað peninga þvi bensin
hækkaði i verðinu um 30%.
kónginn
helmingur þeirra sem spurðir
voru er á þeirri skoðun að
konungur Sviþjóðar sé nú of
valdalitill.
Fyrsta umræða um upplausn
nýlendufyrirtækja fór fram i
vesturþýska þinginu fyrir
nokkru. Kom i ljós við umræð-
urnar að enn fyrirfinnast i land-
inu 20 þeirra hlutafélaga sem
stofnuð voru á timum keisara-
rikisins þýska til „þróunar
þýskra verndarsvæða”. Komst
vesturþýska þingið að þeirri
niðurstöðu nú, 57 árum eftir fall
keisara- og nýlendurikisins, að
félög þessi væru algerlega úrelt
fyrirbæri.
Silungur á vakt
Það er silungur sem vakir yfir
lifi og heilsu um 100 þús. manns
i og umhverfis frönsku hafnar-
borgina La Rochelle. Silung-
urinn var settur i drykkjar-
vatnsgeyminn og er stööugt
fylgst með honum meö sérstakri
ljósmyndunartækni. Ef hann
deyr hefur mengun vatnsins náð
þvi stigi, aö það er ekki neyslu-
hæft fyrir fólk.
Hin glæsta
framtíðarsýn
Imyndið yður geimskip fram-
tiðarinnar. Það stefnir á
stjörnuna Alpha Centauri með
áhöfn þúsund kvenna með 2000
glæsileg brjóst sem svifa um
frjáls i þyngdarleysinu ...Ég er
skipstjóri, það er laugardagur
og mál að kanna liðið.
Hjá lækninum
Og svo var það faðirinn, sem
kom til læknis:
— Sonur okkar leikur sér
stöðugt i sandkassanum, byggir
hús og býr til kökur. Er hægt að
lækna hann?
— Af hverju? Þetta er
fullkomlega eðlilegt athæfi.
— Já, stynur faðirinn. Það
finnst okkur móöur hans lika.
En tengdadóttir okkar heimtar
skilnað!
VÍSNA-
ÞÁTTUR
S.dór. =====
Nú skal óöar brýna brand
Ekki var Valdimar Lárusson
og félagi hans ánægðir með lin-
una við visuna — Nú skal óðar
brýna brand — sem Hallgrimur
Jónasson sendi okkur. Valdimar
hefur skrifað þættinum langt
bréf sem ég get ekki rúmsins
vegna birt i heild; þar segir
hann m .a.
Ég hélt að þegar ég sendi þér
þessar hendingar, þá hefði ég
skýrt út, hvað ég meinti, að þar
færi ekkert á milli mála, það
vel, að hver sá, sem eitthvert
skyn ber á islendska visnagerð
hlyti að skilja við hvað ég ætti.
þ.a.e.s. eins og ég tók fram
strax, þarna væru þrjár mis-
munandi útgáfur sömu myndar-
innar, og að nú vantaði fjórðu
útgáfuna af myndinni, sem ekki
eða helst ekki mætti vera siðri
hinum!
Ég er satt að segja furðu lost-
inn að jafn gáfaður maður og
vel að sér i isl. visnagerð og
Hallgrimur Jónasson, sem ég
tel einn snjallasta hagyrðing,
núlifandi á landi hér, að öllum
öörum ólöstuðum, skuli heldur
ekki hafa skilið við hvað ég átti.
Ég skal nú reyna að færa
fram rök, máli minu til stuðn-
ings. Við skulum þá fyrst at-
huga hendingarnar eins og þær
komu fyrst frá höfundinum:
Nú skal óðar brýna brand,
beisla ljóða dýran gand,
rims frá sjóði rekja band,
Það hlýtur hver maður að sjá,
að þarna er sama hugsunin
(myndin) endurtekin með mis-
munandi orðalagi, þarna er
hver ljóðlina sérstæð, en merk-
ing hennar sú sama, þá vantar
fjóröu ljóðlinuna með enn ööru
orðalagi, en sömu merkingu,
það er þetta sem ég og kunningi
minn vildum fá fram, ekki ein-
hverja hendingu, sem kemur
eins og vera úr öðrum heimi, og
á ekkert skylt við, eða sameig-
inlegt með hinum.
Við höfum fengið tugi af hend-
ingum á borð við þessa siðustu,
en það er bara ekki lausnin.
Svo til gamans ætla ég að láta
fylgja hér þær tvær hendingar
sem okkur hafa borist, og sem
ég gat um áður, og við teljum
vel viðunandi, en héldum þó að
e.t.v. gæti einhver gert enn bet-
ur: Sú fyrri er þannig:
Rlflegt Óðins kneifa bland.
Og sú siðari:
Ryðja slóð um Bragaland.
Að lokum ætla ég svo að láta
fylgja hér visu, sem ort var i
þorskastriðinu ’58, og ég held að
ég fari með rétt mál, að sé eftir
Kristján frá Djúpalæk, en sé svo
ekki þá biðst ég velvirðingar á
þvi, en visan er svona:
tslendingar andansvigra
ennþá draga fram og brýna.
Auðunn skökull er að sigra
Elisabetu frænku slna!
Þessi visa varð mér tilefni
annarrar um sama efni, og ætla
ég að enda þessar linur með
henni- mér finnst það ekki svo
fráleitt:
Elisabet á Auðun leitar
— hvað ei mun þó svo tltt
hjá konum —
En þegar Auðunn alveg
neitar,
ætlar hún að nauðga honum.
Með bestu kveöjum
Valdimar Lárusson.
Hannes Hjartarson frá Akra-
nesi skrifar okkur eftirfarandi:
— 1 visnaþætti i Þjóðviljanum
i dag 23. feb. er visa sem ekki er
rétt með farin. Hér er um að
ræða visuna — Svona er ástin
meyju og manns —
Ég kannast við þessa visu og i
minu minni er hún þannig:
Svona er ástin meyju og manns
menn ei þekktu slika.
Ef þú ferð til andskotans
ætla ég þangað lika.
Höfundur visunnar er Ragnar
Agústsson frá Svalbarði á
Vatnsnesi.
Ég þakka Hannesi bréfið en
ekki skal ég neitt um það segja
hvor útgáfan af visunni er rétt.
Guðmundur Ólafsson sendir
okkur þrjár visur:
Hippagrey með hunda og ketti
heilaspuna og mandolin,
eru þarna á einu bretti
utangátta og miður sin.
Sá þá i sjónvarpinu.
Staddur i
vinbúð
Þó að oft sé allt I hönk,
askar tómir og dallar,
þá er ekki þjóðin blönk
þegar bakkus kallar.
Fyrir ári eða svo hitti ég Sig-
urð Grimsson á götu og varð þá
einhver gömul visa á vegi okk-
ar, sem við mundum báöir. Þá
varð mér að orði:
Margt er ofið mál til rlms,
margt af þvi er lélegt bull.
Einu sinni Siggi Gríms
sagði það sem stendur gull.
Guðmundur Ólafsson
Frakkastig 15
R.
Botnar
Þá er að snúa sér að þeim
botnum sem okkur hafa borist
við siöasta fyrripart sem þvi
miður misritaðist en i stað —
Ihaldskórinn — átti að standa —
ihaldsmórinn.— Þetta kemur þó
ekki rimfræðilega að sök,en k-ið
var vissulega hortittur eins og
margir hafa bent á.
Þá er fyrriparturinn réttur
svona:
Ei má bæta kaup og kjör
kvakar Ihaldsmórinn:
Veitum honum verðug svör
verkum auðvaldsflórinn
R.B.
Það sjást jafnan þrælaför
þar sem kreppir skórinn.
V.L.
Framsókn cr að komast I kör
kreppir hernáms-skórinn.
J.P.
Ekki veit ég hvort þessi mis-
ritun hefur orðið til þess að
mennhafa sent mun færri botna
nú en alltaf áður, nema menn
hafi misst áhugann fyrir að
botna. Þess vegna held ég að
best sé að sleppa fyrriparti i það
minnsta um sinn.
—S.dór
Það stóð ekki á svari frá Adólf
Petersen vegna konuárs-visn-
anna sem birst hafa i tveim siö-
ustu þáttum. — Kona — svaraöi
visu Adólfs i siðasta þætti og nú
segir Adólf:
Þina samúð þakka vil,
það er raunabótin,
að góövildin þér gengur til
að gefa ndir fótinn.